Morgunblaðið - 11.08.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1985
Tækni próf. Illesarovs
er betri og ódýrari
— eftirÓskar
Einarsson
Eins og lesendum Morgunblads-
ins er kunnugt hefur Helgi Óskars-
sonar, sem nú er 16 ára gamall,
gengizt undir sérsUeðar aðgerðir hjá
prófessor G. Ilesarov í Kurgan í
Sovétríkjunum til að lengja l*r- og
fótleggi. Þessar aðgerðir hafa borið
þann árangur að Helgi hefur htekk-
að um 35 sm. Helgi er nú á lorum
með foður sínum, Oskari Einarssyni,
til Kurgan. Þar gengst Helgi undir
aðgerðir á upphandleggjum, en ráð-
gert er að lengja þá um 10 til 11 sm.
Að sögn Óskars Einarssonar hefur
meðferðarbúnaður, eins og prófess-
or Ilersavo notar, begar verið pant-
aður til íslands. Óskar hefur sent
Morgunhlaöinu eftirfarandi grein.
„Hver er snilldin, þ.e. kostirnir,
við tækni prófessors G. Ilesarovs?
Höfuðkosturinn er sá, hve létt er
að vinna með tæknibúnaðinum,
vegna einfaldleika hans. Tækið
virkar 360 gráður. Það er auðvelt
fyrir hæfa lækna að koma því
fyrir við almenn beinbrot á útlim-
um. Grannir „spíssar" eða stál-
þræðir (2,5 mm) auðvelda að koma
tækinu fyrir við erfið beinbrot.
Eftir að búið er að koma tækinu
(tæknibúnaði) fyrir er vinnulagið,
eftirleikurinn, traustur. Tökum
sem dæmi fótbrot. Samdægurs og
aðgerð er gerð ber að stiga I fót-
inn. Þrýstingur á fótinn er aukinn
og ganga hefst næsta dag, 50—100
m. Síðan hefur sjúklingur fótaferð
daglangt með smáhvíldum. Öll
beinamyndun gengur mun betur.
Blóðrás, sinar og taugar hafast
betur við. Liðamót stirðna ekki.
Rúm eru eingöngu notuð til
svefns um nætur. Hjólastólar nær
aflagðir. Þegar ég var með Helga
son minn í lengingunum hjá pró-
fessor Uesarov gekk hann fjór-
brotinn í 7—8 mánuði. Það er því
ekki mikið mál fyrir mann með
eðlilega lengd útlima að ganga um
tví- eða þríbeinbrotinn í til þess að
gera stuttan tíma, eða 2—3 mán-
uði.
Það leitar nú oft á huga minn,
Óskar með syni sínum Helga, á spítalanum í Kurgan.
hver yrði sparnaðurinn við að
nýta tækni og búnað prófessors II-
esarovs hér á landi, þegar útlima-
beinbrot eiga í hlut. Það tekur
sjúkling allt að helmingi skemmri
tíma að vera starfhæfur á ný en
með eldri aðferðum, þ.e. gifsum-
búðum o.s.frv. Það væri fróðlegt ef
einhver, sem þessar línur les og
hefur tölfræðilegar heimildir hér
um, leitaði útkomu á því dæmi.
Hversu mörg beinbrot á útlimum
verða hérlendis á ári? Hvað gæti
tryggingar- og heilbrigðiskerfið
sparað með þessum nýjum aðferð-
um?
Kostir, sem fylgja aðferð pró-
fessors Ilesarovs: 1) mun betra er
að fylgjast með hvernig beinbrot
hefst við eftir aðgerð. 2) loft
kemst að öllum fætinum. 3) hægt
að röntgen-mynda fótinn hvenær
sem er.
Eg hefi fylgt syni mínum utan,
dvalið og starfað á spítala Iles-
arovs í tæp tvö ár. Eg tel það
skyldu mína að greina frá því hér
heima, hvernig þessi meðferð kom
mér fyrir sjónir, hvaða kosti hún
hefur og hvers vegna ég tel að hún
eigi erindi við heilbrigðiskerfið
hér.
Ég tel að slysadeild Borgarspít-
ala, svo dæmi sé tekið, hafi bæði
starfsmenntun (lækna) og starfs-
Prófessor G. IlleaaroT.
aðstöðu til að hefja þessar aðgerð-
ir hér á landi. Borgarspítalinn
mun og nýbúinn að ákveða kaup á
þeim tæknibúnaði, sem hér kemur
við sögu. Þess verður því vonandi
ekki langt að bíða að þróuð með-
ferðartækni prófessors Ilesarvos
verði nýtt á íslandi."
í miðið: Arena, dóttir Húaaeina Jórdaníukonungs, { meðferð í sjúkrahúsi
IllesaroTg.
Fákur og Ferðaskrífstofan Útsýn:
Hópferð á Evrópumeistara-
mót ísienskra hesta í Svíþjóð
NÍI ER endanlega ákveðin tilhögun
Evrópumeistaramóts íslenskra
hesta, sem fram fer á Tánga-heiði
við Várgárda í Svíþjóð dagana 15. til
18. ágúst nk. Tánga-heiði er 50 hekt-
ara svæði á fögrum stað um 70 km
frá Gautaborg og um 40 km frá
Borás. Aðstaða öll er hin besU fyrir
hestaþing, góður völlur, næg bíla-
stæði og góð snyrtiaðstaða. Búist er
við að þúsundir eða mögulega tug-
þúsundir Evrópubúa frá fjórtán
þjóðlöndum séu væntanlegir á mót-
ið.
Til nýjunga telst kynbótasýning
á mótinu, sem sýnir hve megin-
landsbúar eru komnir langt i
rætkun íslenskra hesta. í öllum
aðalgreinum mótsins verða
úrslitakeppnir.
Miðvikudagskvöldið 14. ágúst
verður móttökuhátíð, en daginn
eftir verða kynbótadómar og
hlýðnikeppni B.
Á föstudeginum verður svo
keppt i fimmgangi, fjórgangi,
skeiöi, og víðavangshlaupi. Á
laugardeginum verður úrslita-
keppni i hlýðniæfingum og kyn-
bótasýning um morguninn, en
mótið verður formlega sett kl. 12
þann dag. Eftir hádegi verður svo
töltkeppni og gæðingaskeið.
Dagskráin á sunnudag hefst
með úrslitakeppni i fimmgangi,
kynbótasýningu og úrslitakeppni i
fjórgangi, en eftir hádegi verður
skeiðkeppni, úrslitakeppni í tölti
og stórkostleg loka- og kveðjuat-
höfn.
Hestamannafélagið Fákur
skipuleggur hópferð á mótið i
samvinnu við Ferðaskrifstofuna
Útsýn og verður flogið til Kaup-
mannahafnar fimmtudaginn 15.
ágúst nk. Síðan verður ekið til
Helsingjaeyrar og farið með ferju
yfir til Sviþjóðar. Þar verður ekið
um hin blómlegu héruð
Suður-Sviþjóðar, sem leið liggur
til Borás. Þar verður dvalið i besta
hóteli bæjarins, Grand Sara.
Áætlunarbíllinn ekur síðan
hópnum á mótsstað á morgnana
og til baka um kvöldið, um hálf-
tíma akstur. Að mótinu loknu er
þeim sem vilja ekið til Kaup-
mannahafnar, þaðan sem þeir
fljúga heim, en stærsti hluti hóps-
ins fer á glæsihótelið Marienlyst á
Helsingjaeyri og dvelst þar í tæpa
viku. Siðan tvo daga á Hótel
Cosmopol í Kaupmannahöfn, áður
en þeir fljúga heim. Hægt er að
framlengja dvölina i Kaupmanna-
höfn i báðum tilvikum. Farar-
stjóri er Guðlaugur Tryggvi
Karlsson.
(Fréttatilkynning.)
Villist ekki
í frumskógi
tilboða!
Áhyggjulaus ávöxtun!
Hámarks ávöxtun
Engin bindiskylda
Enginn kostnaður
Óverðtryggð
veðskuldabréf
Verðtryggð
veðskuldabréf
Vantar veðskuldabréf
í sölu
ÁVOXTUN 8f
LAUGAVEG 97 - 101 REYKJAVlK - SÍMI 621660
Fjármálaráðgjöf -
Verðbréfamarkaður
Ávöxtunarþjónusta