Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 37

Morgunblaðið - 04.10.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER1985 37 Eins og fram hefur komið í frétt- um bar það til tíðinda er kveikt var á blysum á matarborðinu að reykskynjarar fóru í gang og slökkviliðið var mætt að vörmu spori með allan sinn útbúnað. Forseti íslands heilsar hér framkvæmdastjóra Arnarflugs Agnari Frið- rikssyni. Til vinstri er Halldór Bjarnason, yfirmaður Arnarflugs í Hol- landi, og til hægri Haraldur Haraldsson hjá Andra hf. Myndin er tekin við móttökuna í Haag. Islandskynning Þegar frú Vigdís Finnboga- dóttir hélt í opinbera heim- sókn til Hollands seinnipartinn í september efndu 18 íslenskir aðil- ar er stunda viðskipti við landið til Islandskynningar í Hollandi. Boðið var til kvöldverðar bæði í Amsterdam og Rotterdam og var íslenskur matur á borð borinn af Hilmari Jónssyni matreiðslu- manni. Að loknu borðhaldi flutti Ragn- ar Halldórsson formaður Verslun- arráðs íslands ræðu og að þvi loknu var haldin tískusýning þar sem íslenskt sýningarfólk sýndi ullarfatnað frá Álafossi og Iðnað- ardeild SÍS. 1 Hollandi Við móttökuna í Haag. Hr. Aardenne efnahags- ráðherra og de Konnong aðstoðarfjármálaráðherra ásamt Hilmari Jónssyni. í Rotterdam, hlaðborðið sem slökkvilið Rotterdam kom til að slökkva í. Fyrir miðju er víkingaskip sem Hilmar Jónsson bjó úr ísklumpi. Ingimundur Konráðsson frá fslensku umboðssölunni og Áslaug Hafstein kona hans ásamt viðskiptavinum. Elvis mesti poppari allra tíma w Inýrri útgáfu af heimsmetabók Guinness þar sem fjallað er um hljómplötur, segir að Elvis Presley sé vinsælasti poppari allra tíma. Þar segir að frá því að hann hóf feril sinn 1952 og til dagsins i dag hafi rokkkóngurinn verið 1124 vikur á vinsældarlistum með plöt- ur sínar eða meira en 20 ár, en þess má geta að Bítlarnir hafa verið í 419 vikur og Cliff Richards í 902 vikur á listanum. Elvis á að sögn bókarinnar flest topplögin eða 106 lög á meðan t.d. Stevie Wonder og David Bowie hafa ekki átt nema 37 lög hvor. Þá vitum við það. COSPER Ég hef orðið áhyggjur af manninum mínum. Hann er farinn að borga skattana með bros á vör. Innilegar þakkir sendi éy börnum mínum, tenydabörnum, barnabörnum, barnabarna- börnum, cettinyjum, vinum oy fyrrverandi samstarfsmönnum sem ylöddu miy á áttrœðis- afmæli mínu þann 11. september með skeytum oy yjöfum. Sérstakar þakkir sendi éy öllu starfsfólki Hátúni 10, k. hœð. afmæli mínu 2J+. sept. sl Lárus Salómonson. Frumsýning ílðnó íkvöld. BORÐAPANTANASIMI HELGARINNAR 30400 Hauargarðurínn HUSI VERSLUNARINNAR ÖRN ARASON LEIKUR KLASSÍSKAN GÍT- ARLEIK FYRIR MAT- ARGESTI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.