Morgunblaðið - 04.10.1985, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
3
ÍÍTÓÐHEfmiRINN Prati frí
Hlöðutúni, sem er vel þekktur hér-
lendis, fórst þegar hestaflutninga-
kerra, sem hann var I, losnaöi frá
hílnum sem dró kerruna. Annar
eigandi hestsins, Walter Feld-
mann yngri, var á leið með hestinn
til Hollands, þar sem hann býr,
eftir að hafa keppt á hestamóti í
Belgíu.
1 samtali við Morgunblaðið
kvaðst Feldmann hafa verið á
um 70—80 kílómetra hraða þeg-
ar kerran, af ókunnum orsökum,
losnaði frá bílnum og rann á
grindverk sem er meðfram veg-
inum. Við höggið kastaðist hest-
urinn út úr kerrunni og yfir á
næstu akrein. Brotnuðu í honum
nokkur bein en hesturinn dó
hinsvegar tveim tímum seinna
af völdum innvortis blæðingar.
Eins og áður kemur fram voru
tveir eigendur að hestinum en
Þjóðverji að nafni Wolfgang
Bohlmann átti hestinn á móti
Feldmann. Að sögn Feldmanns
var hesturinn ótryggður og er
Morffunblaðið/Valdimar
Meðfylgjandi mynd er tekin af Prata og Walter Feldmann á Evrópumót-
inu í Svíþjóð í sumar en þar varð hann annar í röð stóðhesta sem dæmdir
voru á mótinu.
Þekktur íslenzkur stóðhest-
ur fórst í slysi í Belgíu
— Kerra sem hann var fluttur í losnaði frá bflnum
þetta mikill skaði fyrir þá félaga
því hesturinn var orðinn vel
þekktur meðal eigenda íslenskra
hesta í Evrópu.
Hafði Feldmann keppt á hon-
um nokkuð víða og minnast
sjálfsagt margir hestsins frá ný-
afstöðnu Evrópumóti en þar
varð hann annar í röð stóðhesta
sem voru leiddir fyrir alþjóðlega
kynbótadómnefnd mótsins.
Feldmann hafði unnið góða sigra
á Prata á Meistaramóti Þýska-
lands auk annarra móta bæði í
ár og í fyrra.
En þrátt fyrir að Prati hafi
getið sé gott orð í keppni ytra
hafði engri hryssu verið haldið
undir hann frá því hann var
seldur út þannig að hann skilur
einungis eftir sig góðar minn-
ingar. Ekki er ósennilegt að
eitthvað sé til af afkvæmum
undan honum hérlendis og
kvaðst Feldmann hafa hug á að
leita fyrir sér með afkvæmi und-
an honum þótt síðar yrði. Um
ástæður þessa sagði Feldmann
það venju hjá sér að stóðhestar
þeir sem hann notaði í keppni
væru ekki notaðir til kynbóta
samtímis.
Ekki voru allir á eitt sáttir um
gæði Prata sem kynbótahests og
var einkum fundið að skapgerð-
inni. Þótti hann full skapharður
en engum duldist þó að reið-
hestshæfileikar voru miklir. Má
segja að Prati hafi verið yfir-
burðahestur hvað varðar vilja og
skeiðrými þótt oft gengi illa að
hemja hann á keppnisbrautinni.
VK.
Dagsbrún boðar
verkfall á Securitas
DAGSBRÚN hefur boðað verkfall
hjá öryggisfyrirtækinu Securitas frá
og með næstkomandi þriðjudegi. Um
50 starfsmenn Securitas eru féiagar
í Dagsbrún. Samningar deiluaðila
hafa staðið yfir um nokkurra vikna
skeið hjá ríkissáttasemjara, en án
árangurs. Ríkissáttasemjari hefur
ekki boðað nýjan fund með deiluaðil-
um.
Samningar við Securitas hafa
verið lausir frá 1. júlí síðastliðn-
um. Securitas heldur uppi öryggis-
vörslu hjá á annað hundrað aðil-
um; fyrirtækjum, stofnunum og
bönkum. Snar þáttur í starfsemi
fyrirtækisins er eftirlit með vélum
og eldvörnum, þannig að verkfall
Dagsbrúnar, ef til framkvæmda
kemur, mun hafa víðtæk áhrif hjá
fjölmörgum fyrirtækjum og stofn-
unum.
Coldwater Seafood Corp.:
Aukin fisksala
— samdráttur í unninni vöru
SALA flaka hjá Coldwater, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihusanna
í Bandaríkjunum, hefur gengið vel, en samdráttur hefur orðið í sölu unninn-
ar vöru. Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að mögulegt væri að selja meira af flökum, fengjust þau að heiman.
Fyrirsjáanlegur skortur á þorskblokk væri áhyggjuefni og slæmt til þess
að hugsa, að við þjónuðum ekki þessum stóra og mikilvæga markaði nógu
vel og stýrðum framleiðslunni betur inn á hann.
I september var sala Coldwater
11,2 milljónir punda að verðmæti
16 milljónir dollara (656 milljónir
króna). Er það 1% aukning í magni
og 7% í verðmætum talið miðað
við sama mánuð í fyrra. Seldar
voru 4,5 milljónir punda af unninni
vöru að verðmæti 5,5 milljónir
dollara (225,5 milljónir króna). Er
það 15% samdráttur í magni og
9% samdráttur í verðmætum. 5,3
milljónir punda af flökum voru
seldar í mánuðinum að verðmæti
8,4 milljónir dollara (344,4 milljón-
ir króna). í magni er aukningin
18% og í verðmætum 19%.
Það sem af er árinu hefur fyrir-
tækið selt 118,4 milljónir punda
að verðmæti 165,3 milljónir doll-
ara (um 6,8 milljarðar króna).
Miðað við sama tíma í fyrra er
samdráttur í magni 1% en 7%
aukning í söluverðmætum. Nú
hafa verið seldar 46 milljónir
punda af unninni vöru að verð-
mæti 56 milljónir dollara (2,3
milljarðar króna). Það er sam-
dráttur í magni upp á 7% en 3%
aukning í verðmætum. Af flökum
hafa verið seldar 56,2 milljónir
punda að verðmæti 88,2 milljónir
dollara (3,6 milljarðar króna). Það
er 4% aukning í magni og 7% í
verðmætum.
Landhelgis gæzlan:
Flaug með
hjartasjúkl-
ing til London
FOKKER FLUGVÉL Undhelgigæzl-
unnar flaug síðastliöinn þriðjudag með
sjúkling í bráðri hættu til London, þar
sem hann var lagður inn á sjúkrahús.
Hér var um að ræða mann, sem farið
haföi í hjartaaðgerö í London seinni
hluta sumars en hafðist illa við.
Guðmundur Oddsson, læknir á
Borgarspítalanum, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að vegna eftir-
kasta eftir hjartaaðgerðina hefði
sjúklingurinn komið í aðgerð á
Borgarspítalanum. Við nánari skoð-
un hefði komið í ljós að heilsa
mannsins var mun lakari en talið
hafði verið og því nauðsynlegt að
flytja hann tafarlaust utan í fylgd
með læknum og hjúkrunarfræðingi
af gjörgæzludeild.
Að sögn Landhelgigæziunnar var
það um klukkan 18.30 á þriðjudag,
sem farið var með sjúklingin utan
eftir beiðni frá Borgarspítalanum.
Flugið tók um 5 klukkustundir og
gekk nokkuð vel. Lent var á Gatwik
og vélin kom síðan heim á miðviku-
dag. Flugstjóri í ferðinni var Tómas
Helgason.
Loðnuveiðin:
10.000 lestir á
miðvikudaginn
LOÐNUAFLINN á miðvikudag varð
9.570 lestir af 15 skipum, en um 40
eru nú haldin til veiðanna. Síðdegis f
gær höfðu þrjú skip tilkynnt um afla,
samtals 1.650 lestir.
Auk þeirra skipa, sem áður hefur
verið getið í Morgunblaðinu, til-
kynntu eftirtalin um afla á miðviku-
dag: Ljósfari RE, 500, Hrafn GK,
570, Sighvatur Bjarnason VE, 600,
Gullberg VE, 540, Guðrún Þorkels-
dóttir SU, 550 og Harpa RE 100
lestir. Síðdegis í gær höfðu tilkynnt
um afla Bergur VE, 500 lestir,
Sæberg SU, 400 og Höfrungur AK,
750 lestir.
/
15% KYNNINGARAFSLÁTTUR í OKTOBER
Vegna sérlega hagkvæmra innkaupa getum viö
boðið úrval Habitat eldhúsinnréttinga með
kynningarafslætti. Innréttingarnar eru vandaðar,
mjög auðveldar í uppsetningu og veröið óviö-
jafnanlegt.
Sýningareldhús eru í versluninni
að Laugavegi 13.
Kreditkort eru velkomin. Síminn er 25808.
0 p p r
p1 >>i L--'
Emfaldur Skúffueming meö
neön skápur meö 4 skúffum Kynningar -
hurö og skúffu verð frá 6.114.- kr.
Kynningarverö
fré 4.141- kr.
ft
Tvotaldur
etriskápur meö skápur meö hurö
huröum Kynningar- og hillum Kynningar-
verö trá 3.507- kr. verö frá 6.450,- kr.
Tviskiptur neöri■
skápur meö hurö-
um Kynningarverö
frá 4.480 - kr.
I
Hornskápur efn
meö huröum
Kynningarverö
frá 3.675 - kr.