Morgunblaðið - 24.09.1985, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985
Framtíðarsýn
í Frankfurt
Frá 51. alþjóðabílasýningunni í Þýskalandi
Porche 959. Slagrými 2.850 ccm, 450 hestöfl. Þetta er dýrasta, hraðskreió-
asta og tæknilega fullkomnasta bifreiA heims. Porche 959 er fjórar
sekúndur upp á hundraðiö og ner 320 km himarkshraða. Bfllinn er
búinn aldrifi, tveimur vatnskældum KKK-forþjöppum, stillanlegri fjöðrun
og bremsum sem aldrei festa hjól. Hann mundi kosta um 15 milljónir
kominn til íslands. Þeir sem hafa áhuga sendi strax 50 þúsund DM til
framleiðenda og fá þeir þá bflinn að ári, sé hann ekki nú þegar uppseld-
ur. Þó er það eflaust galli á íslenskum vegum, að það eru bara 12 cm
undir lægsta punkt.
Bílar
Guöbrandur Gíslason
Nú stendur yfir (til 22. septem-
ber) alþjóðiega bflasýningin
í Frankfurt í Vestur-Þýskalandi,
en hún er haldin annað hvert ár á
svæði kaupstefnunnar þar í borg.
Að þessu sinni ber sýningin yfir-
skrii'tina: Bifreiðin — 99 ára ung,
og gefur þar að líta hartnær allt
það sem lýtur að bflaiðnaði í heim-
inum. 1722 framleiðendur frá 37
þjóðlöndum sýna varning sinn á
svæði sem þekur litla 240 þúsund
fermetra (24 hektara).
Auk varahluta, nýrra véla og
margvíslegs tækjabúnaðar er á
sýningunni allt frá risavöxnum
langferðabílum niður í örlítil
farartæki fyrir yngstu kynslóð-
ina sem eru eftirlíkingar af
Mercedes Benz-fólksbílum og
bera jafnvel stjömuna frægu
fyrir miðri vatnskassahlífinni.
Þessir smábensar eru víst orðin
ómissandi leikföng í Beverley
Hills og sums staðar fyrir botni
Miðjarðarhafs og gefa þá vænt-
anlega börnunum forsmekkinn
af því hvað bíður þeirra.
I bifreiðaiðnaðinum er sam-
keppni geysilega hörð, og liggja
framleiðendur ekki á liði sínu við
að sýna ýmiskonar nýjungar.
Þjóna margar þeirra þeim til-
gangi að draga úr skaðsemi efna
í útblástri bifreiða, en það hefur
verið ofarlega á baugi í Evrópu
að undanförnu hve eiturefni frá
bílum spilla umhverfinu, ekki
síst í Þýskalandi, háborg bílsins,
en þar í landi þykir sýnt að eitur-
efni úr púströrum drepi skóga
og er þar nú mjög deilt um hvort
setja eigi hraðatakmörk (100 km
á klukkustund) á þjóðvegi land-
sins til að vernda gróðurríkið.
En tæknilegar nýjungar,
hversu nytsamar sem þær eru
(listinn yfir þær er 75 síður að
lengd) hrökkva skammt til að
laða að áhorfendur sem flestir
koma í leit að einhverju sem
gleður augað. Ekki er annað
hægt að segja en vel sé orðið við
þeirra óskum. í Frankfurt eru
sýndir í hundraðatali bílar fyrir
fólk með sérþarfir, einkum og sér
í lagi þær að þurfa að berast á.
Þar úir og grúir af lystivögnum
með innbyggðum börum og fjar-
skiptatækjum alls konar, bílum
sem hafa verið lengdir svo far-
þegi geti lagt sig á leiðinni ef svo
ber undir, og skruggukerrum
sem eru svo hlaðnar aukaventl-
um, forþjöppum, blöndungum og
öðrum aflaukandi meðulum að
það þarf að afmynda þær með
vindskeiðum í bak og fyrir til
þess að halda þeim við jörðina
þegar ekið er af stað. Flest virð-
ist þetta glingur miða að því að
skapa mönnum stöðutákn. Einn
framleiðandinn (sem lengir
Bensa svo varla er hægt að
komast á þeim fyrir horn) býðst
meira að segja til þess að „skapa“
farartæki fyrir viðskiptavini
sína sem sýni hve langt þeir hafi
náð á framabraut peningavald-
sins.
Þó fer því fjarri að á bílasýn-
ingunni sé eintómt hjóm. Margir
bílaframleiðendur sýna auk
venjulegra bíla ýmiskonar til-
raunafarartæki, þar sem reyndar
eru nýjungar til þess að gera
bifreiðir morgundagsins örugg-
ari, sparneytnari, hraðskreiðari
og þægilegri. Þessi tilraunafar-
artæki eru sum að komast á
framleiðslustig, þótt ólíklegt sé
að þau sjáist á íslenskum vegum
á næstunni. Þau eiga það flest
sammmerkt að vera í líki tveggja
manna sportbíla og óheyrilega
dýr. Þessum fyrsta pistli frá
bílasýningunni í Frankfurt
fylgja myndir af nokkrum þeim
sem hvað mesta athygli vöktu.
Ford RS 200. Þessi afar hraðskreiða bifreið verður til söhi á næsta ári. Á 200 kflómetra
hraða getur ökumaður valið hvort hann vill hafa drif á öllum hjólum eða einungis tveimur.
Austin Rover MG ED-E. Þessi skutla með áttstrenda MG-merkinu var sýnd í fyrsta sinn
opinberlega 1 FrankfúrL Hann er búinn aldrifi eins og nú færist mjög í t ísku, sex strokka
vél með fjórum ventlum og nær 275 km hámarkshraða. F.nn er óvíst hvort hann verður
fjöldaframleiddur.
Saab 900 Turbo 16 EV-1. Ekki eru uppi áform um að fjöldaframleiða þennan bfl, heldur
notar Saab-Scania hann sem tilraunatæki. Vélin er sú hin sama og í 900 og 9000 túrbóbflun-
um, en í þessum framleiðir hún 285 hestöfl. Loftræstingin í bflnum er sjálfvirk og er henni
stjórnað af rafhlöðum sem vinna orku úr geislum sólar. Ósýnilegir þræðir eyða móðu á
afturrúðunni og fram- og afturendar eru úr efni sem er mjög létt en gefur hægt eftir lendi
bfllinn í árekstri.
Peugeot VERA Profíl. Þessi fólksbfll, sem befur jafnmikið innanrými og Peugeot 305 er
ekki enn kominn á framleiðslustig, en með mjög lágri vindmótstöðu og dísilvél með beinni
innspýtingu (50 DIN hestöfl) er eyðslan innan við fímm lítra á hundraðið í bæjarakstri.