Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 27

Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 27
Ferskfiskmarkaðir erlendis: MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985 27 Mikið framboð og verðið lágt MJÖG mikið framboð af ferskum fiski er nú í Hull og Grimsby af heimabátum og hefur það áhrif til lækkunar á verð á uppboðsmörkuð- unum þar. Meðalverð á góðum fiski úr íslenzku skipi fór á fimmtudag niður í 33,55 krónur og ekki reyndist unnt að selja allan afla annars. Snæfell EA seldi 93 lestir í Hull, mest þorsk. Heildarverð var 3.119.900 krónur, meðalverð 33,55 kr. Snæfugl SU seldi 106,8 lestir, mestallt þrosk, í Grimsby. Heild- arverð var 4.460.100 krónur, með- alverð 41,75 kr. Ekki tókst að selja meira úr skipinu, en reiknað er með því að þær 80 lestir, sem enn eru óseldar, fari á markaðinn á föstudag. Þá kemur Bjartur NK með 170 lestir af fiski á markaðinn sama dag. Ýmir HF seldi svo 158,3 lestir, mest karfa, í Cuxhaven á fimmtu- dag. Heildarverð var 4.542.600 krónur, meðalverð 28,69 kr. 'fí INNLENT Síldarsöltunarstúlkur í söltunarstöð Friðþjófs hf. á Eskifirði. Morgunblaði9/Ævar Fyrsta síldin söltuð á Eskifirði Eskifirði, 2. október. FYRSTA síldin, sem söltuð er hér á Eskifirði kom í gær, en þá land- aði hér Geiri Péturs ÞH hjá söltun- arstöð Friðþjófs hf. Kom skipið með 300 tunnur af góðri síld. í morgun kom svo Geiri Péturs aftur með 300 tunnur af síld, svo og Sæljónið einnig með 300 tunnur. Var landað úr báðum bátunum „Það er siðferði- leg krafa að við- halda listaverkum“ — segir Hallsteinn Sigurðsson „Múrarar ættu að vita það betur en flestir aðrir, að nauðsynlegt er að gera við skemmdir á steyptum flötum, áður en málað er yfir þá,“ sagði Hallsteinn Sigurðsson listamaður. Hann kom að máli við Morgun- blaðið vegna óánægju með viðhald listaverksins Veðrahöll, sem er í eigu Múrarafélags Reykjavíkur, en eigendur létu mála yfir alla fieti verksins í fyrrasumar án þess að gera við veðrunarskemmdir í steypunni. BM Vallá gaf Múrarafélaginu Hann sagði að auðvelt væri að listaverkið Veðrahöll eftir Hall- stein árið 1978. Þrem árum síðar lét BM Vallá setja thoro-steypu ofan á alla lárétta fleti verksins, að sögn Hafsteins, og þannig var það í fjögur ár. I fyrrasumar lét Múrarafélagið mála allt verkið án þess að viðgerð hefði farið fram. „Höfundarréttarlögin kveða að vísu ekki á um að það sé skylda eigenda listaverka að halda þeim við, en engu að síður er það sið- ferðileg krafa á hendur þeim,“ sagði Hallsteinn. Víglundur Þorsteinsson hjá BM Vallá sagði að hugsanlegt væri að listaverkið hefði verið tekið of snemma úr mótum og því ekki orðið nægilega þurrt. Brúnirnar hefðu síðan veðrast, og eitthvað brotnað upp úr þeim. gera við skemmdirnar og myndu þeir hjá BM Vallá sjá um við- gerðina. Helgi Steinar hjá Múrarafé- lagi Reykjavíkur sagði, að upp- haflega hefði verið sett efni til verndar steypunni á listaverkið, en er það hefði flagnað af, hefðu þeir hjá Múrarafélaginu unnið að viðgerð verksins. Það hefði hinsvegar reynst erfitt að ljúka þeim viðgerðum vegna mikilla rigninga, og því hefði verið brugðið á það ráð að mála verkið til að vernda það frekar. „Það er af og frá, að ekki sé hægt að ljúka viðgerðinni, þó búið sé að mála listaverkið. Það eru engar skemmdir komnar í verkið, þó komin séu í það skörð, og aldrei verið ætlun okkar að ljúka ekki viðgerðinni." Veðrahöll, listaverk Hallsteins Sigurössonar sem er í eigu Múrarafélags Reykjavíkur. hjáFriðþjófi hf. Á söltunarstöð Sæbergs kom svo Freyja GK með 500 tunnur. Sjó- menn segja að þó nokkuð sé af síld í fjörðunum, en hún er bæði dreifð og stendur djúpt. Einn skip- stjóranna sagði að í nótt hefði síldin „hlaupið upp í fjörur", eins og hann tók til orða. Eins og áður sagði kom Freyja frá Garði með 500 tunnur, sem fóru til söltunar í söltunarstöð Sæbergs á Eskifirði. Síldina fengu skip- verjar í Fáskrúðsfirði. Er þetta fyrsta síldin, sem þeir fá enda nýkomnir á miðin. Meðal skipverja er fullorðinn maður, Guðbrandur Guðmundsson frá Keflavík, og stóð hann í síld upp í hné í löndunar- kassanum. Hann kvaðst hafa verið á mörgum síldarvertíðum, bæði fyrir Norður- og Austurlandi og alls kvaðst hann vera búinn að vera 21 vertíð með Halldóri skip- stjóra á Freyju. — Ævar. Guöbrandur Guömundsson skipverji á Freyju frá Garöi við sfldarlöndun á Eskifirói. Morgunblaðið/Ævar Söltunarstúlka á Fáskrúösfiröi. Morgunblaftið/Albert Kemp Söltun á Fáskrúðsfirði, en hún hófst nokkru fyrr en á Eskifirði. Morgunblaðið/Albert Kemp Útreikningur verðtryggingar lána gagnrýndur: „Hávextir í rauninni greiddir af lántakendum segir Þorgils Axelsson byggingartæknifræðingur „UM ÞAÐ eru til skýrar reglur innan bankakerfisins hvernig reikna á út verötryggingu lána, en slíkar reglur hafa hins vegar ekki verið settar um lánaviöskipti á almennum markaöi, s.s. í byggingarframkvæmdum,“ sagði Þorgils Axelsson, byggingar- tæknifræðingur, í samtali viö Morg- unblaðið, en um síöustu helgi flutti hann erindi um þetta efni á fundi samtakanna Lögvernd á Hótel Sögu. Þorgils sagði, að sú reikningsað- ferð sem notuð væri á hinum almenna markaði, þ.e. línuleg vísi- tala eða jöfnunarvísitala, leiddi til þess að lántakendur greiddu á endanum mun hærri upphæð, en verðtryggingu næmi. I reynd greiddu þeir hávexti. Þorgils benti á, að til væri reikn- ingsregla um verðtryggingu („lög- fræði skrifuð utan um stærð- fræði", eins og hann komst að orði), sem Efnahags- og samvinnu- nefnd Sameinuðu Þjóðanna í Genf hefði samið og mælst til þess að aðildarþjóðir notuðu. „Þetta er hin svonefnda „bókun 188A“, sem er t.d. notuð í Svíþjóð," sagði Þorgils. „íslenska byggingarvísitalan er reiknuð út á sama grundvelli og sú sænska og hvers vegna í ósköp- unum notuð við þá ekki líka bókun 188A? Bókunin tekur tillit til þess að aðilar í lánsviðskiptum inna af hendi gagnkvæmar skyldur og fyrir það að greiða upp samnings- verð á hinn tiltekna hátt eignast lántakandi part í verðbólgunni." Þorgils sagðist hafa athugað nokkur dæmi um byggingarvið- skipti hér á landi og nefndi, að raðhús af algengri stærð, sem byggt hefði verið 1981 og kostað 750 þúsund, hefði í einu tilviki verið ofgreitt um 200 þúsund krón- ur og í öðru um 280 þúsund krónur, ef miðað er við núvirði og reikn- ingsreglu bókunar 188A til saman- burðar. Þorgils Axelsson kvaðst hafa rætt þessa gagnrýni sína á núver- andi útreikning verðtryggingar við ýmsa embættismenn og stjórn- málamenn sl. þrjú ár. „Það tók mig allt árið 1982 að sannfæra menn um að ég væri með réttu ráði!“, sagði Þorgils, en nú væru undirtektirnar orðnar aðrar og m.a. hefði Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra, kynnt sér þetta mál og lýst skilningi á því. Taldi Þorgils líkur á því, að stjórn- völd mundu því beita sér fyrir því á næstunni að bókun Sameinuðu þjóðanna yrði framvegis notuð við útreikning verðtryggingar lána á almennum markaði hér á landi. 4 * .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.