Morgunblaðið - 24.09.1985, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985
Sveinn Ginarsson
Maurizio Baracini
Kristján Jóhannsson
Grímudansleikurinn
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Giuseppe Fortunino Francesco
Verdi hafði lokið við að semja um
tuttugu óperur er hann samdi
Grímudansleikinn. Þar í flokki eru
Nabucco, I Lombardi, Ernani,
Rigoletto, II Trovatore og La Tra-
viata, svo að ekki hefur það verið
fyrir vantraust á tónskáldinu að
illa gekk að koma verkinu á svið.
Því mun hafa valdið ótti manna
við að konungsmorð kæmust í
tísku. Grímudansleikurinn er að
því leyti til ólíkur fyrri leikhús-
verkum Verdis, að nú í fyrsta sinn
er tónlistin viðameiri í gerð, og að
því er virðist, hefur það haft þau
áhrif að persónusköpun varð öll
átaksminni. Þessi munur í gerð
skilar sér í heilsteyptari formgerð
tónverksins, hljómsveitin hefur á
hendi þýðingarmeira hlutverk og
laglínurnar eru meira ofnar sam-
an við leikverkið en áður gerðist
og taka sig ekki út sérstaklega,
utan við verkið. Sem leikrit er því
Grímudansleikurinn stærri í snið-
um en margar fyrri óperur Verdis,
þó skrautsýningin sé enn þarna til
staðar. Leikgerð Sveins Einars-
sonar er sannfærandi og til að
fullgera hana sem mynd hefur
hann með sér til samstarfs Björn
G. Björnsson með leikmyndina,
Malin Örlygsdóttur með búninga
og ljósin eru unnin af ljósameist-
ara hússins, Kristni Daníelssyni.
Allt féll verk þeirra vel við leik-
verk það sem Sveinn felldi inn í
þessa mynd. Eitt sem einkennir
uppsetninguna er kyrrstæður og
jafnvel uppstilltur leikstíll, sem á
vel við, því óþarfa ráp getur gert
viðburðaleysið meíra áberandi, í
stað þess að nota það sem leik-
bragð, eins og t.d. í upphafi óper-
unnar og í næturatriðinu í öðrum
þætti, þar sem kórinn stóð upp-
stilltur. Þetta gefur sýningunni
festu í svip og tónlistinni rými til
að „leika“. Uppstillingar einsöngv-
aranna, þar sem þeim var valinn
staður „til að vera á“, minntu á
hugmyndir Metastasios, er hafði
mikil áhrif á skipan leiks í óperum
frá því á tímum Napólí-ópærunn-
ar.
Sveinn hefur skapað mjög heil-
steypta sýningu og fellt frábær-
lega vel saman myndgerð og leik,
án þess að gleyma því að söngvar-
arnir þurfa að syngja. Tónlistin
var auðheyrilega mjög vel æfð og
einsöngvarar og kór sungu virki-
lega saman, sem þakka má æf-
ingastjóra tónlistar, Agnes Löve,
en þó fyrst og fremst stjórnanda
sýningarinnar, er ræður fram-
vindu hennar á sviði, hljómsveit-
arstjóranum Maurizio Barbacini.
Nú fer að líða að því að það
unga fólk sem á síðastliðnum ár-
um hefur stundað söngnám skili
sér sem einsöngvarar en þessi sýn-
ing er í raun verk ungu söngvar-
anna, þó að frádregnum Kristjáni
Jóhannssyni, hafa aðrir söngvarar
sýningarinnar vart verið á sviði
Katrín Sigurðardóttir, Kristinn Sigmundsson og Kristján Jóhannsson.
>
Tjaldstæði í Stykkishólmi
Sljkkixhólmi. 15. aeplember.
NÚ ER að fullu lokið að ganga frá
tjaldstæðum og öllum útbúnaði og
snyrtingu fyrir ferðamenn. En fyrr í
vor var gengið frá vatni og snyrtingu
til bráðabirgða og eins var varanleg-
ur vegur og góður lagður í haust um
leið og malarlag var lagt hér á götur
í kauptúninu. Eru snyrtiskýlin vönd-
uð og eiga vonandi eftir að þjóna
ferðamanninum um langan tíma.
Tjaldstæðin voru mjög nýtt í
sumar eins og hótelið sem hafði
góða aðsókn. Allir þeir sem ég hefi
hitt og notað hafa þessa þjónustu
láta vel yfir að vera þarna, bæði
hvað aðstæður, fagurt umhverfi
og kyrrð áhrærir enda stæðið val-
ið með tilliti til þess.