Morgunblaðið - 11.08.1985, Síða 56
SUNNUDAGUR 11. ÁGÚST 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
w^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
„Hefur verid rætt
um að gefa okkur
lengingartæki
— segir framkvæmdastjóri Borgarspítalans
„BORGARSPÍTALINN er ekki að kaupa lengingartæki. Hins vegar
hefur verið rætt um að gefa okkur þessi tæki,“ sagði Jóhannes
Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans, er hann var inntur
eftir því hvort Borgarspítalinn væri að fá lengingartæki frá Sovét-
ríkjunum. Jóhannes vildi ekki tjá sig um að svo stöddu hverjir hefðu
hugsað sér að gefa tækin.
„Hugmyndin er komin fram
fyrir milligöngu Óskars Einars-
sonar, en sonur hans hefur ver-
ið í lengingu í Síberíu, og
góðgerðarstofnana hér á landi
og eins hafa bæklunarlæknar
hér á spítalanum sýnt áhuga
sinn á tækjunum. Ég geri ráð
fyrir að tækin kosti um 400.000
krónur ef góðgerðarstofnun
myndi flytja tækin inn. Góð-
gerðarstofnanir og félagasam-
tök fá tolla fellda niður, en ef
við myndum panta þau og
kaupa, þyrftum við að greiða
hátt í helming umfram verðið í
tolla,“ sagði Jóhannes.
Gunnar Þór Jónsson, yfir-
læknir slysadeildar Borgarspí-
talans, sagði i samtali við
blaðamann Morgunblaðsins, að
líklega myndu tækin verða
komin til landsins í haust.
„Hinsvegar hafa verið til á
flestum stærri sjúkrahúsum
landsins svokölluð ytri festing-
artæki, sem eru notuð mikið í
slysalækningum, sérstaklega í
alvarlegum brotum, og einnig
má nota þau til lengingar, en
það hefur aldrei verið gert hér.
Við höfum ekki hugsað okkur
að fara út í lengingar á dverg-
vöxnu fólki, heldur myndum við
hjálpa fólki, sem hefur t.d. mis-
lengd í ganglimum," sagði
Gunnar Þór.
Sjá bls. 26. „Tækni prófess-
ors Ilesarovs" eftir Óskar
Einarsson.
Morgunblaðiö/ Bjarni
Kveikt var í vinnuskúr við stórmarkað Víðis { Mjóddinni í Breiðholti ( gærmorgun. Þegar slökkviliðið kom á
staðinn var skúrinn mikið til brunninn enda að mestu úr timbri. Litlu munaði, að stórtjón hlytist af íkveikju er
kveikt var í skúr, sem var ruslageymsla við Miðbæjarmarkaðinn í Reykjavík, um síðustu helgi.
Deila heilsugæslulækna og ríkisins:
Samningar tókust — læknar
gengu ekki út á miðnætti
SAMNINGAR tókust í kjaradeilu I laust eftir klukkan eitt (gær og kom
heilsugæslulækna og ríkisvaldsins | því ekki til þess, að um 70 af alls 110
Garðabæjar-
höfn líklega
tilbúin um
mánaðamótin
HAFNARNEFND Garðabæjar
vinnur nú að þvi að koma upp hafn-
araðstöðu þar í bæ. Undirbúningur
hefur staðið yfir nokkuð lengi. í
fyrrasumar var höfnin dýpkuð og er
hún nú 6 metra djúp á fjöru.
Um verslunarmannahelgina
reistu menn frá Köfunarstöðinni
hf., undir stjórn Kristbjörns Þór-
arinssonar, stálþil, sem er
bryggjukanturinn, og ráku það
niður. Luku þeir við verkið á 14
tímum.
„Þetta var unnið á mettíma að
mínu rnati," sagði Jón Sveinsson,
forstjóri Stálvíkur, í samtali við
Morgunblaðið. „Og þessi höfn á
eftir að gerbreyta aðstöðunni
fyrir þau fjögur fyrirtæki sem
hafa aðsetur hér við Arnarvoginn
og starfa í stáliðnaði, en þau eru,
auk Stálvíkur, Nökkvi hf., Véla-
verkstæði Sig. Sveinbjörnssonar
hf. og Rafboði hf. Nú geta þessi
fyrirtæki tekið skip til viðgerðar
og frágangs."
Nú er unnið að frágangi við
höfnina og sagðist Jón búast við
þvi að ef allt gengi að óskum væri
möguleiki á að skip gætu lagst að
bryggjunni í Garðabæ um næstu
mánaðamót.
heilsugæslulæknum á landinu legöu
niður störf á miðnætti aðfaranótt
sunnudagsins. Læknarnir, sem
höfðu sagt upp störfum til að leggja
áherslu á kröfur sínar, drógu í gær
uppsagnir sínar til baka og heilbrigð-
isráðherra féllst á það.
Formenn samninganefndanna,
þeir Þorsteinn Geirsson ráðuneyt-
isstjóri og Gunnar Ingi Gunnars-
son læknir, voru ófáanlegir til að
skýra frá hversu miklar launa-
hækkanir fælust ( samningnum,
sem á næstu dögum verður lagður
fyrir heilsugæslulæknana. Þeir
sögðu að samningurinn byggðist
fyrst og fremst á því, að ná jöfnuði
í launakjörum heilsugæslulækna
almennt og jöfnuði við sjúkrahús-
lækna.
í því skyni var samið um ákveð-
inn stundafjölda fyrir unnar
gæsluvaktir, sem eru nokkuð mis-
munandi eftir héruðum, greiðslur
fyrir akstur til samræmis við
sjúkrahúslækna, og skýrð voru
ákvæði um endurmenntun heilsu-
gæslulækna á sama hátt.
„Kjarni málsins er sá, að lækn-
arnir ganga ekki út eins og útlit
var fyrir," sagði Þorsteinn Geirs-
son. Hann sagði að samningarnir
væru afar flóknir og að kjarabæt-
urnar væru mismunandi miklar,
bæði eftir einstökum læknum og
héruðum.
Læknarnir sögðu upp störfum
fyrir hálfu ári með þriggja mán-
aða fyrirvara en síðan framlengdi
heilbrigðisráðherra uppsagnar-
frestinn um aðra þrjá mánuði,
eins og lög leyfa.
Hvalvertíðin:
Eftir er
að veiða
32 hvali
— tíu daga stopp
framundan
Ríkisskattanefnd hnekk-
ir úrskurði skattstjóra
— vextir frádráttarbærir ef byggingarsamvinnufélag er umboðsaðili
RÍKISSKATTANEFND hefur
hnekkt úrskurði skattstjórans í
Reykjavík, sem hafnaði kröfu hús-
byggjanda í Reykjavík um skattfrá-
drátt vegna vaxtagjalda af lánum
sem Byggingarssamvinnufélag ungs
fólks í Reykjavík, Byggung, tók fyrir
hans hönd.
Kærandi fór fram á að vaxta-
gjöld vegna byggingar íbúðar
sinnar við Rekagranda í Reykja-
vik — sem samkvæmt reikningum
Byggungs reyndust vera tæplega
70 þúsund krónur — yrðu reiknuð
til frádráttar tekjum sínum við
álagningu tekjuskatts fyrir árið
1984.
Skattstjóri hafnaði kröfu kær-
anda á þeim forsendum að um
væri að ræða hækkun á umsömdu
verði i kaupsamningi, en ekki
vexti af skuld eins og áskilið er
samkvæmt lögum um tekju- og
eignaskatt.
Kærandi skaut úrskurði skatt-
stjóra til ríkisskattanefndar og
ítrekaði kröfu sína með þeim
rökstuðningi, að hér væri um að
ræða vaxtakostnað setn stafaði af
framkvæmdalánum og öðrum
byggingarlánum, sem byggingar-
samvinnufélagið hefði orðið að
taka fyrir sína hönd og annarra
húsbyggjenda, og sé, samkvæmt
byggingarsamningi, sameiginleg-
ur kostnaður byggjenda.
Gunnar Jóhannsson hjá ríkis-
skattanefnd sagði að þetta þýddi í
raun að Byggung væri umboðsað-
ili húsbyggjenda, og þvi beri að
líta á vaxtagjöldin sem frádrátt-
arbær til skatts.
AÐEINS 32 hvalir af samtals 199
eru nú óveiddir á síðustu eigin-
legu hvalvertíðinni frá fslandi, að
minnsta kosti til ársins 1990, þeg-
ar endurmeta á hvalastofnana að
lokinni veiðistöðvun Alþjóða
hvalveiðiráðsins.
Langreyðakvótinn í ár var
161 dýr og hafa þau nú öll kom-
ið á íand og síðustu daga hafa
veiðst sex af 38 sandreyðum,
sem veiða má í ár.
Frá og með næsta miðviku-
degi verður gert tíu daga hlé á
veiðunum vegna fyrirfram
ákveðins orlofs starfsmanna,
enda hefur sandreyðurin yfir-
leitt ekki veiðst fyrr en í lok
ágúst og byrjun september.
Sjá ennfremur innlendan vett-
vang: „Er hsgt að stunda hval-
rannsóknir án þess að meiða
hvalina?" á bls. 20 og 21.