Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
*
Israel—Sýrland:
Peres reynir að
draga úr spennu
Tel Aviv, IH.desember. AP.
UTANRÍKISRÁÐHERRA ísraels,
Yitzhak Shamir sagði í dag aö Isra-
elar vilji foröast að magna spennu
milli ísrael og Sýrlands en svo gæti
þó fariö aó grípa yrði til aðgerða ef
Sýrlendingar gengju lengra en þeir
hefðu þegar gert. Shimon Peres
forsætisráðherra sagði aö þó Sýr-
lendingar hefðu ekki áhuga á að
semja friö hefðu þeir enn ekki brot-
ið landamærasamninga við ísraels-
ríki.
Talið er að Peres hafi haft þessi
ummæli í því skyni að draga úr
Vladimir N. Chernavin
Undirtylla
Gorskovs
sett yfír
flotann
GORBACHEV, leiðtogi sovézka
kommúnistaflokksins, svipti Sergei
G. Gorskov aðmírál embætti á dög-
unum, en hann hafði þá verið yfir-
maður sovézka flotans í 29 ár. í
hans stað setti Gorbachev Vladimir
N. Chernavin aðmírál yfir flotann,
en hann var aðstoðarmaður
Gorskovs.
Brottvikning Gorskovs er liður
í hreinsunum í æðstu valdastöðum
hersins, sem Gorbachev hóf fljót-
lega eftir embættistökuna í marz
sl. Vestrænir flotamálafulltrúar
telja að aldurinn hafi orðið
Gorskov að falli, en hann er 75 ára.
Út spurðist fyrst um breytinguna
er dagblað sovézka hersins,
Krasnaya Zvezda, skýrði frá því
að „yfirmaður flotans, Chernavin"
væri komin í heimsókn til Túnis.
Fremur lítið er vitað um
Chernavin aðmírál, sem er 57 ára.
Hann hefur verið annar tveggja
aðstoðaryfirmanna sovézka flot-
ans frá í marz 1982.
Gorbachev hefur skipt um menn
í fjórum lykilstöðum í sovézka
hernum. Auk brottvikningar
Gorskovs vék hann yfirmanni
stjórnmáladeildar herjanna frá,
yfirmanni eldflaugaherjanna og
yfirmanni sovézka heraflans í
Austur-Þýzkalandi. Þá er í gangi
þrálátur orðrómur um að Viktor
G. Kulikov verði látinn víkja sem
yfirmaður Varsjárbandalagsherj-
anna, en þeim starfa hefur hann
gegnt frá 1977.
spennu sem verið hefur milli ríkj-
anna síðan Israelsmenn skutu
niður tvær sýrlenskar orrustuþot-
ur hinn 19. nóvember.
Sýrlendingar gripu til þeirra
mótaðgerða að flytja loftvarnaeld-
flaugar að landamærum ísrael og
telja ísraelar það ógnun við reglu-
legt eftirlitsflug sitt yfir Líbanon.
Bandaríkjamenn hafa einnig reynt
að draga úr spennunni með því að
hvetja stjórnina í Damascus til að
flytja eldflaugarnar frá landa-
mærunum.
Vinnudeila flugvirkja í Noregi:
56 flug
féllu niður
Osló, 18. desember. AP.
NORRÆNA flugfélagið SAS varð
að fella niður 56 flugferðir á mið-
vikudag þegar 179 flugvirkjar fé-
lagsins í Noregi drógu úr afköstum
sínum í löglegum aögerðum vegna
launadeilna. Blaöafulltrúi SAS í
Noregi segir að þúsundir farþegar
hafi orðið fyrir óþægindum vegna
truflana á flugi og hafi flutninga-
geta flugfélgsins minnkað um einn
þriðja vegna aðgerða flugvirkja,
sem fara sér hægt við vinnu sína.
Aðgerðir flugvirkja komu verst
niður á flugi frá Bergen og Osló.
Ástandið fór versnandi eftir því
sem leið á daginn og var þá öllu
flugi frá Bergen aflýst og far-
þegum ráðlagt að taka sér far með
lestum.
V 1 f
Veður
víða um heim
L»gst Hæst
Akureyri -3 úrk.ígr.
Amiterdam 6 10 rigning
Aþena 7 17 heióskírt
Barcelona 14 mistur
Berlín 0 5 rigning
Brbssel 3 9 rigning
Chicago 10 19 rigning
Dublín 5 10 heiðskírt
Feneyjar 6 þoka
Frankfurt 5 9 rigning
Genf +2 1 skýjaó
Helsinki +15 +13 heióskírt
Hong Kong 13 17 akýjaó
Jerúsalem 10 12 skýjað
Kaupmannah. Las Palmas 1 3 skýjað vantar
Lissabon 4 12 skýjað
London 10 12 heiðskirt
Los Angeles 10 28 heiöskírt
Lúxemborg 4 súld
Malaga 13 skýjað
Mallorca 14 mistur
Miami Montreal 15 20 skýjað vantar
Moskva +21 +« skýjað
New York 0 4 heiðskírt
Osló +13 +5 skýjað
París 5 8 skýjað
Peking +9 2 heiðskirt
Reykjavík 1 skýjað
Ríóde Janeíro 21 33 heíðskírt
Rómaborg 0 11 heiðakírt
Stokkhólmur +« +3 skýjað
Sydney 18 29 heiðakírt
Tókýó +1 9 heiðakírt
Vínarborg 9 10 skýjað
Þórshöfn 6 léttakýjaö
Gengi
gjaldmiðla
London, 18. desember. AP.
GENGI Bandaríkjadollara hækkaði
í dag gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum heims, utan kanadíska doll-
arans.
í London kostaði sterlingspund-
ið síðdegis í dag 1,4210 dollara
(1,43785).
Gengi annarra helstu gjald-
miðla var þannig að dollarinn
kostaði:
2,5141 vestur-þýsk mörk
(2,5045), 2,11275 svissneska franka
(2,1012), 2,8370 hollensk gyllini
(2,8230), 7,7065 franska franka
(7,6675), 1.718,125 ítalskar lírur
(1.709,75), 1,4933 kanadíska dollara
(1,39485) og 202,9j5 japönsk jen
(201,70).
AP/Símamynd
Kasparov og Timman að tafli í þriðju einvígisskák þeirra. Timman vann skákina, en Kasparov vann tvær fyrstu.
Timman er álitinn þriðji sterkasti skákmaður heimsins, kemur næst á eftir Kasparov, sem vann heimsmeistaratitil-
inn á dögunum, og Anatoly Karpov, fyrrum heimsmeistara.
Timman
snýr á Kasparov
Hilversum, Hollandi, 18. desember. AP.
HOLLENZKI stórmeistarinn Jan
Timman sneri laglega á heimsmeist-
arann, Garry Kasparov, í þriðju ein-
vígisskák þeirra í gærkvöldi. Kasp-
arov sá sitt óvænna og gafst upp í
41. leik, en þá höfðu þeir setið aö
tafli í fimm stundir.
Kasparov vann tvær fyrstu ein-
vígisskákirnar, en alls tefla stór-
meistararnir fimm skákir og lýkur
einvíginu á sunnudag. Timman
stýrði hvítu mönnunum í þriðju
skákinni og lékust fyrstu 22 leik-
irnir nákvæmlega eins og í fyrstu
einvígisskákinni, sem Timman
tapaði vegna helzt til djarfrar
taflmennsku.
Að þessu sinni tefldi Timman
af meiri varfærni og var skákin
jafnteflisleg fram í 30. leik er hann
hóf mikla sókn, sem Kasparov, sem
átti aðeins 17. mínútur eftir, átti
ekki nógu gott svar við. Kasparov
gaf skákina þegar óhjákvæmilegt
fall drottningarinnar blasti við.
Að skák lokinni kom Timman í
sal þar sem skákir þeirra Kasp-
arovs eru útskýrðar og sagði að
réttlátast hefði verið að hann
tapaði skákinni, því sókn sín hefði
verið á misskilningi byggð. „Það
er rétt hjá honum,“ sagði Kasp-
arov „og þess vegna reyndi ég að
knýja fram sigur í lokin en tók of
mikla áhættu í dirfsku minni,“
sagði Kasparov.
Bandaríkin skuldseigasta
ríki heimsins á næsta ári?
Washington, 18. desember. AP.
BANDARÍKIN verða líklegasta
skuldseigasta ríki heims þegar á
næsta ári og ef svo heldur fram sem
horflr munu skuldir Bandaríkjanna
árið 1990 nema þúsund milljöröum
dollara, að sögn hagfræðinga.
Árið 1982 voru Bandaríkin
stærsti lánardrottinn heims, en
fjórum árum seinna hafa átt sér
stað hlutverkaskipti. Árið 1990
verða erlendar skuldir Banda-
ríkjamanna líklegast langtum
meiri en samanlagðar skuldir þró-
unarríkja, eða á annað þúsund
milljarða dollara.
Hinn 1. október sl. námu erlend-
ar skuldir Bandaríkjamanna 33
milljörðum dollara og nemur
skuldasöfnunin á annan tug millj-
arða á mánuði. Með sama áfram-
haldi verða Bandaríkjamenn
skuldugasta þjóð heims í sumar-
byrjun næsta árs og komnir fram
úr Brazilíumönnum, sem skulda
Lfbanon:
Barist við
„grænu
línuna“
Beinit, Líbanon, 18. desember AP
Herir kristinna og múhameðstrú-
armanna háöu fallbyssubardaga yflr
„grænu línuna“ er leiðtogar þeirra
hófu friðarviðræður á ný á miðviku-
dag til að reyna að flnna launsn á
hinu áratugalanga borgarastríði í
Líbanon. Þúsundir manna leituðu
skjóls í kjöllurum þegar fallbyssu-
kúlur sprungu í báöum borgarhlut-
unum.
Undanfarna sex daga hafa bar-
dagar af þessu tagi blossað upp í
Beirut með stuttu millibili og hafa
nokkrir menn látið lífið af völdum
þeirra. í bardaganum á miðviku-
dag lét a.m.k. einn maður lífið og
þrír slösuðust af völdum sprengi-
kúlna. Bardaginn braust út í þann
mund sem samningamenn herj-
anna hófu friðarviðræður við
Abdul-Halim Khaddam, varafor-
seta Sýrlands.
nú 103 milljarði dollara. Alþjóða-
bankinn gerir ráð fyrir að skuldir
þróunarríkja munu nálgast þús-
und milljarða dollara í lok þessa
árs.
Brezki hagfræðingurinn Steve
Harris, sem reiknað hefur út
væntanlegar skuldir Bandaríkja-
manna, og er fyrrverandi ráðgjafi
framkvæmdastjóra OECD, byggir
útreikninga sína á gengi dollarans,
sem féll um 20% á alþjóða gjald-
eyrismörkuðum frá því í febrúar
og fram í október. Lækkunin þýðir
að bandarískar vörur lækka í verði
í útlöndum og sala þeirra eykst.
Hins vegar hefur komið í ljós að
fjárfestingar og fjárhagslegar ráð-
stafanir Bandaríkjamanna í út-
iöndum eru langt umfram útflutn-
ingstekjur þeirra, allt að 50%
meiri, og skuldasöfnun þeirra því
örari en nokkurs annars iðnríkis.
Nýtt gerviefni reynist
vel í baráttunni við
skæðan hjartasjúkdóm
Temple, Texas, 18. denember. AP.
TILRAUNIR með gervihjálpar-
hvata (coenzyme), sem nefndur er
Q-10 og er eftirlíking af lífrænu
efni, sem hjartað þarfnast til að
geta breytt fæðu og súrefni í orku,
virðast lofa góðu. Gæti þar verið
fundið fyrsta gagnlega lyflð við
ákveðnum sjúkleika (cardiomyop-
athy), sem leggst á hjartavöðvann
sjálfan.
Lyfið er enn til reynslu á rann-
sóknastofum White Memorial-
spítalans í Temple í Texas og
hefur gefið góða raun. Aðrir
kostir fólks með þennan sjúkdóm
eru engir, nema þá e.t.v. hjartaí-
græðsla.
Dr. Per Langsjoen, sem starfar
hjá White Memorial, skýrði ný-
lega frá tilraunum sínum með
hjálparhvatann Q-10 og kvað
91% sjúklinganna hafa fengið
bót. Hefðu þeir a.m.k. færst upp
um einn flokk samkvæmt skil-
greiningu Hjartaverndarsam-
takanna í New York. Til dæmis
hefðu sjúklingar í IV. flokki, sem
fyndu stöðugt fyrir einkennum
sjúkdómsins, færst niður í III.
flokk og fyndu nú aðeins til ein-
kennanna eftir áreynslu.
Hann sagði, að getuleysi lækna
til að fást við sjúkdóminn hefði
orðið sér hvatning í þessu starfi:-
„Eg taldi gott, ef einn af hverjum
fjórum sjúklingum fengi bót, og
hefði aldrei getað ímyndað mér,
að árangurinn yrði eins góður
og raun ber vitni," sagði Langsjo-
en.
Earl Weed, sem er 61 árs að
aldri, var svo illa haldin af sjúk-
dómnum fyrir átta mánuðum, að
hann gat lítið aðhafst. „Eg klæd-
dist, settist í stól og sofnaði, það
var allt og sumt, sem ég gat
afrekað," sagði hann, er hann
minntist píslagöngu sinnar með
þennan sjúkdóm, sem veiklar
hjartavöðvann og dregur loks til
dauða.
Þá fékk hann fyrstu meðferð-
ina með Q-10, en lyf þetta er
gert úr efnum, sem er að finna
í laufblöðum tóbaksplöntunnar.
„Eg hef núna undanfarið verið
að mála húsið mitt utan sem
innan, og fyrst ég ræð við það,
held ég, að mér séu flestir vegir
færir," sagði Weed.
Erfitt er að greina cardiomy-
opathy og því eru ekki til neinar
áreiðanlegar tölur yfir dauðsföll
af völdum sjúkdómsins.