Morgunblaðið - 11.08.1985, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1985
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
HELGA GÍSLADÓTTIR
fré Siglufiröi,
Stórageröi 20, Reykjavík,
lóst í Landspitalanum 2. ágúst sl. Jaröarförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju þriöjudaginn 13. ágúst kl. 13.30.
Bjarni Kjartansson,
Svanhildur Kjartansdóttir,
Ásthildur Kjartansdóttir,
Gísli Kjartansson,
Sigurjón Kjartansson,
Brynja Guömundsdóttir,
Bragi Einarsson,
Örnólfur Hall,
Edda Jónsdóttir,
Antje Tidemann.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
KRiSTÍN M. K ARLSDÓTTIR
frá Draflastöðum,
veröur jarösungin frá nýju kapellunni í Fossvogi miövikudaginn 14.
ágúst kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á minningar-
kort Hrafnistu.
Dómhildur Jónsdóttir,
Pétur Þ. Ingjaldsson,
Jón Hallur Pétursson,
Ingjaldur Pétursson,
Karl Ómar Jónsson,
Ólöf Stefénsdóttir,
Stefén Karlsson,
Kristín Karlsdóttir,
Björn Karlsson.
t
Eiginkona mín og móöir okkar.
JÓNÍNA ÞORBERGSDÓTTIR,
Eiríksgötu 13,
veröur jarösungin þriöjudaginn 13. ágúst kl. 13.30 i Bústaöakirkju.
Jens Hansson og synir.
+
Maöurinn minn, faöir okkar og tengdafaöir,
ÞÓRDUR ÁGÚST ÞÓRÐARSON,
Grenimel 44,
veröur jarösunginn frá Neskirkju þriöjudaginn 13. ágúst kl. 15.00.
Aðalheiöur Þorsteinsdóttir,
Heiðar Þ. Þóröarson, Hulda Guömundsdóttir,
Guörún J. Þóröardóttir, Ingvar Ásmundsson,
Þorsteinn V. Þóröarson, Kristín Tryggvadóttir,
Hlynur S. Þóröarson.
Faöir okkar, + ÞÓRÐUR EIRÍKSSON,
netageröarmeistarí,
Sæbraut 18, Seltjarnarneai,
veröur jarðsunginn mánudaginn 12. ágúst kl. 15.00 e.h. frá Foss-
vogskirkju. Unnur Þóröardóttir,
Eiríka Krístín Þóröardóttir.
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför
eiginmanns mins, fööur, tengdafööur og afa,
VALDIMARS LÁRUSSONAR,
Kirkjubœjarklaustri.
Guörún Ólafsdóttir,
Lérus Valdimarsson, Sólrún Ólafsdóttir,
Einar Ól. Valdimarsson, Jóhanna Siguröardóttir,
Elín Anna Valdimarsdóttir,
Haukur Valdimarsson, Hrefna Siguröardóttir,
Trausti Valdimarsson, Gréta Fr. Guttormsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum af alhug öllum þeim sem auösýndu okkur samúö og vinar-
hug viö andlát og útför eíginmanns míns, fööur okkar, fósturfööur
og tengdafööur,
ÞORSTEINS JÓHANNSSONAR
fré Búöardal,
til heimilis é Furugeröi 1,
Reykjavfk.
Guöríöur Guömundsdóttir,
Gyöa Þorsteinsdóttir, Guömundur Á. Bjarnason,
Siguröur Markússon, Inga Arnadóttir,
Halldóra Kristjénsdóttir, Hannes Alfonsson.
Friðbjörg Sigurðar-
dóttir — Minning
Fædd 8. desember 1907
Dáin 2. ágúst 1985
Þeim fækkar óðum samferða-
mönnum okkar, sem fæddust á
fyrstu árum aldarinnar og komust
á legg um leið og borgin okkar, sáu
höfuðstaðinn breytast úf bæ í
borg.
Skyndilega, án fyrirvara, var
klippt á lífsþráð einnar af dætrum
Reykjavíkur, Friðbjargar Sigurð-
ardóttur móðursystur minnar. Við
stöndum eftir hnípin, sorg og tóm-
leiki setjast að.
Friðbjörg fæddist í Sölvhól í
Skuggahverfinu, en eftir þeim bæ
er Sölvhólsgatan í Reykjavík
nefnd.
Foreldrar hennar voru Helga
Steingrímsdóttir frá Sölvhól og
Sigurður S. Straumfjörð, ættaður
frá Straumfirði á Mýrum, en hann
vann mestan hluta starfsaldurs
síns i pakkhúsi Eimskips við
Tryggvagötu. Friðbjörg ólst upp
hjá móður sinni og móðurfólki í
Sölvhól og síðar á Klöpp, en það
hús stóð niður við sjó, við enda
Klapparstígs, þar sem nú er bens-
ínstöð. Helga, móðir Friðbjargar,
var ekkja og átti fyrir eina dóttur,
Ásu Jónu, þegar Friðbjörg fædd-
ist. Ása Jóna lést rúmlega tvítug,
árið 1928.
Það má eiginlega segja að Frið-
björg hafi alist upp í stórfjöl-
skyldu þar sem mikil samheldni
ríkti. Frændsystkinin voru á svip-
uðu reki og nánast sem uppeldis-
systkini og bjuggu undir sama
þaki. Börnin hjálpuðu afa sínum á
Sölvhól við að breiða fisk og annað
sem til féll, en hann hafði fiskreit
niður við sjóinn, niður af Rauðar-
árstíg, þar sem nú hefur verið fyllt
upp.
Helga Steingrímsdóttir var
mikil dugnaðarkona, eins og hún
átti kyn til og miklir kærleikar
voru með þeim mæðgum.
Friðbjörg gekk í Barnaskólann í
Reykjavík, eins og Miðbæjarskól-
inn var þá nefndur, og að því námi
loknu tóku við þau störf, sem biðu
unglinga á þeim árum. En þegar
hún var nálægt tvítugu bauðst
henni að fara til Englands, þar
sem hún dvaldi i eitt ár í Brighton
á heimili íslenskrar konu og
bresks eiginmanns hennar. Sam-
tíða henni þar voru aðrar íslensk-
ar stúlkur og dvöldu þær þar í
góðu yfirlæti, hjálpuðu til við
heimilisstörf og barnagæslu.
Það er ekki að efa að dvölin er-
lendis víkkaði sjóndeildarhring
ungu stúlkunnar úr Reykjavík,
hún kynntist þar nýjum siðum og
lærði nýtt tungumál. En að dvöl-
inni lokinni hélt hún heimleiðis
með Gullfossi og varð sú ferð ör-
lagarík því þar kynntist hún til-
vonandi mannsefni sínu, Jóni
Jónssyni, sem þá var háseti um
borð. Er skemmst frá því að segja
að þau felldu hugi saman og
skömmu eftir fæðingu frumburð-
arins Ásu fluttu þau í íbúð í húsi
foreldra Jóns, þeirra Guðrúnar
Ásmundsdóttur og Jóns Bárðar-
sonar klæðskera, Njálsgötu 4 hér í
borg. Þar stóð heimili þeirra alla
tíð, og þar bjó hun eftir lát Jóns og
fram á dánardag. Helga móðir
hennar flutti með henni og dvaldi
hjá dóttur og tengdasyni alla tíð,
en hún lést árið 1968.
Það er óhætt að segja að Frið-
björg hafi dvalið alla sína ævi á
sama stað í Reykjavík, úr Skugga-
hverfinu færði hún sig niður á
KIöpp um tíma og síðan upp
Klapparstíginn og rétt nokkur
skref inn á Njálsgötuna. Hún var
líka mikið borgarbarn og borgin
var miðbærinn og næsta nágrenni.
Það var oft haft að gamanmál-
um í fjölskyldunni með þær hálf-
systurnar, Friðbjörgu og móður
mína Soffíu, að það kæmi yfir þær
leiði þegar þær færu inn fyrir Ell-
iðaárnar.
Jón eiginmaður Friðbjargar var
einstakur öðlingsmaður, hann
lauk prófi frá Stýrimannaskóla ís-
lands árið 1932 og var stýrimaður
á íslensku varðskipunum frá
1933—1947, en þá varð hann
skipherra og stjórnaði hinum
ýmsu varðskipum Landhelgis-
gæslunnar. Ferli sínum lauk hann,
sem skipherra á Ægi, en hann
varð að fara í land vegna veikinda,
sem drógu hann til dauða langt
fyrir aldur fram, hann lést í júní
árið 1970, rétt rúmlega sextugur
að aldri. Þau hjónin eignuðust
þrjú börn: Ásu, f. 1930, eiginmaður
hennar er Jóhann Gunnlaugsson
kaupmaður og eiga þau þrjá syni,
Jóhann Pétur brunavörður, fædd-
ur 1944, eiginkona hans er Guðrún
Filippusdóttir og eiga þau tvær
dætur, yngstur er Birgir Þór,
stýrimaður hjá Landhelgisgæsl-
unni, f. 1947, eiginkona hans er
Louisa Gunnarsdóttir og eiga þau
tvær dætur og einn son.
Elsta barnabarn þeirra Frið-
bjargar og Jóns, Jón Friðrik, heit-
inn eftir þeim, er kvæntur Guðrúnu
Geirsdóttur og eiga þau tvo syni,
svo þar er kominn vísir að þriðju
kynslóðinni frá þeim hjónum.
Það var jafnræði með þeim
hjónum Friðbjörgu og Jóni, bæði í
sjón og raun. Það hallaðist ekki á
með góðmennsku þeirra, þau voru
einstaklega vönduð til orðs og æð-
is, vildu öllum vel og svo mikil
snyrtimenni að eftir var tekið.
Þau voru samhent við að búa
börnum sínum það atlæti, sem
mest er um vert, á heimilinu ríkti
ró, reglusemi og góður andi, þang-
að var gott að koma, þar voru allir
velkomnir.
Handleiðslunni var beitt með
styrkri en mildri hendi. Börnin
þeirra, frændsystkini mín, bera
líka uppeldinu fagurt vitni og er
óhætt að segja að umhyggja eins
og sú er þau, makar þeirra og
börn, sýndu móður sinni alla tíð
og ekki síst nú síðustu árin, sé
vandfundin. Hún kunni vel að
meta hlýju og ástúð barna sinna
og annarra.
Friðbjörg móðursystir mín var
falleg kona, fram á síðustu ár hélt
hún reisn sinni og kvenlegum
þokka, þó vanheilsa síðustu ára
hafi markað sín spor. Hún til-
heyrði þeirri kynslóð Reykjavík-
ur-dama, sem ekki fóru út nema
uppábúnar með hanska og hatt, og
hún hélt þeim sið þrátt fyrir
breytta lífshætti nútímans. Állt,
sem hún kom nálægt var gert af
dæmafárri vandvirkni, hvort held-
ur var meðferð á persónulegum
munum, heimilistækjum, fatnaði
eða handavinnu. Hún gerði ekki
miklar kröfur fyrir sjálfa sig, en
hún naut þess að gefa og gleðja
aðra. Gjafir hennar voru valdar af
smekkvísi og natni, kom hún ekki
síst yngri meðlimum fjölskyld-
unnar oft á óvart með vali á gjöf-
um sínum.
Friðbjörg var kona ljúf í lund,
hæglát og lítið fyrir að láta á sér
bera en hún var glöð í góðra vina
hópi. Það stafaöi frá henni góðvild
og hlýja öllum leið vel í návist
hennar.
Það er oft lengra liðið á ævi-
skeið manna en ætla má, tíminn
útrunninn og lífi lýkur án þess að
hægt sé að kveðja og þakka fyrir.
Það er margs að minnast á
kveðjustund, Buddu minni þakka
ég ástúð og umhyggju mér sýnda
frá fyrsta degi og fram til hins
síðasta. Það er erfitt að sætta sig
við að eiga hana ekki lengur að,
betri móðursystur gat enginn
óskað sér. Minningar frá liðinni
tíð eiga eftir að verma hugann
ókomna ævidaga, þær verða ekki
frá okkur teknar. Það var alltaf
eitthvað svo fallegt að sjá þau
saman Friðbjörgu og Jón. Þannig
sé ég þau fyrir mér nú.
Það er gott góðra að minnast.
Blessuð sé minning þeirra beggja.
Bergljót Ingólfsdóttir
Útför Friðbjargar Sigurðardóttur var
gerð frá Hallgrímskirkju miðviku-
daginn 7. ágúsL
+ Útför móöur okkar, GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTUR, Skólavöröustíg 28, fer fram frá Hallgrímskirkju á morgun, mánudaginn 12. ágúst, og hefst kl. 13.30. Blómastofa triófinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099
Jónína Ásgeirsdóttir, Helga H. Ásgeirsdóttir, Petra G. Áageiradóttir. Opið öll kvöld tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.
+
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, GUÐMUNDUR V. LÁRUSSON, Réttarholtsvegi 73, veröur jarðsunginn frá Bústaöakirkju mánudaginn 12. ágúst kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag islands. ** * Í
Rósa Guöjónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.