Morgunblaðið - 24.09.1985, Síða 1

Morgunblaðið - 24.09.1985, Síða 1
72 SIÐUR B STOFNAÐ1913 214. tbL 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1985 Prentsmiðja Morgunblaðaiis Um 2.900 taldir af í jarðskjálftuíium Mexíköbwg, 23. septeraber. AP. LEITARMENN í Mexíkóborg greindu fri því í dag að þeir hefðu grafið göng inn í rústir tækniháskóla og bjargað 26 manns, sem höfðu lifað af jarðskjálftana tvo. Þeir sögðu að fleiri gstu leynst á lífi undir rústum hruninna húsa. Lögreglan sagði i dag að fjöldi þeirra sem látist hefðu í Mexíkó- borg í jarðskjálftunum næmi nú 2.822 og um hundrað manns hefðu látið lífið annars staðar i landinu. 4.180 manns er saknað. Utanríkisráðuneyti Bandaríkj- anna greindi frá því að 3.461 hefði látist i jarðskjálftunum og hefur engin skýring verið gefin á mis- ræminu. Bandaríkjamenn fengu töluna frá mexíkönskum yfirvðld- um. Mexikönsk heilbrigðisyfirvöld töidu að um 11.000 hefðu slasast i skjálftunum og talið er að um 300.000 manns hafi misst heimili sín. Ibúar höfuðborgarinnar héldu sumir til vinnu i dag. Bankar voru opnir, en yfirvöld segja að skóiar verði lokaðir fram á miðvikudag a.m.k. Mörg hundruð lik, sem enginn hefur borið kennsl á, liggja i lík- húsum borgarinnar og verða þau grafin eða brennd til þess að forð- ast hættu á sýkingu. Hornaboltavöllurinn Seguro var notaður til að geyma lík og ís notaður til að tefja rotnun: „Við getum ekki geymt þau hér lengi,* sagði Uri Friedmann frá Rauða krossinum, „tvo tima i mesta lagi, og þá verðum við að fjarlægja lík- in.“ Einstakar jarðarfarir fóru fram hver á eftir annarri i San Lorenzo- kirkjugarðinum og verið er að grafa fimm fjöldagrafir fyrir þau 2.500 lik, sem ekki hafa verið bor- in kennsl á. Nokkuð hefur orðið vart við að þjófar hafi notfært sér ástandið i borginni og hafa flokkar manna farið um klæddir sem björgunar- menn, leitað í rústum og rænt þvi sem þeir fundu heilt. Hafa nokkrir verið handteknir fyrir þjófnað og verða þeir dregnir fyrir herrétt. bls. 28 og 29. um jarðskjálftann á Mexíkanskur prestnr stendur (Lv.) meó greipar spenntar yflr gröfúm í San Lorenzo-kirkjugarðinum fyrir utan Mexíkóborg, meðan arlömb jarðskjálftana á sunnudag. líkgrafarar jarða fórn- AP/Símamynd Frakkar játa að hafa sprengt Rainbow Warrior. Nýsjálendingar krefja Frakka um skaðabætur Pmrís, 23. scftMbn. AP. FORSÆTISRÁÐHERRA Frakk- lands, Laurent Fabius, viðurkenndi í gær að útsendunim frönsku leyni- þjónustunnar (DGSE) hefði verið skipað að sökkva flaggskipi Green- peace-samtakanna, Rainbow Warrior, í höfninni í Auekland á NýjæSjálandi og lýsti í dag yfir áhyggjum stnum við David Lange, forsætisráðherra Nýja- Sjálands, yfir sambúð ríkjanna, en veigraði ser við að biðjast formlega afsökunar. Þrátt fyrir að frönsk yfirvöld hafi vikum saman neitað allri hlut- deild DGSE í málinu, kom yfirlýs- ing Fabiusar fáum á óvart eftir Gengi dollara lækkar í kjölfar ráðherrafundar DOLLARINN TélUð meðahali um 4,29 prósent gagnvart helstu gjald- miðhim heims eftir að fjármála- ráðherrar Bretlands, Vestur- Þýskalands, Frakklands og Japans ákváðu að hafa samstarf við Bandaríkjamenn um að lækka gengi doliarans á alþjóðamarkaði. Fjármálaráðherrar landanna fjögurra áttu fund með fjár- málaráðherra Bandaríkjanna í New York á sunnudag og var ákveðið að lækka dollarann í verði til þess að koma í veg fyrir að bandaríska þingið setti á verndartolla til þess að vernda innlenda framleiðslu. Reagan Bandaríkjaforseti til- kynnti í dag efnahagsaðgerðir til þess að efla bandarískan út- flutning og sagðist beita neit- unarvaldi ef Bandaríkjaþing legði fram frumvörp þess efnis að minnka innflutning til Bandaríkjanna þar sem slíkar aðgerðir gætu komið á verslun- arstríði. Laurent Fabius (Lv.) forsætisráðherra Frakklands, játar að franska leyni- þjónustan hafi staðið að baki spreng- ingunni á Rainbow Warrior á frétta- mannafundi í París í gær. David Longe ávítar Frakka fyrir sprengjutil- ræðið við Rainbow Warríor á frétta- mannafundi í Wellington á Nýja-Sjá- landi í dag. AP/Símamynd þann úlfaþyt, sem málið hefur vak- ið í fjölmiðlum. En Fabius tók ekki fram hver hefði gefið skipunina um að granda Rainbow Warrior og var mikið gert úr því á forsíðum franskra dagblaða í morgun og bár- ust fyrirspurnir frá leiðtogum stjórnarandstöðunnar um hver þar hefði verið að verki. Franska sjónvarpsstöðin Europe 1 greindi frá því að Paul Quiles, sem var skipaður eftirmaður Hernu í embætti varnarmálaráðherra, hefði komist að þvi á öðrum degi í embætti að skýrsla DGSE um mál- ið hefði verið eyðilögð og sagði að hann hefði farið fram á að skýrslan yrði endursamin, án þess að nokkru væri sleppt. Dagblaðið Le Monde sagði að Quiles hefði afrekað á tveimur dög- um, sem aðrir hefðu ekki getað á tveimur mánuðum. Lange hefur ásakað Frakka um „ríkisrekna hryðjuverkastarfsemi á alþjóðavettvangi*, og farið fram á að þeir sem komu fyrir sprengjunni verði reknir frá störfum og skaða- bætur að auki. Breska stjórnin lýsti yfir í dag að hún liti sprengjutilræðið við Rain- bow Warrior alvarlegum augum og hét á Frakka að bæta þeim upp tjónið, sem í hlut eiga, hið snarasta. Ríkisstjórn Ástralíu fagnaði játningu Fabiusar og sagði að þá sem bæru ábyrgð á tilræðinu ætti að draga fyrir rétt „tafarlaust og án mannjöfnuðar*.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.