Morgunblaðið - 11.08.1985, Qupperneq 22
m
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1985
,, , . ,, ' ; % m i.'j 11 jij y }' rrrr
llt frá því Reag-
Aan tók við emb-
ætti hefur hann
forðazt að
skipta sér af
smáatriðum og
einbeitt sér að
mikilvægustu
málum og ákvörðunum. Þvi er
sagt að stjórnarstörfin hafi
virzt ganga mjög eðlilega fyrir
sig.
Donald T. Regan starfs-
mannastjóri sagði að úr því að
forsetinn hefði þurft að fara í
uppskurð hefði ekki verið hægt
að velja betri tíma til þess en
nú. Hann benti á að áður hefði
verið ráð fyrir því gert að for-
setinn dveldist í þrjár vikur í
ágúst á búgarði sínum í Kali-
forníu.
Larry Speakes blaðafulltrúi
og aðrir starfsmenn Hvíta húss-
ins hafa viljað koma í veg fyrir
allar vangaveltur um að aðgerð-
in muni hafi varanleg áhrif á
störf Reagans. Þeir flýttu sér
t.d. að tilkynna að Reagan
mundi hitta Mikhail Gorbachev,
hinn nýja leiðtoga Sovétríkj-
anna, í nóvember eins og ráð-
gert hefði verið.
MIKIÐ ÁLAG
Hins vegar bendir brezka
blaðið Observer á að það verði
mikið líkamlegt og andlegt álag
fyrir 74 ára gamlan mann að
þurfa að fara oft í læknisskoðun
það sem eftir er af síðara kjör-
tímabili hans.
Læknir Reagans, Steven Ros-
enberg, hefur sagt að forsetinn
sé með krabbamein og að ná sér
eftir uppskurð er allt annað en
að sigrast á krabbameini. Lækn-
ar hafa sagt að þeir telji aðeins
„rúmlega 50% líkur" á því að
forsetinn eigi meira en fimm ár
eftir ólifuð. Rosenberg þótti
komast óvarlega að orði og
starfsmenn Hvíta hússins hafa
reynt að draga úr áhrifum
þeirra.
New York Times segir að
jafnvel þótt allt gangi að óskum
muni Reagan, fjölskylda hans,
bandaríska þjóðin og banda-
menn hennar hafa stöðugar
áhyggjur af heilsufari hans upp
frá þessu.
Hart verður lagt að starfs-
mönnum Hvíta hússins að skýra
frá niðurstöðum læknisskoðana
þeirra, sem hann verður að fara
í. Ef þeir neita að gera það geta
skaðlegar sögusagnir haft al-
varleg áhrif í bandarískum
stjórnmálum, efnahagsmálum
og utanríkismálum.
Enn sem komið er bendir flest
til þess að talsmenn forsetans
ætli að segja sem minnst á
þeirri forsendu að hann eigi rétt
á að fá að vera í friði með sjúk-
dóm sinn. En ef þeir samþykkja
að segja frá niðurstöðum lækn-
isskoðananna getur það einnig
haft skaðleg áhrif, ef niðurstöð-
ur þeirra verða ekki í alla staði
jákvæðar.
Ef svo illa fer að ekki reynist
unnt að halda sjúkdómnum í
skefjum telur Observer að svo
kunni að fara að Reagan muni
reynast erfitt að gegna embætti
forseta þar til kjörtímabili hans
lýkur.
Pólitísk áhrif veikinda Reag-
ans eru óútreiknanleg. Eftir að
forsetanum var sýnt banatil-
ræði fyrir fjórum árum tókst
honum að fá þingið til þess að
draga úr ríkisútgjöldum. Eftir
uppskurðinn var hins vegar sagt
að ekki yrði reynt að nota þá
samúð, sem forsetinn hefði
fengið, á svipaðan hátt, t.d. til
þess að tryggja samkomulag um
fjárlög og fá frumvarp hans um
Reagan og frú eftir heimkorauna til Hvíta búasins.
Áhrifin geta orðið varanleg
og valdabaráttan virðist blasa við
Síðan Ronald Reagan kom aftur til
Hvíta hússins eftir uppskurðinn hef-
ur hann virzt merkilega hraustlegur,
en uppskurðurinn hefur þó vakið
ymsar spurningar um heilsufar hans
og embættisstörf hans upp frá þessu.
Reagan verður að draga úr afköstum,
a.m.k. í tvo mánuði meðan hann er
að ná sér. Samstarfsmenn hans
munu taka eins margar ákvarðanir
og þeim verður unnt án þess að snúa
sér til hans, ef þeir eru sammála. Ef
ágreiningur kemur upp f slíkum til-
fellum munu þeir leggja málið fyrir
forsetann og verða eins gagnorðir og
þeir geta.
stjórnandi. Ef hann þarf að
greina forsetanum frá kostum,
sem um er að velja, er sagt að
hann sé mjög gagnorður. Talið
er að enn sé ekki komið í ljós
hve vel hann stendur sig í starfi.
Regan hefur losað sig við
nokkra starfsmenn síðan hann
tók við stjórn starfsmannahalds
Hvíta hússins. Nú síðast rak
hann fjárlagastjórann, David
Stockman, voldugasta andstæð-
ing sinn, og fékk Reagan til að
skipa íhaldssaman hagfræðing,
James Miller, í hans stað. Aðrir,
sem eitt sinn voru nánir ráðu-
nautar Reagans, hitta hann
sárasjaldan.
Regan nýtur hvergi nærri eins
mikilla vinsælda og Reagan.
Honum er talið betur lagið að ná
undir sig völdum en beita þeim
með árangri.
Þegar Reagan var í sjúkra-
húsinu vakti athygli að Regan,
en ekki Bush varaforseti, hvatti
opinberlega til samkomulags
um fjárlögin. Það var til marks
um áhrif Regans að þegar Bush
fór loksins til sjúkrahússins til
að heimsækja Reagan, fjórum
dögum eftir að forsetinn var
fluttur þangað, var Regan einn-
ig viðstaddur.
Fréttir um spennu í samskipt-
um þessara tveggja manna hafa
fengið byr undir báða vængi en
Bush og aðrir hafa vísað þeim á
bug. Bush hefur gætt þess vand-
lega að láta ekki líta út fyrir að
hann reyni að hagnast á veik-
indum forsetans til þess að auka
möguleika sína á því að verða
valinn forsetaframbjóðandi
repúblikana 1988 og hefur látið
fara lítið fyrir sér.
BUSH VALDALÍTILL
Lítil völd fylgja varaforseta-
embættinu, þótt sá sem því
gegnir taki við embætti forseta
ef forsetinn fellur frá. Ef Reag-
an nær aftur fullum bata virðist
að möguleikar Bush á því að
hljóta útnefningu í forsetafram-
boð verði minni en áður.
Bush virðist hafa haft lítið
meira að gera en venjulega, þótt
honum væri falið að fara með
vald forseta í níu klukkutíma og
hafi komið fram fyrir hönd for-
setans við formleg tækifæri.
Fréttaritari Spectator i
Washington segir að jafnvel
Jaraea C. Miller:
tekur viö af Stockman.
Bush eftir heimsókn til forsetsns:
letur Ktiö á sér bera.
Reagan ræöir viö Bush varaforseta
og Regan starfsmsnnsstjóra.
breytingar á skattalögunum
samþykkt.
ÁHRIF REGANS
Þegar fram í sækir verða mik-
ilvægustu áhrifin sennilega þau
hvernig starfinu í Hvíta húsinu
verður hagað. Donald Regan
hefur verið tengiliður forsetans
við umheiminn síðan hann hóf
þar störf fyrir nokkrum mánuð-
um og verður það áfram. Hann
ræður því hverja hann ræðir við
og hvaða gögn hann fær og áhrif
hans hafa aukizt jafnt og þétt. 1
raun fer Regan með vald forseta
meðan Reagan er að ná sér, en
ekki George Bush varaforseti.
Margt er líkt með forsetanum
og Regan, sem er stórauðugur,
en af fátæku fólki kominn. Faðir
hans var járnbrautastarfs-
maður í Massachusetts. Sjálfur
er hann mjög íhaldssamur og
gagnstætt Reagan er hann harð-
fylginn og stundum skapvondur
þegar allt hafi leikið í lyndi hafi
verið uppi efasemdir um það hve
mikil völd Reagans séu í raun og
veru í Hvíta húsinu. Meðan for-
setinn sé að ná sér og á mörgum
„fridögum" hans, sem framvegis
verði óhjákvæmilegir, verði for-
ysta hins frjálsa heims í hönd-
um örfárra embættismanna,