Morgunblaðið - 24.09.1985, Side 60

Morgunblaðið - 24.09.1985, Side 60
 TU DAGUGRA NOn ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1985 VERÐILAUSASOLU 35 KR. Verólagsforsendur kjarasamninga að brestæ Hækkun Evrópu- gjaldmiöils veldur langmestu þar um - segir Steingrimur Hermannsson „ÞAÐ ER ekki rétt að við höfum samið við verkalýðshrejfinguna um ákveðið verðbólgustig. Alþýðusambandið og Vinnuveitendasam- bandið gerðu með sér samninga, þar sem gengið var út frá ákveðn- um verðbólguforsendum, en það var aldrei talað einu orði um það við okkur,“ sagði Steingrímur Hermannsson forsKtisráðherra er blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann í gær hvort ríkisstjórnin stæði ekki höllum fæti, nú þegar allar forsendur um verðlagsþróun sem miðað var við við gerð síðustu kjarasamninga væru brostnar, eða að bresta. vn* Forsætisráðherra var spurður hvort ríkisstjórnin hefði ekki lit- ið þannig á, að hún væri bundin af því samkomulagi sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu með sér um forsendur verðlagsþróun- ar, þegar samningar voru gerðir »Við erum að sjáifsögðu ekki bundnir af því, en við höfum fullan vilja til að þetta geti stað- ist. Staðreyndin er hins vegar sú, að langsamlega mestu áhrifin til hækkunar núna er hækkun Evr- 'opugjaldmiðils. Nú féll dollar í morgun og þá hækkar Evrópu- gjaldmiðill enn. Við erum bundnir þessu, sem þýðir að Evr- ópugjaldmiðillinn vegur meira en dollar. Þetta leiðir einfald- lega til hækkunar á innflutn- ingsverði, þvi við flytjum mest inn frá Evrópu.“ Forsætisráðherra sagði að stjórnvðld gætu litið aðhafst til þess að mæta þessum vanda. Auðvitað væri ekki hægt að hækka krónuna, því slíkt stang- aðist beint á við hagsmuni út- flutningsins. Aðspurður hvort hann væri með þessu að segja að ^gengisfelling væri á döfinni hjá stjórnvöldum sagði Steingrimur „Nei, alls ekki. Við munum áfram fylgja aðhaldssamri stefnu í gengismálum. Ég er ekki að segja að gengi verði óbreytt til eilífðarnóns, en gengisfelling stendur ekki fyrir dyrum.“ For- sætisráðherra sagði að á ríkis- stjórnarfundi í dag yrði fjallað um þær breyttu forsendur sem skapast hefðu með 6% lækkun dollara í gær. Forsætisráðherra var spurður hvort ríkisstjórnin væri ekki uggandi um hver viðbrögð laun- þegahreyfingarinnar yrðu, nú þegar forsendur síðustu kjara- samninga virtust vera brostnar „Þær eru aö vísu ekki alveg brostnar, en vissulega er mikil hætta á að svo fari. Við vonum í fyrsta lagi að menn skilji hvað veldur. Það er ekki bara að við erum með fiskútflutning okkar í dollurum, heldur megnið af okkar utanríkisviðskiptum, svo sem ullarvörur og fleira, sem við seljum til Sovétríkjanna.“ HEIMSMEISTARIKEMUR HEIM TORFI Ólafsson, kraftlyftingar- maður úr Reykjavik, vann það af- rek að verða heims- og Evrópu- meistari unglinga í sínum þyngdar- flokki á heims- og Evrópumótinu í kraftlyftingum sem fram fór í Soest í Vestur-þýskalandi um helg- ina. Torfi lyfti samtals 807,5 kg. „Ég átti ekki von á því að verða sigurvegari í minum flokki en vonaðist þé eftir að komast á verðlaunapall," sagði Torfi ólafsson við komuna til landsins í gærkvöldi. Torfi keppti í þyngsta flokknum >125 kg. Hann vann þar yftrburða sigur, næsti keppandi sem er frá Bandaríkj- unum lyfti 782,5 kg. samanlagt. Torfi er 20 ára og á því eftir þrjú ár í þessum flokki. Þetta er jafn- framt besti árangur sem íslensk- hefur ur kraftlyftingarmaður náð til þessa. „Þetta var góð tilfinning að vera heimsmeistari. Ég hef æft mjög vel, var í Bandaríkjunum hjá mjög færum þjálfara og er þetta afrakstur mikilla æfinga,“ sagði þessi ungi og sterklegi kraftlyftingamaður með bros á vör. Sjá bls. 1B. Kjaradeila iðnaðarmanna og áburðarverksmiðjimnan Starfsfólki sagt upp starfi frá áramótum STJÓRN Áburðarverksmiðju ríkisins ákvað í gær að fela framkvæmdastjóra fyrirtjekisins að segja upp starfsfóiki verksmiðjunnar með samningsbundn- um þriggja mánaða uppsagnarfresti frá og með 1. október vegna þess að hún telur litla von um lau.sn verkfalls iðnaðarmanna sem lamað hefur rekst- ur fyrirUekisins. Flestar framleiðslu- deildir verksmiðjunnar eru nú þegar stöðvaðar og stöðvast allar í þessari viku, flestir starfsmenn ern orðnir verkefnalausir og enginn rekstrar- grnndvölhir framundan hjá fyrirtæk- inu, nema deilan leysist án tafar, segir í samþykkt stjórnarinnar. Jafnframt fól stjórnin fram- kvæmdastjóranum að undirbúa út- Framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar um hugmyndir jjármálaráóherra: Gæti þýtt 6—10 % hækk- un byggingarkostnaðar „ÞETTA eru váleg tiðindi, ekki síst fyrir unga fólkið sem á að erfa landið. Eg sé ekki betur en bara hiekkuain á sementinu þýði 2% hæltkun bygg- ingarkostnaðar og bætist aðrar bygg- ingavörur við, svo sem timbur og járn, *cins og talað er nm, má búast við annarri eins eða meiri hækknn. Einn- ig er verið að tala um að draga nr sohiskatLsundanþágum, og bitni það á akstri á jarðefnum, sem hefur verið undanþeginn söhiskatti, hæklur kostnaðurinn enn nm 2%. Svo ég sé ekki betur en þessar hugmyndir fjár- málaráðherra hafi í för með sér 6-10% 4*æ.’jekkun byggingarkostnaðar, verði þær að veruleika," sagði Halldór framkvæmdastjóri Steypu- stöðvarinnar hf. um þær bugmyndir sem fram koma í tiliögum fjármála- ráðherra. Alberts Guðmundssonar, að fjárlögum næsta árs, að sá mögvleiki sé kannaður að leggja 25% vörugjald á innlenda sementsframleiðslu og innfhaning á byggingarvörum. Halldór sagði að tonnið af sementi kostaði nú um 4.500 án söluskatts og hækkaði því um 1.000 krónur með 25% vörugjaldi. 1 meðalibúð fara um 30 tonn af sementi, svo bygging- arkostnaður hækkar um rúmlega 33.000 krónur verði vörugjaldið lagt á. Og sé reiknað með að meðalíbúð kosti 1,8 milljónir hækkar heildar byggingrkostnaður um tæp 2%. „Það er sorglegt að rikið skuli sifellt þurfa að færa sig upp á skaftið og persónulega sem sjálf- stæðismaður er ég mjðg skúffaður að minn flokkur skuli standa fyrir þessu,* sagði Halldór Jónsson. Jón Þór Hjaltason framkvæmda- stjóri hjá BYKO sagði að sér litist mjög illa á þær hugmyndir að leggja 25% vörugjald á bygginga- vörur. „Ef hér er átt við timbur og steypustyrktarjárn þýðir það mjög aukinn byggingarkostnað, sem hefur örugglega í för með sér enn frekari samdrátt, og var hann þó ærinn fyrir.“ boð vegna innflutnings áburðar fyrir næsta vor, sem fyrirsjáanlegur er vegna stöðvunarinnar og þörf fyrir eykst með hverjum degi sem rekstur verksmiðjunnar liggur niðri. Vegna þess að verksmiðjan er eign ríkisins fól stjórnin fram- kvæmdastjóranum að kynna ríkis- stjórninni allar forsendur ákvörð- unar stjórnarinnar, áður en upp- sagnarbréf verða send til starfs- fólksins. Starfsmenn Áburðarverksmiðj- unnar eru 195 talsins og verður öllum sagt upp, nema iðnaðarmönn- unum sem eru í verkfalli og ekki má segja upp þess vegna. Iðnaðar- mennirnir, 11 málmiðnaðarmenn og 7 rafiðnaðarmenn, hafa verið í verk- falli síðan 10. ágúst, eða í rúmar sex vikur. Lítið virðist þokast í samn- ingum aðila. Stjórnendur Áburðar- verksmiðjunnar samþykktu sátta- tillögu ríkissáttasemjara þar sem gert var ráð fyrir 5% kauphækkun til iðnaðarmanna umfram almenn- ar kauphækkanir að undanförnu, en iðnaðarmenn felldu sáttatillög- una. Á síðasta sáttafundi voru iðn- aðarmennirnir komnir niður í 6,7% hækkun umfram almennu samning- ana. Þarna virðist því muna 1,7% en hafa ber í huga að verksmiðjan samþykkti sáttatillöguna með sem- ingi í trausti þess að með því væri verið að leysa deiluna, aö sögn Há- konar Björnssonar framkvæmda- stjóra verksmiðjunnar og stendur það boð ekki lengur frá þeirra hálfu. Stór hluti starfsmanna verk- smiðjunnar er í Verkamannafélag- inu Dagsbrún. Guðmundur J. Guð- mundsson formaður Dagsbrúnar sagði að það hefði verið mikil ógæfa að starfsmenn Áburðarverksmiðj- unnar hefðu ekki haldið hópinn í samningum nú eins og oftast áður. Hann sagði að það væri hættulegt þegar svona hópur, til þess að gera þröngur, klyfi sig út úr stórum hópi og boðaði verkfall án samráðs og samvinnu við verkamenn. Hann sagði að iðnaðarmennirnir væru með þessu að leika sér að því að kalla fram breytta vinnulöggjöf og kvaðst vera lítið hrifinn af vinnu- brögðum þeirra. Magnús Geirsson formaður Raf- iðnaðarsambands íslands sagði að þessar uppsagnir stjórnar Áburðar- verksmiðjunnar væru fyrstu við- brögð þeirra manna í þessari kjara- deiiu. Hann sagðist ekki átta sig á hvað þeir væru að hugsa með þess- um uppsögnum, að minnsta kosti væru þetta ekki huggulegar kveðjur til starfsmanna eftir 30 ára starf. „Ég man ekki eftir viðbrögðum sem þessum áður í vinnudeilum; að heilu fyrirtækin séu lögð niður þó menn eigi þar í kjaradeilu,* sagöi Magnús. Hann sagði að kröfur iðnaðarmann- anna væru ekki á neinn hátt óeðli- iegar, þær miðuðu eingöngu að þvi að rétta hlut starfsmannanna miðað við aðra starfshópa innan verk- smiðjunnar og á hinum almenna vinnumarkaði, vegna þess að þeir hefðu sannanlega dregist aftur úr að undanförnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.