Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
41
Noregur:
Willoch tókst að af-
stýra stjórnarslitum
Fjárlög hækkuð um 201 milljón nkr.
Osló, 17. desember, frá frétUrilara Morgunblaósins, J.E. Laure.
Káre Willoch forsætisráðherra
Noregs hefur komist hjá því að fá
stjórnarslit { jólagjöf. Eftir margra
daga fundahöld hefur loks náðst
samkomulag milli stjórnarflokkanna
þriggja og Framfaraflokksins um
ríkisfjárlögin fyrir árið 1986. Sam-
komulagið sýndist langt undan og
náðist fyrst þegar samningaviðræður
virtust hafa siglt í strand.
Við umræður um fjárlagafrum-
varpið í haust fengu Verkamanna-
flokkurinn, Sósíalíski vinstriflokk-
urinn og Framfaraflokkurinn
meirihluta fyrir töluverðum auka-
útgjöldum ríkisins. Ríkisstjórnin
samþykkti hluta þessara aukaút-
gjalda en hafnaði öðrum alfarið.
Loks setti Káre Willoch forsætis-
ráðherra hnefann í borðið og varaði
við því að með hliðsjón af efnahag
Noregs tæki hann ekki í mál að
bæta við aukaútgjöldum, og myndi
ríkisstjórnin frekar segja af sér.
Dauðadómuryfir
eiturlyfjasmygl-
urum staðfestir
Kuala Lumpur, Malaysíu, 18. desember. AP.
í DAG synjaði hæstiréttur Mala-
ysíu náðunarbeiðni tveggja Ástr-
alíumanna, sem dæmdir voru til
dauða fyrir að smygla tæpum 180
grömmum af heróíni inn í landið.
Dómarinn, sem sat í forsæti
réttarins, sagði, að engin ástæða
væri til að breyta dómunum, en
þeir voru kveðnir upp 1. ágúst sl.
Mennirnir voru gripnir með eit-
urlyfin á alþjóðaflugvellinum í
Puiau Pinang 9. nóvember 1983.
Viðræður hófust við Framfara-
flokkinn sem fær því ráðið með
hinum tveim fulltrúum sínum hvort
meirihlutinn í norska stórþinginu
er borgaralegur eða til vinstri.
Formaður Framfaraflokksins
Carl I. Hagen setti tvö skilyrði fyrir
samstarfi. 1) Fjárlög skyldu hækk-
uð um 150 milljónir norskra króna
framyfir það mark er ríkisstjónrnin
hafi sett. 2) Frá því skyldi skýrt úr
ræðustóli á stórþinginu að Fram-
faraflokkurinn væri hinn þingræð-
islegi grundvöllur hinnar borgara-
legu ríkisstjórnar. Var seinni
krafan sett fram í þeim tilgangi að
Framfaraflokkurinn nyti meiri
viðurkenningar í ríkisstjórninni en
nú er.
Tveir stjórnarflokkanna, Mið-
flokkurinn og Kristilegi þjóðar-
flokkurinn, snérust öndverðir gegn
þessari kröfu, og vildu ekki taka
þátt í neinni samvinnu við Hagen
og flokk hans. Fyrir því varð Káre
Willoch forsætisráðherra að beygja
sig og leit út fyrir að stjórnarslit
yrðu næstkomandi fimmtudag.
Það urðu peningarnir sem réðu
úrslitum. Framfaraflokkurinn fær
ekki neina „opinbera viðurkenn-
ingu“ frá ríkisstjórninni. Þess í stað
gekkst ríkisstjórnin inná að auka
ríkisútgjöldin um 201 milljón nkr.
— þ.e. um 51 milljón nkr. í viðbót
við það sem Framfaraflokkurinn
hafði upphaflega farið framá. Þar
með voru allir flokkar ánægðir og
norska stórþingið getur farið í jóla-
frí með góðri samvisku.
Verhershöfðingja fagnað
Hermenn úr strandgæslu Filippseyja stilla sér upp klæddir áprentuðum skyrtum til að fagna Fabian C. Ver
hershöfðingja. Ver var nýlega endurskipaður yfirmaður hersins eftir að hann var sýknaður af aðild að morði
Benigno Aquino. Ver segir að það sé alfarið undir Ferdinand Marcos forseta komið hversu lengi hann gegnir
stöðunni.
SuÖur-Afríka:
Blaðamenn kærðir fyr-
ir að efna til óeirða?
Jóhannc.sarborg, 18. desember. AP.
LÖGREGLAN í Suður-Afríku veltir
nú fyrir sér hvort kæra eigi tvo
blaðamenn breskrar fréttastofu fyr-
ir að hvetja svarta til óeirða. Sjónar-
vottur hefur borið því vitni að
fréttamennirnir, Roger og Patrick
Lucey, séu saklausir af þessum
áburði.
Reagan beitir neitunarvaldi
gegn innflutningshömlum
Washington, 18. desember. AP.
RONALD Reagan Bandaríkjaforseti
beitti neitunarvaldi á miðvikudag til
að hindra að löggjöf, sem fól í sér
innflutningsbann á skófatnaði og
fataefnum kæmist á og sagði að
slíkar viðskiptahömlur væru of dýru
verði keyptar. „Við viljum ekki að
bandarískir verkamenn missi vinnu
sína og viðskiptalíf í Bandaríkjun-
um fari hnignandi," sagði Reagan í
ræðu sinni.
Reagan, sem tók þessa ákvörðun
á síðustu stundu, sagði að löggjöfin
bryti í bága við viðskiptasamninga
við margar þjóðir og myndu kalla
á gagnráðstafanir af þeirra hálfu
gegn bandarískum útflutningi.
„Afleiðingarnar yrðu aukið at-
vinnuleysi á öðrum sviðum at-
vinnulífsins og samdráttur í efna-
hagslífi Bandaríkjanna," sagði
Reagan.
„Þeir komu að brennandi eldi
og kvikmynduðu óeirðirnar," segir
Maredi Chueu, þingmaður í heima-
landinu Lebowa. Hann var með
Lucey-bræðrum í borginni Moutse
norðaustur af Pretóríu, þegar til
óeirðanna kom.
„Þeir lentu milli lögreglu og
ungmenna í vígahug og voru á
engan hátt ábyrgir.
R.F. Botha, utanríkisráðherra
Suður-Afríku, sagði í dag að
stjórnvöld í Zimbabwe hefðu á
nýjan leik sagst mundu úthýsa
skæruliðum. Suður-afrísk stjórn-
völd halda því fram að skæruliðar
hafi aðsetur í Zimbabwe og bregði
sér yfir landamærin til Suður-
Afríku til að koma fyrir jarð-
sprengjum. Stjórnvöld í Zimbabwe
neita þessum ásökunum alfarið.
V.
er komið út
ásamt endurprentun á fyrri bindum.
Askrifendur vitji bókanna hjá okkur.
Prentsmiðjan
Íddi
hf.
Höfðabakka 7 — Sími 83366