Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIP, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 Þaðfcest margl skemmtilegt íÁlafossbúðinni, t.d stílfirein matar- og kaffistell úr fivítu postulíni frá fiinum þekkta framleiðanda Arzberg. Þarna erauk þess að finna listilega fiönnuð vínglös, hnífapörog ýmsa skrautmuni. ^llafossbúöin VESTURGÓTU 2, SIMI 13404 GIAFAVORUR meiriháttar /TIGPk BRUNSLEDI tryllitæki! með stýri og öryggisbremsum og þú getur sveigt, beygt og bremsað að viid. Stiga brunsleðinn er níðsterkur: Hann ber jafnt börn sem fullorðna. Með stýrisskíðinu nærðu krappri beygju. Skíðin eru úr þrælsterku Etan-plasti og renna því mjög vel. Örugg handbremsa við allar aðstæður og varn- argrind fyrir framan fæturna. Með sérhönnuðum útbúnaði sveigir sleðinn til hliðar og stöðvast sjálfkrafa ef þú missir hann. ÖRNINN Spítalostig 8 vió Óóinstorg simor; 14661,26888 Ljósmynd/Valdis Óskarsdóttir Löggulíf þeirra Daníels og Þórs hafíð undir stjórn Varða varðstjóra, Flosa Ólafssonar, sem stendur lengst til hægri, ásamt sinum mönnum og víkinga- sveitinni. Næstur honum er Eggert Þorleifsson (Þór) og lengst til vinstri Karl Ágúst Úlfsson (Daníel). Kvikmyndin Löggu- líf frumsýnd Kvikmyndafélagið Nýtt líf frum- sýnir gamanmyndina Löggulífí Nýja Bíói í kvöld. Þetta er þriðja myndin um þá félaga Þór og Danna, en áður hafa verið sýndar Nýtt líf og Dalalíf. Auk þessara þriggja gaman- mynda hefur kvikmyndafélagið Nýtt líf gert myndina Skammdegi, sem var valin framlag íslands til óskarsverðlaunakeppninnar á næstaári. Löggulíf var kvikmynduð í Reykjavík í júlí og ágúst síðastliðið sumar og hlaut 1,9 milljóna króna styrk úr Kvikmyndasjóði íslands. Kostnaður við myndina á frum- sýningardegi er orðinn 12% millj- ón króna segir í fréttatilkynningu fráNýjulífi. í hlutverkum Þórs og Danna eru sem fyrr Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Ulfsson. Meðal ann- arra leikara eru Lilja Þórisdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Flosi ól- afsson, Guðrún Þ. Stephensen, Sigurveig Jónsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Rúrik Haraldsson og Bríet Héðinsdóttir. Þráinn Bertelsson skrifaði handrit að Löggulífi ásamt Ara Kristinssyni, sem einnig annaðist kvikmyndatöku og klippingu. Leik- mynd gerðu Hallur Helgason, Árni Páll og Stefán Hjörleifsson, bún- inga Dóra Einarsdóttir og Jón Karl Helgason sá um förðun. Hljóðmeistari var Sigurður Snæ- berg, en umsjón með tónlist höfðu þeir Guðmundur Ingólfsson og Lárus Halldór Grímsson. Fram- kvæmdastjóri myndarinnar var Ingibjörg Briem og leikstjóri Þrá- inn Bertelsson. Ámeshreppi á Ströndum: Góðæri hjá mink- um og músum Árnesi, Árneshreppi, 4. desember. AÐVENTAN er gengin í garð með norðaustanstrekkingi. Veður má þó kallast sæmilegt, þó þrútið sé loft og færð tekin að daprast. Fram til þessa hefur þó tíð verið góð og bfl- fært að kalia alla leið suður. Fé hefur unað sér úti í haga og fjöru í góðu yfirlæti, og er það nokkur sárabót eftir hrakviðri síðsumarsins. Heyskapur gekk þó sæmilega fyrir sig, enda nær ein- göngu verkað í vothey, sem betur fer. 620 líflömb voru seld Þingey- ingum, Skagfirðingum og Svarf- dælingum. Hafa líflömb löngum verið eftirsótt héðan sakir heil- brigði og afurðasemi. Slátrað var 3.560 fjár hjá Kaupfélagi Stranda- manna, Norðurfirði í haust. Meðal- fallþungi reyndist 14,8 kg en það er um hálfu öðru kílói lakara en í fyrra. Vinnu við hafnargerð á Norður- firði er lokið að sinni, og hafa strandferðaskipin lagst þar að bryggju frá miðjum ágúst. Er það mikill munur frá því sem áður var. Þá hefur nokkur landauki verið myndaður við kaupfélagið, og gerir það aðkomu þar og umsvif öll hagfelldari. íbúðarhús er í smíðum á Kjörvogi. Mikil lukka var með sjálfvirka símann í ársbyrjun, en því miður virðist ekki sjálfvirknin vera eins trygg og til var ætlast. Stendur það vonandi til bóta. Taisvert var unnið á mink og virðist hafa verið góðæri hjá því kyni í sumar. Söinuleiðis var gróska músaþjóðarinnar með ein- dæmum, og vonandi rætast hér ekki gamalla manna spár um harðan vetur. Er mönnum vita- skuld ami að uppgangi óþjóðar þessarar, og er hver sæll sem á góðan veiðikött. Fiskveiðar gengu bærilega í sumar, þrátt fyrir stirðar gæftir og helgarveiðibönn. Um 30 tonn af saltfiski voru verkuð hjá Kaup- félagi Strandamanna, og rúmlega annað eins í Djúpuvík. Megnið af þessum fiski fór í 1. flokk. Það var þungt hljóðið í þeim Gjögurbændum vegna aflatak- markana í sumar, en þeir byggja afkomu sína á grásleppu og færa- fiski. Kváðu þeir nógu erfitt að höfuðskepnurnar settu mönnum stólinn fyrir dyrnar, þótt stjfnvöld bættu ekki gráu ofan á svart. Hart væri að vera kallaðir frekjuhundar af alþingismönnum, og væri nær að huga betur að því sem kastað er í sjóinn hjá netabátum og togur- um. Einnig væri athugandi að flokka trillur öðruvísi, t.d. í opna báta og dekkbáta, og sjálfsagt væri að ónotaður kvóti félli niður. Senn er þetta ár á enda runnið, eins og öll hin, og framundan er hátíð Ijósa og friðar. Þrátt fyrir að ýmislegt mætti betur fara hér sem annars staðar, una Árnes- hreppsbúar þó á sínum reit í ró, og ég þykist vita að á þessari jóla- föstu, sem hinum fyrri, verður hungruðum heimi ekki gleymst. - Einar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.