Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985
Símaþjónusta verdur framvegis i Landspítala og Borgarspítala. Fólk getur
hringt í síma 622280 og fengið upplýsingar hjá lækni um ónæmistæringu.
Fyrst um sinn verður svarað í símann milli klukkan 13 og 14 og á þriðjudög-
um og fimmtudögum. Á öðrum tíma er símsvari.
ráðlegt að hefja slík próf í blóð-
bönkum fyrr en komið hefur verið
á fót fullnægjandi þjónustu utan
blóðbankanna fyrir fólk, sem
óttast að það hafi smitast. Þetta
er nauðsynlegt til að girða fyrir að
ót-prófanir blóðbanka beinlínis
hvetji slíka einstaklinga til blóð-
gjafa. Mótefnapróf blóðbanka
greina ekki nýsmitaða einstakl-
inga sem þó eru ekki síður smit-
andi en þeir sem farnir eru að
mynda mótefni.
Varnaraðgerðir á íslandi
Nú eru liðin rúmlega 2 ár síðan
íslensk heilbrigðisyfirvöld gerðu
fyrstu ráðstafanir vegna ónæmis-
tæringar og Landlæknisembættið
gaf út fræðslurit um sjúkdóminn í
júlí á þessu ári. Ákveðnum sér-
fræðingum var falið að annast
rannsóknir á einstaklingum úr
svokölluðum áhættuhópum. Þessi
þjónusta var auglýst í Læknablað-
inu þannig að heimilislæknar og
aðrir sérfræðingar gætu notað
hana fyrir skjólstæðinga sína.
Lögð hefur verið svo rík áhersla á
nafnleynd, þagnarskyldu og trún-
að í þessari þjónustu, að enginn
einn sérfræðingur, sem hana hef-
ur annast, veit hversu margir hafa
fundist smitaðir hérlendis. Þó er
ljóst að þeir eru ekki margir.
Ót-varnaþjónusta Land-
spítalans og Borgarspítalans
Nýlega var ákveðið að setja á
laggirnar sérstakan starfshóp á
vegum Landspítalans og Borg-
arspitalans til að hraða sem mest
kerfisbundinni leit að ót-sýktum
einstaklingum og veita þeim að-
gengilega þjónustu, sem óttast að
þeir hafi smitast.
Kristján Erlendsson, sem er
sérfræðingur í lyflækningum og
ónæmisfræði, hefur verið ráðinn
starfsmaður hópsins. Kristján er
nýlega kominn heim frá Banda-
ríkjunum þar sem hann vann við
greiningu og meðferð á ónæmis-
tæringu.
f flestum löndum þar sem
ónæmistæring er orðin útbreidd
hafa hommar og þeir sem sprauta
sig með eiturlyfjum langsamlega
hæsta sýkingartíðni. Nýlegar rann-
sóknir sýna að smitun er líka víða
orðin útbreidd meðal vændiskvenna.
Árangur fyrirbyggjandi aðgerða
er þess vegna að verulegu leyti
háður því hversu góð samvinna
næst við þessa einstaklinga, og þá
sem haft hafa við þá kynmök.
Margir hommar eru í felum og
sumir eru fjölskyldufeður. Þessir
menn og ýmsir aðrir, sem kunna
að hafa tekið einhverja áhættu að
því er varðar ót-smitun, þurfa að
geta treyst á algera nafnleynd og
ábyrga meðhöndlun upplýsinga.
Stefnt er að því að ná sem fyrst
til sem flestra er hafa sl. 5 ár haft
samfarir við homma eða aðra, sem
tilheyra svokölluðum áhættuhóp-
um. Læknir mun veita hverjum
sem hafa vill upplýsingar milli-
liðalaust í sérstökum tima án þess
að fyrirspyrjendur þurfi að gefa
upp nafn. Á sama hátt gefst
heimilislæknum og öðrum sér-
fræðingum kostur á að fá upplýs-
ingar fyrir sjúklinga sína.
Ef læknir metur að viðkomandi
þurfi skoðun eða blóðpróf verður
hægt að koma því við á þrjá mis-
munandi vegu eftir óskum hvers
og eins: Skoðun á göngdeild, á
einkastofu læknis eða með vitjun í
heimahús. Þess verður stranglega
gætt að öll persónubundin vitn-
eskja verði trúnaðarmál milli
Kengúruskór
Úr mjúku
sterku
anilinskinni
og
ekta
hrágúmmísólar.
Loöfóöraöir.
m/riflás
litur: natur
st: 36—45
litur: svart
st: 35—46
Kr.
1.480.oo
PÓSTSENDUM án riflá88
hlutaðeigandi einstaklings og
þeirra lækna, sem annast skoðun-
ina. Þær verða ekki tengdar beint
við neina nafnaskrá og blóðsýni
verða eingöngu merkt númeri en
ekki nafni.
Lögð verður mikil áhersla á
fræðslu fyrir' þá, sem reynast
smitaðir, og leitast verður við að
veita þeim allan þann stuðning,
félagslegan og læknisfræðilegan,
sem völ er á.
Allir, sem hafa einhverjar
spurningar varðandi ónæmistær-
ingu, eru hvattir til að notfæra sér
þessa þjónustu. Símanúmerið er
622280 og verður það einungis not-
að í þessu skyni. Fyrirspyrjendur
fá milliliðalaust samband við
lækni ót-varnaþjónustunnar.
Fyrst um sinn verður viðtalstími
kl. 13—14 á þriðjudögum og
fimmtudögum, en þess á milli
verður símsvari tengdur við nú-
merið.
Tveir bflar út
af Lágheiðinni
Siglufirði, 24. október.
LÁGHEIÐIN, sem liggur milli Siglu-
fjarðar og Skagafjarðar, hefur verið
mjög erfið yfírferðar í dag. Rétt fyrir
hádegið fór bíll, sem flytur mjólk
milli Siglufjarðar og Akureyrar, út
af veginum og þurfti að fá stórvirk
vinnutæki frá Ólafsflrði til að draga
hann upp á veginn aftur. Var hann
að losna um kvöldmatarleytið.
Um klukkan fjögur í dag fór
bíll, sem var að koma með fiski-
kassa til Siglufjarðar, út af vegin-
um rétt við Þrasastaði I Fljótum,
en þar gat bóndinn veitt aðstoð til
að ná bílnum upp. Samkvæmt nýj-
stu fréttum er 40—50 sentimetra
þykkur snjór á veginum. Hann er
því ófær öllum nema stærstu bíl-
um og þeim aðeins vel búnum.
MJ.
TRÚÐURINN RUBEN
TrúÖur
á
heimsmælikvarða
ásunnudaginn 27.10. kl. 15.
MISSIÐ EKKIAF ÞESSARIEINU
SÝNINGU SEM HALDIN VERÐUR í ÁR.
Aðgangsverð kr. 100.
VERIÐ VELKOMIN