Morgunblaðið - 08.01.1986, Síða 18

Morgunblaðið - 08.01.1986, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR1986 Meðfylgjandi myndir tók Sigurgeir Jónasson á Þrettánadagleði Knattspyrnufélagsins Týs I Vestmannaeyjum og grímudansleik Eyveija. Mannfjöldi á Þrettánda- gleði Týs í Eyjum Vestmannaeyjum, 7. janúar. ÞRÁTT fyrir frekar óhagstætt veður fylgdist mikill mannfjöldi með Þrettándagleði Knattspyrnufélagsins Týs i gærkvöldi. Týr hefur nú í hartnær 40 ár staðið fyrir slíkri gleði á þrettándanum og ávallt verið almenn þátttaka bæjarbúa í gleðskapnum. Fjöldi fólks leggur árlega á sig mikla vinnu við að skapa þessa sérstæðu skemmtun fyrir bæjarbúa. Margir ganga ár eftir ár til sömu starfanna og sumir hafa verið með frá upphafi. Hátíðin hófst klukkan 20 í gær- kvöldi með þvi að nafn Týs var tendr- að eldstöfum á Molda. Þrettán jóla- sveinar kveiktu þá í blysum á Hánni og stórfengleg flugeldasýning var af brún Háar. Jólasveinamir þrömmuðu síðan með blysin niður af fjallinu og sem leið lá um bæinn á íþróttavöllinn í Löngulág með viðkomu hjá gamla fólkinu í Hraunbúðum. Á íþróttavell- inum var kveikt í stórri brennu og þar bættust f hópinn margs konar tröll og foiynjur, álfar, púkar, Grýla og Leppalúði. Flugeldum var skotið á loft og heljarmiklar púðurkerlingar sprengdar með ógnarhávaða. Gffur- iegur mannfjöldi fylgdist með hátfð- inni á íþróttavellinum. Jólasveinamir héldu síðan áfram blysför sinni og heilsuðu þá upp á sjúklinga og starfs- fólk Sjúkrahússins áður en þeir hurfu aftur til fjalla. Þrettándinn er orðinn meiriháttar hátíðisdagur hjá yngri kynslóðinni, því auk Þrettándagleði Týs standa Eyverjar, félag ungra sjálfstæðis- manna, árlega fyrir veglegum grímu- dansleik fyrir böm og unglinga á þrettándanum. Að vanda var þar fjölmennt f gærkvöldi og margir skrautlegir búningamir sem bömin skörtuðu. Fjölmörg verðlaun vom veitt fyrir skemmtilega búninga. HKJ. Meðfylgjandi myndir tók Skapti Hallgrímsson á Þrettándagleði Akureyringa. Fjölmenni á Þrett- ándagleði á Akureyri Akureyri, 7. janúar. ÞRETTÁNDAGLEÐI var haldin f gærkvöldi, að kvöldi Þrettándans á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs í Glerárhverfi. Þetta er orðinn árlegur siður, en Þórsarar héldu fyrst álfadans og brennu fyrir um 50 árum. Mikill mannfjöldi mætti á skemmtunina og virtist skemmta sér vel, sér- staklega féll Bjössi bolla vel i kramið hjá yngri kynslóðinni. Atriði voru með hefðbundnum hætti, álfakóngur söng, flokkur dans- aði þjóðdansa og jólasveinar sungu og skemmtu krökkunum. Þá kom eldgleypir nú fram í fyrsta skipti á álfabrennunni. Á svæðinu vom Oskar sparibaukur úr Iðnaðarbankanum ásamt §ölda dýra, trölla, púka, Grýlu ogLeppalúða. Jóhann Már Jóhannsson söng og tóku viðstaddir undir með honum og Bjössi bolla söng einnig. Eitthvað mundi Bjössi textann rangt en krakk- amir vom vel með á nótunum og vom ekki í vandræðum með að leið- rétta hann. í lokin var skotið upp flugeldum á svæðinu og það vom félagar úr Hjálp- arsveit skáta sem stóðu að flugelda- sýningunni eins og undanfarin ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.