Morgunblaðið - 24.09.1985, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 24.09.1985, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 24. SEPTEMBER1985 57 Erindi um umhverfis- mál í Háskóla íslands Hátt verð á ferskum fiski í verktræðideild Háskóla íslands verða á næstu vikum flutt 10 erindi um umhverfismál. Til þeirra er stofnað fyrir nemendur í deildinni, en aðgangur er öllum frjáls, eins þeim, sem ekki eru nemendur í Há- skólanum. Gert er ráð fyrir nokkr- um umræðum á eftir hverju erindi. Umsjón hefur Einar B. Pálsson, prófessor, og veitir hann upplýs- ingar. Erindin verða flutt á mánudögum kl. 17.15 í stofu 158 í húsi verkfræði- deildar, Hjarðarhaga 6. í gær, 23.sept. flutti Þorlefur Ein- arsson prófessor í jarðfræði fyrirlest- ur um: Jarðrask við mannvirkjagerð, cn aðrir fyrirlestrar verða sem hér segir: 30. sept.: Agnar Ingólfsson, pró- fessor í vistfræði: Ýmis undirstöðuatriði í vistfræði. 7. okt.: Unnsteinn Stefánsson, prófessor í haffræði: Sjórinn sem umhverfi. 14. okt.:Arnþór Garðarsson, pró- fessor í líffræði: Rannsóknir á röskun lífríkis. 21. okt.: Ólafur K. Pálsson, fiski- fræðingur, Hafrannsóknastofnun: Auðlindir sjávar og nýting þeirra. 28. okt.: Ingvi Þorsteinsson MS, Rannsóknastofnun Landbúnaðar- ins: Eyðing gróðurs og endurheimt landgæða. 4. nóv.: Eyþór Einarsson, grasa- fræðingur, formaður Náttúru- verndarráðs: Náttúruvernd í framkvæmd. 11. nóv.: Jakob Björnsson, verk- fræðingur, orkumálastjóri: Orkumál og umhverfi. 18. nóv.: Vilhjálmur Lúðvíksson, verkfræðingur, framkvæmda- stjóri Rannsóknarráðs ríkisins: Verkfræðilegar áætlanir og val- kostir. 25. nóv.: Einar B. Pálsson, bygg- ingarverkfræðingur: Matsatriði, m.a. náttúrufegurð. Krétutilkjnning TVÖ íslenzk fiskiskip seldu afla sinni erlendis á mánudag. Fengu þau mjög gott verð fyrir hann, 53 krónur á kfló að meðaltali í Englandi og tæpar 40 í Þýzkalandi. Baldur EA frá Dalvík seldi alls 71,2 lestir í Grimsby. Heildarverð var 3.786.800 krónur, meðalverð 53,21. Aflinn var að mestu leyti koli, ýsa og þorskur. Krossvík AK seldi 119,7 lestir í Bremerhaven. Heildarverð var 4.735.100, meðal- verð 39,55. Afli Krossvíkur var mestmegnis karfi. Fræðimanna- styrkir NATO 1986—1987 Atlantshafsbandalagið (NATO) mun að venju veita nokkra styrki til fræðirannsókna í aðildarríkjum bandalagsins á háskólaárinu 1986— 1987. I fréttatilkynningu frá utan- ríkisráðuneytinu segir að markmið styrkveitinganna sé að stuðla að rannsóknum og aukinni þekkingu á málefnum er snerta aðildarríki Atl- antshafsbandalagsins og er stefnt að útgáfu á niðurstöðum rannsókn- anna. Utanríkisráðuneytið veitir upp- lýsingar um þau verkefni er valin hafa verið og lætur í té umsóknar- eyðublöð. Styrkirnir nema 180.000 belgísk- um frönkum (um 130.000 ísl. kr.) og er ætlast til að unnið verði að rannsóknum á tímabilinu maí 1986 til ársloka 1987. Einniger greiddur nauðsynlegur ferðakostnaður, en gert er ráð fyrir að rannsóknir geti farið fram í fleiri en einu ríki bandalagsins. Styrkirnir verða aðallega veittir háskólamenntuðu fólki, þótt gera megi undantekningu frá því. Styrkþegum ber að skila loka- skýrslu um rannsóknir á ensku eða frönsku fyrir árslok 1987. Umsóknir skulu berast ráðu- neytinu eigi síðar en 15. desember 1985. Dauft yfir loðnuveiöinni LOÐNUVEIÐIN hefur verið fremur treg að undanförnu. Síðdegis á mánudag hafði ekkert skip tilkynnt um afla á þeim sólarhring, á sunnu- dag fengu tvö skip afla en á laugar- dag 6. A laugardaginn fengu eftirtalin skip afla: Hákon ÞH, 800, Erling KE, 450, Gísli Árni RE, 640, Kefl- víkingur KE, 530, Örn KE, 580 og Pétur Jónsson RE 790 lestir. A sunnudag tilkynnti Sæberg SU um 630 lestir og Ljósfari RE um 500 lesta afla. § l YÚREÞAN 0 Sæmundur Runólfsson (t.v.) og Runólfur Sæmundsson, eigendur Nýlands í Vík, framan við verslun sína, sem reist var úr Barkar-einingum. Hafið samband og kynnist af eigin raun kostum Barkar þak- og veggeininga BÖRKUR hf. HJALLAHRAUNI 2 SÍMI 53755 • PÓSTHÓLF 239 220 HAFNARFIRÐI Burðarþol Barkar þak- og veggeininga er mikið og uppsetning auðveld og fljótleg. Barkar þak- og veggeiningar henta mjög vel í flestum byggingum, einkum atvinnu- og geymsluhúsnæði, ekki síst þar sem mikils hreinlætis er krafist, s.s. í tengslum við verslun, matvælaiðnað og landbúnað. Barkar hús- einingar tryggja ótvíræðan spamað í byggingu, viðhaldi og rekstrarkostnaði. varbyvjud að gefa afsérfyrir fyrstu afborgun” segir Runólfur Sæmundsson í Versluninni Nýland í Vík í Mýrdal, sem reisti sér 250 fm verslunarhúsnæði úr Barkar þak- og veggeiningum „Það tók okkur aðeins 6 daga að reisa burðargrindina og klæða hana að fullu,“ segir Runólfur. „Fyrsta skóflustungan var tekin 20. október og búðin var opnuð rúmum einum og hálfum mánuði síðar, eða 10. desember, þannig að hún var farin að gefa af sér áður en fyrsta afborgun af húsbyggingunni féll. Það og sú staðreynd að upphitunarkostnaður hússins er áberandi lítill gerir það að verkum að ég er hæstánægður með viðskipti mín við Börk hf.,“ segir Runólfur Sæmundsson í Vík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.