Morgunblaðið - 10.11.1985, Blaðsíða 56
ns
____^uglýsinga-
síminn er22480
HLEKKURIHBMSKEÐJU
SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Færeyskt flutningaskip fórst út af Austfjörðum:
.Víðtæk leit að fjórum
sjómönnum í gúmbát
TJÖRNIN verður eina skautasvell
höfuðborgarbúa í vetur. Ekki verður
sprautað á Melavöllínn eins og tíðk-
ast hefur mörg undanfarin ár.
„Því miður,“ sagði Baldur Jóns-
son, vallarstjóri, í samtali við Morg-
unblaöið í gsr, en það hefur verið í
verkahring starfsmanna íþróttavalla
borgarinnar, að sjá um svellið á
Melavelli.
Baldur sagði að Melavölhirinn
hefði verið alveg kjörinn fyrir skauta-
svell, „en nú er búið að taka vatns-
hanann þar I burtu og því ekki hægt
að sprauta á hann.
NOKKUR skip og flugvél leituðu
í gær fjögurra færeyskra sjó-
manna af flutningaskipinu Rona
frá Klakksvík, sem óttast er að
hafi hvolft og sokkið um 35 mflur
SA af Hvalbak um níuleytið í
gærmorgun. Þegar blaðið hafði
síðast fregnir af leitinni hafði
,__ekkert til mannanna spurst en
vitað var að þeir voru að fara frá
borði og í björgunarbát þegar
neyðarkall barst frá skipinu kl.
níu í gærmorgun.
Rona er 500 tonna skip, smíð-
að 1966. Það fór frá Reyðarfirði
um tíuleytið á föstudagskvöldið
áleiðis til Færeyja. Vont veður
var á hafinu í fyrrinótt en í
gærmorgun, þegar skipverjar
sendu út neyðarkall og til-
" kynntu að skipinu hefði hvolft,
hafði veður gengið nokkuð nið-
ur. Voru þá sjö vindstig af
norð-austri, skv. upplýsingum
Landhelgisgæslunnar.
Þýskt olíuflutningaskip var á
sömu slóðum og hélt þegar til
móts við færeyska skipið og
sömuleiðis 6—8 íslensk fiski-
skip. Landhelgisgæsluflugvélin
TF-SÝN fór til leitar frá
Reykjavík fyrir hádegi og var
komin á slysstaðinn laust eftir
klukkan 12. Þá var verið að
skipuleggja leit að áhöfn fær-
eyska skipsins. Um borð í Ronu
var einn gúmmíbjörgunarbátur
*" en í honum er ekki neyðar-
sendir, skv. upplýsingum, sem
stjórnstöð Landhelgisgæslunn-
ar fékk frá útgerðarfélagi skips-
ins í Klakksvík laust eftir há-
degið.
Settu rán
á svið
„Rændu“ félaga og
stálu ávísunum fyrir
yfir 100 þúsund kr.
TÆPLEGA tvítugur piltur setti
ásamt tveimur félögum sinum á
svið rán á sjálfum sér. Tildrög
eru að laust fyrir hádegi á föstu-
dag var pilturinn á leið í banka
með liðiega 100 þúsund krónur
{ ávísunum í skjalatösku. Við
Bókhlöðustig „réðust“ félagarnir
á hann, drógu inn í húsasund og
bundu á höndum og fótum og
fyrir augu og þustu síðan í Út-
vegsbankann og framvísuðu
tékkunum.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hóf rannsókn á málinu og vökn-
uðu grunsemdir um, að eitt-
hvað væri óhreint í pokahorn-
inu. Pilturinn var yfirheyrður
og játaði seint á föstudags-
kvöldið, að hafa sett þetta á
svið ásamt tveimur félögum
sínum, sem voru handteknir og
hafði RLR upp á peningunum.
Stofnuð frjáls sölusam-
tök matjurtaframleiðenda
Grænmetisverslunin lögð niður um mánaðamót
UNDIRBÚNINGUR er langt kom-
inn að stofnun nýrra sölusamtaka til
að hefja rekstur nýs heildsölu- og
framleiðslufyrirtækis matjurtafram-
leiðenda. Grænmetisverslun land-
búnaðarins verður þar með lögð
niður. Er stefnt að því að samtökin
taki til starfa um næstu mánaðamót
og verður starfsemi Grænmetisversl-
unarinnar þá jafnframt hætt. í drög-
um að samþykkt fyrir félagið er það
nefnt Sölusamband íslenskra mat-
jurtaframleiðenda (SÍM).
Gestur Einarsson, sem hóf störf
sem framkvæmdastjóri Græn-
metisverslunar landbúnaðarins í
októbermánuði, og Ólafur Sveins-
son, viðskiptafræðingur, sem hóf
störf hjá fyrirtækinu á sama tíma,
hafa unnið að undirbúningi stofn-
unar samtakanna. Gestur sagði i
samtali við Morgunblaðið að kart-
SEÐLABANKINN íhugar nú að gefa
almenna sparjsjóðsvexti frjálsa og
verður ákvörðun þar að lútandi tekin
í vikunni. „Það er mat okkar, að
almennir sparisjóðsvextir séu fjærst
því sem eðlilegt getur talist og í
athugun er að gefa þá frjálsa," sagði
Jóhannes Nordal, Seðlabankastjórí.
öflubændur stæðu einhuga að
stofnun félagsins auk allmargra
garðyrkjubænda.
I drögum að markmiðum sam-
takanna segir í fyrsta lagi að
samtökin eigi að „vera miðstöð og
samræmingaraðili fyrir félags-
menn óháð því hvernig þeir kjósa
að dreifa afurðum sinum. Sölu-
sambandinu ber að vinna að: Vöru-
þróun, vöruvöndun, öflun nýrra
markaða, upplýsingamiðlun og
vinna að hverju því máli sem getur
orðið matjurtaframleiðendum til
hagsbóta." í öðru lagi „að efla lif-
andi tengsl á milli framleiðenda
og neytenda og varast að verða
gamaldags milliliðastofnun af
einhverju tagi“. í þriðja lagi segir
að þau eigi að „annast sölu og
dreifingu á afurðum þeirra félags-
manna sem þess óska“. Ennfremur
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Nú liggur fyrir Seðlabankanum
beiðni frá Iðnaðarbankanum og
Sambandi sparisjóða um l‘/i— 4%
vaxtahækkun. Jóhannes sagði, að
vextir breytist ekki 11. nóvember
næstkomandi, heldur hefði
ákvörðun verið frestað til 21. nóv-
skal SÍM leggja stund á hvern
þann rekstur sem getur orðið fé-
lagsmönnum til hagsbóta og fram-
dráttar og eru eftirfarandi atriði
þar nefnd: Innflutningur á mat-
jurtum þegar innlend framleiðsla
er ekki til staðar, pökkun matjurta
í neytendaumbúðir, vinnsla til
frekari nýtingar matjurta og
dreifing fullunninna vara er tengj-
ast matjurtum.
í búvörulögunum frá því í vor
er ákvæði um að Grænmetisversl-
un landbúnaðarins verði lögð niður
fyrir 1. júní næstkomandi. Jafn-
framt var landbúnaðarráðherra
heimilað að leigja samtökum
framleiðenda fasteignir fyrirtæk-
isins og selja þeim lausafjármuni
til reksturs nýs dreifingarfyrir-
tækis. Bændur mótmæltu þvf að
ríkið eignaði sér fyrirtækið með
ember. Fari svo að almennir spari-
sjóðsvextir verði gefnir frjálsir,
þá ákveður Seðlabankinn aðeins
vexti af verðtryggðum útlánum og
innlendum afurðalánum, sem eru
háð samþykki ríkisstjórnar.
þessum hætti, töldu það sjálfseign-
arstofnun í eigu framleiðenda. Að
sögn Gests er stefnt að samkomu-
lagi á milli bænda og stjórnvalda
um að leitað verði úrskurðar dóm-
stóla í þessu ágreiningsmáli, en
SÍM kaupi lausafjármunina og
leigi fasteignirnar af Grænmetis-
versluninni þar til niðurstaða ligg-
ur fyrir.
Starfsfólki Grænmetisverslunar
landbúnaðarins var sagt upp á
dögunum. Gestur sagði að vcgna
endurskipulagningar og fjöl-
breyttari reksturs yrði óhjá-
kvæmilegt að gera verulegar
breytingar á mannahaldi hins nýja
fyrirtækis. Undirbúningsstofn-
fundur samtakanna verður hald-
inn á næstunni og verður þar
væntanlega kosin bráðabirgða-
stjórn. Sagði Gestur stefnt að því
að nýtt fyrirtæki undir nýju naJfni
tæki til starfa um næstu mánaða-
mót.
Eining boðar
bónusverkfall
STJÓRN og samninganefnd
verkalýðsfélagsins Einingar í
Eyjafiröi hefur fengið heimild
hjá trúnaðarmannaráði til boðun-
ar bónusverkfalls á félagssvæði
sínu. Komi það til framkvæmda
þann 18. þessa mánaðar, hafi
ekki samizt fyrir þann tíma.
Komi til verkfallsins verður
ekki unnið í bónus í fiskvinnslu
á Grenivík, Akureyri, Dalvík,
Hrísey og ólafsfirði. Samn-
ingaviðræður milli atvinnurek-
enda og Einingar stóðu yfir í
gær, er Morgunblaðið fór í
prentun.
Seðlabankinn:
íhugar að gefa spari-
sjóðsvexti frjálsa