Morgunblaðið - 27.10.1985, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985
Borgarspítalinn í fararbroddi í heilarannsóknum:
Unnið að þróun tækni til að
„kortleggja" starfsemi heilans
Hingað til hafa menn litið svo á
að hugsanir sínar hafí hver maður út
af fyrir sig. Að vísu kemur það alltaf
annað slagið fyrir að við getum „lesið
hugsanir" fólks, en þá meinum við
að sjálfsögðu að við getum ráðið það
af aðstæðum og hegðun viðkomandi
hvað hann sé að hugsa. Hitt hefur
engum manni dottið í hug, að hægt
sé beinlínis að hafa hugsanir manna
fyrir augunum og lesa þær eins og
bók. En sá tími kann að koma, og
raunar hafa verið stigin fyrstu sporin
í þá átt: viðleitni til að „kortleggja“
heilastarfsemina með hjálp tölvu
jafnóðum og hún á sér stað. Þannig
má sjá - á táknmáli forms og lita -
hvaða hræringar eiga sér stað undir
höfuðleðrinu.
Ernir Snorrason taugasálfræðingur að störfum við BEAM-samstæðu Borgarspítalans.
Morgunbladið/Júlíus
Það er auðvitað langur vegur (og
kannski ófær) að því marki að
túlka heilahræringar í myndformi
sem hugsanir. Því þótt heilinn
kunni að vera skilyrði hugsunar,
er hugsun eitthvað allt annað og
meira en heilastarfsemi. Svo það
kann að vera vonlaust að hægt sé
að setja samasemmerki á milli
ákveðinnar heilastarfsemi og til-
tekinnar hugsunar. En hitt er ótvi-
rætt að ný tðlvutækni hefur opnað
möguleikann á því að kortleggja
starfsemi heilans, og tilkoma
slíkra „heilakorta" getur haft
ómetanlega þýðingu fyrir fram-
vindu geð- og taugalæknisfræði.
Á Borgarspítalanum hefur í
nokkur ár verið í notkun velþekkt
rannsóknartæki, svokallaður
taugagreinir, sem notaður er til
að mæla framkölluð taugavið-
brögð. Er tækið einkum notað til
að greina ýmsa taugasjúkdóma,
svo sem M.S. eða mænusigg, og
jafnframt til að mæla heyrn og
sjón nýfæddra barna. Mælingar
taugagreinisins koma fram á línu-
ritum, sem seinlegt og flókið getur
verið að lesa úr. Undanfarin ár
hefur verið unnið að þróun nýrrar
og nákvæmari tækni til rannsókna
á heilastarfseminni, ekki síst með
það í huga að auðvelda úrvinnslu.
Eru mestar vonir bundnar við
svokallaða BEAM-tækni, sem er
skammstöfum á ensku fyrir Brain
Electric Activity Mapping, og kalla
mætti á íslensku kortagerð á raf-
starfsemi heilans. Borgarspitalinn
hefur, í samvinnu við Verk- og
kerfisfræðistofuna, fylgst vel með
og tekið þátt í þróun þessarar nýju
tækni, og innan tíðar má vænta
þess að BEAM-rannsóknir hefjist
á spítalanum, þær fyrstu á Norð-
urlöndunum.
Ernir Snorrason taugasálfræð-
ingur við Borgarspítalann hefur
staðið fremstur í flokki þeirra
manna sem vinna að því að koma
þessari tækni í notkun hérlendis.
Áhugi hans er fyrst og fremst
fræðilegur, en hann telur að
BEAM-tæknin geti skipt sköpum
í heilarannsóknum og aukið veru-
lega þekkingu manna á því hvernig
heilinn starfar.
„Heilinn er fóknasta líffæri
mannsins, og enn sem komið er
vita menn litið sem ekkert um
hvernig hann starfar," segir Ernir.
„Við vitum í smáatriðum hvernig
hjartað pumpar blóði og hvemig
nýrun sía blóð, en þekking okkar
á starfsemi heilans er enn mjög
fábrotin. Og ástæðan fyrir því er
einföld: við höfum ekki haft yfir
að ráða nógu góðri rannsóknar-
tækni. En með tilkomu BEAM-
tækninnar gætu hjólin farið að
snúast."
Upphafsmaður BEAM-tækninn-
ar er Bandaríkjamaður að nafni
Frank Duffy, læknir við Childrens
Hospital í Boston, en hann er jafn-
framt rafmangnsverkfræðingur að
mennt. Fyrir tveimur árum gerði
Ernir Snorrason sér ferð til Boston
gagngert til að læra þessa tækni
Duffys.
„Ef það gengur eftir sem Duffy
spáir gæti BEAM-tæknin gjörbylt
geðlæknisfræðinni. Hann fullyrðir
að með tækjum sínum geti hann
greint hinar ýmsu tegundir geð-
sjúkdóma, og nýlegar rannsóknir
í New York virðast staðfesta
þetta," segir Ernir, en bætir því
við að hann hafi ekki séð þessar
rannsóknir og fyrirfram sé hann
nokkuð vantrúaður á að hægt sé
að kortleggja geðsjúkdóma á þenn-
an hátt.
„En hitt er ótvírætt að þessi
tækni auðveldar mjög rannsóknir
á starfrænum truflunum heilans,
einkum truflunum sem ekki koma
fram við vefrænar rannsóknir, svo
sem með sneiðmynatökum. Þetta
gæti til dæmis auðveldað rann-
sóknir á sjúkdómseinkennum
flogaveiki, eða ásköpuðum lestrar-
örðugleikum, sem vitað er að þjaka
5-10% manna. Duffy telur sig geta
séð það fyrirfram hjá ungum börn-
um hvort þau muni koma til með
að eiga erfitt með að læra að lesa
eða ekki.“
Brandarakeppnin framlengd
í nýjasta hefti tímarits
Arnarflugs, „Örninn flýg-
ur", er dálítil brandara-
keppni, þar sem fólk er
beðið um að gera smellinn
texta við teiknimynd. Verð-
launin eru ferð fyrir tvo til
Amsterdam. Upphaflega
var skilafrestur 15. október.
Sá frestur er nú liðinn en
okkur er enn að berast bréf
frá þátttakendum, einkum
utan af landi og erlendis
frá. Þá er líka byrjað að
hringja til að spyrja um
úrslit. Því þykir okkur rétt
að láta vita að ákveðið
hefur verið að framlengja
skilafrest til I. desember.
Og þeim til huggunar sem
ekki hljóta verðlaun núna
skal tekið fram að þeir fá
annað tækifæri til að vinna
til verðlauna, í næsta blaði,
sem kemur út í lok nóv-
ember.
J .Ju á sídunni tii hæen T,
ÍnT" -Vo* . Í
r ni'kk'«
t’ana, myndir 1,1 „
hám,,r,„„ „ a V"a
J"dum , tlugbransanum
momrum «m rU, ^.,
að lata nafns sins gc’f
Skilafrestur er nl /s
Heimil,*faní5ið er
7
VcfMa'*'
ARNARFLUG
Lágmúla 7. simi 84477
- verðlaunin 2 farmiðar
til Amsterdam
(w>- v
l u r