Morgunblaðið - 07.02.1986, Síða 24

Morgunblaðið - 07.02.1986, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö. Brotalamir í bankakerfinu Matthías Bjamason, við- skiptaráðherra, upp- lýsti á Alþingi á þriðjudag, að ríkisbankamir hafa lánað stærstu viðskiptavinum sín- um margfaldlega hærri upp- hæðir en nemur eiginfjár- stöðu þeirra. í lok nóvember á síðasta ári skulduðu fímm stærstu viðskiptavinir Lands- bankans upphæð, sem er 304% af eigin fé bankans. Á sama tíma skulduðu fímm stærstu viðskiptavinir Bún- aðarbankans upphæð, sem er 183,2% af eigin fé bank- ans. í lok júní á síðasta ári skulduðu fímm stærstu við- skiptavinir Útvegsbankans upphæð, sem samtals er 392,5% af eigin fé bankans. Þar af var hlutfall stærsta skuldunautsins 145%. Þessar staðreyndir vekja athygli á því, að brýn nauð- syn er á nýskipan bankamála hér á landi. Þær sýna, svo ekki verður um villst, að bankamir em of margir og smáir til að geta þjónað at- vinnu- og viðskiptalífínu. Hugmyndir em uppi um að lögfesta reglur um hámark útlána, svo sem algengt er í nágrannalöndunum, og hefur í því sambandi verið talað um, að lán til einstakra við- skiptavina verði ekki hærri en 30-35% af eigin fé við- komandi banka. Ef þessi regla væri nú í gildi gætu ríkisbankamir ekki sinnt þörfum stærstu viðskiptavina sinna. Landsbankinn gæti t.d. ekki veitt fjómm stærstu viðskiptavinum sínum þá fyrirgreiðslu, sem hann býð- ur þeim nú. Lán til þessara aðila námu í nóvember 1985 frá 56,1% til 83,6% af eigin fé bankans. Þetta sýnir í ským ljósi brotalömina á þeirri skipan, sem við búum við. Um það er raunar ekki deilt, að nauðsynlegt er að endurskipuleggja bankakerf- ið. Formenn allra stjóm- málaflokkanna hafa viður- kennt það og fyrir liggur álit opinberrar nefndar um þörf- ina á því verki. Staða Útvegs- bankans kallar síðan á skjót- ar aðgerðir. Um hitt em skoðanir stjómmálamanna skiptar, hvemig að fram- kvæmdinni á að standa. Ágreiningurinn er um það, hvort auka eigi hlut einka- banka eða sameina ríkis- bankana. Á síðasta landsfundi Sjálf- stæðisflokksins var fyrir atbeina ungra sjálfstæðis- manna gerð samþykkv. um bankamál, þar sem hvatt var til þess, að ríkisviðskipta- bönkunum yrði breytt í hluta- félög og stefnt að meiri styrkleika, auknum sveigjan- leika og bættri hagkvæmni bankakerfisins. Sem kunnugt er taldi þingflokkur sjálf- stæðismanna ekki ástæðu til að taka mið af þessari sam- þykkt þegar nýja bankalög- gjöfín var afgreidd. Mál hafa hins vegar á skömmum tíma skipast með þeim hætti, að þingflokkurinn hlýtur að taka þá afstöðu sína til end- urmats. í því viðfangi er rétt að minna á afdráttarlaus ummæli Þorsteins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokks- ins, að það sé eitt brýnasta verkefnið við úrlausn efna- hagsmálanna, að draga úr opinberum rekstri í banka- kerfínu. Hann hefur jafn- framt lagt til, að Útvegs- bankinn verði sameinaður einkabönkum í nýjum öflug- um hlutafélagsbanka. Það sjónarmið kann að eiga hljómgrunn í Alþýðuflokkn- um og Bandalagi jafnaðar- manna, en innan Framsókn- arflokks, Alþýðubandalags og Kvennalista virðist eink- um áhugi á einhvers konar sameiningu ríkisbanka. Fram kom í frétt í Morgun- blaðinu í gær, að atvinnu- og þjónustufyrirtæki hér á landi hafa vaxið örar en nemur getu bankanna til að sinna eðlilegri rekstrarfjár- þörf þeirra. Þeir geta ekki komið til móts við stærstu viðskiptavini sína nema með því, að setja sig í stórfellda hættu. Þetta ástand er að sjálfsögðu óeðlilegt og það er líka óviðunandi. Stjóm- málaforingjamir, sem viður- kennt hafa að brotalamir eru í bankakerfínu, verða að taka af skarið með einum eða öðrum hætti. Málir þolir ekki lengri bið. Forsetakosningar á Filippseyjum í dag „Við viljum 1< við Marcos., Maniila, 5. febrúar. Frá fréttamanni Morgfunblaðsins, Ónnu Bjaraadóttur. „Marcos er þjófur. Hann hefur stolið fjármunum þjóðarinnar og rænt hana stolti sinu. Filippseyjar voru næst ríkasta þjóðin I Suðaustur-Asíu á eftir Japan þegar hann var kjörinn forseti 1965. Og sjá okkur nú. Við erum næst fátækasta þjóðin í þessum heims- hluta, fólkið okkar verður að fara utan til að finna störf og vinnur húsverk þar sem það ferðaðist áður um eins og aðrir ferðamenn. Við erum ekki endilega hrifin af Cory Aquino en hún er skárri en Ferdinand Marcos. Við viljum losna við Marcos.“ Sá er þetta sagði var fátæklega búinn maður á leið heim af stærsta kosningafundi Aquino í forsetakosningabaráttunni á Filippseyjum. Hátt í ein milljón manns sóttu fundinn í Manilla á þriðjudagskvöld og fólk var stolt af að hafa komið að eigin frumkvæði, „þeir sem sækja fundi Marcos fá borgað fyrir að fara þangað,“ var viðkvæði fólks. Það var fámennt á síðasta fundi Marcos á sama stað daginn eftir í samanburði við fund Aquino. Þó var fólki ekið þangað víða að i rútubQum og fékk m.a. ókeypis hádegisverð í kaupbæti. Uppreisn og valdagræðgi Kosningabaráttan á Filippseyjum var hörð. Mikið er í húfí. Ferdinand Marcos, hefur verið forseti landsins síðan 1965. Hann var þá von fólks- ins og lofaði góðu. Hann lét endur- skoða lög um landeignir og skipti upp hluta landsins. Hagvöxtur jókst á fyrstu árum stjómar hans, fjár- festing jókst og fjármunir hættu að flæða út úr landinu. Hann var endurkjörinn forseti 1969 með miklum meirihluta atkvæða og mátti þá þjóna þjóðinni í fjögur ár til viðbótar samkvæmt stjómarskrá landsins. En andstaða hægri sinna, þar á meðal stórra landeiganda, í þing- ingu hafði aukist. Fjölmiðlar gagn- lýndu forsetann harðlega og vinstri sinnuðum uppreisnarmönnum fjölg- aði úti á landsbyggðinni. Marcos sendi hersveitir út í dreifbýlið í ágúst 1971 til að vemda almúgann og berjast gegn kommúnistum og múhameðstrúarmönnum. Astandið var orðið mjög slæmt í landinu um mitt ár 1972. Barist var á ýmsum svæðum og stjómmálamenn í Manilla deildu hart og óstjóm ríkti á ýmsum sviðum. Marcos greip til þess ráðs að setja herlög í september 1972. Flestum flölmiðlum var lokað, þing- ið sent heim og stjómarskráin numin úr gildi. Fjöldi andstæðinga Marcos var handtekinn og settur í fangelsi. Marcos var einráður og hann skipaði vini sína og ættingja í lykilembætti um allt land og hann leyfði aðeins Qölmiðlum sem voni hliðhollir honum að starfa. Þijú dagblöð í eigu vina hans komu út í Manilla og stjómarandstöðublaðið We fomm fékk að koma út þangað til það birti grein um að heiðurs- merki hans úr stríðinu væm illa fengin. Stjómarandstæðingar, þar á meðal Laurel-flölskyldan, sem er áhrifamikil §ölskylda, segja að Marcos hafí sett herlög til að geta setið áfram í embætti forseta. „Hann þjáist af valdagræðgi," sagði Letty Laurei, starfsmaður kosn- ingaskrifstofu Cory Aquino og frænka Doys Laurel, varaforseta- efnis stjómarandstöðunnar. „Hann er afar greindur maður og Laurel- Qölskyldan batt miklar vonir við hann þegar hann var kjörinn forseti 1965. En valdagræðgi hans hefur náð yfírhöndinni og hann beitir vitsmunum sínum til að auka eigin völd og til að halda þeim. Hann hefur ekki bara áhuga á peningum og ríkidæmi, hann vill völd fyrst ogfremst. Stíflan brast eftir morðið á Aquino Marcos setti lög eftir eigin geð- þótta og ákvað að stofna nýtt þing árið 1976. Sú ákvörðun var sam- þykkt á íjöldafundum og þing kosið 1978. Það á að setja lög og semja nýja stjómarskrá en Marcos hefur enn leyfí til að setja lög án sam- þykkis þingsins ef honum sýnist svo samkvæmt viðbótarlögum númer 6 í nýju stjómarskránni. Hann notaði sér það óspart í kosningabarátt- unni. „Stuðningsmenn Marcos hika ekki við að svindla," sagði Paul Aquino, starfsmaður kosningabar- áttu Cory Aquino og bróðir Benigno Aquino. „í þingkosningunum 1984 fékk einn af okkar mönnum 19.000 atkvæði fram yfír frambjóðanda KBL-flokksins samkvæmt talningu NAMFREL, samtaka hlutlausra eftirlitsmanna við kosningar. En þegar opinberu tölumar voru lesnar upp þá hafði hann tapað fyrir KBL-manninum með 15.000 at- kvæða mun.“ Benigno Aquino, virtasti stjóm- málaandstæðingur Filippseyja, sneri heim frá Bandaríkjunum eftir 3ja ára dvöl þar í ágúst 1983. Yfír þúsund hermenn voru á flugvellin- um til að vemda hann við komuna en hann var skotinn í hnakkann á leið út úr flugvélinni. Kommúnist- um hefur verið kennt um morðið en Cory Aquino, ekkja Benignos, er sannfærð um sakleysi þeirra. Hún telur herinn og Marcos bera ábyrgð á morðinu en Fabian Ver hershöfðingi og menn hans hafa verið sýknaðir af ákæm og Ver er aftur í embætti yfírmanns hersins. Morðið á Aquino leysti úr læðingi reiði þjóðarinnar í garð Marcosar og manna hans. Tvö harðorð og óvægin stjómarandstöðublöð fóru að koma út í Manilla og kaþólska kirkjan hóf að gefa út vikublað sem gagnrýnir stjóm Marcosar. Upp- lausn ríkir í þjóðfélaginu og efna- hagsvandinn er mikill. Erlendar skuldir hafa aukist og fjárfesting hefur minnkað. Dregið hefur úr tekjum af ferðamönnum, fólk þorir ekki til Filippseyja af ótta við of- beldi og hermdarverk. Fljótræði að boða til kosninganna af hálfu Marcosar? Þrýstingur á Marcos vegna ástandsins í landinu var orðinn mikill. Forsetakosningar voru haldnar 1981 og hann var endur- kjörinntil 1987. Bandaríkjamenn studdu Marcos 1965 en mótframbjóðanda hans Forsetahjón Filippseyja, Ferdinand og Imelda Marcos.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.