Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 46

Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 46 hygðist stokka upp reksturinn, endurskipuleggja hann allan og auka hlutaféð um 80 milljónir króna. Hlutafjárloforðin hafi síð- an borist inn frá febrúar til apríl. Bankinn hafi því ekki verið þeirrar skoðunar að eðlilegt væri að van- meta hugmyndir stjórnenda Haf- skips um möguleika á hagræðingu og áframhaldandi rekstri. Það hafi svo komið í ljós í júlímánuði hver staða fyrirtækisins hafi í raun og veru verið og þá hafi þegar í stað verið gengið í það að finna kaup- anda að fyrirtækinu, en því miður hafi ekki tekist að semja við þá. Eimskipsmenn segjast ekki vera vissir um að stjórnendur Hafskips hafi gert sér grein fyrir því í júlí- mánuði sl. að TA-siglingarnar væru þeirra banabiti, þó að þeir hafi séð hið mikla tap sem var á fyrstu fjorum mánuðum ársins. Forsvarsmenn Hafskips segja aft- ur á móti að fyrstu vísbendingar fyrir liðlega ári hafi gefið til kynna að í TA-siglingunum væri hægt að byggja á rekstri sem gæfi hagn- að. Aðspurðir um hvað hafi valdið því að hægt var að halda rekstrin- um áfram fram yfir mitt ár 1985, án þess að minnsta vitneskja um gífurlegan taprekstur lægi fyrir, segja þeir að hafi fyrst og fremst verið vegna þess að allar tölulegar upplýsingar frá Bandaríkjunum hafi borist mjög seint. Kostnaðar- legar upplýsingar, gámakostnaður og annar kostnaður, hafi ekki legið fyrir fyrr en í júlíbyrjun og þá fyrst hafi komið í ljós að hann var miklu meiri en áætlað hafði verið. Tapið á þessum fjórum fyrstu mánuðum ársins var nálægt 100 milljónum króna, og mjög mikið af því var á TA-siglingunum. Tap sl. árs og fyrstu 8 mánuði þessa árs var samtals um 250 milljónir króna, en enn er ekki ljóst hvert tapið verður síðustu fjóra mánuði ársins, þó ljóst sé að það verður verulegt. Forsvarsmenn Hafskips segja að uppi hafi orðið fótur og fit í fyrirtækinu þegar fjögurra mán- aða uppgjörið barst í júlíbyrjun. Menn hafi bókstaflega ekki trúað þessum tölum. Strax farið að ræða við Eimskip þegar staðan var Ijós Skýrðu þeir Útvegsbankanum frá stöðu fyrirtækisins þann 17. júlí og þá krafðist bankinn þess að Hafskip færi þegar í stað að leita kaupanda að fyrirtækinu og þá var farið út í viðræður við Eimskip. Viðræður þær sem hófust á milli Eimskips og Hafskips í júlí í sumar voru til að byrja með fremur laus- ar í böndunum. Eimskipsmenn báðu um tölulegar upplýsingar, þannig að þeir vissu nákvæmlega um hvað væri að ræða. Gerðu þeir Hafskipsmönnum fljótlega grein fyrir því að enginn áhugi væri hjá Eimskip að gerast aðili að TA- hluta rekstrar Hafskips, en Haf- skipsmenn höfðu verið með hug- myndir um að stofna sérstakt félag um þann rekstur með þátttöku Eimskips, Hafskips og jafnvel þriðja aðilans, erlends. Eimskipsmenn segja að samein- ingu Hafskips og Eimskips hafi oft borið á góma í óformlegum viðræðum á undanförnum árum, þar sem markaðurinn hér sé ekki nægilega stór fyrir þrjú skipafé- lög. Segja þeir að þá hafi verið talað um nauðsyn þess að sameina kraftana í samkeppninni við SÍS. SÍS hafi ekki náð miklum árangri í því að auka markaðshlutdeild sína, en viljað seilast eftir meiri flutningum, með það að markmiði að vera með þriðjung markaðarins. í viðræðunum sem hófust í júlí var ekki lengur talað um samein- ingu fyrirtækjanna, heldur að Eimskip keypti íslandssiglingar Hafskips og yfirtæki skuldbind- ingar félagsins. Eimskipsmenn segja að erfiðlega hafi gengið framan af að fá nákvæmar töluleg- ar upplýsingar, og því hafi þeim ekki verið ljóst hversu stór vandi Hafskips var, fyrr en líða tók á haustið. Útvegsbankinn tekur yfir viðræðurnar við Eimskip Eftir miðjan október verða við- ræðurnar einungis á milli Eim- skips og Útvegsbankans, enda ljóst að Útvegsbankinn átti orðið allar eigur Hafskips og meira til. Við- ræðurnar gengu út á yfirtöku Eimskips á öllum eigum félagsins og skuldbindingum félagsins í Út- vegsbankanum. Eimskip lagði ríka áherslu á að bankinn tryggði það að Hafskip yrði ekki tekið til gjald- þrotaskipta, en það hefði þýtt að Eimskip, með því að kaupa ís- landsrekstur Hafskips og nýtt fé- lag yrði stofnað um TA-siglingarn- ar án þátttöku Eimskips, fengi að lokum öll hlutabréf Hafskips og gæti nýtt sér til skattafrádráttar skattatap Hafskips frá liðnum árum. Eimskip gerði bankanum grein fyrir hugmyndum sínum að kaupum, en þær gerðu ráð fyrir að félagið keypti eignirnar á 9,5 milljónir dollara, en greiddi auk þess 2,7 milljónir dollara fyrir 50—70% þeirra viðskipta sem Hafskip hafði. Bankinn taldi þetta óaðgengilegan grundvöll, enda ekki á hans færi að semja um viðskipti viðskiptavina Hafskips við Eimskip. Ekki var farið að ræða greiðslukjör sérstaklega í viðræðum Eimskips og Útvegs- bankans, þegar viðræður við SÍS voru hafnar af Hafskipsmönnum. Dró þá Eimskip til baka með bréfi þann 20. nóvember til Útvegs- ■ Þetta fyrirtæki átti aðeins að starfa í örfáa daga, þar sem miklar líkur voru taldar á að samningar tækjust við SÍS þegar þetta var. Var meginmarkmiðið með stofnun félagsins að forða því að skip Hafskips væru kyrrsett í erlendum höfnum, en erlendir lánardrottnar Hafskips voru mjög farnir að ókyrrast um miðjan nóvember vegna þeirrar miklu umfjöllunar sem fyrirtækið hafði fengið í fjöl- miðlum hér heima og erlendis. Daginn eftir, eða 18. nóvember, fékk stjórn Hafskips svo þriggja mánaða greiðslustöðvun og var hugmyndin sú að leita nauðar- samninga við stærstu lánar- drottna félagsins og forðast þann- iggjaldþrot. Þá fóru viðræðurnar við SÍS í gang af fullum krafti, en óformleg- ar könnunarviðræður höfðu öðru hvoru átt sér stað frá því í október- mánuði. Þessar viðræður við SÍS voru teknar upp að frumkvæði þeirra Páls G. Jónssonar í Pólaris og Sveins R. Eyjólfssonar, Frjálsri fjölmiðlun. Páll er sagður gamall framsóknarmaður, auk þess sem honum og Vali Arnþórssyni, stjórnarformanni SÍS, sé vel til vina. Því hafi Páll haft visst frum- kvæði að því að viðræður við það fyrirtæki sem helstu hluthafar Hafskips hafa svo iðulega nefnt erkióvininn voru teknar upp. Segja forsvarsmenn Hafskips að leitað hafi verið til SÍS, þegar talið var að trúlega gengju samningavið- ræður Eimskips og Útvegsbankans ekki upp. Það hafi verið afleit friður var um málið og fyrirtækið var í fullum rekstri. Kaupfélagsstjóraveldi Sambandsins tók ráðin af æðstu stjórn Sambandsins SlS sá þarna leið til þess að ná aukinni markaðshlutdeild, sem er auðvitað það sem fyrirtækið hafði fyrst og fremst áhuga á. Var því gengið til kynningarviðræðna, og eftir að valkostir höfðu verið kynntir Sambandsstjórn, var hald- ið út í hinar eiginlegu samninga- viðræður. Það kom svo í hlut 5 stjórnarmanna, sem tengjast allir kaupfélagsarmi Sambandsins, að hafna þeirri tillögu sem viðræðu- nefnd SÍS lagði til. Fjórir stjórnar- manna, þar á meðal Valur Arn- þórsson stjórnarformaður og ólaf- ur Sverrisson varaformaður, voru, ásamt tveimur öðrum stjórnar- mönnum, þeim Valgerði Sverris- dóttur og Herði Zóphaníassyni, stúðningsmenn tillögunnar sem þeir Erlendur Einarsson forstjóri Sambandsins, Axel Gíslason að- stoðarforstjóri Sambandsins, Óm- ar Jóhannsson framkvæmdastjóri Skipadeildar og Þorsteinn Ólafs- son framkvæmdastjóri Þróunar- og nýsköpunardeildar Sambands- ins voru höfundar að. Það var því kaupfélagsstjóraveldi Sambands- ins sem tók ráðin af æðstu emb- ættismönnum Sambandsins og stjórnendum. Segjast þessir menn, sem þarna biðu lægri hlut, una ákvörðun meirihluta lýðræðislega kjörinnar stjórnar, en vitað er að margir þeirra eiga afar erfitt með að sætta sig við þessa niðurstöðu. Það er því ekki talið ólíklegt að mál þetta verði með einum eða öðrum hætti tekið upp á nýjan leik innan Sambandsstjórnar, þó að þessi sameiningarmöguleiki sé ekki lengur fyrir hendi. Tillagan var þess efnis að Sambandið gengi til samninga um stofnun sjálf- stæðs félags um rekstur Skipa- deildar Sambandsins, þar sem hlutafé yrði 500 milljónir króna. Var lagt til að Sambandið ætti 300 milljónir hlutafjárins, en aðrir 200, þar á meðal einstakir hlut- hafar Hafskips. Sambandsmenn leggja á það áherslu að það hafi aldrei verið hugmyndin að SlS yfirtæki með einum eða öðrum hætti skuldir Hafskips, hvorki í Útvegsbankanum, né annars stað- ar. Sá valkostur sem samninga- menn höfðu komið sér saman um, áður en hann var felldur í Sam- bandsstjórn, gerði ráð fyrir að nýja félagið fengi allar eigur Skipadeildar Sambandsins og um 50 til 60% þeirra viðskipta sem Hafskip hafði. Þannig hefði nýja fyrirtækið tryggt sér um 40% flutninganna til og frá landinu. Voru aðilar sammála um að þetta fyrirtæki gæti orðið Eimskip verðugur keppinautur. Aukin umsvif hins nýja félags myndu leiða af sér aukna hagkvæmni í rekstri og betri nýtingu á þeim eigum sem fyrir væru. Sambandið, eins og Eimskip, telur að flutn- ingamarkaðurinn hér á landi sé ekki það stór að hann rúmi þrjú skipafélög. Því verði engin fram- búðarlausn í því að þriðja félagið verði stofnað á nýjan leik. Telur SÍS því að eina hugsanlega lausnin til þess að Eimskip fái raunveru- lega sainkeppni á markaðnum sé stofnun nýs félags um skiparekst- ur Sambandsins, með þátttöku manna úr einkageira atvinnulífs- ins. Eigendur hlutafjár- aukningarinnar ætluðu að reyna að taka sitt á þurru Þeir Páll, Sveinn og Hörður Einarsson hjá Frjálsri fjölmiðlun voru aðalþátttakendur frá ís- lenzka skipafélaginu í viðræðunum við SlS, og reyndu þeir að tryggja það að nýja hlutaféð, 80 milljón- irnar, væri ekki glatað fé. Vildu þeir fá að leggja fram hlutabréf frá Hafskip og fá í staðinn hluta- bréf í nýja félaginu og það yrði skoðað sem visst hlutafjárframlag þeirra. Ekki náðist samkomulag um þennan hátt við þá SÍS-menn, þó að þeir væru vissulega reiðu- búnir til þess að greiða eitthvað Morgunblaðið/Bjarni fyrir hlutabréfin, sem þeir töldu jafngilda því að þeir væru að tryggja sér vissan hluta viðskipt- anna sem Hafskip hafði haft. Eimskip með nálægt 75%flutninga til og frá landinu Eimskip gerir sér vonir um að ná a.m.k. 50% þeirra flutninga sem Hafskip hafði. Reyndar er næsta fullvíst að félagið stefnir að mun meiri hlutdeild eða 75 til 80% þess sem Hafskip hafði. Fyrirtækið er þegar byrjað að ná til sín viðskipt- um, svo sem kísilflutningunum, sem er dágéður biti fyrir félagið. Það er því ljóst að Eimskip nálgast að hafa um 75% flutninga til og ■ frá landinu og á hugsaniega eftir ■ að stækka enn. Eimskip segir að með auknum flutningum geti fyr- irtækið nýtt betur það flutninga- kerfi sem það hefur byggt upp. Það geti náð aukinni hagkvæmni, komið á tíðari ferðum. Segjast forráðamenn fyrirtækisins keppa að því að vera áfram stórir og standa sig. Þeir muni veita sínum viðskiptavinum þá þjónustu sem þeir vilja óg eiga að fá. Ef þeir geri það ekki, þá muni einfaldlega ■ 'w' ■■■. Tvö af skipum Hafskips bundin í Reykjavíkurhöfn. bankans hugmyndir sínar að samningsgrundvelli um kaup á íslandssiglingum Hafskips. Strax daginn eftir óskaði Útvegsbankinn eftir því með bréfi til Eimskips að viðræður væru teknar upp á ný. íslcnzka skipafélagið stofnað til að forðast kyrrsetningu skipa Þann 17. nóvember sl. gripu forsvarsmenn Hafskips, að höfðu samráði við stjórnendur Útvegs- bankans, til þess ráðs að stofna nýtt félag um tslandssiglingar Hafskips og hlaut félagið nafnið fslenzka skipafélagið. í stjórn þess félags voru kjörnir þeir menn sem áttu stóran hlut þeirra 80 milljóna króna, sem ákveðnar voru í hluta- fjáraukningunni. Þeir Sveinn R. Eyjólfsson og Hörður Einarsson og fyrirtæki á þeirra vegum (10 milljónir), Páll G. Jónsson (10 milliónir), Jón G. Zoega og ólafur B. ólafsson. Þó stóðu fyrir utan stjórnina stórir eigendur nýja hlutafjárins, menn eins og Finn- bogi Kjeld (15 milljónir), Ragnar Kjartansson og Björgólfur Guð- mundsson, sem sameiginlega keyptu 6 milljónir. staöa í þeim þrengingum sem fé- lagið var komið í, að aðeins einn ótryggur kostur var fyrir hendi. Markmiðið með samningum við SÍS hafi verið að tryggja meira jafnvægi á flutningamarkaðnum, með því að stofna hlutafélag með SÍS. Þau sjónarmið séu mjög víða í viðskiptalífinu, að það sé betra þessarar þjónustugreinar vegna, að reyna að tryggja jöfnuð. Þetta sé jafnframt ríkt sjónarmið hjá fjölmörgum viðskiptavinum Haf- skips sem séu lítt hrifnir af Sam- bandinu. Viðræðurnar við SÍS hafi ekki hafist af neinum krafti fyrr en Eimskip kynnti Útvegsbankan- um skilyrtar tillögur sínar. Þá hafi verið talið að Eimskip væri með snyrtilegum hætti að bakka út úr viðræðunum. Segjast Hafskips- menn sannfærðir um að ef samið hefði verið fyrr á þessu ári, þá hefði mátt forðast gjaldþrot. Umfjöllun fjölmiðla hafi hins vegar komið í veg fyrir að hægt væri að semja um sölu á fyrirtæk- inu, meðan það var í fullum rekstri. Útvegsbankinn og Eim- skip eru sammála þessu sjónar- miði og segja að miklum fjármun- um hefði verið bjargað, ef tekist hefði að ganga frá samningum sl. sumar á meðan að nokkuð góður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.