Morgunblaðið - 08.01.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR1986
Morgunbladid/RAX
V arautanríkisráðherra
Frakka í heimsókn
Varautanrikisráðherra og var myndin tekin í utanrikis-
Frakka, Jean-Michel Baylet, ráðuneytinu er þeir hittust þar.
kom í opinbera heimsókn til ís- í dag mun Jean-Michel Baylet
lands í gær. Strax við komuna m.a. ganga á fund forseta íslands,
fór hann á fund Geirs Hall- Vigdísar Finnbogadóttur, en heim-
grímssonar utanríkisráðherra sókn hans lýkur síðdegis í dag.
Starfsmenn LIN:
Vantraust á 3
stjórnarmenn
Mestu máli skiptir að sinna lánamálum
námsmanna segir varaformaður LIN
STARFSMENN Lánasjóðs islenskra námsmanna gáfu í gær út
vantraustsyfirlýsingu á þrjá stjórnarmenn sjóðsins, báða fulltrúa
menntamálaráðherra og fulltrúa Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Mjólkín 17,5 milljónir
lítra umfram neyslu
Línuritið sýnir þróun mjólkurframleiðslunnar síðustu ár. Sést á þvi
að framleiðslan hefur aukist smám saman frá árinu 1981 og nálgast
óðum framleiðsluna þegar hún var í hámarki, árin 1977—1979.
í yfirlýsingunni er lýst óánægju
starfsmannanna með þátt meiri-
hlutans og eru ástæður hennar
sagðar þær að meirihluti stjómar
hafí brugðist því hlutverki sínu að
veija starfsmann sinn fyrir ólög-
legri atlögu stjómvalda, að tveir
fulltrúar meirihlutans hafí tekið
þátt í ólöglegum aðgerðum með
því að afhenda Siguijóni brottvikn-
ingárbréf og að meirihlutinn hafi
fellt tillögu um að taka á sig ábyrgð
á verkum starfsmanna m.a. á vinnu
við fjárhagsáætlanir. Þá segir að
forsendur frekara samstarfs séu
að stjóm mótmæli opinberlega
brottvikningu Siguijóns og krefjist
þess að hann verði settur til starfa
á ný og að stjóm iýsi því yfír að
brottvikningin sé byggð á röngum
forsendum þar sem Siguijóni var
vikið frá vegna verkefna sem hann
vann fyrir sfjóm og í umboði henn-
ar. Treysti ofangreindir stjómar-
menn sér ekki til að verða við þessu
er þess krafíst að þeir segi af sér.
„Ég mótmæli því að hér sé um
ólöglega aðför að ræða“ sagði
Auðunn Svavar Sigurðsson vara-
formanns stjómar LÍN er hann var
spurður álits á yfírlýsingu starfs-
manna LÍN, en hann er einn þeirra
manna sem um ræðir í yfirlýsing-
unni. „Ég vísa til þess að ráðherra
ræður framkvæmdastjórann sem
starfar í umboði hans og stjómar
og eins og stjómin hefur áður lýst
yfir fer ráðherra _með stjómarfars-
lega yfírstjóm LIN og er það full-
komlega á ábyrgð og í valdi hans
að segja framkvæmdastjóranum
upp starfínu. Hvort aðferðin er
lögleg eða ólögleg er ég ekki fær
um að dæma, það gera dómstólam-
ir.
Starfsmenn LÍN geta þess að
þessir aðilar njóti ekki trausts
þeirra. Ég tel málið fyrst og fremst
snúast um það hvort starfsmenn
ætli að starfa eftir þeim fyrirmæ!-
um sem stjómin gefiir að því verk-
efni að þjónusta stúdenta við að
fá sín lán á tilsettum tíma, sem
virðist nú stefnt í voða samkvæmt
síðustu yfirlýsingum starfsmanna.
Aðalatriðið er að þessir stjómar-
menn, sem hér um ræðir, njóti
trausts ráðherrans sem okkur skip-
ar.
Ég vona að þessu fjölmiðlaupp-
hlaupi starfsmannanna fari að
ljúka og að þeir taki boði stjómar-
innar um að setjast niður og reyni
að vinna af skynsemi að því að
bæta þjónustu sjóðsins við náms-
menn,“ sagði Auðunn Svavar Sig-
urðsson að lokum.
Aukning um 7,4 millj.
lítra í fyrra
INNVEGIN mjólk hjá mjólkur-
samlögunum var á síðasta ári
115.876.222 lítrar, samkvæmt
bráðabirgðatölum Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins. Er það 7,4
milljónum lítra eða 6,83% meira
en á árinu áður, þegar framleiðsl-
an var 108.461.626 lítrar. Neysla
mjólkurvara hér innanlands er
áætluð 98-98,5 milljónir lítra, og
er framleiðslan því um 17,5 millj-
ónir lítra umfram neyslu. Fer öll
aukning ársins í osta og smjör sem
selja verður á erlenda markaði
fyrir brot af framleiðsluverði.
Bændur munu að öllum líkindum
ekki fá krónu greidda fyrir megin-
hluta þessarar umframframleiðslu
því samkvæmt samningi bænda og
Nafn mannsins
sem beið bana
MAÐURINN, sem beið bana í
umferðarslysi á Vesturlandsvegi
I Mosfellssveit, hét Sigurður
Hörður Sigurðsson, til heimils að
Kleppsvegi 20, Reykjavik. Sigurð-
ur heitinn var fertugur, fæddur
8. júní 1945. Hann var tölvufræð-
ingur.
Sigurður Hörður lætur eftir sig
tvö böm og sambýliskonu, Borghildi
Thors.
ríkisins er bændum tryggt fullt verð
fyrir 107 milljónir lítra á yfirstand-
andi verðlagsári. Meginhluti aukn-
ingarinnar, eða 4,6 milljónir lítra,
hefur orðið á undanfömum fjórum
mánuðum, eða frá því verðlagsárið
hófst. I nóvember og desember nam
aukningin 1,2 milljónum lítra hvom
mánuð eða rúm 16%.
A árinu var aukning hjá öllum
mjólkursamlögum landsins, nema
Þórshöfn. Langmest varð aukningin
í lítrum talið hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna á Selfossi, 3,7 milljónir lítra,
áhts Bjargar Éinarsdóttur og
Auðar Auðuns á ummælum Þor-
steins Pálssonar formanns Sjálf-
stæðisflokksins í Morgunblaðinu
í gær. Þar segir hann m.a. að
hann og Davíð Oddsson borgar-
stjóri leggi mikla áherslu á að
styrkja stöðu kvenna í flokknum,
en það sé hins vegar ekki á þeirra
valdi að breyta niðurstöðum próf-
kjörs.
Þorsteinn segir ennfremur að
hann og borgarstjóri hafí þegar
og mjólkursamlaginu í Borgamesi
rúmlega milljón lítrar. Hlutfallsleg
aukning framleiðslunnar var þó í
samlögunum á Djúpavogi, 20,96%,
og Patreksfirði, 20,24%. Af stóm
samlögunum er hlutfallsleg aukning
mest í Búðardal (11,02%), Borgar-
nesi (10,84%) og Selfossi (9,50%).
Framleiðsluaukningin í norðlensku
mjólkurbúunum var þessi: Hvamms-
tangi (8,64%), Blönduós (5,59%),
Sauðárkrókur (7,32%), Akureyri
(1,22%) og Húsavík (0,20%). Á
Égilsstöðum nam aukningin 6,33%
og 4,64% á Höfn í Homafirði.
rætt við forystu sjálfstæðiskvenna
og formann jafnréttisnefndar flokks-
ins um niðurstöður prófkjörsins.
Hyggjast þeir einnig ræða við full-
trúa þeirra kvenna sem sendu honum
og borgarstjóra áskomn um að leita
leiða til að auka hlut kvenna í efstu
sætum framboðslista sjálfstæðis-
manna við næstu borgarstjómar-
kosningar, en Björg og Auður em
einmitt í þeim hópi. Þær töldu rétt
að bíða þeirrar viðræðu sem Þor-
steinn Pálsson nefnir og fjalla ekki
frekar um málefnið í þessu samhengi
í ijölmiðlum á meðan.
Guðmundur G. Þórarins-
son stefnir Þjóðviljanum
MORGUNBLAÐINU barst í
gærkvöldi eftirfarandi yfirlýs-
ing frá Guðmundi G. Þórarins-
syni, gjaldkera Framsóknar-
flokksins:
„Vegna forsíðufréttar Þjóðviljans
7. janúar 1986, sé ég mig tilneydd-
an til að stefna dagblaðinu Þjóðvilj-
anum fyrir róg, lygar og æmmeið-
ingar. I þessari frétt blaðsins er
alþjóð skýrt frá því, að ég hafí
staðið að gífurlegum skattsvikum,
dregið á annað hundrað milljónir
króna undan skatti.
Tilefnið er frétt um rannsókn á
skattamálum Þýsk-íslenska versl-
unarfélagsins. Reyndar mun hér
vera um rannsókn að ræða, sem
hvergi nærri er lokið, enginn veit
hver niðurstaða verður I og þar
af leiðandi engin kæra verið lögð
fram. Það skiptir Þjóðviljann auð-
vitað engu máli hver sannleikurinn
er fremur en endranær.
Aðalefni fréttarinnar er hins
vegar að stjómarformaður og
71
HIMMUINN
MANHLÍF
ÍÞRÓTTIR
HEIMURINN
Pýsk-íslenska
Gripnir í skyndiúthlaupi
Eiltslœrsla innflutningsfyrirtœki landsins grunað um að hafa dregið á annað hundrað
miljónirkr. undan skatti. Viðtœk rannsókn nœr tilsíðustu ára. Fyrrum stjórnarformaður
ogframkvœmdastjórifyrirtœkisins varGuðmttndur G. Þórarinsson
fyrrum þingmaður Framsóknar og gjaldkeri flokksins
annar framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins fram á haustdaga 1984 hafí
verið Guðmundur G. Þórarinsson,
fyrrverandi þingmaður og núver-
andi gjaldkeri Framsóknarflokks-
ins.
Jafnframt sé nefndur Guðmund-
ur einn af stærstu hluthöfum fyrir-
tækisins. Það á því ekki að fara
fram hjá neinum hver sé ábyrgur
fyrir þeim sökum sem Þjóðviljinn
telur sig geta haldið fram.
Hið rétta er að ég seldi minn
hlut í Þýsk-íslenska verslunarfé-
laginu um áramótin 1978-79 og
hætti þá í stjóm fyrirtækisins.
Eftir að ég hætti á þingi í apríl
1983 vann ég nokkra mánuði sem
framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu
og hætti um áramótin 1983-84.
Verksvið mitt var mest að afla
viðskipta erlendis og sjá um ýmsa
samninga.
Nú er það svo, að blaðamaður
Þjóðviljáns hringdi í Guðmund
Þórðarson hjá Þýsk-íslenska versl-
unarfélaginu hinn 6. janúar sl. og
fékk þá þær upplýsingar að ég
ætti ekkert í fyrirtækinu, en hefði
starfað þar nokkra mánuði, en
hætt fyrir að minnsta kosti tveimur
árum. Þetta virðist engin áhrif
hafa á Þjóðviljann og geta menn
getið sér til um þær hvatir sem
að baki liggja.
Meginmál Þjóðviljans virðist
vera að koma höggi á pólitískan
andstæðing alveg án tillits til þess
hvað satt er. Þær sakir sem mér
eru bomar á brýn eru svo hrikaleg-
ar og nú komnar um allt land, að
ég á engra kosta völ annarra en
að stefna blaðinu. Jafnframt mun
ég kæra það fyrir siðanefnd Blaða-
mannafélags Islands."
Rétt að bíða viðræðu við
formann og borg'arstjóra
— segja Auður Auðuns og Björg Einarsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ leitaði í gær