Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 59

Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 59 PÖNNUKÖKU TERTAN Sven Nordqvíst Ævintýri um pönnu- kökutertu PÖNNUKÖKUTERTAN heitir lit- myndabók eftir sænska höfundinn Sven Nordqvist, sem Þorsteinn frá Hamri íslenzkaði og Bókaútgifan Iðunn hefur gefið út. í fréttatilkynningu frá Iðunni segir, að þetta sé ævintýri í máli og myndum um karlinn Pétur og köttinn Brand. Brandur á afmæli þrisvari á ári og þá snæða þeir félagar pönnukökutertu í tilefni dagsins. Einn slíkan afmælisdag fer allt úr skorðum en þeir félagar yfirstíga allar hindranir og snæða sína afmælistertu. Næturbókin KOMIN er út hjá Iðunni ný lit- myndabók eftir finnsku höfundana Mauri og Tarja Kunnas í þýðingu Þorsteins frá Hamri. Bókin er í stóru broti og lit- prentuð. Segir frá því sem gerist á nóttunni þear flestir sofa. Þá fer t.d. Kalli blaðberi á kreik, Slembir slökkviliðsmaður er á ferðinni, sinna þarf frú Fjólu flóðhesti sem liggur á sjúkrahúsi og hr. Rútur gengur steinsofandi um stræti borgarinnar, segir í fréttatilkynn- ingu Iðunnar. NY MYNDBÖND KOMIN TIL DREIFINGAR Þessi myndaflokkur veröur tilbúinn til deifingar í dag, fimmtudaginn 19. desember. MfTORÐASTIGINN, A MARRIED MAN Myndaflokkur í sérflokki á tveim myndböndum. Aðalhlutverkið leikur hinn virti breski leikari Anthony Hopkins, sem leikið hefur m.a. í nýjustu útgáfunni af Uppreisninní á Bounty og Hollywood Wives. John Strickland (Anthony Hopkins) er vel liðinn og dugandi hæstaréttarlögmaður sem stendur á tímamótum, þegar sagan hefst. Hann hefur nýlega náð 40 ára markinu og í stað þess aö njóta erfiðis undangenginna ára sem ráösettur og viröulegur embættismaöur, ákveður hann aö takast á viö ný og krefjandi verkefni. Strickland hellir sér útí hringiöu stjórnmálanna og hlýtur kosn- ingu. Hann leggur allt í sölurnar til aö ná settu marki og er jafnvel tilbúinn til aö fórna eigin fjölskyldu. gleymir eiginkonu sinni i hita stjórnmálanna, en leitar jafnframt annaö í leit aö stuðningi og ást. Þessi þrí- hyrningur veldur því aö Strickland festist í lyga og svikavef sem hann á erfitt meö að losa sig úr. Málin snúast fljótlega í höndum hans og sér hann enga aðra undankomuleið en aö fremja morö. Taugar hans eru þandar til hins ítrasta þegar atburöarásin tekur skyndilega óvænta stefnu og allar áætlanir fara úr böndunum. Aöalhlutverk: Anthony Hopkins, Ciarab Madden, Lise Hildboldt, Clive Francis, Kenneth Farrington, Tracey Childs og Geoffrey Chater. Widows2, Ekkjurnar Fyrri og seinni hluti. Þrælspennandi sakamálamynd á tveim myndböndum. Sjálfstætt framhald af Wídows. Fjórar ekkjur hafa lokiö ætlunarverki látinna eiginmanna og rænt brynvarinn peningaflutningabíl í Lundúnum. Þær komast undan til Brasilíu og lifa í vellystingum í gleöi- borginni Rio De Janeiro. Kampavíniö flóir og þær Bella, Linda og Shirley njóta ríkidæmisins til fullnustu á meöan Dolly, foringi þeirra, skreppur til Lundúna til aö ganga frá sinum málum. Loksins geta ekkjurnar um frjálst höfuö strokiö, eöa þaö halda þær. En lífiö er ekki jafnt einfalt og ekkjurnar telja og martrööin hefst á nýjan leik. Óvæntur gestur birtist í Rio De Janeiro, staöráöinn í aö murka lífið úr þessum fjórum konum sem hann telur hafa svikið sig illilega. Aöalhlutverk: Ann Mitchell, Maureen O’Farrell, Fiona Hendley og Debby Bishop. ÖRLAGAVEFUR, LETTERS TO AN UNKNOWN LOVER Systurnar Helen og Agnes búa í Lyon þegar sagan hefst áriö 1943. Þýskir hermenn hafa Lyon á valdi sínu, enda er Frakkland hernumiö af nasistum. Franski andspyrnumaöurinn Bernard sleppur úr fangabúöum nasista ásamt félaga sinum Gervais. Þeir reyna aö komast á flótta til Lyon, þar sem þeir ætla aö felast í íbúð systranna. En Þjóöverjar veita þeim eftirför og ná aö fella Bernard, en Gervais kemst til Lyon nær dauöa en lífi. Þar spinnst hinn undar- legasti örlagavefur meö ófyrirsjáanlegum afleiöingum. Þetta er hörkuspennandi mynd um stríösátök, ólgu, ástir og innri átök höfuö- persónanna sem flestar flækjast óafvitandi inn í flókinn örlagavef á hættustund í miöri heimsstyrjöld. Aöalhlutverk: Cherie Lunghi, Mathilda May, Yves Beneyton og Ralph Bates. steÍAorhf Nýbýlavegi 4, Kópavogi. Sími 45800, Halló. Viö Hreinn erum báöir dauðskotnir í næsta vinningi 19 Barbie dúkkum. Þeir heppnu eiga miöa númer: 3910 - ZfUS ~¥3^52-62.t9-Z ~ 7- UbZl' a?3W - /osw/ - /StJ2*96 ~ W90Z' /ZtoSS- IZISZI ~ lb?/30 - /mzy- /Æ73S-- /Z62.6Z P.s. Eru pabbi og mamma komin á nýja Toyotu?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.