Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 16
16 _______________MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985
A tímamótum
Hugleiðing í tilefni af tíu ára af-
mæli Fjölbrautaskólans í Breiðholti
— eftir Ólaf M.
Jóhannesson
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
fagnar 10 ára starfsafmæli um
þessar mundir. Áratugur er sem
örskot á tommustokk sögunnar og
því ætla ég ekki hér að rita virðu-
lega afmælisgrein, þar sem saga
skólastofnunarinnar er tíunduð.
En ég hef átt því láni að fagna að
starfa sem lausráðinn kennari við
þennan ágæta skóla í 6 ár og finn
mig knúinn til að rabba örlítið um
afmælisbarnið. Ástæða þess að ég
sting hér niður penna í tilefni
afmælisins er tvíþætt, í fyrsta lagi
ann ég Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti alls hins besta, og í öðru
lagi finnst mér undarlega hljótt
um þennan stærsta og öflugasta
framhaldsskóla landsins, en nú
stunda yfir 2.000 manns nám
þarna í Breiðholtshæðum, og
stefnir óðum í það að nemenda-
fjöldinn verði svipaður í dag- og
kvöldskóla. Ástæða þess hversu
hljótt er um þennan stærsta fram-
haldsskóla lands vors er að mínu
mati fyrst og fremst hógværð
skólameistarans, séra Guðmundar
Sveinssonar, en séra Guðmundur
hefir að mínu mati unnið þrekvirki
við uppbyggingu Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti svo nú er þar ekki
aðeins risinn stærsti framhalds-
skólinn, er vart annar umsóknum
um skólavist, heldur hefir þarna í
Breiðholtshæðum risið í kringum
skólastofnunina sundlaug, Gerðu-
berg og smiðjur miklar. Sannköll-
uð menningarmiðstöð.
Ég veit að margan lesandann
fýsir að vita hver sé sérstaða
Fjölbrautaskólans í Breiðholti og
hver sé staða hans í fræðslukerf-
„Agi er frumforsenda
skólastarfs hvort sem
mönnum líkar betur eða
verr, því agaðir nemend-
ur verða gjarnan vinnu-
samari og síðar nýtari
borgarar.“
inu á tíu ára afmælinu. Frá mínum
bæjardyrum séð markast sérstaða
Fjölbrautaskólans í Breiðholti
fyrst og fremst af því að hann end-
urspeglar býsna vel atvinnulífið. Það
er kannski best að lýsa þessu með
því að lýsa svolítið andanum á
kennarastofunni en þar sitja hlið
við hlið viðskiptafræðingar, smið-
ir, rafvirkjar, íslenskukennarar,
verkfræðingar, snyrtifræðingar,
vélritunarkennarar, hjúkrunar-
fræðingar, kokkar, tölvufræðing-
ar, íþróttakennarar, listmálarar,
stærðfræðingar, leikarar og skáld.
Að mínu mati er þannig Fjöl-
brautaskólinn í Breiðholti trúr
þeirri hugsón að þar skuli ungt
fólk eiga kost á að velja á milli
hinna ólíklegustu námsbrauta
innan sömu námsstofnunar.
En hefir þá þetta fjölbrautakerfi
enga ókosti? Vissulega hafa öll
kerfi sína agnúa. Að mínu mati
er meiri hætta á að óframfærnir
einstaklingar verði utanveltu í
fjölbrautakerfinu heldur en gamla
bekkjakerfinu, því oft skortir
nokkuð á hópeflið slíkt er gjarnan
skapast í bekkjarkerfi. En á móti
kemur að nemendur venjast á að
bjarga sér uppá eigin spýtur og
taka sjálfstæðar ákvarðanir um
námsfyrirkomulag. Slíkt kann að
reynast mönnum ómetanlegt þeg-
ar út í lífsbaráttuna kemur og
þeir hverfa frá hinum tiltölulega
verndaða heimi skólans. Ég býst
líka við að einhverjum þyki máski
fjölbrautakerfið og hið tiltölulega
óbundna áfangakerfi dálítið óróm-
antískt og horfa þá til þeirra
gullnu daga er hvítar stúdents-
húfurnar voru settar upp fyrir
framan aldnar og fornfrægar
skólabyggingar. Auðvitað næst
ekki jafn rómantísk stemmning
þá hvítu húfurnar eru settar upp
fyrir framan hina nýtískulegu og
tiltölulega ungu skólastofnun í
Breiðholti, enda erum við löngu
hætt að skera út vindskeiðar á
skólabyggingum. En Fjölbrauta-
skólinn í Breiðholti er ekki bara
útskriftarstofnun fyrir stúdenta,
hann leitast við að endurspegla
fjölbreytni atvinnulífsins í starfs-
háttum sínum og skipulagi og
raunveruleikinn er nú ekki alltaf
rómantískur nema e.t.v. í augum
unga fólksins.
Aður en ég lýk þessu stutta
afmælisávarpi til Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti vil ég minnast á
tvennt sem mér finnst einstætt í
fari þessa stóra skóla. í fyrsta lagi
hversu agaðir nemendur skólans
eru upp til hópa og miða ég þá við
reynslu mína af öðrum sambæri-
legum skólastofnunum. Agi er
frumforsenda skólastarfs hvort
sem mönnum líkar betur eða verr,
því agaðir nemendur verða gjarn-
an vinnusamari og síðar nýtari
borgarar, en hinir sem fá að valsa
um í vinnustundum. í öðru lagi
held ég að það hljóti að teljast
einstætt hversu fáir eru við stjórn-
unarstörf í skólanum og á þetta
sérstaklega við öldungadeild skól-
ans þar sem stjórnunarkostnaður
er sennilega sá lægsti sem um
getur við nokkra sambærilega
skólastofnun. Hér er við fjármála-
yfirvöld að sakast en hingað til
hafa stjórnunaraðilar innt gífur-
lega mikið starf af hendi við stofn-
unina. Má í því sambandi ekki
-t
V/ertu við
sjón va rpstækið
í kvöld eftir fréttir
— og ekki gleyma
poppkorninu
1 pottur
1 sKál
1 pK. poppmaTs
Jurtaolía
Salt
(Fæst auðvitað allt T HagKaup)
Hitið olTuna T pottinum, stráið
poppmaTsnum OtT. Látið „poppast".
Hellið T sKál og saltið að vild.