Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR4. OKTÓBER1985
17
Stúdentaleikhúsið sýnir „Ekkó
— guðirnir ungu“ í Reykjavík
gleyma Stefáni Andréssyni sem
hefir byggt upp tölvukerfi skólans,
sn Stefán hefir nú horfið til hlið-
tæðra starfa við æðstu mennta-
■tofnun þjóðarinnar, Háskóla ís-
iands, og segir það sína sögu. Þá
má ekki gleyma skrifstofustjóran-
um Guðlaugu Einarsdóttur sem
hefir leyst úr hvers manns vanda,
Erlu Olafsdóttir áfangastjóra,
Benedikt Jónassyni, húsverði,
Þorkeli Steinari Ellertssyni,
námsráðgjafa, Kristínu Arnalds,
aðstoðarskólameistara og Árna
Njálssyni, félagsmálastjóra. Þá
má ekki heldur gleyma blessuðum
samkennurunum sem sumir eru
líka í tímafrekum deildarstjóra-
og sviðstjóraembættum. Skrifstof-
ustúlkurnar, kaffikonurnar og
ræstitæknarnir eiga líka sinn þátt
í vexti og viðgangi stofnunarinnar.
Og yfir þessum mikla skóla vakir
svo skólameistarinn okkar, séra
Guðmundur Sveinsson, og leitar
stöðugt nýrra leiða að því marki
að gera Fjölbrautaskólann í Breið-
holti að raunhæfri spegilmynd
þess veruleika er blasir við nem-
endur utan skólalóðar. íslenskt
samfélag má að mínu mati vel við
una þá spegilmynd á 10 ára af-
mælinu.
Höíundur er kennarí rið Fjök
brautaskólann íBreiðboltí.
STTÚDENTALEIKHÚSIÐ hefur
undanfarnar vikur ferðast um landið
með söngleikinn „Ekkó — guðirnir
ungu“ en á sunnudagskvöld, 6. októ-
ber, mun leikhúsið frumsýna verkið
í Reykjavík og verða sýningarnar í
Félagsstofnun stúdenta.
Söngleikurinnn var fyrst sýndur i
Akranesi, en alls hefur verið sýnt i
22 stöðum. Ætlunin er að fara f
styttri leikferðir nú með haustinu,
m.a. í nágrannabyggðir Reykjavíkur
og til Vestmannaeyja.
Leikritið fjallar um unglinga,
samskipti þeirra við heimili, skóla,
vini og hvernig þeir falla á mis-
munandi hátt inn í stærri hóp.
Freistingarnar sem meðlimir
hópsins lenda í eru margskonar
svo sem eiturlyf, brennivín, kynlíf
og fleira.
Áhersla leiksins er á sögu
tveggja meðlima þessa umrædda
hóps, Ekkó og Narsa, sem leikin
eru af Örnu Valsdóttur og Ara
Matthíassyni. Sambandi þeirra er
fylgt eftir, sem síðar verður til
þess að klíka þessi springur í frum-
parta sfna, að því er fram kom á
blaðamannafundi leikhússins.
Verkið er eftir Claes Andersson,
en ólafur Haukur Símonarson
þýddi það og samdi söngtexta.
Ragnhildur Gísladóttir samdi tón-
listina sem leikin er af fjögurra
manna hljómsveit, sem jafnframt
tekur þátt í leiknum. Karl Aspe-
lund hannaði leikmynd og bún-
inga, Guðný B. Richards gerði leik-
brúður. Lýsingu sér Egill Árnason
um og Andrés Sigurvinsson leik-
stýrir.
Alls koma þrettán leikarar fram
í sýningunni. Leikstjórinn sagði á
blaðamannafundi er haldinn var í
tilefni sýninganna að leikurinn
væri ekki síður fyrir fullorðna en
unglinga. „Verkið er af léttara
taginu en með alvarlegu ívafi.
Samskiptin milli allra þeirra sem
staðið hafa að uppfærslunni hafa
verið framúrskarandi góð, og
finnst mér persónulega jafnrétt-
látt að Stúdentaleikhúsið eigi rétt
á styrkjum eins og hvert annað
leikhús í landinu."
Hhiti leikara úr söngleik Stúdentaleikhússins „Ekkó — guðirnir ungu“ sem sýna i i Félagsstofnun stúdenta á
næstu vikum.
Við ættum að kunna uppskriftina.
Hagkaup hefur nefnilega selt poppmaís í 25 ár—og reyndar
flest annað. Hú er búið að gera bráðskemmtilega
„fræðslumynd" um sögu okkar sem margir íslendingar sáu
frumsýnda T sjónvarpinu s.l. laugardag.
Við endursýnum myndina í fyrri auglýsingatímanum T kvöld,
strax eftir fréttir.
Ckki láta þig vanta - þetta er mynd sem allir hafa gaman af.
5vo er afmælisbamið ITka svo „myndaHegt
Qóða skemmtun!
HAGKAUP