Morgunblaðið - 04.10.1985, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ1913
223. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Frakklandsheimsókn Gorbachevs:
Nýjar tillögur um
afvopnun kynntar
París, 3. október. AP.
LEIÐTOGI Sovétrikjanna, Mikhail S. Gorbachev, sem nú er í opinberri
heimsókn í Frakklandi, lýsti í dag yfir nýjum tillögum Sovétmanna um aö
fækka kjarnorkuvopnum, ásamt hugmyndum um „algert“ bann viö geim-
vopnum og brottnám 50 prósenta kjarnorkueldflauga.
Gorbachev sagöi einnig að i
hugmyndum Sovétmanna, sem
kynntar voru Reagan Bandaríkja-
forseta á föstudag, væru tillögur
um að Sovétmenn semdu sérstak-
lega við Frakka og Breta um að
fækka kjarnorkuvopnum þeirra.
Frakkar og Bretar hafa hingað til
ekki viljað ræða um sinar kjarn-
orkuvopnabirgðir í viðræðunum í
Genf.
Þriðja atriðið í tillögum Gor-
bachevs, sem hann setti fram i
ræðu fyrir frönskum þingmönn-
um, var loforð um að fækka meðal-
drægum SS-20-flaugum niður i 243
næstu tvo mánuði. Það er sami
fjöldi og stillt hafði verið upp í júní
1984.
Gorbachev hét á „Bandaríkja-
menn að samþykkja gagnkvæmt
bann við geimvopnum og taka
niður 50 prósent þeirra kjarna-
oddaflauga, sem skjóta má á land-
svæði hvors annars". Þetta þýðir
að Gorbachev er ekki reiðubúinn
að fækka eldflaugum, sem beint
er að Vestur-Evrópu, um helming.
Reagan sagði i dag að ekkert
væri því til fyrirstöðu að Sovét-
menn semdu sérstaklega við Breta
og Frakka. Hann sagði einnig að
tillögurnar, sem Gorbachev hefðu
lagt fram í Frakklandi, mörkuðu
stefnubreytingu hjá Sovétmönn-
um. Reagan vildi ekki fara nánar
út í það hvernig tillögunum yrði
tekið: „Það kemur i ljós i Genf.“
Mikil eftirvænting ríkir nú
meðal vestur-evrópskra leiðtoga
vegna yfirlýsingar Gorbachevs um
að SS-20-flaugum verði fækkað,
en Hollendingar hafa verið tregir
til að staðsetja Pershing-flaugar í
Vonir glæðast um
afdrif gíslanna
Samið um vopnahlé í Trípolí
Beirút, 3. október. AP.
EKKI ER ÖLL von úti enn um aö
Sovétmennirnir þrír, sem haldiö er
í gíslingu hjá öfgasinnuöum múham-
eöstrúarmönnum, veröi heimtir lif-
andi úr helju, því aö samiö hefur
veriö um vopnahlé í Trípolí. Kröfur
mannræningjanna eru þar meö upp-
fylltar. Múhameöstrúarmennirnir
tóku fjóra gísla og hefur lík eins
þeirra fundist.
Þrátt fyrir hótanir frelsishreyf-
ingar múhameðstrúarmanna um
að taka sendiráðsstarfsmennina
tvo og lækni sendiráðsins af lífi,
hefur engin staðfesting borist um
að þeir hafi verið líflátnir.
Öryggisviðbúnaður við sovéska
sendiráðið í Beirút var aukinn til
muna í dag vegna hótana mann-
ræningjanna um að sprengja það
í loft upp, ef ekki yrði orðið við
kröfum þeirra og sókn vinstrisinn-
aðra skæruliða að Trípolí stöðvuð.
Tugir vopnaðra manna úr sósí-
alistaflokki drúsa stóð vörð um
afgirt sendiráðið og drúsar mönn-
uðu einnig loftvarnabyssur, sem
komið var fyrir á flutningabílum.
Seint í kvöld bárust fréttir um
að samið hefði verið um vopnahlé
milli öfgasinnaðra múhameðstrú-
armanna og vopnaðra sveita
vinstri manna í Trípolí, en flokkur
öfgasinnaðra vinstri manna hefur
haldið uppi stöðugri stórskotahríð,
skriðdrekaárásum og eldflauga-
skotum á borgina síðan fyrir helgi.
Ekkert lát virtist ætla að verða
á bardögunum, þrátt fyrir tilraunir
írana, sem bæði hafa ítök hjá Sýr-
lendingum, en þeir styðja árásar-
sveitir vinstri manna, og múham-
eðstrúarmönnunum, til að miðla
málum. Irönsk sendinefnd kom þó
á sex klukkustunda vopnahléi og
fylgdi leiðtoga múhameðstrúar-
manna, Sheik Saeed Shaaban, út úr
Trípolí til þess að hann gæti rætt
við varaforseta Sýrlands, Abdel-
Halim Kaddam. Þessum viðræðum
lyktaði með samkomulagi i kvöld.
landi sínu, þrátt fyrir þrýsting
Atlantshafsbandalagsins vegna
aukinna SS-20-flauga.
Mikið hefur verið fjallað um
fyrstu opinberu heimsókn Gor-
bachevs til vestantjaldslands siðan
hann varð leiðtogi kommúnista-
flokksins í sovéskum dagblöðum
og sagt að svona eigi samvinna
austurs og vesturs að fara fram.
AP/Símamynd
Gorbachev og Fabius, forsætisráðherra Frakklands, stilltu sér upp fyrir ljó»
myndara fyrir utan hótel í París áöur en þeir ræddu saman.
Forsætisráðherra ísraels:
Kveðst vilja flfta
friðarviðræðum
Jerúsalem, 3. október. AP.
SIMON Peres, forsætisráðherra
ísraels, bar fram yfirlýsingu í dag
til Husseins Jórdaníukonungs þar
sem hann kvaðst vilja halda áfram
friöarviöræðum fyrir botni Miöjarö-
arhafs og binda endi á stríösástandið
milli Jórdaníu og ísraels.
Peres hafnaði aðspurður gagn-
rýni frá Evrópuríkjum og aröbum
um að árásin á bækistöðvar PLO
i Túnis gerði erfiðara fyrir um
friðarumleitanir. Hann sagði að
Sovétmenn fengju ekki að taka
þátt í umræðunum nema þeir
tækju upp stjórnmálasamband við
Israel.
Peres bað Egypta um taka upp
viðræður að nýju við ísraela og
sagði Hosni Mubarak, forseti
Egyptalands, í dag að Egyptar
mundu halda áfram að stuðla að
friði í Miðausturlöndum þrátt
fyrir hinn „hræðilega harmleik" í
Túnis.
Stjórn Túnis sakaði ísraela aft-
ur um að vilja hindra friðarumleit-
anir í Miðausturlöndum með þotu-
árásinni og neitaði utanríkisráð-
herra Túnis, Befi Caid Essebsi,
ásökunum Israela um að starfsemi
frelsishreyfingar Palestínumanna
(PLO) væri stjórnað frá Túnis.
Hann sagði að ekkert gæti réttlætt
hermdarverkastarfsemi af þessu
tagi og sagði að afstaða Banda-
ríkjamanna til árásarinnar væri
til vansa. „Þeir kippa í strengi og
AP/Simamynd
Vopnaöir drúsar gæta nú sovéska sendiráðsins í Beirút eftir aö ofsatrúarmenn hótuðu aö sprengja þaö ■ loft upp.
toga í spotta, en sýna engan vilja
til að koma málunum á skrið,"
sagði Essebsi.
Fundur olíuríkja í Vín:
Saudar vilja
lækka
olíuverð
V(b, 3. október. AP.
SAUDI-ARABAR, sem hingað til
hafa verið helstu stuðningsmenn hás
olíuverös innan OPEC, samtaka olíu-
framleiösluríkja, staðfestu í dag aö
þeir myndu bjóöa lækkaö olíuverð f
trássi viö reglugerðir OPEC um sett
verð á olíu.
Aðildarríki OPEC komust að
sameiginlegri niðurstöðu um það
að óhjákvæmilegt væri að verð
olíutunnu lækkaði um einn til tvo
dollara næstu sex mánuði, að því
að haft er eftir ónafngreindum
heimildarmanni.
Fundur olíuráðherranna var í
járnum í dag vegna þess viðkvæma
máls hvort sex þjóðir ættu að fá
leyfi til að auka olíuframleiðslu
sína og var ákveðið að skera úr
um það mál á næsta OPEC fundi
í desember, þar sem háttsettir
fulltrúar á fundinum hafa lýst yfir
því að þeim komi ekki til hugar
að lækka verðið.
Olíuráðherra Sauda, Ahmed
Zaki Yamani, vildi ekki segja
hversu mikil lækkuninn yrði, en
talið er að um tvo dollara yrði að
ræða á tunnu. OPEC hefur sam-
þykkt að olíutunna eigi að kosta
28 dollara.
Búist hefur verið við þessari
breytingu á olíuverði af hálfu
Sauda frá því í september, því að
olíuframleiðsla Sauda hefur ekki
verið minni í 20 ár, en í sumar.
Af þessu er einnig ljóst að
samtök olfuframleiðsluríkja geta
ekki lengur ráðið olíuverði f heim-
inum.