Morgunblaðið - 24.09.1985, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 24.09.1985, Qupperneq 31
MORCUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985 ;í 31 shington, ikvu Hambacher hátíðarinnar beinum við þeim eindregnu tilmælum til hinna tveggja svokölluðu risa- velda, að þau láti loks af allri tvöfeldni og því undirferli, sem þau tíðka í samskiptum sín á milli og gagnvart öðrum þjóðum, og leitt hefur risaveldin út í hvert glæpa- foraðið á fætur öðru.“ Heimsókn Willys Brandt til Moskvu dagana 26. til 29. maí sl. er ein af nýjustu ábendingum um það, hve mjög stór hluti vestur- þýzkra jafnaðarmanna innan SPD hefur gerzt pólitískt fráhverfur og andsnúinn mikilvægustu banda- lagsþjóð okkar í Atlantshafs- bandalaginu og um leið einkar hallur undir pólitísk sjónarmið sovézkra leiðtoga. Þannig gaf Brandt eftirfarandi yfirlýsingu í borðræðu, sem hann hélt í kvöld- verðaboði stjórnvalda í Moskvu: „í öryggismálum erum við sam- herjar, enda þótt við berjumst hvorir fyrir sig í sitt hvoru banda- laginu og þótt við höfum axlað mismunandi ábyrgð innan mis- munandi bandalagi." Þessi tilvitn- un í ræðu Brandts birtist í „ppp“ hinn 28. maí 1985. Að því er varðaði gagnrýni á stefnu Ráðstjórnarríkjanna var Brandt aftur á móti hljóður. Hon- um þótti greinilega engin ástæða til þess í borðræðu sinni að víkja einu orði að þjóðarmorðinu í Afgh- anistan, að pólitískum föngum í síbirískum þrælkunarbúðum, né heldur þá gjörsamlega ófullnægj- andi hjálp, sem Ráðstjórnarríkin veita ríkjum þriðja heimsins. Það verður sífellt augljósara, að andamerísk öfl fá að breiðast nær óhindrað út innan SPD. Þegar Ronald Reagan var kjörinn forseti Bandaríkjanna árið 1980, olli það einum helzta frammámanni vest- ur-þýzkra jafnaðarmanna, Erhard Eppler, einskærum óhugnaði og vakti um leið ríka samúðartilfinn- ingu hans í garð sovézkra leiðtoga: „Jafn ofur skiljanleg og okkur Evrópumönnum hlýtur að finnast reiði og vandlæting Bandaríkja- manna yfir innrás Sovétríkjanna í Afghanistan, þá fer þó ekki hjá því að þeir hinir sömu Evrópu- menn fyllist nokkrum óhugnaði yfir þeirri holskeflu innantómra glamuryrða, fordóma og hegóm- legra tiltekta, sem átt hafa mestan þátt í að skola Ronald Reagan með yfirgnæfandi meirihluta inn í Hvíta húsið." í augum Epplers, og þó ef til vill miklu fremur að áliti ungra þýzkra jafnaðarmanna yfirleitt, stafar heimsfriðnum jafn mikil hætta af risaveldunum báðum, Ráðstjórn- arríkjunum og Bandaríkjunum. Formaður ungra vestur-þýzkra jafnaðarmanna, Willi Piecyk, komst eitt sinn svo að orði, þegar hann var að gera samanburð í þessum efnum: „Spurning: Hvorir eru að ykkar áliti meiri friðarunn- endur Sovétmenn eða Bandaríkja- menn, eða ef til vill hvorug þessara þjóða? Svar: Ég álít bæði risaveld- in vera jafn hættuleg..." í fjölmörgum ályktunartillög- um, sem beint var til flokksþings SPD árið 1982, birtist því alveg rökrétt ímynd jafnaðarmanna af hinum friðarsinnuðu Ráðstjórnar- ríkjum: „Sambandslýðveldið Vest- ur-Þýzkaland á ekki að láta Bandaríkin komast upp með það að þvinga okkur til að gegna hlut- verki eins konar varnarvígis gegn sósíalismanum," sagði í tillögu til ályktunar á flokksþinginu frá fé- lagi jafnaðarmanna í Siegburg. „Bandarísk stjórnvöld munu að öllum líkindum reyna að koma sér Willy Brandt í þannig aðstöðu, að þau geti mis- kunnarlaust beitt Sovétmenn efnahagslegum og pólitískum þvingunum, með því að leggja ofurkapp á vígbúnað sinn...“ sagði í ályktunartillögu einni, sem flokksþingi jafnaðmanna barst 1982 frá félagi jafnaðarmanna í Núrnberg. í bók sinni „Ótti við vinina" ræðst Oskar Lafontaine harkalega á Bandaríkjamenn. • „Þeir eru eina stórveldið, sem beitt hefur kjarnorkuvopnum hingað til. Að áliti hermálasér- fræðinga búa Bandaríkjamenn sig núna undir að heyja kjarnorku- stríð á vissu afmörkuðu svæði og ætla sér að hafa sigur í þeim átök- um.“ • „I samningaviðræðum um tak- mörkun kjarnorkuvígbúnaðar eru Bandaríkjamenn hvorki sjálfum sér samkvæmir né er þeim heldur treystandi." (Oskar Lafontaine: „Angst vor den Freunden", Ham- borg 1983.) í vilhöllu mati sínu á utanríkis- stefnu Sovétmanna lætur Egon Bahr staðsetningu sovézku SS-20 eldflauganna við landamæri Vest- ur-Þýzkalands ekki fara fyrir brjóstið á sér: „Sovétmenn hafa sýnt sveigjanleika; það hafa Bandaríkjamenn hins vegar ekki sýnt hingað til,“ sagði Egon Bahr í grein, sem birtist í málgagni vestur-þýzkra jafnaðarmanna, „Worwárts" 6. janúar 1983. í ræðu, sem Oskar Lafontaine hélt á þingi ungra flokksbundinna jafnaðarmanna 26. marz 1983 lét hann í ljós efasemdir um það, hvort yfirleitt væri hægt að rétt- læta aðild Sambandslýðveldisins Egon Bahr að Atlantshafsbandalaginu. „Það er hægt að setja bandalagsþjóðun- um skilyrði af því taginu, að aðild að NATO verði einfaldlega óbæri- leg.“ í grein í málgagni jafnaðar- manna „ppp“ hinn 31. marz 1983 lét þáverandi formaður landssam- bands ungra þýzkra jafnaðar- manna, Rudolf Hartung svo um- mælt, að „hvorki hið hugmynda- fræðilega rökstudda þjóðarmorð, sem verið væri að fremja í Mið— Ameríku, né heldur sá hugarfars- legi undirbúningur undir árásar- stríð með kjarnavopnum, sem ráð- gjafar Reagans forseta annist, séu aðgerðir er njóti stuðnings meiri- hluta Bandaríkjamanna". Svipaða afstööu tekur Erhard Eppler í viðtali, sem „Deutschland- funk“ útvarpaði 10. maí 1983. Eppler var þó varkárari í orðavali en Hartung „Ég er ekki fylgjandi því, að við segjum okkur úr Atl- antshafsbandalaginu, en ég lít hins vegar svo á, að umræður um það efni séu einfaldlega óhjá- kvæmilegar á þeirri stundu, þegar, nú svo að segja, staðsetja á eld- flaugarnar með því að beita þving- unum og ganga á þannig í berhögg við hagsmuni okkar, hafa yfirlýst- an vilja meirihluta þjóðarinnar að engu og láta sig heldur engu varða hina öflugu mótspyrnu friðar- hreyfingarinnar gegn þessum fyr- irætlunum." Egon Bahr kemur ekki auga á neina ógnun af hálfu Ráðstjórnar- ríkjanna: „Það er annars hreinasta della, þegar sagt er, að Rússar ógni okkur.“ Bæði á flokksþingum vestur- þýzkra sósíaldemokrata í Köln Erhard Eppler (1983) og í Essen (1984) eru viðhorf Bandaríkjamanna til bandalags- þjóða sinna lögð að jöfnu við fram- ferði Ráðstjórnarríkjanna gagn- vart leppríkjum sínum: „Það breytir þó í engu þeirri staðreynd, að ríkisstjórnir heimsveldanna móta stefnu sína í utanríkis- og öryggismálum eingöngu út frá hagsmunum og að þessir hags- munir, til dæmis í landfræðilegri „hreppapólitík" risaveldanna tveggja, eru oft á tíðum látnir sitja í fyrirrúmi, án nokkurs minnsta tillits til einföldustu grundvallar- regla mannúðar og þjóðarrétts," segir í lokaályktun flokksþings Sozialdemokratische Partei De- utschlands í Köln hinn 19. nóvem- ber 1983. í framferði risaveldanna tveggja sér Willy Brandt jafnmikla ógnun fyrir allar aðrar þjóðar. „Veldi þeirra er þar með í raun og veru orðið að hreinustu ógnun,“ sagði hann í pólitískum fyrirlestri, sem hann hélt í New York hinn 24. apríl 1985. Út frá þessum samjöfnuði á risaveldunum tveimur kemst Brandt svo að þeirri niðurstöðu, að Ráðstjórnarríkin séu orðin ein af bandalagsþjóðum okkar: „Þrátt fyrir mismunandi þjóðfélagsgerð, þrátt fyrir mismunandi skilning, sem lagður er á ýmis atriði, þá eru Austur og Vestur, Norður og Suður þó í einu bandalagi í baráttunni fyrir því að lifa af,“ segir Willy Brandt í ritstjórnargrein með fyr- irsögninni „Oryggi verður ekk hlutað í sundur," sem birtist í sér stöku aukablaði „Vorwárts" 3. ágúst 1985 og var helgað Ráð stjórnarríkjunum. (í,r Wel* »ra Sonnue. Arkitektafélagið og Menningarstofnun Bandaríkjanna: Endurbygging gam- alla borgarhverfa í Bandaríkjunum ísafirði, 18. september. Arkitektafélag íslands og Menn- ingarstofnun Bandaríkjanna opnuðu í kvöld sýningu á endurbyggingu gamalla borgarhluta í Bandaríkjun- um. Sýningin er í bókasafni mennta- skólans og stendur til 28. september, en héðan fer hún til Vestmannaeyja. Hugh Ivory, forstöðumaður Menningarstofnunar Bandaríkj- anna á íslandi, opnaði sýninguna með ræðu, þar sem hann gat þess, að sú stefna væri í æ ríkari mæli tekin upp í stórborgum Bandaríkj- anna að endurskipuleggja gömul borgarhverfi og viðhalda fögrum og sögufrægum byggingum frekar en rífa allt til grunna og byggja nýtt. Þótt mistök hafi verið gerð í sumum tilvikum er það þó í flest- um tilvikum að endurbyggingin hefur tekist mjög vel og má nú sjá gróandi mannlíf og farsæld í hverfum sem áður voru ýmist mannlaus eða þar var búið við óviðunandi aðstæður. Hann hrósaði Isfirðingum fyrir að hafa tekið þessa stefnu í endur- byggingu gömlu verslunarhúsanna í Neskaupstað og sagði að mikil- vægt væri að unga fólkið gerði sér grein fyrir að eins og mannlífið hafi þróast hér í tvöhundruð ár, svo muni það halda áfram að þró- ast. Björn Teitsson, skólameistari menntaskólans, flutti ávarp og þakkaði komumönnum framtakið. Hann lýsti yfir ánægju sinni með að sýningin skyldi vera haldin í húsakynnum skólans, þannig að auðvelt væri fyrir nemendur að skoða hana. Hann tók undir orð Ivorys um nauðsyn tengsla við söguna og að ef til vill mættum við einhvern lærdóm draga af sýn- ingunni til endurbyggingar okkar gömlu húsa og byggðahverfa. Baldur Frederiksen upplýsinga- fulltrúi Menningarstofnunnar Bandaríkjanna, sem hefur ásamt Ásmundi Brekkan séð um uppsetn- ingu sýninganna um landið sagði í viðtali við fréttaritara Morgun- blaðsins, að sýningin hefði fyrst verið sett upp í Asmundarsal í Reykjavík í janúar sl., en tsafjörð- ur er fimmti staðurinn þar sem sýningin er sett upp. Hann sagði að sýningar sem Ljósm. (Jlfar Ágústsson. Sýningin samanstendur af litljósmyndum með skýringum í endurbyggingu gamalla borgarhverfa í nokkrum stór- borgum Bandaríkjanna. Fjöldi manna var við opnunina og virtist áhugi manna að skoða hvernig fortíð og nútíð tengjast í byggingarlist vera mikill. þessi og önnur menningartengsl við Bandaríkin færu nú vaxandi og sagði hann að rekja mætti það til áhuga Marshals Brement fyrr- verandi sendiherra Bandaríkjanna á fslandi, og konu hans, Pamelu, á íslenskum menningarmálum, en þau hefðu bæði unnið mikið starf í þágu menningartengsla íslands og Bandaríkjanna. Hann gat þess m.a. að nú væri nýlokið sýningu á lækningatækjum í Reykjavík. Hét sú sýning Medicine to-day — USA og hafði farið víða um lönd. Island var síðasti áfangastaðurinn og að aflokinni sýningunni voru íslensku rikisspítulunum gefin lækninga- tækin, sem á sýningunni voru, en þau voru að andvirði tveggja millj- óna króna. Næsta sýning verður á Kjarvalsstöðum í Reykjavík í jan- úar á næsta ári og verða þá sýnd leikföng. Baldur sagði að lokum, að fólk sækti í síauknum mæli á hið stóra bókasafn Menningarstofnunarinn- ar í Reykjavík, en þar vinna nú níu íslendingar og tveir Banda- ríkjamenn við bóksafnsstörf og upplýsingastarfsemi. úifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.