Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 31. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins AP/Símamynd Stöðugtmeira brak finnst úr geimferjunni Washíngton og Kanaveralhðfða, 6. febrúar. AP. YFIRMAÐUR bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, William R. Graham, lofaði fullri sam- vinnu stofnunarinnar, er hann kom fyrstur manna fyrir sérstaka nefnd skipaða af forsetanum tíl þess að rannsaka tildrög þess að bandariska geimfeijan Challenger fórst skömmu eftir geimskot fyrir tiu dögum. Stöðugt finnst meira brak úr geimferjunni á hafsbotni. Hér má sjá tijónu annarr- ar hjálpareldflaugar geimferjunnar flutta til rannsóknar á vagni. Olíumálaráðherra Kuwait: Olían á 10 dali fatið innan tíðar Kuwait, París, Osló og Tókýó, 6. febrúar. AP. ALI Khalifa Al-Sabah, olíumála- ráðherra Kuwait, sagði í dag að olíuverð færi niður í 10 dali fatið, ef ríki í samtökum olíuútflutn- ingsríkja, OPEC, og utan þeirra, kæmu sér ekki saman um verð og hlutdeild í heildarframboði á olíu á heimsmarkaði. Sagði hann jafnframt að ýmis OPEC-ríki brytu reglur um framleiðslu og verð og áður en til árangursríks fundar OPEC gæti komið, yrði að vera vissa fyrir þvi að engin riki í samtökunum myndu ganga gegn samþykktum slíks fundar. Háttsettur embættismaður hjá ríkisolíufélaginu í Alsfr hafnaði þvi alfarið að fregnir þess efnis að Alsír, Lábýa og Iran hygðust lækka verð á olíu sinni um 4 dali fatið væru sannar. Þessi þrjú ríki hafa þráast við að halda verði á sinni olíu uppi, þrátt fyrir verðlækkunina á olíumörkuðum, en fregnir fyrr í vikunni hermdu að bak við tjöldin hefðu þau lækkað verð á olíu. Arve Johnsen, framkvæmdastjóri norska olíufyrirtækisins Statoil, sagði í dag að Norðmenn yrðu að forðast beint samstarf við OPEC Forsetakosniiigar á Filippseyjum í dag: Marcos útdeilir hrís- grjónum til almennings Fundist hafa kjörkassar með atkvæðum merktum Marcosi Maniia, Filippseyjum, 6. febrúar. AP. FERDINAND Marcos, forseti Filippseyja, skipaði hernum í viðbragðsstöðu næsta sólarhringinn vegna forsetakosninganna, sem verða í landinu á morgun. Sakaði hann stuðningsmenn Corazon Aquino, mótframbjóðanda hans I kosningum, um ofbeldi og skoraði á þá að láta af öllu slíku. Á sama tima út- deildu embættismenn í einu hverfi Manila sekkjum af hrís- gijónum, sem merktir voru sem gjafir frá forsetanum. 86 þúsund öryggisverðir eru á kjörstöðum til að koma í veg fyrir ofbeldi. Yfírkjörstjóm í kosningunum I skref til þess að tryggja að kosn- sagði í dag að hún hefði tekið | ingamar yrðu heiðarlegar. Stjóm- Norður-Ugandabúar veijast flýjandi her Kampala, Ugfanda, 6. febrúar. AP. YOWERY Museveni, forseti Uganda, sagði i útvarpsávarpi til þjóðarinnar, að hermenn fyrri sljómvalda hefðu egnt borgara í norðurhluta landsins til uppreisna, en þar hafa þeir leitað hælis. Sagði hann það hlutverk hers síns, Þjóðlega andspyrnuhersins, að sjá til þess að sérhver hluti landsins væri frelsaður undan þessum glæpamönnum. Museveni ásakaði stjómarher- inn fyrrverandi fyrir flöldamorð á 300 íbúum borgarinnar Mbale í austurhluta landsins, áður en her hans tókst að hrekja stjómar- hermenn á flótta. Ennfremur sagði hann að stjómvöld myndu gera kröfu um framsal Miltons Obote, sem var forseti landsins þar til í júlí á síðastliðnu ári er honum var steypí af stóli, en hann er nú talinn halda sig í Zambíu. Talið er að Obote hafí látið við- gangast óátalin ýmis hryðjuverk öryggissveita sinna. arandstæðingar sögðu hins vegar að þeir hefðu fundið ýmis dæmi um tilraunir til kosningasvika. Formaður yfírkjörstjómar full- vissaði fréttamenn um að engum óheiðarlegum aðferðum yrði beitt, þó það gæti hugsast að hótunum og ofbeldi yrði beitt í fjarlægum kjördæmum, þar sem skæruliðar hafa bækistöðvar. Talsmaður Aquino las hins vegar fyrir frétta- menn bréf frá andstöðuleiðtogum í kjördæmum í dreifbýli, þar sem því er haldið fram að kjörstjómir hafí fundið kjörkassa fulla af atkvæðum merktum Marcosi. Bandarískri nefnd sem komin er til Filippseyja til þess að fylgj- ast með kosningunum, hefur verið leyft að heimsækja kjörstaði, eins og hún hafði óskað eftir, en áður hafði meðlimum nefndarinnar verið bannað að koma nær kjör- stað en 50 metra á kjördag. Þá birtust auglýsingar í stuðn- ingsblöðum Marcosar í dag, þess efnis að matvælamarkaður stjóm- arinnar bjóði mikinn afslátt af vörum og fregnir hermdu einnig að rikisstarfsmenn fengju auka- greiðslur þessa dagana til þess að hafa áhrif á það hvemig þeir greiði atkvæði á morgun. Sam- kvæmt kosningalögum á Filipps- eyjum er kosningaáróður bannað- ur síðustu tvo dagana fyrir kjör- dag. Sjá ennfremur: „„Við viljum losna við Marcos...““ á bls. 24-25. um olíuframleiðslu. Sagði hann að Norðmenn ættu að halda sig við áætlanir sínar um olíuframleiðslu án tillits til skoðana OPEC á henni, en OPEC hefur viljað að ríki utan samtakanna minnki framleiðslu sína til þess að verðið hækki. Fregnir frá Abu Dhabi herma að tekjur landsins af olíuvinnslu hafí minnkað um helming á tfmabilinu 1980—84 vegna olíuverðslækkunar. Olíumálaráðherrar Mexíkó og Venezuela eru nú í Egyptalandi til skrafs og ráðagerða við olíumála- ráðherra landsins. Sjá ennfremur: „Átök fram- undan á oIfumarkaði“ á bls. 12-13. Fangaskiptin: Gerhardt verður lát- inn laus Berlin, 6. fcbrúar. AP. HÁTTSETTUR sovéskur njósn- ari, sem er i haldi í Suður-Af ríku, er einn þeirra fanga sem austur og vestur skipta á snemma í næstu viku að þvi er vestur-þýska dagblaðið Bild hermir. Er þar um að ræða suður-afríska flota- höfuðsmanninn Diter Gerhardt, sem dæmdur var til lífstfðar- fangelsis á árinu 1984, meðal annars fyrir að hafa komið upplýsingum til Sovétríkjanna um flota Breta í Falklandseyja- strfðinu. Richard Burt, sendiherra Banda- ríkjanna í V-Þýskalandi, er nú í V-Berlín. Fregnir herma að hann verði þar yfír helgina og eru uppi sögusagnir um að hann muni hafa yfírumsjón með fangaskiptunum hvað vesturveldin snertir. Hann sá um síðustu meiriháttar fangaskipti I milliaustursogvestursíjúníl985. AP/Símamynd Háfleyg flugvél London, 6. febrúar. AP. BREZKA stjórnin hefur ákveðið að veita þremur milljónum sterlingspunda til athugunar á þvf hvort raunhæft sé að ráðast f smiði geimflugvélar, sem hafið gæti sig á ioft frá venjulegum flugvelli og flogið frá London til Sydney f Ástralfu á einni klukkustund. Flugvélin þyrfti álíka langa flugbraut og venjuleg farþegaþota. Henni er ætlað að ná fimmföldum hljóðhraða og allt að 290 km hæð yfir jörðu. Hún á að geta flutt gervihnetti á braut um jörðu eða allt að 9 lestir af vörum. Kostnaður við að senda hana á braut yrði ekki nema brot af þvf, sem nú kostar að senda gervihnetti á braut.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.