Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 9

Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 9 HUGVEKJA IJlaunar er lokaáfangi byggingar Hall- grímskirkju í Reykjavík nú þegar haf- inn Menn taka höndum saman um þetta stórvirki. Hafi þeir blessaðir gjört allir sem einn Guð gefi, að söfnuður hins mikla musteris á Skólavörðuhæð fái komið saman til kirkjuvígslu á nœsta ári, eins og að mun stefnt. “ Hallgrímsminnmg „V erði þinn vilji“ — eftir séra HEIMI STEINSSON Trúarreynsla er öll í innsta grunni af einni rót. Sama er, hvort þú leitar fanga nær eða fjær og skyggnist um víða veröld trúar- legra bókmennta; Hvarvetna brennur sami loginn, þótt tundur, tinna og stál séu af sundurleitum toga. Orsök þessarar einingar er aug- ljós. Maðurinn er hvarvetna sjálf- um sér líkur og óbreyttur frá öld til aldar, hvað sem líður ytri hög- um hans. Maðurinn er trúvera. Honum er trúhneigð í brjóst borin. Þessi hneigð veldur því, að hann lifir sinn innri heim og umheim- inn með áþekkum hætti ævinlega, þrátt fyrir öll umskipti, er verða á atferli og aðstæðum, þegar kyn- slóðir koma og fara. Þú þekkir þessa reynslu. Hún kemur oft og einatt til þín með óvæntum hætti. Ilmur vors og gró- andi getur verið tilefni hennar, vetrarhríðin hið sama, svo og glymjandi strætisins, stjörnuhim- inninn, ljóð eða lag, myndverk á vegg, ástin í hjarta þínu. Skyndi- lega skynjar þú, að þú ert ekki einn, heldur samslunginn mikilli og óumræðilegri heild, sem hellist yfír þig með unaði, er ekki verður í orðum lýst. Þessi skynjun er á stundum nefnd „einingarvitund". Það er óþarflega tæknilegt orð, en nýti- legt allt að einu og tjáir allvel þann veruleika, sem um er að ræða. Þakkargjörð 1 fyrra Korintubréfí segir Páll postuli: „Enginn er Guð nema einn.“ Síðan bætir hann við: „Þá höfum vér ekki nema einn Guð, föðurinn, sem allir hlutir eru frá og líf vort stefnir til, og einn Drottin, Jesúm Krist, sem allir hlutir eru til orðnir fyrir og vér fyrir hann.“ Kristnir menn tjá einingarvit- und sína, trú sína, með þessum orðum postulans og öðrum áþekk- um. Þeir ganga einnig feti framar en nemur því einu að skynja og lifa alveruna á stopulum stundum og af skyndingu. Þeir leggja rækt við skynjun sína, iðka trúna í bæn og margvislegu helgihaldi. Þegar klukkurnar kalla til guðsþjónustu á sunnudegi, er kirkjan að kveðja þig til þeirrar iðkunar og þar með að hvetja þig til að sýsla um þau efni, sem eru dýpsti kjarni tilveru þinnar, táfesta persónuleika þíns. Þess konar iðkun er vissulega ekki sérkristin. Einnig hún er stunduð hvarvetna, þar sem mennskir menn lifa einingu sína við almættið. En sérleikur kristins dóms er fólginn í síðari hluta þeirra orða postulans, sem hér var vitnað til. Krístinn maður eignar Kristi þann unað trúarínnar, sem verður hlutskipti hans. Kirkjan biður í Jesú nafni og lýkur hverri bæn með orðunum: „Fyrir Drottin vom Jesúm Krist.“ Þannig þökkum við Guði fyrir það, að hann opinberast okkur í Jesú Kristi og leggur heilagan anda sinn hverjum krístnum manni í brjóst E.tv. erum við með þvi að þakka fyrir það sama og allir aðrir menn á jörðu, þakka fyrir það líf, sem Guð gefur og fyrir þá meðvitund um Guð, sem manninum veitist. En við þiggjum þessar gjafir í föruneyti Jesú Krists og vitum, að hann, bróðir- inn bezti, er góður samferðamað- ur, sem enginn skyldi vísa á bug að óreyndu. í dag er þakkargjörðardagur ís- lenzku kirkjunnar. Framangreind þakkarefni séu mönnum minnis- söm á slíkum degi. Þau munu mestu skipta, þegar upp er staðið við leiðarlok. Guð er þér nærri alla ævidaga þína, — og meira en nærri. Hann er lífið sjálft í brjósti þínu. Einungis að þú gjörir sjálfri þér þann greiða að muna eftir því lífí og hlynna að því. Raunar er margt að þakka sér á parti einmitt við þessi missera- skipti. Náttúran hefur verið ís- lendingum óvenju hliðholl undan- farin ár,- þótt á ýmsu hafí gengið um einstaka landshluta frá stund til stundar. Þetta þökkum við í dag, — og allar ástgjafir aðrar. Þakkarefnið efsta og mesta er þó hitt, sem fyrr var að vikið: Guð er í nánd, yfir og allt um kring. Þegar að okkur kreppir, þegar syrtir í síðasta álinn, er hann nær en nokkru sinni. Þökkum honum þá návist í auðmýkt og einfaldleik hjartans. En gleymum aldrei að bæta við þeim orðum frelsarans, er mestu varða í öllum samskipt- um við Guð: „Verði þinn vilji." Dagurinn er helgaður enn öðr- um efnum: Liðin eru 311 ár frá dauðastundu séra Hallgríms Pét- urssonar í Saurbæ. Nafn hans ber hærra en nokkurs annars manns, þt«ar rakin er trúarsaga íslend- inga. Sálmar séra Hallgríms eru þess konar vitnisburður um hvort tveggja, trúarþel í almennum skilningi og innilega elsku til Jesú Krists, að til einskis verður jafnað. Þeir eru meiri en höfundurinn sjálfur, stærri en við öll, sem heiðrum minningu hans. Sálmarn- ir, sem til urðu á Hvalfjarðar- strönd fyrir meira en þremur öld- um, eru sjálfgildir og opna sýn til veraldar, sem enginn fær aukið eða rýrt. Eigi að síður knýr þakkarhugur góða menn til athafna hér sem annars staðar. Hallgrímskirkja í Saurbæ er veglegur vitnisburður um þá þakkargjörð til Guðs, sem íslendingar bera fram, er þeir minnast skáldsins góða. Hall- grímskirkja í Reykjavík er og löngu risin af grunni. Daglega kastar turn hennar kunnuglegri kveðju á íbúa höfuðborgarinnar: „Upp, upp, mín sál.“ Ábyrgð kristins manns Við setningu Kirkjuþings síðast liðinn þríðjudag flutti kirkjumála- ráðherra gagnmerka ræðu, sem á erindi við alla íslendinga. Ráð- herra fjallaði m.a. um sivaxandi neyzlu vímugjafa af ýmsu tagi. Taldi hann þar vera á ferð stærsta vandann, sem kveðinn er að þjóð- inni í svip, — og hvatti kirkjuna til aðgjörða af því tilefni. Hér voru orð í tíma töluð. Sá sem skynjað hefur nærveru Guðs og veit sig höndlaðan af Kristi, er kunnugur þeirri ábyrgð, sem hon- um er falin. Páll postuli spyn „Vitið þér ekki, að líkami yðar er musteri heilags anda, sem í yður er og þér hafið frá Guði?“ — Guð er lífíð í bijósti þér og þú þar með að þínu leyti ábyrgur fyrir þeirri opinberun al- mættisins, sem líkami þinn er. Neyzla vímugjafa hefur í för með sér hægfara tortímingu þess musteris, sem þér er fengið. Hún er því guðlast í áþreifanlegri og víðtækri merkingu, eyðilegging sköpunarverksins og ögrun við samfélag, sem þú ert hluti af. „Verði þinn vilji," segjum við með orðum Krists. Það er vilji Guðs að maðurinn lifi heilbrigðu lífí þessa heims og ævarandi lífi um síðir. Á þakkargjörðardegi, þegar við lofum Guð fyrir alla ná- vist hans og náð og þökkum hon- um þá trúararfleifð, sem lýsir af sálmum séra Hallgríms Péturs- sonar, hljótum við að taka hönd- um saman um varðveizlu þess ein- staklingslífs og þeirrar samfé- lagsheildar, sem Guð gaf og er Guð sjálfur holdi klæddur og í heiminn borinn. Barátta gegn áfengisbölinu og annarri fíkniefnaneyzlu er nær- tækt viðfangsefni þeirrar varð- veizlustefnu nú eins og ævinlega. Megi kirkjan skipa sér í fylk- ingarbrjóst á þeim vettvangi, mönnum til blessunar og Guði til dýrðar. r SÖLUGENGIVERÐBRÉFA 28. OKT. 1985 Spaúibitslni. happdrattlilázi og mðbrát Avðiturv DagatVMdl Ar-flofckur pr. kr.100 wfcrata Wlnnt.d. 1971-1 23.782.90 Innlv i S*Atab. 15.09.85 1972-1 21.715,51 7,50% 87 d. 1972-2 17.155,51 Inntv I SeAtato. 15.09.85 1973-1 12.514,95 Innlv. I S*6l«b 15.0985 1973-2 12.034,96 7,50% 87 d 1974-1 7.554,97 Inntv 1 SeAtato. 15.09 85 1975-1 5J72.18 7,50% 72 d. 1975-2 4.714,91 7,50% 87 d. 1975-1 4.230.95 7,50% 132 d. 1975-2 3.509,06 7,50% 87 d. 1977-1 3.024,43 7,50% 147 d. 1977-2 2.606,31 Inntv. 1 SaAtab. 10.09.85 1975-1 2.050,73 740% 147 d. 1975-2 1.854,34 Inntv. I SaAtab. 10.0985 1979-1 1.411,06 7,50% 117 d. 1979-2 1.005,03 fcmlv. I SaAlato. 15.09.85 1960-1 962,84 740% 167 d. 1980-2 768,42 Inntv l SaAtato. 25.10.85 1951-1 547,94 7,50% 87 d. 1951-2 474,17 740% 347 d. 1982-1 447,14 7,50% 123 d. 1902-2 332,09 Inntv. I SaAiab 1.10.85 1983-1 259,79 740% 123 d. 1903-2 155,03 7,50% 1 ár 3 d 1954-1 180,70 7,50% 1 Ar 93 d. 1964-2 152,55 7,50% 1 Ar 312 d. 1954-3 147,44 7,50% 2 Ar 14 d. 1965-1 132,44 7,50% 2 Ar 72 d. 1975-G 3.889,25 8,00% 33 d. 197541 3821,81 8,00% 152 d. 1975-1 2.72043 8,00% 1 Ar 32 d. 1977-J 2.420,94 8,00% 1 ár 153 d. 1991-1FL 51544 8,00% 183 d. 1965-1IB 8643 1140% 10 ár, 1 alb. á árl 1905-2» 89,19 10,00% 5 ár, 1 afb A Arl 1905-3» 8545 10,00% 5 ár, 1 afb. á Arl V>ðttuldqbréí - Ttiðtryggð 2 ér 3ár 4 ár 5ár lár 7ár •ár • ár 10ár Mlv Viðtlmldgbrél - ðvtiðtiyggð Kjaiabréí Verðbrélaslóðslns OiB» pr. jgflO - 1,267 SðluvarA 5.335 Orðsending til eigenda Spaziskírteina Ríkissjóðs: Nú er enn komið að innlausn Spariskírteina 10. og 15. sept.,-1. og 25. okt. Við bendum á tvo góða ávöxtunarkosti sem gefa 13 - 18% vexti umfram verðtryggingu. Kjarabréí Verðbréfasjóðsins og verðtryggð veðskuldabréf. Verðbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagsins Fjárhúsinu, Hafnarstræti 7. 101 Reykjavík, sími 28566.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.