Morgunblaðið - 08.01.1986, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR1986
7
Happdrætti Há-
skólans og SÍBS:
Vinningar
allt að f imm-
faldast
Miðaverð hækkar um 67%
Á ÞESSU ári hækka vinningar
hjá Happdrætti Háskóla íslands
og SÍBS. Lægstu vinningamir
hækka mest í Happdrætti Háskól-
ans og 100.000,- kr. vinningar
hjá SIBS fimmfaldast. Verð hvers
miða, sem var kr. 120,- á síðasta
ári, hækkar í kr. 200,- hjá báðum
happadrættunum.
Vinningar, sem voru kr. 2.500,-
á síðasta ári hjá Happdrætti Háskól-
ans hækka í kr. 5.000,- og þeir, sem
voru kr. 4.000,- hækka í kr.
10.000,-. Lægstu vinningar hjá SÍBS
hækka úr kr. 3.000,- í kr. 5.000,-
og vinningar sem voru kr. 6.000,-
eru nú kr. 10.000,-. Þá er helmings-
hækkun á 25.000,- kr. vinningum,
þeir hækka í kr. 50.000,- og
100.000,- kr. vinningar verða kr.
500.000,-.
Hæsti mögulegi vinningur á einn
miða í Happdrætti Háskólans eru
kr. 2 milljónir og er sá vinningur
dreginn út í desember að venju. Eigi
menn trompmiða fimmfaldast vinn-
ingsupphæð miðans og getur hæsti
vinningur þannig orðið kr. 10 millj-
ónir. Aukavinningar hjá SÍBS á
þessu ári eru þijár bifreiðir í stað
einnar áður og verður dregið um þær
í febrúar, júní og september.
Afplánun refsinga:
Fleiri boðaðir
en fangelsis-
pláss er fyrir
í FYRSTA sinn um langt árabil
horfir svo við, að fresta verður
afplánun dóma vegna fjölda boð-
ana. Nú hafa 111 menn verðir
boðaðir til afplánunar refsivistar,
en fangelsispláss í landinu eru um
100. „Hér á landi hafa ekki verið
biðlistar til afplánunar refsingar,
eins og þekkist í nágrannalöndum
okkur. Ef til kemur að fresta
þarf afplánun refsingar, þá verð-
ur það í fyrsta sinn síðan um
1970,“ sagði Þorsteinn Jónsson,
deildarstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Fleiri hafa verið boðaðir nú, en
í mörg ár. Mér sýnist, að fleiri dómar
hafi komið til fullnustu en undan-
farin ár,“ sagði Þorsteinn. Hann
sagði að staðaldri væru á milli 60
og 80 manns boðaðir til afplánunar
refsingar, en flestir til stuttrar refs-
ingar. Þannig væri refsivist 25
þeirra, sem nú hafa verið boðaðir,
mánuður eða minna og íjölmargir
afplánuðu eins til tveggja mánaða
dóma.
Fyrirlestur
um arnar-
stofninn
ÞEGAR Fuglavemdarfélag íslands
var stofnað fyrir allmörgnm árum var
það meginverkefni félagsins að við-
halda arnarstofninum í landinu. Þá
var svo komið fyrir erninum að aðeins
fá araarpör vora á landinu. Gat þá
svo farið að arnarstofninn hyrfi.
Starf félagsins hefur borið þann árang-
ur að slík hætta er ekki lengur yfirvof-
andi. Á fundi í Fuglarvemdarfélaginu í
kvöld í Norræna húsinu ætlar Kristinn
Haukur Skarphéðinsson líffræðingur, að
segja frá fslenska amarstofninum. í kjöl-
far fyrirlestursins fylgir kvikmyndasýn-
ing og verður sýnd mynd Magnúsar J6-
hannssonar Amarstapar. Fundurinn
hefstkl. 20.30.
BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ILMíÍj' SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SÖLUDEILD: 31236
S. SOLUDEDLD: 31236
Umboö á Akureyri
Bílasalinn Höldur
sími 96-24119.
EITigre árg.’85ca85hö Kr. 369.534,-
Cougar árg.’86ca60hö Kr. 336.235,-
árg.’86ca45hö Kr. 265.303,-
Bifreiöarog
Landbúnaöarvélar hafahafiö
innflutning á þessum vinsælu vélsleöum
sem reynst hafa vel hér á landi.
Cheetah árg. 86ca70hö Kr. 378.248,-
Tilbjörgunarsveita Kr. 202.318,-
Cheetah árg.’86ca90hö Kr. 449.327,-
Tilbjörgunarsveita Kf. 239.003,-
Kitty Cat árg. ’86
Kr. 94.082,-
Ofangreint verö er miðaö við gengi í dag og háö breytingum.
Hinn margrómaði
f jöðrunar- og
beltabúnaður El Tigre
El Tigre
CHEETAH
El Tigre er hraðskreiöasti
sleðinn f rá Arctco, búinn 500
cc vökvakældri Spirit vél með
tveimur VM 38 Mikuni blönd-
ungum. Framfjöðrun er löng A
arma f jöörun með jafnvægis-
stöng. Afturf jöörun er einnig
mjög löng.
KITTY CAT
Kitty Cat er eini barnasleðinn sem fram-
leiddur er og hefur notið mikilla vin-
sælda. Vélin er mjög lítil og búin gang-
ráði þannig að ekki er hægt að aka hrað-
aren 12km.Tilöryggislogastöðugt
fram og afturljós. Sjálflýsandi borði er
hringinn um kring. Öryggislykill.
Cheetah vélsleðinn hentar vel í leik og starfi, en einkum við hinar
erfiöustu aðstæður. Hann er búinn langri A arma fjöðrun aö
framan. Beltið er mjög langt (156“ eða 396,2 cm) sem gerir það
að verkum að sleðinn flýtur vel við erfiðustu aðstæður. Á hinn
bóginn erCheetah eini „long track" sleöinn sem læturað stjórn
eins og stuttur sleði á harðfenni vegna
þess að ca. 1 /3 af beltinu er upþsveigt
á lið aö aftan sem nýtist í mjúkum snjó,
Cougar
JAG
Cougarvélsleðinneródýr
sport-sleði en jafnframt kraft-
mikill og lipur með langri A arma
fjöðrun að framan. Fjöðrunar-
möguleikar eru 7“ (17,8 cm) að
framan og 7,5“ aö aftan!
Jag vélsleðinn er ótrúlega ódýr miö-
að við gæði, en hann er búinn 2 cyl.
vél með sjálfvirkri olíublöndun. Sam-
kvæmt úrskurði bandaríska tímarits-
ins „Snow Goer“ er Jag vélsleöinn sá
sparneytnasti á markaönum.
Glæsilegu
vélsledarnir frá USA