Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
Skíðalyfta
slitnar niður
49 manns slösuðust og þrír alvarlega
Frá Reyni Kríkssyni, frétUritara Morgunhlaðsin.s í Randaríkjunum.
SKÍÐALYFTA í skíðabænum Keys-
tone í Kolorado-ríki í Bandaríkjun-
um slitnaði niður á laugardag. Slös-
uðust 49 menn, þrír þeirra lífs-
hættulega, af 370 sem voru í lyft-
unni.
Hjól sem knýr lyftuna í efri
endastöð gaf sig með þeim afleið-
ingum að vírinn slitnaði. Mikil
sveifla kom á vírinn með þeim
afleiðinum að fólkið féll úr lyftu-
stólunum og var fallið 10 metrar.
Hinir slösuðu voru fluttir með
þyrlum á sjúkrahús í Denver.
Flestir fengu að fara heim í gær,
nema átta sem slösuðust mikið,
þar af þrír sem eru í lífshættu.
Talið er líklegt að þetta slys eigi
eftir að draga dilk á eftir sér.
Margir munu fara í mál við lyftu-
fyrirtækið, sem er bandarískt.
Öryggiseftirlitið skoðaði öryggis-
búnað lyftunnar fyrir mánuði og
var ekkert athugavert við hann.
Slysið kemur því flatt upp á
marga. Mörgum lyftum af sömu
gerð hefur verið lokað meðan þær
verða athugaðar með tilliti til
öryggis.
Tvíburabræðurnir frægu, Steve
og Phil Mahre, sem hafa verið í
fremstu röð skíðamanna, reka
skíðaskóla á þessum stað og er
þetta einn vinsælasti skíðastaður-
inn í Kolorado-ríki.
Noregur:
Hegða sér eins
og olíufurstar
Osló, 18. desember. Frá Jan Erik Laure, Tréttaritara Morpinblaósins.
NORÐMENN hegða sér eins og olíufurstar í peningamálum, slíkur er
fjárausturinn og þegar eigið fé hrekkur ekki til taka þeir lán í næsta
banka.
Aukningin í einkaneyslu Norð-
manna á þessu ári er sprengingu
líkust. Samanlagt hafa Norð-
menn eytt 234 milljörðum
norskra króna (um 12.636 millj-
arðar ísl. kr.) í eigin þarfir árið
1985 og er það 6,5 prósentum
meira en 1984. Og eitt er víst:
Slík aukning hefur ekki orðið í
neinu öðru Evrópuríki á þessu
ári.
Því er ekki að heilsa að Norð-
menn hafi unnið fyrir eyðslufé
sínu. Þeir taka lán og á þessu
ári hafa bankarnir slegið öll út-
lánamet: 50 milljarða norskra
króna (um 250 milljarða ísl.kr.)
hafa Norðmenn tekið að láni til
einkaneyslu á þessu ári og er það
þrisvar sinnum meira en stjórn-
völd gerðu ráð fyrir.
Enda spáir Rolf Presthus, fjár-
málaráðherra Noregs, erfiðari
tímum. Hann telur að þessi gíf-
urlega einkaneysla eigi eftir að
hafa slík áhrif á efnahagslífið
að atvinnuleysi og verðhækkanir
verði óhjákvæmilegar. Presthus
hefur látið að því liggja að senn
verði hertar reglur um útlán
banka.
í nýlegri könnun kemur fram
að Norðmenn noti þúsund norsk-
um krónum fleiri í desember en
í öðrum mánuðum. Að öllum
líkindum er þessi tala of lág.
Orðið hefur vart við mikla kaup-
gleði í Noregi fyrir þessi jól og
reiknað er með að Norðmenn
versli fyrir 17,5 milljarða
norskra króna (um 94,5 milljarð-
ar isl.kr.) nú í desember.
Ódýrara bensín
AP/Símamynd
Viðskiptavinur á bensínstöð í Madríd gerir sigurmerkið þar sem hann bíður eftir að fá til baka. Ríkisstjórnin
á Spáni hefur lækkað bensínverð um tæp 7 prósent í kjölfar lækkunar dollars og jarðolíuverðs.
Bandaríkjaþing leyfir
framleiðslu efnavopna
Washington, 17. desember. AP.
Bandaríkjaþing hefur gefið hem-
um leyfi sitt til að hefja framleiðslu
efnavopna á nýjan leik, en það var
bannað árið 1969 og hefur ekki
verið leyft síðan. Má herinn láta
hefja framleiðsluna á næsta fjár-
hagsári, sem hefst 1. október 1986.
Herinn og Ronald Reagan, forseti,
halda því fram að nauðsyn sé á nýj-
um efnavopnum til aö vega upp á
móti efnavopnabúri Sovétríkjanna.
Hins vegar gaf þingið ekki leyfi
sitt til frekari tilrauna með eld-
flaugar til að skjóta niður gervi-
tungl, þrátt fyrir sérstök tilmæli
Reagans Bandaríkjaforseta þar
um, sem sagði, að tilraunir væru
nauðsynlegar til að mögulegt væri
að sannfæra Sovétmenn um að
banna ætti þessi vopn.
Leyfi þingsins fyrir framleiðslu
efnavopna er bundið því skilyrði
að bandamenn Bandaríkjanna í
NATO telji fulla þörf á þeim. Tveir
alþjóðasamningar banna fram-
leiðslu efnavopna. Reagan forseti
og Gorbachev leiðtogi Sovétríkj-
anna urðu sammála um það á
toppfundinum í Genf í haust að
vinna að því að efnavopn yrðu
bönnuð með öllu.
Ástralía:
Fiskiskip taka þátt
í að slæða tundurdufl
RANNSÓKNARSTOFNUN Konunglega ástralska flotans (RAN) hefur
fundið upp nýja aðferð til þess að slæða tundurdufl. Felur hún m.a. í sér,
að fjöldi ástralskra togara, fiskibáta og smærri báta verður hagnýttur með
litlum fyrirvara í þessum tilgangi, ef þörf krefur.
Hér er um það að ræða, að sér-
stakur togbúnaður hefur verið
hannaður og er hann líkastur
tundurskeyti að stærð og lögun.
Unnt er að nota hann á litlum
skipum gegn tundurduflum, sem
segulbylgjur og hljóðbylgjur setja
í gang, án þess að skipið, sem
dregur togbúnaðinn, þurfi að
leggja til rafmagn til aö knýja
togtækið.
Þessi nýi búnaður er samansett-
ur af mjög segulmögnuðum bauj-
um og tækjum, sem senda frá sér
hljóðbylgjur og unnt er að koma
þannig fyrir, að hentar hvaða
stærð eða tegund af skipi sem er.
Ástralski flotinn heldur því fram,
að hljóðbylgjurnar og segulbylgj-
urnar, sem þessi nýi búnaður gefur
frá sér, séu nógu öflugar og hafi
þá tíðni, sem þarf til þess að vekja
athygli á hvaða tundurduflahættu
sem er.
Strandlengja Ástralíu er um
20.000 km löng, en hafnir þar eru
tiltölulega fáar. Landið er því mjög
viðkvæmt gagnvart tundurdufla-
hernaði. Eins og er, þá á landið
þó ekki einn einasta tundurdufla-
slæðara og á nú í smíðum aðeins
tvo tundurduflaveiðara.
Framtíðin:
Tölvusaumuð
föt á staðnum
— brúðkaupsferðir til tunglsins
Wa.shington, 17. desember. AP.
Hafí Heimsframtíðarfélagið í Washington rétt fyrir sér er það ekki
langt undan að menn kaupi sér föt á þann hátt að standa fyrir framan
upptökuvél en tölva sjái um að sníða fotin á staðnum. Félagið hefur
sent frá sér framtíðarspár fyrir jólin um árabil og eru spárnar settar
saman af vísindamönnum og spekingum sem skrifa í tímaritið Futurist.
Samkvæmt spánni mun tölvan börn í venjulegri stærð heldur
innihalda allar upplýsingar um
tísku en einnig verði hægt að
gefa skipanir á fljótan máta um
lit og snið þannig að fötin verði
nákvæmlega eftir höfði kaupan-
dans. Einnig er spáð nýjungum
í sólarlandaferðum: á tuttustu
og fyrstu öld munu túristar leita
út í geiminn og vikuferðir í geim-
stöðvar eða brúðkaupsferðir til
tunglsins verða vinsælar meðal
almennings. Þá munu börnin
kannski verða stærri því foreldr-
ar munu nota hormón til að
tryggja eðlilegan vöxt barna
sinna. Sumir foreldrar munu ef
til vill ekki verða ánægðir með
nota hormónin til að gera börn
sín að fótbolta- eða körfubolta-
köppum.
Hvað pólitíkina varðar segja
spekingarnir að togstreitan milli
austurs og vesturs muni réna.
Bæði Bandaríkin og Sovétríkin
muni draga úr afskiptum af
alþjóðamálum og einbeita sér að
vandamálum innanlands. Þjón-
ustulið á heimilum muni aftur
koma til sögunnar — sem tölvu-
stýrð vélmenni. Engar áhyggjur
þurfi að hafa af orkumálum.
Tæknin muni leysa allan vanda,
segja spekingarnir.