Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER 1985 Hestar IWyndlist Valtýr Pétursson Mér hefur borist í hendur ein fegursta bók, sem ég hef séð hér á landi. Þetta er listaverkabók, sem er svo til fyrirmyndar úr garði gerð, að vart verður fundið sambærilegt í útgáfum á lista- verkabókum hér. Þarna eru ein- göngu ljósmyndir á ferð, og tema bókarinnar er hestar — vetur, sumar, vor og haust. Þessar ljósmyndir, sem Sigur- geir Sigurjónsson hefur tekið og unnið að síðustu tíu árin, eru svo sérstakar, að ástæða er til að kalla hann fremur listamann en ljósmyndara. Ljósmyndun er nefnilega listgrein, ef rétt er að farið og sá er vélunum stýrir hefur listræn tök á verkefnunum. Kann að notfæra sér hið eina rétta augnablik og lætur mynd- byggingu ganga fyrir ásamt mannlegu innsýni. Allt þetta virðast meðfæddir hæfileikar Sigurgeirs, og það sem meira er, hann er sérlega næmur fyrir að notfæra sér þessa hæfileika á myndrænan hátt, eins og glöggt er af hestamyndum hans í þess- ari bók. Eitt er það einnig, sem er sérstakt við myndir Sigurgeirs — hann hefur ekki aðeins gert hesta að viðfangsefni sínu, hann hefur einnig notfært sér íslenskt landslag á þann hátt, að um leið og hér er um hestabók að ræða, er hér íslandsbók í orðsins fyllsta skilningi. Bæði landslag og mannfólkið í landinu kemur mikið við sögu. Ég hef þekkt til vinnubragða Sigurgeirs í mörg ár, en ef satt skal segja óraði mig ekki fyrir þeim árangri, sem kemur í ljós í þeirri sérstöku bók, sem nú er komin á markað. Textinn í þessari myndabók er ekki veigamikill, en vel úr garði gerður, og hefur hestamaðurinn Ragnar Tómasson staðið þar að verki. Lesmálið er á fjórum tungumálum, íslensku, dönsku, ensku og þýsku. Og ekki má gleyma að nefna hestastökur eftir Jón Sigurðsson bónda í Skollagróf, sem gefa verkinu hefðbundinn hestamannssvip og sýna greinilega það vináttusam- band, sem löngum hefur verið milli manns og hests hér á landi. Öll uppsetning á hestabókinni er gerð af Kristínu Þorkelsdóttur og er henni til mikils sóma. Annað hefði heldur ekki verið viðunandi, þegar jafn fögur lista- verk eiga í hlut og finnast í þessari bók. Eftir útkomu þessarar merku bókar, verður ekki um það deilt, að Sigurgeir Sigurjónsson hefur unnið mikinn listrænan sigur með þessum myndum sínum og skipað sér í fremstu röð ljós- myndara hér á landi. Að lokum vonast ég til, að fleiri en ég eigi eftir að hafa óskipta ánægju af þessum myndum og þessari bók. Útkoma hennar er sérstakur viðburður í mínum augum og ég sendi árnaðaróskir til allra, sem hluteiga að máli. Sigmund Myndlist Valtýr Pétursson Enn einu sinni er útkomin bók frá hendi snillingsins Sigmunds. Það er í sjöunda sinn, sem við fáum myndir hans í bókarformi, og eins og áður er þarna á ferð úrval af öllum þeim myndum, sem hann hefur gert fyrir Morg- unblaðið að undanförnu. Auðvit- að er það að bæta í bakkafullan lækinn að kynna verk þessa snjalla meistara á sínu sviði fyrir lesendum blaðsins, en það gæti orðið svo hversdagslegt gaman fyrir lesendur að sjá í hverju blaði mynd frá hendi Sigmund, að menn hættu að veita þeim verðskuldaða eftirtekt. Það er því fengur í því fyrir aðdáendur Sigmunds, að fá þessi snilldar- verk í bókarformi og af því verð- ur sjálfsagt óskipt ánægja hjá mörgum. Stíll Sigmunds í skopteikning- um er fyrir löngu fastmótaður og ekki virðast breytingar ár frá ári, en innviður teikninga hans fer auðvitað eftir því, hvernig kaupin gerast á eyrinni, ef þann- ig mætti að orði komast. Það er mikil guðsgjöf að geta séð hlut- ina í skoplegu ljósi og enn meiri náðargjöf að geta tjáð grínið í skýrum og hnitmiðuðum mynd- um. Allt leikur þetta í höndunum á þessum frábæra teiknara i Eyjum, og enn einu sinni langar mig að vekja á því athygli á því afreki, sem það hlýtur að vera að geta haft myndir á reiðum höndum á hverjum útkomudegi Sigmund Jóhannsson Morgunblaðsins. Þessi nýja bók er um margt framhald þeirra fyrri, og nú er svo komið, að hér er að verða til bókaröð, sem segir viðburði stjórnmála og annarrar kímni í þjóðfélaginu á myndmáli. Stólaleikur er undirtitill þessar- ar seinustu bókar Sigmunds, og þarfnast titillinn engrar skýr- ingar. Það er mikil bragarbót í mesta skammdeginu að fá slíka bók inn úr dyrunum og það birtir í bænum við slíkt. Mikiö úrval af íbróttavörum Cm \ £L, \___í , \_I ^N • Þetta eru nýju Crack-æfinga- gallarnir frá Adidas. Þeir fást í stærðum 5, 6, 7 og 8 og kosta 2.280 krónur. Litur: Blár/grár. • Enn einn glæsilegur nýr æfinga- galli frá Adidas. Colorado-gallinn fæst í stærðum 46—54 og kostar 4.398 krónur. • Þeir eru glæsilegir þessir nýju æfingagallar frá Adidas. Long Beach-gallarnir fást í stæröum 152, 164 og 176 og kosta 4.200 krónur. í stæröum 46—56 kostar hann 4.575 krónur. Þetta er ný vara frá Adidas og fæst einungis í Boltamanninum. Litur: Dökkblár/ Ijósblár. • Mjög faliegur odyr Act-glans- galli sem er með hettu. Fæst í stæröum 2, 4 og 6 á 2.280 krónur og í stæröum 8, 10, 12 og 14 á 2.470 krónur. Fábært verö fyrir frá- bæra vöru. Fjórir litir: Blár/hvítur, rauöur/hvítur, svartur/grár, og grár/svartur. Adidas Tangó- fótboltinn kostar 3.050 krónur en fótboltar kosta frá 950 krónum. • Act-úlpur í miklu úrvali í stærö- um 2, 4 og 6 á 2.310 krónur. Þær fást í stæröum 8, 10, 12 og 14 og kosta 2.475 krónur. Litir: Blár/grár, rauöur/blár og blár/rauöur. Húfan kostar aöeins frá 225 krónum og gleraugun frá 280 krónum. • Þetta er hreint ótrúlega úlpa. Hvort sem þú trúir því eöa ekki er hægt aö fá sex úlpur út úr þessari einu úlpu. Sem sagt sex úlpur í einni. Þetta er Northland-dúnúlpa. Hún fæst í stæröum 140—152 á 3.995 krónur og í stæröum 164— 176 á 4.550 krónur. Einnig í small og extra large á 4.988 krónur. • iþróttatöskurnar frá Adidas eru í sérflokki. Allir góöir íþróttamenn vilja íþróttatöskurnar frá Adidas því þær eru einfaldlega þær bestu á markaönum í dag. Um 20 tegundir af íþróttatöskum fást í Boltamanninum. • Þessir eru sígildir og alltaf jafngóöir. Stærö- ir 3'/2—13 og þeir kosta aöeins 1.820 krónur. Universal-skórnir duga í fjölda ára og eru því peninganna viröi. i Þetta er toppurinn í dag, Gore-Tax-skórnir frá Adidas sem einungis fást í Boltamanninum. Skórnir úr þessu undraefni þola alla bleytu, eru lokaöir aö framan, vatnsþéttir og halda jöfnum hita á fótum þess sem í skónum er. Skórinn er nokkurs konar „annað skinn“ og þú svitnar aldrei í þessum skóm. Þetta er glæný framleiðsla frá Adidas. Stæröir 5—111/s og kosta 3.515 krónur. E Boltamaðurinn Laugavegi 27, sími 15599
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.