Morgunblaðið - 08.01.1986, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR1986
Lífog
list
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn: Bolero — Les uns
et les autres * * V2
Leikstjóm og handrit Claude
Lelouch. Auk sígildra tónverka
em leikin í myndinni ný lög
eftir Francis Lai og Michel
Legrand. Aðalhlutverk Robert
Hossein, Nicole Garcia, Ger-
aldine Chaplin, James Caan,
Daniel Olbrychski, Jaques Vill-
eret, Jorge Donn, Rita Poel-
coorde, Evelyne Bouix, Macha
Meril, Raymond Pellegrin,
Jean-Claude Brialy. Frönsk,
frá Films 13 og TF 1 Produc-
tione. 1981. 170 mín. Dolby
stereo.
Myndir Lelouch hafa löngum
verið draumkenndar skrautsýn-
ingar ofhlaðnar tilfínningum og
endalausar. Bolero er engin und-
antekning. í hartnær þijár klukku-
stundir sitjum við yfír fjórum fjöl-
skyldum í listum, lífsbaráttu þeirra
á tímabili sem spannar hálfa öld:
1930—'80. Þetta eru rússneskir
ballettdansarar, franskur píanó-
leikari og köna hans sem leikur á
fíðlu, bandarískur dansbandsstjóri
sem giftur er söngkonunni og
þýskur píanóleikari sem síðar meir
verður heimskunnur maestro.
Stríðið skellur á og rífur allt
þetta fólk upp með rótum. Skilur
allstaðar eftir sig áföll og þjáning-
ar.
Nýir fjölskyldumeðlimir fæðast
og nýjar kynslóðir taka við. Mynd-
inni lýkur svo á konsert í París á
vegum Rauða krossins, þar sem
allar söguhetjumar koma meira
og minna við sögu.
Svona fjölskyldudrömur eru
margreynt og ágætt frásagnar-
form, hvort sem er í bókum eða
kvikmyndum og gott innlegg að
glæða það fersku lífi með tilstuðl-
an fagurra lista. Þetta tekst og
tekst ekki. Hápunktar Bolero eru
tvímælalaust í snertingu við söng,
tónlist og dans og sjálft er lokaat-
riðið svo seiðmagnað í sinni hríf-
andi fegurð að það er fullgild
ástæða til að sjá myndina — þrátt
fyrir að bíða verði eftir því uppund-
ir 2 tíma! Eg er efíns að maður
heyri svo Bolero á næstunni að
hugurinn reiki ekki til magnþrung-
innar túlkunar dansarans Jorges
Donn undir rökkvuðum Parísar-
himni, böðuðúm geisladýrð sviðs-
ljósanna og ægifögrum tónum
Ravels, fluttum af krafti og mikil-
leik.
En jafn laginn og Lelouch er
við að setja upp fagrar sensasjónir
þá kann hann ekki síður að teygja
lopann um of. Millikaflinn, frá
stríðslokum fram til konsertsins,
er langur, oftast leiðinlegur og til
óþurftar. Þá tekur hann einnig
uppá þeim skratta að láta leikar-
ana einnig fara með hlutverk
afkomenda sinna, í nokkrum til-
vikum, vafalaust hefur sú ákvörð-
un ruglað fleiri en mig. Þá eru
sumar þær aðferðir sem þessi blóð-
heiti leikstjóri notár til að snerta
tilfínningar okkar með afbrigðum
ósmekklegar eða klaufskar. Nægir
að nefna sem dæmi tiiveru banda-
rísku bræðranna.
Ef Lelouch hefði reynt að halda
aðeins meira aftur af tilfínninga-
flóðinu, þ.e.a.s. hinum ódýrari
holskeflum, og hinum talaða texta,
farið fljótar og markvissar yfír
sögu frá stríðslokum til sigurhátíð-
arinnar í París — þegar hann
undirstrikar þann eilífa, fagra
sannleik að listin mun ætíð
þrauka, á hverju sem gengur —
þá hefði Bolero orðið hans besta
mynd til þessa.
Austurbæjarbíó: Mad Max — Mad
Max: Beyond Thunderdome * V2
Leikstjórar: George Miller og
George Ogilvie. Framleiðandi:
Fátt býr að baki Þrumudómi
Miller. Handrit: Terry Hayes,
Miller. Tónlist: Maurice Jarre.
Kvikmyndataka: Dean Semler.
Aðalhlutverk: Mel Gibson, Tina
Tumer. Warner Bros. Áströlsk
1985.
Þessi myndaflokkur er orðinn
þreytulegur og með þessari þriðju
mynd má segja að úr sé honum
vindurinn. í nr. III voru nefnilega
lagðar miklu hærri fjárhæðir en þær
fyrri báðar til samans. En allt kemur
fyrir ekki, Mad Max-myndunum
hefur farið stighrakandi frá þeirri
fyrstu — sem reyndar var áberandi
frumleg og sjálfstætt verk.
Mad Max III byijar af miklum
fítonskrafti; pönkguðinn Max, (Gib-
son) kemur til Barterbæjar til að
heimta eigur sínar af raufurum. Til
að svo geti orðið þarf hann að heyja
einvígi í Þrumudómnum, á mála hjá
bæjarstjóranum, Tinu Tumer.
Þetta atriði er líkast til eitt það
besta í öllum Mad Max-mynda-
flokknum, engu lfkara en höfundam-
ir hafí þurrausið sig við að skapa
þetta ójarðneska umhverfí, ára þess
og þann hrottalega vítisleik sem þar
er settur á svið.
Það sem við tekur, þegar Max er
brottrækur gerður úr Barterbæ, er
samsull af goðafræði, pönki og út-
þynntum vísindaskáldskap í anda
fyrri myndanna. Lokahasarinn, sem
hægast gæti verið beint úr Mad Max
II, lífgar þó aðeins uppá atburðarás-
ina. En efíns er ég um að karl eigi
eftir að snúa aftur í hið flórða skipt-
ið.
Einstakir „performance“-töfrar
Tinu Tumer nýtast ekki sem
skyldi i Mad Max III.
Vinningar í H.H.Í. 1986: 9 ákr. 2.000.000; 108 ákr. 1.000.000; 216 ákr. 100.000; 2.160 ákr. 20.000; 10.071 ákr. 10.000;
122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinningar á kr. 20.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 907.200.000.