Morgunblaðið - 23.10.1985, Side 28

Morgunblaðið - 23.10.1985, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER1985 Teningnum kastað Athugasemd frá framkvæmdastjóra Flugfisks-Flateyri hf. MORGUNBLAÐINU hefur borizt athugasemd frá Hrafni Björnssyni, framkvæmdastjóra Flugfísks-Flat- eyri hf.: „í DV þann 16. okt. sl. kom þvert yfir forsíðuna frásögn af gjald- þroti Flugfisks-Flateyri hf. Dag- inn áður en búið var tekið til gjald- þrotaskipta hjá sýslumanni ísa- fjarðarsýslu. Síðan hefur hver greinin rekið aðra og síðan rekur Morgunblaðið endahnútinn á með myndskreyttri grein í sunnudags- blaðinu þann 20. okt. sl. í greinum þessum eru heilar langlokur um eignir og þó aðallega skuldir. Greinar þessar eiga það þó sammerkt að lítið er þar minnst á að innihald þessara húsa sé einhvers virði, eða að þar sé ve'rið að byggja upp nýiðnað, sem að mjög takmörkuðu leyti sé farinn að gefa nokkuð af sér. Víða erlendis, þar sem eitthvað er horft fram veginn, er gengið út frá þvi að fjárfestingar í nýiðnaði fari ekki að skila sér að ráði til baka fyrr en eftir fimm ár. Flug- fiskur-Flateyri hf. hlaut aldrei nema rösklega hálfan þann gálga- frest frá því það hóf starfrækslu, sem einkafyrirtæki þann 16. jan. 1982. Hefði verið séð fyrir að þessi yrðu endalokin, þá hefði áreiðan- lega fyrr verið búið að klæða áð- ur-nefndar fasteignir fyrirtækis- ins, þó ekki væri nema til að gleðja augu lesenda Morgunblaðsins. Forráðamenn fyrirtækisins höfðu hins vegar talið réttara að byggja fyrst upp fyrirtækið innan frá með o INNLENT öllum þeim hönnunar- og fjár- magnskostnaði, sem það tekur hér að byggja upp fjöldaframleiðslu. En klæða síðan húsin utan og fegra umhverfi þeirra, þegar starfsemin færi að skila arði. Því miður eru þessi skrif ekkert séreinkenni þeirra blaða sem þau birta, heldur endurspegla þau það efnahagsástand, og þann hugsun- arhátt, sem með okkur fslending- um hefur þróast hin síðari ár. Enda er að verða svo, að ekkert er hér hægt að reka með hagnaði, nema þjónustu, sem getur velt hækkunum sínum beint út í verð- lagið. Skyldu menn t.d. hafa velt því fyrir sér hvort stórfyrirtæki eins og DV og Morgunblaðið afli eða spari erlendan gjaldeyri. Skyldu menn mikið hugleiða að fyrirtækið ísland er rekið með tapi, á sama tima og opinberir og hálfopinberir aðilar hamast við að auglýsa hátt í 100% ávöxtun eða að slík ávöxtun við fyrrgreind skilyrði hljóti að leiða af sér samsvarandi tap. Ætli menn hugleiði að þetta samsvarandi tap veldur því að eitt málgagn rikisins þ.e. Lögbirtinga- blaðið hefur stækkað fyrirtækja mest á íslandi. Skyldu menn hugleiða hvað neyddi forráðamenn Flugfisks- F'lateyri hf. til að óska sjálfir eftir gjaldþrotsúrskurði, því skal hér svarað: Forráðamenn lítils sparisjóðs fyrir vestan höfðu ekki kynnst því að gerðar væru skuldbreytingar og því síður að slíkar ráðstafanir gætu verið báðum aðilum til hags- bóta og tryggt hagsmuni beggja. Þegar samningar voru útilokaðir, lánin gjaldfelld og komin fyrir dómstóla, þótti ekki lengur stætt gagnvart öðrum lánardrottnum að halda rekstrinum áfram. Skyldu menn hugleiða að þessi sami sparisjóður fór langt út fyrir sín takmörk í lánveitingu til Flug- getrsuna- VINNINGAR! 9. leikvika —Jeikir 19. október 1985 Vinningsröð: 1 1 2—1 X 2-X 1 1-X 2 1 1. vinningur 12 réttir kr 116.805,- 3318 88354(6/11) 100067(6/11) 105458(6/11) Úr8.viku: 37558(4/11) 94435(6/11) 103791(6/11) 88506(6/11)t 2. vinningur: 11 réttir kr 3.202,- 101 11950 428H 55394 94969+ 103306 100595*+ 868 12177 45187 55810 95101+ 103324 101161* 1000 14939 45436 56624 95135+ 103376+ 102882*+ 1239 16777 46786 58392 95190+ 103650+ 105928* 1766 17655 47615+ 85974+ 100836+ 103731 Úr8. viku: 1891 38118 48318 86357 101014 104236 9737+ 2409 40513 49171 87003 101293 104687 56476 4831+ 40833 49416 88594 101590+ 105423 88860+ 6069 41193 51582 90468+ 101591+ 105424 6412 41745 53644 91434 101603+ 105433 6766 41928 54401+ 94950+ 101610 45366* 8019 42096+ 54402+ 94968+ 103007+ 100480* *=<2/11) tslenskar Getraunir, íþróltamidstöðinni v/Sigtún, Reykjavík Kærufrestur er til 11. nóvember 1985 kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera sknllegar Kærueyöubloð fást h|é umboðsmönnum og á sknfstotunm i Reykjavík Vinningsupphæðir geta lækkað. ef kærur verða teknar til grema Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofm eða senda stofninn og tullar uppfýsingar um nafn og heimilisfang til Islenskra Getrauna tynr lok kærufrests fisks-Flateyri, og að forráðamenn fyrirtækisins hafa síðan verið undir hælnum á þessum sama sparisjóði auk bankaeftirlits Seðlabanka íslands. Skyldu menn hugleiða að for- ráðamenn Flugfisks-Flateyri seldu þá íbúðarhús sitt ofan af fjórum börnum og framseldu kaupsamninginn þessum sama sparisjóði til að gæta hagsmuna beggja. Skyldu menn hugleiða að til eru aðrir lánadrottnar. Þá varðar ekkert um hvað bankahallir eru margar og glæsilegar, né hversu falleg fyrirtæki eru að utan, eða hvort togarar eru með ryðtaumum, það eina sem þá varðar um er hvað er innan í fyrirtækjunum og hvað þau gefa af sér. Þessir lána- drottnar eru erlendis, erlendir bankar, og lánadrottnar fyrirtæk- isins íslands." F.h. Flugfisks-Flateyri hf. Hrafn Björnsson. Ljósmynd/Ari Lieberman. Gáfu tölvu FYRIR skömmu barst Grunnskóla Eyrarsveitar gjöf frá Sparisjóói Eyrarsveit- ar, en þad er fullkomin tölva af gerðinni Apple-(MacKintosh) ásamt til- heyrandi tengibúnaði og borði undir búnaðinn. Myndin er tekin er tölvan var afhent. Það voru þeir Þorsteinn Bárðarson og Halldór Finnsson úr sjóðsstjórninni sem afhentu Gunnari Kristjánssyni skólastjóra (Lv.) búnaðinn. Með á myndinni eru nokkrir áhugasamir nemend- ur grunnskólans. Kirkjudagar 1985 í Langholtskirkju KIRKJUDAGAR 1985 hefjast í Langholtskirkju á morgun, fimmtu- dag og standa fram á laugardag. Dagskrá fimmtudagsins hefst kl. 20.30. og verður fjallað um fjölskylduráðgjöf. Séra Heimir Steinsson setur kirkjudagana, þá fjallar sr. Þorvaldur Karl Helga- son um undirbúning hjónaefna og þvínæst flytur Sævar Guðbergs- son, félagsráðgjafi erindi sem Hvatt til þátt- töku á útifundi MORGUNBLAÐINU barst í gær fréttatilkynning frá Félagi Háskóla- menntaðra hjúkrunarfræðinga og Hjúkrunarfélagi íslands, sem er svo- hljóðandi: „Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að taka þátt í dagskrá kvennafrídagsins eftir því sem að- stæður leyfa. Einnig að hagræða störfum þannig að sem flestir geti mætt á fundi dagsins.“ nefnist Fjölskylduráðgjöf á vegum kirkjunnar.-Hversvegna? Að er- indum loknum verða almennar umræður undir stjórn sr. Bern- harðs Guðmundssonar. Sr. Bernharður setur samkom- una á föstudag kl. 20.30 og verður fjallað um leikmannastarf. Sr. Valdimar Hreiðarsson flytur er- indi um bibliulestur meðal leik- manna og sr. Ólafur Jens Sigurðs- son fjallar um starf meðal aldr- aðra. Að því loknu fara fram almennar umræður undir stjórn sr. Agnesar M. Sigurðardóttur. Á laugardag verður fjallað um inn- sýn í Austurkirkjuna og hefst dagskrá kl. 16. Sr. Þovaldur Karl Helgason setur samkomuna og þvínæst flytur sr. Rögnvaldur Finnbogason erindi sem nefnist íkónar-guðfræði í litum og línum. Segir hann ferðasögu, sýnir mynd- ir og tóndæmi. Þá heldur Jón Stefánsson orgeltónleika í Lang- holtskirkju. Kirkjudögum verður slitið á laugardag af Sr. Heimi Steinssyni. (Fréttatilkynninf;) Söfnuðu fyrir lamaða og fatlaða í Morgunblaðinu í gær birtist þessi mynd en með henni var rangur texti. Á myndinni eru þrjár telpur úr Kópavogi: ólöf Ingunn Björns- dóttir, Elfa María Magnúsdóttir og Sandra Fairbarn. Þær héldu hlutaveltu og styrktu lamaða og fatlaða með 900 krónum. Sfldveiðin: 1.880 lestir á þriðjudag — flestir bátar með fullfermi MIKIL síldveiði var á Austfjörð- um á þriðjudag. Alls var vitað um 21 bát með samtals 1.880 iesta afla síðdegis þann dag. Flestir bát- anna voru með fullfermi og fengu sfldina rétt utan hafna. Eftirtaldir bátar tilkynntu um afla fram á þriðjudagskvöld: Valdimar Sveinsson VE 120, Bylgja VE, 130, Sólfell EA, 120, Haukafell SF, 30, Óskar Hall- dórsson RE, 100, Geiri Péturs ÞH, 100 Freyja GK, 80, Albert Selfoss: Rútuferð á útifundinn Konur á Selfossi hyggjast sækja útifundinn á Lækjartorgi í Reykjavík 24. október. Þær standa fyrir rútuferð til borgarinnar og verður farið frá KÁ klukkan 12.45. Ólafsson KE, 50, Glófaxi VE, 90, Þuríður Halldórsdóttir, GK 100, Heiðrún EA, 100, Boði GK 60, Hringur GK, 120, Axel Eyjólfs- son KE, 30, Steinunn SF, 70, Friðrik Sigurðsson ÁR, 80, Barðinn GK,/90, Snæfari RE, 130, Þórsnes SH, 80, Hamar SH, 120 og Stjörnutindur SU, 80 lestir. Ólafsvík: Sjávarútvegsráðherra á atvinnumálaráðstefnu RÁÐSTEFNA um atvinnumál á Snæfellsnesi verður haldin í safnað- arheimili Ólafsvíkurkirkju laugar- daginn 26. október næstkomandi. Það eru bæjarstjórn Ólafsvíkur, at- vinnumálanefnd Ólafsvíkur og Sam- tök sveitarfélaga í Vesturlandskjör- dæmi sem halda ráðstefnuna. Ráðstefnan byrjar klukkan 9 og ræðir Halldór Ásgrímson þá um stjórnun fiskveiða og framtíðar- horfur í sjéarútvegi á íslandi. Á eftir verða fyrirspurnir og um- ræðnr. Klukkan 13.30 ræðir Olafur Einarsson sjávarútvegsfræðingur um nýjungar í veiðum og vinnslu í sjvarútvegi, Ragnar Hjörleifsson iðnráðgjafi um stöðu iðnaðar og framtíðarhorfur og óli Jón Ólason ferðamálafulltrúi um uppbygg- ingu ferðaþjónustu á vestanverðu Snæfellsnesi. Síðan munu starfs- hópar vinna og skila niðurstöðum og loks fyrirspurnir og almennar umræður. Áætluð fundarslit eru klukkan 17. Fundurinn er öllum opinn. (Úr fréttalilkvnningu)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.