Morgunblaðið - 19.12.1985, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÐAGUR19. DESEMBER1985
67
Saga eftir
Fay Weldon
ÚT ER komin hjá Forlaginu ný
skáldsaga eftir Fay Weldon, sem
nefnist Ævi og istir krendjöfuls.
Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýðir
söguna.
I fréttatilkynningu frá útgef-
anda segir m.a. um bókarefnið:
„Hvað getur heiðarleg húsmóðir
gert þegar eiginmaðurinn kallar
hana kvendjöful og hleypst á brott
með annarri konu? Hvað getur hún
gert — ófríðari en amma skrattans
— með undurfagra skáldkonu að
keppinaut? — „Köld eru kvenna-
ráð“. Söguhetjan, Rut, leitar allra
leiða af óþrjótandi hugkvæmni og
miskunnarleysi til að ná fram
hefndum og sigra andstæðinginn.
En hvaða tilgangi þjónar barátta
Rutar og hverju fórnar hún? Það
er ein hinnar miskunnarlausu
spurninga sem Fay Weldon spyr
lesendur sína í þessari meinfyndnu
Saga úr
undirheimum
Kaupmanna-
hafnar
ÚT ER komin hjá Forlaginu skáld-
sagan Morð í myrkri eftir danska
rithöfundinn Dan Turéll. Jón Gunn-
arsson þýðir söguna.
1 fréttatilkynningu frá Forlag-
inu segir m.a.:
„Morð í myrkri gerist í Kaup-
mannahöfn. Sögusviðið er Isted-
gata og hverfið í kring. Frumskóg-
ur neonljósa, klámbúða og nætur-
klúbba. Hér eiga hórurnar, dópsal-
arnir og fátæklingarnir heima.
Söguhetjan er blaðamaður sem býr
í hverfinu og lítur það augum hins
lífsreynda manns. Nótt eina hring-
ir síminn — gamall maður hefur
verið myrtur. Næsta dag er ná-
granni hans drepinn. Þegar þriðja
Skáldsaga
eftir Georg-
ette Heyer
VAKA-Helgafell hefur gefið út skáld-
söguna Þegar örlög ráðast eftir
Georgette Heyer.
f fréttatilkynningu frá útgefanda
segir m.a.:
„Sögusviðið er Lundúnaborg á
tímum glæsileika og íburðar yfir-
stéttarinnar — spennandi veröld
liðinnar tíðar.
Lizzy Winwood er af aðalsættum
en fjölskylda hennar býr við naum-
an fjárhag í snotru hverfi, sem
ekki er lengur eftirsótt. Fjölskylda
Lizzyar hefur ákveðið að hún skuli
giftast hinum stórauðuga hertoga
af Rule.
En hugur Lizzyar stefnir annað
en til er ætlast og afli ástarinnar
er erfitt að stýra. Áður en í óefni
er komið býðst ung og uppreisnar-
gjörn systir Lizzyar til að taka að
sér hlutverk hennar sem hertoga-
Barnabók
eftir
Tormod
Haugen
IÐUNN hefur sent frá sér barnabók-
ina Jóakim eftir norska rithöfundinn
Tormod Haugen.
Um efni bókarinnar segir m.a. í
fréttatilkynningu frá útgefanda:
Jóakim er að verða níu ára
gamall. Hann á heima í sambýlis-
húsi ásamt mömmu sinni og
pabba. Mamma vinnur i kjólabúð
og pabbi er kennari. En pabbi fer
ekki í skólann því hann er hrædd-
FAY WELDON
ÆVI&ÁSTIR
ogdjöfullegu satíru.“
Ævi og ástir kvendjöfuls er 240
bls. Hún er samtímis gefin út
innbundin og sem vönduð kilja.
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
Auglýsingaþjónusta SM/Tómas
Hjálmarsson hannaði kápu.
morðið er framið fer blaðamaður-
inn á stúfana. I undirheimum
Kaupmannahafnar kynnist hann
grimmilegri valdabaráttu sem
leiðir hann að lausn gátunnar."
Morð í myrkri er 208 bls. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði.
Þeúaförtöú
mréðastm
ynjaaf Rule.
Þessi hlutverkaskipti leiða af sér
spennandi og háskalega atburða-
rás og sögulokin koma mjög á
óvart.“
Þegar örlög ráðast er sett, filmu-
unnin og prentuð í prentstofu G.
Benediktssonar, en bundin hjá
Bókfelli hf.
ur. Jóakim er líka hræddur. Um
leið og hann vaknar um morguninn
veit hann að eitthvað skelfilegt
hefur komið fyrir. Jóakim verður
að fóta sig i ótryggum heimi, þar
sem krakkarnir geta verið and-
styggilegir og fullorðna fólkið
pukrast með leyndarmál sem börn-
in eiga ekki að geta skilið. Hann
vill hafa bæði pabba og mömmu
hjá sér en það gengur ekki alltaf
vel. Oft bíður Jóakim ósigra, en
hann gefst ekki upp. Og stundum
sýnir hann styrk sem hann vissi
ekki að hann ætti til. Eins og þegar
hann stoppar Róbert í miðju inn-
broti...“
Bókin er gefin út með styrk úr
þýðingarsjóði Norðurlandaráðs.
Njörður P. Njarðvik þýddi. Aug-
lýsingastofan Octavo hannaði
kápu. Oddi hf. prentaði.
Hagkaupsmálning 1L.
kr. 149,-
Sturtusett
kr. 1.189.-
Fúgusement
kr. 79,90
Kýtti
kr. 249.-
Handklæðahaldari
kr. 819.-
Tvöföld
bréfalúga
kr. 689.-
Handklæðahaldari
kr. 459.-
Sápuskál
kr. 269.-
Kíttisspaði
kr. 65,90
Hamar
kr. 289.-
Kýttisgrind
kr. 229.-
Sturtuslanga
kr. 189.-
Málningarrúlla
kr. 249.-
Reykskynjari
kr. 1.279.-
Raco lyklasett
kr. 999.-
Lakkpensill 4' Lyklasett
kr. 339,- sög kr. 499,-
kr. 329.-
HENDUR
FRAM-UR
ERMUM
HAGKAUP
Skeif unni 15