Morgunblaðið - 19.12.1985, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
Nokkur orð um Hafskips-málið
— Greinargerð frá Ragnari Kjartanssyni
Morgunblaðinu hefur borizt eftir-
farandi greinargerð frá Ragnari
Kjartanssyni, stjórnarformanni Haf-
skips hf.
Inngangur
Gjaldþrot Hafskips hf. er það
mál, sem hæst hefur borið í al-
mennri umræðu hérlendis síðustu
vikurnar. Samhliða því hefur
mikið verið rætt um tap Útvegs-
banka íslands og þær byrðar, sem
það leggur þjóðinni á herðar.
Forsvarsmenn Hafskips hf. hafa
lítið frumkvæði haft að því að
skýra málið frá sínum sjónarhóli.
Þeir hafa talið, að endanlegar
niðurstöður þeirra, er rannsaka
málið, myndu nægilega fljótt leiða
sannleikann í ljós. Þeir hafa einnig
talið litla von til þess að ræða
málið efnislega á meðan yfir geng-
ur hið mikla pólitíska moldviðri,
sem þyrlað hefur verið upp um
málið.
Hins vegar hefur umræðan um
málið nú upp á síðkastið beinst inn
á þær brautir, að meginuppistaða
hennar er Gróusögur, sem birst
hafa í fjölmiðlum, og þær eru
raktar m.a. til tveggja fyrrverandi
starfsmanna fyrirtækisins. Þjóð-
kjörnir fulltrúar á hinu háa Al-
þingi íslendinga hafa notað þessar
sögur sem uppistöður í málflutn-
ingi sínum, án þess að hafa leitað
staðfestingar á sannleiksgildi
þeirra.
Af þessum ástæðum meðal ann-
ars telja forsvarsmenn Hafskips
hf. ekki annað fært en að freista
þess að skýra málin frá sínum
sjónarhóli.
Skin og skúrir
Hafskip hf. varð 27 ára. Það var
stofnað til þess að veita samkeppni
í siglingum og freista þess að
lækka farmgjöld. Þessi markmið
náðust, það vita þeir best, sem flutt
hafa vörur milli landa.
Öll árin hefur félagið búið við
veika eiginfjárstöðu, vegna þess
að það lagði áherslu á, að við-
skiptavinir nytu hagstæðra farm-
gjalda í stað þess að safna sjóðum.
Þrisvar hefur komið til gagngerrar
endurskipulagningar á rekstri fé-
lagsins, síðast árið 1978, er það var
í reynd gjaldþrota.
A árunum eftir 1978 og fram til
1983 efldist rekstur félagsins mik-
ið, nýjar skipategundir voru tekn-
ar í notkun, markaðshlutdeild tvö-
til þrefaldaðist og hagkvæmni
jókst til muna.
Skipafélögin lögðu mikla
áherslu á að bæta skipakost sinn
og taka nútíma tækni í þjónustu
sína, sem best sést á því, að á
örfáum árum fækkaði skipakom-
um til Reykjavíkurhafnar um
þriðjung vegna aukinnar hag-
kvæmni í siglingum.
Þetta voru bestu ár félagsins.
1984 — Örlaga-
ríkt ár
Árið 1984 varð félaginu örlaga-
ríkt í tvennum skilningi. f fyrsta
lagi urðu þá margháttaðar utanað-
komandi ástæður til þess, að hagn-
aðarvon varð að engu og mikill
taprekstur varð á félaginu. í öðru
lagi reyndust þær viðnámsaðgerð-
ir, sem menn töldu sig grípa til,
verða banabiti félagsins.
Þessu til viðbótar varð mikið
verðfall á skipum félagsins sem
og öðrum almennum kaupskipum
og hefur það haldið áfram til
dagsins í dag. Við þetta hrapaði
veðhæfni þeirra vitanlega einnig,
þannig að til viðbótar miklu tapi
hefur eignastaða félagsins stór-
versnað.
Lítum á þessi atriði hvert fyrir
sig.
Utanaðkomandi
ástæður
a) Flutningataxtar íslensku
skipafélaganna byrjuðu að
lækka þegar árið 1983 og árið
1984 hríðféllu þeir. Forsenda
þessa taxtahruns var vitanlega
harðnandi samkeppni félag-
anna. Síst ættu Hafskipsmenn
að kvarta undan henni, félagið
var stofnað til þess að veita
hana. Hins vegar kom það fé-
laginu í koll að hafa aldrei
safnað sjóðum til þess að stand-
ast það, að taxtar urðu í raun
undir sannvirði.
Á þessum tíma er talið, að
innflutningstaxtar hafi fallið
að meðaltali um 15% og út-
flutningstaxtar enn meira, en
veltan í flutningum þeirra
þriggja skipafélaga, er annast
áætlunarsiglingar, er talin hafa
verið nálægt 4 milljörðum
króna. Talið er, að á árinu 1984
hafi brúttóáhrif taxtahrunsins
numið nærri 100 milljónum í
rekstri Hafskips hf.
b) Árið 1984 voru íslensk skipafé-
lög svipt flutningum til varnar-
liðsins í skjóli úreltra banda-
rískra einokunarlaga. Tap Haf-
skips á árinu vegna þessa nam
um 80 milljónum króna, en
brúttótap allt tímabilið, það er
frá apríl 1984 til nóvember
1985, rúmlega 200 milljónum.
Þetta tekjutap kom miklu harð-
ar niður á Hafskip hf. en sam-
keppnisaðilum vegna þess, hve
þýðingarmiklir þessir flutning-
ar voru hlutfallslega í rekstri
félagsins.
c) Félagið varð fyrir mjög miklum
skakkaföllum vegna verkfalls
BSRB í vetrarbyrjun 1984.
Áætlað er, að tjón af þessum
sökum hafi verið á bilinu 15-20
milljónirkróna.
d) Gengisfelling umfram þau
mörk, er stjórnvöld stefndu að
undir lok ársins, kostaði félagið
milli 40 og 50 milljónir króna.
Rekstur félagsins byggði nær
eingöngu á erlendum lánum og
70-80% kostnaðar þess voru í
erlendri mynt. Því varð þessi
gengisfelling félaginu örlaga-
ríkari en oft áður.
Séu einvörðungu lægri tölurnar
úr þessum atriðum teknar, sést,
að þessi utanaðkomandi skakka-
föll hafa kostað félagið að minnsta
kosti 235 milljónir króna. Því var
fyrirsjáanlegt, að vonir um um-
talsverðan hagnað myndu snúast
upp í martröð tapreksturs.
Vidnáms-
aðgerðir
Þegar ljóst varð, að hverju
stefndi, gerðu forráðamenn Haf-
skips hf. viðskiptabanka fyrirtæk-
isins, Útvegsbanka íslands, við-
vart. í fyrstu var talið, að tapið
yrði á bilinu 50 til 60 milljónir
króna. Stjórn félagsins ákvað í
samráði við bankastjórn Útvegs-
bankans að safna 80 milljón króna
nýju hlutafé í febrúar 1985 til þess
að mæta skakkaföllunum. Þetta
hlutafé safnaðist, en dugði samt
ekki til að mæta tapi ársins 1984,
sem varð 96 milljónir. En skuldir
umfram eignir í árslok reyndust
vera 105milljónir.
Því hefur verið haldið fram, að
hluthafar og starfsfólk hafi verið
vísvitandi blekkt til hlutafjár-
skuldbindinga til þess að halda
áfram vonlausum rekstri. Til
hlutafjárútboðsins 9. feb. sl. var
stofnað í samráði við Útvegsbanka
íslands, þar eð ljóst var orðið, að
eiginfjárstaða félagsins yrði nei-
kvæð eftir taprekstur ársins 1984
og eignastaða ótrygg vegna verð-
falls á skipum. Bent er á, að stjórn-
armenn og fyrirtæki þeim tengd
standa að baki um 70-75% hluta-
fjárins og að stjórnarformaður og
forstjóri eru sjálfir í samtals um
6 millj. kr. ábyrgðum vegna hluta-
fjárkaupa í félaginu. Hið sanna er,
að menn voru í góðri trú en meðvit-
aðir um áhættu.
Því var stöðugt haldið fram, að
brottfall varnarliðsflutninganna
væri tímabundið fyrirbæri, sem
bandarísk stjórnvöld myndu kippa
í liðinn. Með því var einnig reikn-
að, að senn myndi linna hinni
miskunnarlausu samkeppni í
flutningatöxtum og jafnvægi nást
í þeim efnum. Þetta hvort tveggja
varð til þess, að menn vildu reyna
að þrauka í Ameríkusiglingunum.
Ljóst var samt, að það yrði ekki
unnt að óbreyttum aðstæðum og
því nýjar leiðir kannaðar til þess
að halda þeim uppi. Að undan-
gengnum víðtækum könnunum
heima og erlendis voru teknar upp
siglingar milli Bandaríkjanna og
Evrópu með umskipun í Reykjavík
og síðar beinar siglingar milli
Ameríku og Evrópu í október 1984.
Það var ljóst, að slíkar siglingar
í harðri samkeppni væru áhættu-
samar. Engu að síður var talið, að
þær ættu að skila félaginu hagnaði
og fleyta því yfir erfiðasta hjall-
ann. Það er nú ljóst, að þessar
áætlanir stóðust ekki. f stað þess
að verða bjargvættur félagsins
urðu þær banabiti þess.
Verðhrun skipa-
stólsins
Það er kunnugt af umræðu, að
geysilegt verðhrun hefur orðið á
skipum undanfarin ár. Verðhrunið
byrjaði í olíuskipum í kjölfar orku-
kreppunnar og síðan hrundi verð
stórra vöruflutningaskipa á bilinu
60-80 þúsund lestir eins og fram
kemur í línuriti í Morgunblaðinu
5. des. sl. Verðhrunið í stórflutn-
ingaskipunum hófst þegar árið
1981, en almenn vöruflutningaskip
héldu hins vegar verðgildi sínu að
mestu þar til árin 1982 og 1983,
að verð þeirra fór lækkandi. Alvar-
legt verðhrun þeirra hófst hins
vegar ekki fyrr en á síðasta ári og
hefur haldið áfram til dagsins í
dag.
Talið er, að verðmæti skipastóls
Hafskips hf. eins og hann var
samsettur í upphafi þessa árs,
hafi fyrir verðfallið numið nálægt
10-11 milljónum bandaríkjadala. f
byrjun síðastliðins sumars var svo
komið, að sumar erlendar banka-
stofnanir lögðu ekki annað mat á
skip almennt en það, hvað fengist
fyrir þau til niðurrifs, enda bárust
þa'stöðugar fréttir af gjaldþrotum
stórra og smárra skipafélaga um
allan heim.
Talið er, að verðmæti íslenska
skipastólsins hafi á þessu tímabili
minnkað um 2.500 til 3.000 milljón-
ir króna, og er því hætt við, að
fleiri en Hafskipsmenn þurfi að
endurmeta stöðu sína nú.
Þetta gífurlega verðhrun, sem
enginn innlendur aðili gat á nokk-
urn hátt ráðið við, hefur vitanlega
rýrt veðhæfni skipanna mjög og á
stóran þátt í því, að tap Útvegs-
bankans er mikið, þegar upp er
staðið.
Áætlanir, sem
brugðust
Þess er áður getið, að vonir stóðu
til, að siglingar félagsins milli
Ameríku og Evrópu myndu bjarga
við fjárhag þess. Það fór á annan
veg. Þær urðu banabiti þess.
Fráleitt er annað en að viður-
kenna það, að þessar áætlanir voru
ekki nógu traustar. Það er auðséð
eftir á. Jafnvíst er, að þær voru
gerðar í góðri trú, annars hefðu
stjórnendur fyrirtækisins tæplega
hætt sínu eigin fé á grunni þeirra.
Það, sem blekkti stjórnendur
fyrirtækisins lengst, var það, að
áætlanir um tekjur stóðust. Allir,
sem í rekstri hafa staðið, vita vel,
að ef illa gengur, verða menn oft-
ast fyrst varir við samdrátt í tekj-
um. Engu slíku var til að dreifa
fram á mitt þetta ár. Tekjur fóru
jafnvel fram úr vonum.
Þegar uppgjör lá fyrir um fjóra
fyrstu mánuði ársins í júlíbyrjun,
varð hins vegar ljóst, að kostnaður
hafði farið mikið fram úr áætlun.
í stað þess að reksturinn stæði í
járnum, eins og áætlað hafði verið,
var um að ræða heildartap á
rekstri félagsins, er nam um 90
milljónum króna. Tapið varð bæði
á Atlantshafssiglingunum og sigl-
ingum milli íslands og Evrópu.
Eðlilegt er, að spurt sé: „Hvers
vegna í ósköpunum tók það svo
langan tíma að átta sig á þessu?“
Þar kemur margt til. Upplýs-
ingakerfi fyrirtækisins var of sein-
virkt. Það er nú vitað. Slíkir flutn-
ingar fara í gegnum mörg fyrir-
tæki, alls kyns flutningamiðlara,
verktaka og gámafyrirtæki o.fl.
Kostnaðarreikningar voru því
lengi að bérast.
í júlí varð ljóst, hvert stefndi.
Viðskiptabanka Hafskips var þá
gerð grein fyrir stöðu mála. Sam-
þykkt var að hefja trúnaðarvið-
ræður við Hf. Eimskipafélag ís-
lands um íslandssiglingar Haf-
skips. Jafnframt að leita eftir er-
lendum samstarfsaðilum í Atl-
antshafssiglingum að undangeng-
inni ítarlegri athugun á reksturs-
kostnaði þeirra.
Viðræðum við Hf. Eimskipafé-
lag íslands lauk án árangurs.
Islenzka skipafélagið hf. bauð
rúmlega 600 milljónir króna í eign-
ir Hafskips hf. í samráði við Öt-
vegsbanka íslands. Samhliða voru
teknar upp viðræður við sam-
vinnuhreyfinguna um stofnun nýs
skipafélags og möguleikar kannað-
ir á að efla Islenzka skipafélagið
hf. til áframhaldandi sjálfstæðs
starfs. Þessum tilraunum lauk án
árangurs.
Viðræður um sölu á starfsemi
erlendis báru heldur ekki árangur,
enda tími naumur vegna hraðrar
framvindu málsins.
Kapphlaup
um tíma
Til þess að losna úr samningum
vegna Atlantshafssiglinganna
þurfti tíma, ef ekki ætti að koma
til hárra skaðabóta vegna riftunar.
Því var það ljóst, að fyrirtækið
þurfti að geta unnið að þessum
málum í nokkru næði, enda þótt
málum væri hraðað eins og frekast
væri kostur. í það var gengið strax
og ljóst var, að hverju stefndi.
Því miður tókst þetta ekki. Um
leið og hin mikla umræða hófst
hér heima um slæma stöðu fyrir-
tækisins, kipptu erlendir við-
skiptaaðilar að sér hendinni.
Flutningar drógust saman og
kröfuhafar urðu ófúsir til samn-
inga. Um leið og ljóst var, að
stefndi í gjaldþrot, lokuðust allar
samningadyr. Þeir, sem hefðu
verið fáanlegir til að slá verulega
af kröfum þeim, er þeir áttu sam-
kvæmt samningum, setja nú fram
ítrustu kröfur til að fá sem mest
út úr hugsanlegum gjaldþrota-
skiptum. Sú umræða, sem fram
hefur farið í þjóðfélaginu, í fjöl-
miðlum og á Alþingi, hefur því
vissulega valdið skaða.
Þetta er ekki sett fram hér til
að áfellast þá, sem tekið hafa þátt
í málefnalegri umræðu, aðeins á
það bent til þess að vara við því,
að fleiri fyrirtæki verði sköðuð —
og þar með þjóðin öll — með óvar-
legri umfjöllun.
Sú leynd, sem kvartað hefur
verið yfir, að forsvarsmenn Haf-
skips og Útvegsbanki fslands hafi
haldið yfir málinu, var fyrst og
fremst höfð til þess að freista þess
að bjarga því sem bjargað yrði
fyrir fyrirtæki, banka og þjóð. Það
hefur mistekist og um það geta
stjórnendur félagsins vissulega
engum kennt fremur en sér sjálf-
um.
En það er undirstrikað — og
þess vænst, að ítarleg rannsókn
leiði það endanlega í ljós — að
vísvitandi var enginn maður
blekktur, hvorki innan fyrirtækis
né utan.
Gróusögur
í þeirri umræðu, sem fram hefur
farið um gjaldþrot Hafskips hf.
m.a. á hinu háa Alþingi, hafa
nokkrir alþingismenn byggt mál-
flutning sinn á dylgjum og Gróu-
sögum úr rekstri fyrirtækisins og
í garð forsvarsmanna þess. Ætíð
er matsatriði, hversu langt á að
ganga til andsvars slíku og oft á
tíðum ekki hægt á sama vettvangi.
Þegar sögur og slúður er margít-
rekað í sölum Alþingis, síðan í
fjölmiðlum, telja forsvarsmenn
Hafskips hf. sig tilneydda að koma
eftirfarandi svörum á framfæri,
þótt aðeins sé fjallað um fáein
dæmi.
„Óeðlilegur bílakostur fram-
kvæmdastjóra Hafskips í Banda-
ríkjunum, um tíma réði hann yfir
fjórum bílum, notkun kadiljáka
með sjónvarpi, bar og einkabíl-
stjóra."
Svar: Forstöðumaður Hafskips í
Bandaríkjunum hafði frá fyrir-
tækinu eina bifreið til afnota.
Skrifstofa Hafskips var til
skamms tíma staðsett á Long Is-
land um 2 klst. akstursleið frá
miðborg New York. Var það í
upphafi gert af hagkvæmnis-
ástæðum vegna lægri leigu og
þjónustukostnaður utan NY-borg-
ar. Nokkrum sinnum var notuð
þjónusta fyrirtækis, er leigir bíl
með bílstjóra, t.d. þegar farþegar
voru sóttir á flugvöll. Slíkur leigu-
máti er iðulega hagkvæmur, sér-
staklega ef farþegar eru fleiri en
tveir. Þetta þekkja þeir, sem starf-
að hafa í Bandaríkjunum eða ferð-
ast þangað oft.
„Eitt dæmið um misferli og
lögleysur hjá Hafskip í Bandaríkj-
unum er innflutnirigur forstjóra
Hafskips (USA) á bílum frá Evr-
ópu handa sjálfum sér og vinum
sínum. Hafskip borgaði þennan
innflutning, bæði andvirði bílanna
og flutning. Þetta var síðan fært
sem kostnaður í bókhaldi hjá
Hafskip hf.“
Svar: Síðla árs 1984 flutti Haf-
skip (USA) eina BMW-bifreið not-
aða frá Evrópu. Stóð til að gera
tilraun með sölu á notuðum, upp-
gerðum bifreiðum í Bandaríkjun-
um. Slíkt hefði m.a. getað skapað
félaginu flutning frá Evrópu til
Bandaríkjanna. Vegna aukins
umfangs í öðrum störfum varð
ekkert úr þessari tilraun. Félagið
á bifreiðina ennþá og er verð
hennar um USD 8.500.-
„Óreiða í bókhaldi, lögbrot, árs-
reikningur ekki áritaður af endur-
skoðendum Hafskips í Bandaríkj-
unum.“
Svar: Ársreikningur Hafskips
(USA) er áritaður af löggiltum
endurskoðanda Hafskips (USA) í
New York 6. maí 1985. I þeirri
áritun kemur ekkert fram annað
en að bókhald og uppgjör félagsins
sé í lagi.
„Endurskoðendafyrirtækið Coo-