Morgunblaðið - 11.08.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1985
23
Hestamannamót
Storms á Söndum
Gustur, knapi Jóhann Bragason, hefur sigraó þrisrar sinnum { röð í A-flokki
gæóinga.
Frímann, knapi Gísli Einarsson, hefur sigrað þrisrar sinnum í röð í B-flokki
sem keppi innbyrðis og séu ekki
kjörnir í kosningum.
Hann spáir valdabaráttu og
segir að Regan reyni nú þegar
að bægja burtu hægrisinnuðum
ráðgjafa forsetans, Patrick
Buchanan. Bush eigi fullt í fangi
með að koma til greina og frú
Nancy Reagan, sem mikið hvíli
á, sé orðin „hlédræg". Hann seg-
ir að slík togstreita eigi eftir að
magnast, jafnvel þótt forsetinn
taki aftur við „venjulegum
störfum", sem þó séu svo um-
fangsmikil að þau mundu reyna
mikið á miklu yngri mann.
Athygli vakti að starfsmenn
Hvíta hússins reyndu að gera
sem minnst úr því að Bush var
falið að fara með forsetavald,
þótt slíkt hefi aldrei gerzt áður í
sögunni. Þess vegna kom
„ógætni" Rosenbergs læknis sér
mjög illa fyrir ráðunauta Reag-
ans. Rosenberg er þekktur fyrir
að vera mjög sjálfstæður og læt-
ur ógjarnan segja sér fyrir verk-
um. Hann tók líka svipaða af-
stöðu og margir aðrir læknar
þegar líkt stendur á.
MARGT Á HULDU
Margt er enn á huldu um veik-
indi forsetans. Til dæmis hefur
ekki verið skýrt frá því hvers
vegna hann fór ekki I rannsókn í
maí í fyrra, þegar fyrst fannst
LARRY SPEAKES:
bjartsýni
ROSENBERG:
hreinskilinn
æxli við venjulega læknisskoð-
un.
Blöð sögðu frá því þá að Reag-
an þyrfti e.t.v. að fara í aðra
aðgerð og að margir læknar
furðuðu sig á því hvers vegna
hann hefði ekki gert það.
Áhyggjum þeirra var haldið
leyndum meðan á kosningabar-
áttunni stóð.
Fréttaritari brezka blaðsins
Spectator kvaðst hafa varpað
fram þeirri spurningu í fyrra-
sumar hvers vegna starfsmenn
Hvíta hússins væru svo bjart-
sýnir á heilsufar forsetans.
Hann kveðst hafa gefið í skyn að
forsetinn og ráðunautar hans
hafi vísvitandi frestað nauð-
synlegri aðgerð, þar sem beir
teldu að hún mundi spilla fyrir
möguleikum hans á því að ná
endurkjöri í fyrrahaust. Þessu
hafa ráðunautar Reagans visað
eindregið á bug.
Með þessu segir fréttaritarinn
að forsetinn kunni að hafa fært
mikla sjálfsfórn, en tæplega
hafi verið farið eftir réttum
leikreglum gagnvart banda-
rískum kjósendum, sem fengu
að sjá ótal myndir af honum á
hestbaki, á gangi úti í skógi eða
að leik í flæðarmálinu.
Læknisfræðilegar skýringar
kunna að vera til á þögninni um
heilsufar forsetans að sögn
Observer. Til dæmis er vitað að
Daniel Ruge, fv. læknir Reag-
ans, taldi Reagan óvenjulega
heilsuhraustan mann. En vitað
er að þegar æxlið kom í ljós í
læknisskoðuninni í fyrra hafði
forsetinn ekki farið í allsherj-
arrannsókn í tvö og hálft ár.
Það hefur einnig vakið furðu
að Reagan fór ekki í ristilskoðun
þegar annað æxli fannst í marz
á þessu ári. Að minnsta kosti
einn læknir hvatti eindregið til
þess að það yrði þegar í stað
gert, en fjórir mánuðir liðu án
þess að nokkuð gerðist. Sú skýr-
ing var gefin að forsetinn ætti
erfitt með að koma því við að
fara í slíka skoðun vegna anna.
HVAÐ TEKUR VIÐ
Fréttaritari Spectator óttast
að fundur Reagans og Gorbach-
evs í haust geti orðið auðmýkj-
andi fyrir forsetann. Forsetinn
muni eiga í höggi við þróttmik-
inn mann, en sjálfur verða að
hugsa sífellt um heilsuna. Hann
segir að fyrirgefa megi Reagan
að hafa sótzt eftir endurkjöri í
fyrra í stað þess að fara í að-
gerð, en bætir við: „Hann ætti
að firra okkur meiri vandræðum
með því að segja af sér núna.“
Reagan:
ræður nú mestu
Fréttaritari Economist segir
hins vegar að Reagan muni
reynast auðveldara en flestum
öðrum stjórnmálaleiðtogum að
„ríkja um skeið án þess að
stjórna", þar sem hann eigi svo
auðvelt með að stjórna með
þeim hætti að veita öðrum um-
boð og dreifa ábyrgðinni. Hann
bendir einnig á að forsetinn hafi
verið miklu fljótari að ná sér
eftir tilræðið um árið en búizt
hafði verið við og vitnar í Alan
Simpson öldungadeildarmann:
„Hann stendur sig langbezt þeg-
ar hann er í símanum."
Hvað sem þessu líður mun
Reagan forseti halda áfram að
taka mikilvægustu ákvarðanir,
en Donald Regan eiga frum-
kvæðið að mótun stefnunnar
þangað til forsetinn kemur aftur
frá Kaliforníu. Mörg vandamál
bíða úrlausnar og erfiðir tímar
eru framundan. Vera má að
samúð sú, sem forsetinn hefur
fengið, komi honum ekki að full-
um notum, ef hann verður ekki
nógu þrekmikill til að beita
valdi sínu af öryggi.
GH tók saman.
Bolungarvík, 6. ágúst
Hestamannafélagið Stormur hélt
sitt árlega hestamannamót á Sönd-
um í Dýrafirði dagana 12. og 13. júlí.
Fyrri dag mótsins var keppt í undan-
rásum kappreiða, unglingakeppni og
töltkeppni og um kvöldið voru kyn-
bótahross dæmd af Þorkeli Bjarna-
syni. Meðdómendur voru þeir Benj-
amín Oddsson, Flateyri og Þorkell
Þórðarson, Þingeyri. Þorkell Bjarna-
son gat þess er hann lýsti dómum að
Vestfirðingar væru greinilega á eftir
öðrum landshlutum í ræktun hrossa.
Að morgni síðari dags mótsins voru
dæmdir A- og B-flokkar hesta og eft-
ir hádegi var mótssetning, sem hófst
með hópreið hestamanna inn á móts-
svæðið. Formaöur félagsins, Bragi
Björgmundsson, flutti setningar-
ávarp og séra Gunnlaugur Garðars-
son stjórnaði helgistund. Að því
loknu hófst venjubundin dagskrá
sem lauk með kappreiðum.
Hestamannafélagið Stormur er
félag hestamanna í Vestur-Barða-
strandarsýslu og Vestur- og
Norður-ísafjarðarsýslu. Félagið
hefur undanfarin ár haldið hesta-
mannamót á Söndum í Dýrafirði
og hefur verið ákveðið að þar verði
byggt upp framtíðarvallarsvæði
félagsins. Úrslit Stormsmótsins
1985 urðu sem hér segir:
A-flokkur
1. Gustur. Eink. 8,00. Eig. Bragi
Björgmundarson Bolv. Knapi Jó-
hann Bragason.
2. Víkingur. Eink. 7,89. Eig. Hálfdán
Ingólfsson Bolv. Knapi Hálfdán Ing-
ólfsson.
3. Geysir. Eink. 7,74. Eig. Gísli Ein-
arsson Bolv. Knapi Gísli Einarsson.
Við endurröðun í A-flokki breytist
röð þriggja hesta ekkert.
B-flokkur
1. Frfmann. Eink. 8,47. Eig. Gísli Ein-
arsson Bolv. Knapi Gísli Einarsson.
2. Sóti. Eink. 8,35. Eig. Sigmundur
Þorkelsson Bolv. Knapi Sigmundur
Þorkelsson.
3. Ástríkur. Eink. 8,24. Eig. Friðrik
Andersen Barðas. Knapi Helgi H.
Jónsson.
í endurröðun í B-flokki varð Sleipnir
frá Bakka, Dýrafirði, eigandi: Svanberg
Gunnlaugsson. Knapi Ragnar Ó. Guð-
mundsson í 3. sæti. Sleipnir hafði hlot-
ið einkunina 8,19 f dómi. Endanleg röð i
B-flokki: 1. Frímann, 2. Sóti, 3. Sleipn-
ir.
Töltkeppni
1. Frfmann. Eink. 8,63. Eig. Gfsli Ein-
arsson Bolv. Knapi Gísli Einarsson.
2. Ljósfari. Eink. 8,40. Eig. Bjarni Sig-
urðsson Hfn. Knapi Bjarni Sigurðs-
son.
3. Stór-Stjarni. Eink. 8,27. Eig. Guð-
mundur Helgason Isaf. Knapi Jör-
undur Jökulsson.
Erindi um
íslenzka
hesta
í Alaska
DR. WILLIAM B. Collins frá há-
skólanum í Fairbanks í Alaska mun
halda fyrirlestur um reynslu sína af
íslenskum hestum í Alaska í fund-
arsal Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins mánudaginn 12. ágúst kl.
10.30 árdegis.
Dr. William B. Collins hefur
skrifað nokkrar greinar í erlend
visindatímarit um íslenska hesta i
Alaska. Má þar m.a. nefna „The
Introduction and Suitability of
Icelandic Horses in Northwestern
Alaska“ sem birtist í „Agroboreal-
is“ í janúar 1984 og „Performance
of Icelandic Horses in Northwest-
ern Alaska“ sem birtist í „Range-
lands“ í desember 1984.
Erindið er haldið á vegum Bún-
aðarfélags fslands og Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins og er
öllum heimill aðgangur.
gæðinga.
1 endurröðun færðist Stór-Stjarni
upp f 2. sæti og í 3. sæti hafnaði Dropi.
Eigandi og knapi Jón Guðni Guð-
mundsson Bolv. Dropi hafði hlotið í
dómi einkunnina 8,23. Endanleg röð i
töltkeppninni: 1. Frímann, 2. Stór-
Stjarni, 3. Dropi.
Unglingakeppni 13—15 ára
1. Bára Eliasdóttir Isafirði á Þrym.
Eink. 7,66.
2. Garðar Kristjánsson Þingeyri á
Sprota. Eink. 6,96.
3. Jóna G. Hreinsd. Auök. Arnarf. á
Syrpu. Eink. 6,62.
Unglingakeppni 12 ára og yngri
1. Astmar Ingvarsson Bolungarv. á
Glað. Eink. 8,14.
2. Helga J. Andrésd. Þingeyri á Eld.
Eink. 8,07.
3. Dofri Jónsson Húsat. Dýraf. á Berki.
Eink. 7,95.
300 m stökk
1 Hetja. Tfmi 23,5. Eig. Katrín Pét-
ursdóttir, Hvammi, Barðastr. Knapi
Katrfn Pétursdóttir.
2. Ljósfari. tími 23,7. Eig. Bjarni Sig-
urðsson Hafnarf. Knapi Bjarni Sig-
urðsson.
3. Ástríkur. Tími 23,9. Eig. Friðrik
Andersen Barðas. Knapi Helgi H.
Jónsson.
250 m stökk
1. Mósa. Tfmi 20,7. Eig. Helgi H. Jóns-
son Barðast. Knapi Helgi H. Jóns-
son.
2. Blakkur. Tfmi 21,1. Eig. Theódóra
Ragnarsd. Brjánsl. Knapi Viktor
Guðný Ásgeirsdóttir, píanóleikari,
og Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, klar-
inettleikari, halda tónleika á Kjar-
valsstöðum mánudaginn 12. ágúst
nk., kl. 20.30.
A efnisskránni eru verk eftir
Tadeuz Baird, Claude Debussy, Jó-
hannes Brahms, Withold Lutosl-
Pálsson.
3. Litla-Stjarna. Tími 22,0. Eig. Ragn-
ar Guðmundsson Brjánsl. Knapi
Bjarni Sigurðsson.
300 m brokk
1. Funi. Tfmi 38,5. Eig. Kristinn Jón-
asson Þingeyri. Knapi Kristinn Jón-
asson.
2. Sleipnir. Tfmi 41,6. Eig. Svanberg
Gunnlaugs. Þingeyri. Knapi Svan-
berg Gunnlaugs.
3. Faxi. Tfmi 42,0. Eig. Jóna Krist-
jánsd. Alv. Dýraf. Knapi Viktor
Pálsson.
150 m skeið
1. Elías. Tími 16,8. Eig. Einar Þor-
steinsson Bolv. Knapi Gfsli Einars-
son.
2. Drottning. Tfmi 19,1. Eig. Helgi H.
Jónsson Barðast. Knapi Helgi H.
Jónsson.
3. Freysting. Tími 26,0. Eig. Rögnvald-
ur Ingólfs. Bolv. Knapi Jörundur
Jökulss.
250 m skeið
1. Hreggur. Tími 26,2. Eig. Rögnvaldur
Ingólfs. Bolv. Knapi Jörundur Jök-
ulsson.
2. Elías. Tími 27,9. Eig. Einar Þor-
steinsson Bolv. Knapi Gfsli Einars-
son.
3. Ámundi. Tími 30,0. Eig. Helgi H.
Jónsson Barðast. Knapi Helgi H.
Jónsson.
Knapaverðlaun hlaut Gfsli Einars-
son, Bolungarvik, og glæsilegasti hest-
ur mótsins var valinn Ástrfkur, eigandi
Friðrik Andersen, Barðast.
awsky og Igor Strawinsky.
Guðný Asgeirsdóttir stundaði
nám í píanóleik og tónlistarfræð-
um við tónlistarskólann í Vínar-
borg og Jón Aðalsteinn Þorgeirs-
son lauk prófi frá sömu stofnun nú
i vor.
Leika á Kjarvalsstöðum