Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 28

Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 Góðir dómar Jóhanna Kristjónsdóttlr, gagnrýnandi Mbl. Áml Bergmann, gagnrýnandi Þjv. Eriendur Jónsson, gagnrýnandi Mbl. Jóhanna Kristjónsdóttlr, gagnrýnandi Mbl. .Það þarf ekki fleiri orð fSAFOLD U pplýsingasky lda forstjóranna r _ Olafi Ragnari Grímssyni svarað — eftir Þórð * Asgeirsson Ég get ekki látið vera að svara grein Ólafs Ragnars Grímssonar í Mbl. á þriðjudag um upplýsinga- skyldu forstjóranna, jafnvel þótt ég viti að maðurinn er haldinn óstjórnlegri löngun til þess að hafa síðasta orðið — eða bara hafa orðið. Ástæðan er hvernig hann hagar sínum orðum og skrifum. I grein sinni byrjar Ólafur á því að vitna með tilvitnunarmerkjum í það sem hann sagði á Alþingi 10. desember sl. Þessi tilvitnun er þó ekki eins og tilvitnun í sama efni eins og hún birtist í Þjóðviljanum 14. des. sl. Þetta sýnir væntanlega starfsstíl Ólafs Ragnars. í „tilvitn- un“ þeirri sem birtist í Mbl. er ekki minnst á ummæli Ólafs í þingræðunni um stórfyrirtæki í biðsal dauðans sem riðuðu til falls og væru að verða gjaldþrota. Það eru þessi ummæli sem ég og fleiri svöruðu opinberlega og sem Ólafur er nú að andsvara með því að reyna að fela þau bak við sakleysislegt orðalag um að hann hafi nefnt fyrirtæki „sem hefðu safnað skuld- um“. Stórmannlegra væri nú að skýla sér ekki á bak við þinghelgi og bera ábyrgð á þessum orðum fyrir rétti, Ólafur Ragnar Gríms- son. Annað í Mbl.grein Ólafs Ragn- ars er í sama „starfsstíl". Hann segir að ég hafi í grein minni „Sið- laust tal á Alþingi" viðurkennt að miklar skuldir séu tengdar rekstri OLÍS. Með þessu er hann að reyna að gefa í skyn að ég hafi verið að tala um skuldir OLÍS þótt öllum læsum mönnum hafi verið ljóst að ég var að tala um kröfur ÓLÍS á aðra, einkum útgerð og fisk- vinnslu. Og Ólafur heldur áfram og segir að ég hafi ákallað pólitíska vald- hafa til að grípa til björgunarað- gerða og bjarga stöðu OLIS. Þessa túlkun Ölafs á mínum orðum getur hver dæmt fyrir sig. Það sem ég sagði var þetta: Ef menn eru ekki búnir að gleyma því að við lifum á útgerð og fiskvinnslu í þessu Nú er komin ný bók eftir Andrés Indríðason. \ Það var tílviljun að Jón Agnar kom ekki í leikfimi fyrr en akkúrat fyrsta apríl. Hann var búinn að vera í þessum skóla síðan hann flutti frá Eyjum um áramót, en hinir peyjamir í bekknum voru svo stórir, maður! Algerir himnastigar. Ekki síst Lilli, Guggi og Högni - félagar í Svörtu hauskúpunni. Jón Agnar er bara venjulegur - jæja, kannski eínu númeri of lítiíl... En leikfimikennarinn hélt að hann væri aprílgabb! Dagurinn verður illgleymanlegur og Jón Agnar þarf að sýna í verki að margur sé knár þótt hann sé smár - ekki síst eftir að Ragnhiidur, skrautblómið í bekknum, fer að veita honum eftirtekt... Bara stælar! er ný unglingabók eftir Andrés Indriðason. Frábærlega skemmtileg og hress saga um káta krakka. Bara stælar! Kr. 785.- Góð bók gleður Mál og menning Þórdur Ásgeirsson „Stórmannlegra væri nú að skýla sér ekki á bak við þinghelgi og bera ábyrgð á þessum orðum fyrir rétti, Ólafur Ragn- ar Grímsson.“ landi þá held ég að þar sé um að ræða fyrirtæki sem alþingismenn og aðrir eigi að hafa áhyggjur af og ræða hvernig bæta megi rekstr- argrundvöll þeirra, þannig að þau geti skilað hagnaði og greitt skuld- ir sínar. Það væri a.m.k. að byrja á réttum enda. Hverjum er ég að biðja um að verði bjargað? Ólafur Ragnar endar yfirklór sitt í samræmi við fyrirsögn grein- arinnar. Hann segir að forstjórar stórfyrirtækja sem safna skuldum hjá þjóðbönkunum þurfi að sinna upplýsingaskyldu við fólkið í landinu. Þetta virðist eiga að skilja þannig að hver sem er eigi hvenær sem er að geta bent á hvaða fyrir- tæki sem er og sagt: „Þið eruð í biðsal dauðans. Þið eruð að verða gjaldþrota. Sannið nú fyrir þjóð- inni að þetta sé ekki rétt“. Ég býst við því að það séu ekki margir sammála Ólafi um þessa túlkun á upplýsingaskyldu. Ég er hins vegar á þeirri skoðun að þegar hluthöfum fyrirtækja hefur verið gerð grein fyrir stöðu þeirra á aðalfundum, sem haldnir eru á hverju ári, þá sé æskilegt að fjölmiðlar fái einnig aðgang að þeim úpplýsingum. Eftir því hef ég farið, jafnframt því sem ársreikningur og árs- skýrsla þess félags sem ég vinn fyrir er gert þannig úr garði að það gefi sem allra skýrasta, sann- asta og besta mynd af rekstri og efnahag félagsins. Það er staðfest með þeirri staðreynd að í fyrra fékk ÖLÍS sérstaka viðurkenningu fyrir ársskýrslu sína og nú fyrir nokkrum dögum fékk OLÍS árs- skýrsluverðlaun Stjórnunarfélags íslands, sem er mesta viðurkenn- ing sem hægt er að fá fyrir að sinna vel því sem líklega mætti kalla upplýsingaskyldu forstjór- anna. Höfundur er forstjóri OLÍS. V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! i
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.