Morgunblaðið - 11.08.1985, Síða 2
2
MORGUNBLAPIÐ, SUNNUDAGUR 11. ÁGCST 1985
Ríkið stofn-
ar hlutafélag
til að selja
sérþekkingu
STOFNAÐ hefur verið hlutafélag
til að selja erlendis sérþekkingu
Orkustofnunar á rannsóknum,
vinnslu og notkun jarðhita, vatns-
orkurannsóknum og áætlanagerð í
orkumálum. Ríkið er einn hluthafí
og á að leggja til félagsins tólf
milljónir króna á næstu þremur ár-
um.
Félagið tekur við því starfi,
sem Orkustofnun hefur unnið
m.a. í samstarfi við Verkfræði-
samsteypuna Virki hf. til að skila
tilboði í jarðhitaverkefni í
Grikklandi, en þessir aðilar
vinna nú saman að tveimur slík-
um verkefnum í Grikklandi.
í stjórn félagsins eru Jónas
Elíasson prófessor, Valdimar K.
Jónsson prófessor og Þóroddur
Th. Sigurðsson verkfræðingur,
og hefur iðnaðarráðherra falið
þeim að leita eftir sem víðtæk-
ustu samstarfi við innlenda og
erlenda aðila um verkefni félags-
ins.
Áburðarverksmiðjan:
Enginn samn-
ingafund-
ur boðaður
YERKFALL iðnaðarmanna í
Áburðarverksmiðjunni skall á á
miðnætti í fyrrinótt. Enginn nýr
samningafundur hefur verið
boðaðar, en ríkissáttasemjari
mun ætla að athuga með sátta-
fund eftir helgi. Verkfallið nær
til rafvirkja, trésmiða og járn-
iðnaðarmanna, sem séð hafa um
viðhald. Verksmiðjan mun
stöðvast vegna þessa strax og
bilanir verða í henni.
40.000 hafa
séð A View
to a Kill
A VIEW TO A KILL, nýjasta James
Bond-myndin, hefur nú verið sýnd í
Bíóhöllinni í 6 vikur. Að sögn Árna
Samúelssonar, forstjóra Bíóhallar-
innar, hefur aðsókn að myndinni
verið mjög góð og hafa nú um 40.000
manns séð hana. Yfír 10.000 manns
sáu myndina fyrstu vikuna og er það
mesta aðsókn sem verið hefur að
einni mynd á einni viku í Bíóhöllinni
hingað til.
A View to a Kill er nú sýnd í
B-sal Bíóhallarinnar og sagðist
Árni búast við því að hún yrði
sýnd lengi enn, þar sem sýna á
myndina í sölum 3,4 og 5.
Árni sagði að þetta væri best
sótta James Bond-myndin til
þessa og sömu sögu er að segja um
aðsókn að myndinni í öðrum lönd-
um.
ÍDAG
Meðal efnis í blaðinu í dag er:
Útvarp/sjónvarp.... 6
Dagbók................... 8
Fasteignir............ 9/19
Leiðari................. 28
Reykjavíkurbréf.... 28/29
Myndasögur......... 31/32
Peningamarkaður.... 30
Raðauglýsingar..... 40/50
íþróttir............. 54/55
Fólk í fréttum.....30B/31B
Dans/bíó/leikhús.... 32B/35B
Velvakandi..........36B/37B
Menning/listir.....
Unnið við breytingar á Hressingarskálanum f gær.
„Hressó" opnar í nýjum búningi eftir 10 daga
morgunDiaoio/ Bj»rni
„VIÐ lokuðum Hressingarskálan-
um í gær því nú ætlum við að taka
þriðja og síðasta salinn í gegn og
reiknum með að opna aftur eftir 10
daga í nýjum búningi," sagði Einar
Sigurjónsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Hressingarskálans í
Austurstræti, í samtali við Morg-
unblaðið.
„Tveir salir Hressingarskálans
eru tilbúnir, nema hvað eftir er að
ganga lítilhátUr frá og setja upp
borð og stóla. Lagt verður upp úr
fínni matseðli á kvöldin með fullri
þjónustu en léttum réttum í hádeg-
inu með hálfri þjónustu.
Einar sagði að í salnum, sem nú
er verið að Uka í gegn, yrði lögð
áhersla á kaffíaðstöðu eins og áð-
ur. „Öll gólfin hafa verið parket-
lögð og laus borð verða sett upp í
stað gömlu bekkjana."
Þorsteinn Guðnason hagfræðingur Fjárfestingarfélagsins:
Oréttmætt að láta uppi
efnisatriði í tilboði Birkis
Metur söluverðið á sexfalt nafnverð hlutabréfanna
„ÞAÐ VORU vissulega óæskileg
vinnubrögð að efni tilboðsins skyldi
hafa lekið svona út og ekki réttmætt
gagnvart þeim manni sem hafði þegar
boðið í hluUbréfín,“ sagði Þorsteinn
Guðnason hagfræðingur hjá Fjárfest-
ingarféiagi Islands f samtali við
Morgunblaðið í gær um sölu hluU-
bréfa ríkisins í Flugleiðum. Þorsteinn
sagði að markmið Fjárfestingarfélags-
ins hefði verið að sUnda á allan hátt
faglega að sölunni og þar hefði mikil
leynd hvflt yfir öllu saman. Hann
sagðist ekki viU hvaðan efnisatriði úr
tilboði Birkis Baldvinssonar hefðu
lekið út, en það hefði verið eftir að
tilboðið var kynnt á rfkisstjórnar-
fundi, og það hefði ekki verið réttlátt
gagnvart þeim manni sem gerði til-
boðið.
Þorsteinn sagðist hafa hringt til
sonar Birkis Baldvinssonar á föstu-
daginn til að segja þeim frá þvf að
annað tilboð hefði borist, án þess að
greina frá innihaldi þess, en Birkir
hefði ákveðið að halda sig við sitt
fyrra tilboð. Hann sagði að Fjár-
festingarfélagið hefði lagt til annað
fyrirkomulag á sölu hlutabréfa
rikisins en farin var. Þó væri ekkert
óeðlilegt við þá leið sem fjármála-
ráðherra hefði valið, hún tiðkaðist
við sölu ýmissa eigna. Bjóst hann
við að þeim sem hygðu á kaup á
hlutabréfum ríkisins f Eimskip og
RAFHA .yrði f ljósi fenginnar
reynslu ráðlagt að hafa þröngan til-
boðsfrest á tilboðum sínum.
Forráðamenn Flugleiða telja sig
hafa keypt hlutabréfin á 4,5 földu
nafnverði miðað við sennilega verð-
bólguþróun á þeim átta árum sem
eftirstöðvar kaupverðsins greiðast
á en eftirstöðvarnar eru vaxUlaus-
ar og óverðtryggðar. Þorsteinn
Guðnason vildi ekki leggja dóm á
þessa útreikninga Flugleiða, en
sagði að menn gætu fengið út nán-
ast hvaða tölu sem er með því að
gefa sér mismunandi forsendur.
Hann sagðist telja að söluverð bréf-
anna væri liðlega 6 falt nafnverð á
núvirði og miðaði hann þá við
breytilega verðbólgu, 30% nú og
stiglækkandi á þeim átta árum sem
kaupverðið greiðist á. Hann sagði
að það væri í samræmi við það sem
Fjárfestingarfélagið hefði talið lfk-
legasta hagrænt verðgildi hluU-
bréfanna, en eins og kunnugt er
voru niðurstöður mats Fjárfest-
ingarfélagsins á hluUbréfunum
þau að 6 falt nafnverð væri líkleg-
asU hagrænt verðgildi þeirra, 9 falt
væri hæsta verðgildi og 4 falt
lægsU hagrænt verðgildi. Hann
sagði að aðalatriði málsins væri þó
það að tvö tilboð hefðu borist í
hlutabréfin og tilboð stjórnar
Flugleiða óvéfengjanlega hærra.
Einar og Jóhannes
í stjórn Flugleiða
TVEIR af þremur kjörnum vara-
mönnum f stjórn Flugleiða, Einar
Árnason fyrrverandi flugstjóri hjá
Loftleiðum og Jóhannes Markússon
fíugstjóri hji Flugleiðum, taka að lík-
indum sæti í stjórn Flugleiða í stað
fulltrúa ríkisins.
Albert Guðmundsson fjármála-
ráðherra sagði að í kjölfar sölu
rfkisins á hlutabréfum í Flugleiðum
myndu fulltrúar ríkisins væntan-
lega hverfa úr stjórninni og Sigurð-
ur Helgason stjórnarformaður
Flugleiða sagði að kjömir vara-
menn myndu taka sæti þeirra og
sitja til næsta aðalfundar. Full-
trúar ríkisins í stjórninni eru: Sig'
urgeir Jónsson aðstoðarbankastjóri
Seðlabanka íslands og Kári Ein-
arsson verkfræðingur. ólafur ó-
Johnson forstjóri er þriðji vara-
maðúr í stjórn Flugleiða.
EM í sundi:
Eðvarð í úrslit
— 13. besti tími í heiminum í ár
EÐVARÐ ÞÓR Eðvarðsson setti enn eitt fslandsmetið í Evrópumótinu í
sundi sem fram fer í Sofíu í Búlgarfu. Eðvarð synti 100 m baksund á 58,30
sekúndum sem var sjötti besti tíminn i mótinu og er 13. besti tíminn f
heiminum. Eðvarð komst í A-riðil úrslita sundsins og átti að keppa í honum
seint í gærkvöldi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Eð-
varð tekst að synda 100 m bak-
sund undir einni mfnútu í fimm-
tíu metra laug og jafnframt er
þetta besti tfmi Norðurlandabúa
á þessu ári. Hann var f mjög
sterkum riðli en meðal keppi-
nauta hans var heimsmeistarinn
sjálfur og Svii einn sem Eðvarð
hefur oftast tapað fyrir. Að þessu
sinni sigraði Eðvarð þó Svfann og
þess má geta að aðeins einn
V-Evrópubúi varð á undan hon-
um, hinir fjórir eru allir frá
A-Evrópu.
Ragnheiður Runólfsdóttir setti
einnig fslandsmet er hún synti
200 m fjórsund á 2 mín. 30,65 sek-
úndum. Eldra metið átti hún sjálf
og var það 2:31,71.
Þriðji Islendingurinn keppti
einnig í gær. Það var Ragnar
Guðmundsson sem synti 1500 m
skriðsund. Honum tókst ekki að
setja fslandsmet, synti á 16:39,98
sem er aðeins 6 sekúndum frá
metinu.
Eðvarð keppir f dag f 200 m
fjórsundi og er það síðasta grein-
in sem fslendingarnir keppa f á
þessu móti. Hinir íslensku kepp-
endurnir hafa lokið keppni og
Eðvarð Þór Eðvarðsson hefur
staðið sig mjög vel á Evrópumótinu
í sundL í gær setti hann enn eitt
fslandsmetið og náði um leið 13.
besta tfmanum í 200 m baksundi á
þessu ári.
hópurinn kemur heim aðfaranótt
þriðjudags. íslensku þátttakend-
urnir hafa alls sett nfu fslands-
met í þessari keppni.