Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
Frímiði?
Skammstafanimar skoluðust
víst eitthvað til hjá undirrit-
uðum í síðasta greinarkomi, þann-
ig umbreyttist SÍF í SS. Til frekari
glöggvunar vil ég geta þess að
nefndi nokkur fyrirtæki í greinar-
kominu er segja mætti að nytu
ákveðinnar einokunaraðstöðu, ég
veit ekki til þess að SS njóti slíkr-
ar aðstöðu, hins vegar hefír SIF
nánast einkaleyfí á saltfískút-
flutningi að mér skilst. Leiðréttist
þetta hér með og vísa ég til grein-
arkoms gærdagsins um frekari
málsatvik.
líðandi
stundu, var alllitríkur að þessu
sinni, tvær nýbakaðar valkyijur
Alþýðubandalags og Alþýðu-
flokks, þær Kristín Ólafsdóttir og
Bryndís Schram, voru aðalgestir
þáttarins. Litríkar konur og lima-
fagrar og það sem meira er að
Kristín er hinn mesti söngfugl,
en nú fer að verða ógerlegt fyrir
menn að komast áfram í pólitík
nema söngröddin sé í iagi.
Er ég viss um að söngskemmt-
animar á Alþingi verða fjölsóttar
í framtíðinni og kannski lagast
eitthvað ástandið þegar fjárlögin
verða sungin en ekki tuldruð oní
bringu af þreyttum kerfísköllum.
Er þá líklegt að ráðherrar verði í
hlutverki forsöngvara, þingskrif-
arar stijúki gítara og forsetar
deildanna verða að sjálfsögðu með
tónsprota í hendi. Þegar svo er
komið verða framboðslistar skip-
aðir fegurðardrottningum og
-kóngum og svo náttúrulega söng-
fuglum. Kannski að maður nenni
þá á kjörstað.
Glimmer
Segiði svo_ að sjónvarpið hafí
engin áhrif. Ég sé ekki betur en
að þátturinn hans Ómars sé á
góðri leið méð að breyta hér ímynd
stjómmálamannsins og þar með
pólitískum þankagangi lands-
manna. Ég er ekki svo viss um
að við sem eldri erum föllum í
stafí yfír hinni nýju tegund stjóm-
málamanna er hér skrýða skjáinn,
en hvað um hina 25 þúsund nýju
kósendur er nú streyma í fyrsta
sinn í kjörklefann í kjölfar lækk-
unar kosningaaldurs í 18 ár?
Hlustar þetta komunga fólk á
boðskap stjómmálamannanna eða
bara á sönginn? Persónulega
treysti ég þessu unga fólki til sjálf-
stæðrar ákvarðanatöku.
Á þröskuldi...
Svo sannarlega stöndum við á
þröskuldi nýrrar aldar, aldar þar
sem framhlið valdsins skiptir
sennilega meira máli en það sem
gerist á bak við tjöldin. Þess vegna
gætu flokkamir gripið til þess
ráðs í framtíðinni að tefla fram
þaulæfðum leikurum er flyttu
þann boðskap er hentaði hveiju
sinni. Það verður ekki ónýtt fyrir
þá er beita flokkunum að skýla
sér bak við leikara er ræður yfír
svipbrigðum og raddhljómi slíkum
er breiðir yfír hveija misfellu.
Sigurður Guðmundsson er féll
fyrir Bryndísi í prófkjörinu hefur
aldrei mætt í þáttinn hans Ómars
og þótt hann kæri Bryndísi þá
hefur það engin áhrif á sigur-
göngu hennar, það er ekki hægt
að kæra fólk fyrir andlitsfegurð,
glæsilegan klæðnað og sjónvarps-
frægð.
ÓlafurM.
Jóhannesson
Forsöngvarar?
Þáttur Ómars, A
„Sorg undir sjóngleri“
— saga eftir C.S. Lewis
■■■■ Séra Gunnar
UIO Bjömsson byij-
— ar lestur þýðing-
ar sinnar „Sorg undir sjón-
gleri" í dag kl. 11.10, en
sagan er eftir C.S. Lewis.
Höfundurinn er ekki
ókunnur íslendingum, en
hann lést árið 1963, 65 ára
að aldri. Hann var prófess-
or í enskum bókmenntum
við háskólann í Oxford á
Englandi. í námsárum sín-
um var hann eindreginn
trúleysingi, en síðar á
ævinni hóf hann að rækja
kirkjuna og lifa trúlífi.
Hann var mjög snjall rit-
höfundur og ritaði margt
og markvert á fræðasviði
sínu. Þekktastur er hann
þó fyrir bækur sínar um
kristna trú, enda hafa þær
hlotið gífurlegar vinsældir.
Andrés Bjömsson fyrr-
verandi útvarpsstjóri þýddi
tvær af bókum Lewis,
„Rétt og rangt" 1964 og
„Guð og menn“ 1947. Fyrir
nokkrum árum kom svo út
ein frægasta bók Lewis,
„Með kveðju frá Kölska",
og bamabók birtist eftir
hann í íslenskri þýðingu
fyrir síðustu jól.
Bókin „Sorg undir sjón-
gleri“ var rituð eftir að
höfundur missti konu sína,
en hún lést árið 1960 eftir
langa og erfíða sjúkdóms-
legu. Þetta er eins konar
dagbók syrgjanda og er
ekki að efa að allir hugs-
andi menn, ekki síst þeir,
sem þurft hafa að horfa á
bak nákomnum ástvinum
sínum, muni hafa upp-
byggingu og blessun af
því að hlýða á vitnisburð
C.S. Lewis.
Ljósár
— frönsk-svissnesk bíómynd
■■■■ Ljósár —
0045 frönsk-sviss-
LiL*— nesk bíómynd
frá árinu 1980 — er á
dagskrá sjónvarps kl.
22.45 í kvöld. Leikstjóri er
Alain Tanner og með aðal-
hlutverk fara Trevor How-
ard og Mick Ford.
Mynd þessi gerist á
Bretlandseyjum og er leik-
in á ensku. Ungur auðnu-
leysingi kynnist furðuleg-
um draumóra- og uppfínn-
ingamanni og nemur af
honum nýstárlegan lífs-
skilning. Mjmdin hlaut
verðlaun á kvikmyndahá-
tíðinni í Cannes árið 1981.
Þýðandi er Ólöf Péturs-
dóttir.
Sérvitringurinn og læri-
sveinninn i bíómyndinni
„Ljósárum“: Trevor
Howard og Mick Ford.
Sherlock Holmes og Watson læknir.
Ævintýri
Sherlock Holmes
■■■■ Annar þátturinn
Ol 50 um ævintýri
£* JL ” Sherlock Holm-
es hefst í sjónvarpi í kvöld
kl. 21.50, en alls em þættir
þessir sjö, gerðir eftir smá-
sögum Conans Doyle.
I aðalhlutverkum em
þeir Jeremy Brett og David
Burke. Rakin em ævintýri
frægasta spæjara allra
tíma, Sherlock Holmes, og
sambýlismanns hans og
sagnaritara, Watsons
læknis.
Þýðandi er Bjöm Bald-
ursson.
I
UTVARP
FOSTUDAGUR
7. febrúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.16 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.06 Morgunstund barn-
anna: „Emil í Kattholti" eftir
Astrid Lindgren
Vilborg Dagbjartsdóttir les
þýðingu sína (5).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.46 Þingfréttir
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Sigurður
G. Tómasson flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.26 Lesiö úr forustugreinum
dagblaöanna.
10.40 „Sögusteinn". Umsjón:
Haraldur I. Haraldsson. (Frá
Akureyri.)
11.10 „Sorg undir sjóngleri"
eftirC.S. Lewis
Séra Gunnar Björnsson
byrjar lestur þýöingar
sinnar.
11.20 Morguntónleikar
a. Orgelkonsert í F-dúr op.
4 nr. 4 eftir Georg Friedrioh
Handel. Simon Preston leik-
ur með Menuhin-hljóm-
sveitinni; Yehudi Menuhin
stjórnar.
b. Brandenborgarkonsert
nr. 4 í G-dúr eftir Johann
Sebastian Bach. Hátíðar-
hljómsveitin í Luzern leikur;
Rudolf Baumgartner stjórn-
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Ævin-
týramaöur", - af Jóni Ólafs-
syni ritstjóra
Gils Guðmundsson tók
samanog les (27).
14.30 Sveiflur. - Sverrir Páll
Erlendsson. (Frá Akureyri.)
16.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
Konsert í a-moll op. 102
fyrir fiðlu, selló og hljóm-
sveit eftir Johannes Brahms.
Anne-Sophie Mutter og
Antonio Meneses leika með
Fílharmoníusveitinni í Berlín;
Herbert von Karajan stjóm-
ar.
17.00 Helgarútvarp barnanna
Stjórnandi: Vernharður Lin-
net.
17.40 Úr atvinnulífinu - Vinnu-
staðir og verkafólk. Umsjón:
HöröurBergmann.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.60 Daglegtmál
Margrét Jónsdóttir flytur
þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
20.40 Kvöldvaka
Umsjón: Helga Ágústsdótt-
ir.
21.30 Frá tónskáldum
Atli Heimir Sveinsson kynnir
Sónötu VIII eftir Jónas Tóm-
asson.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma (11)
22.55 Svipmynd
Þáttur Jónasar Jónassonar.
(Frá Akureyri.)
24.00 Fréttir.
00.06 Djassþáttur
-Jón MúliÁrnason.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
03.00.
I
SJÓNVARP
i
19.15 Á döfunni. Umsjónar-
maður Karl Sigtryggsson.
19.25 Denni (Dennis).
Norsk barnamynd um hvolp
sem þjálfaður er sem
blindrahundur.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision — Norska
sjónvarpið.)
19.50 Fréttaágripátáknmáli.
20.00 Fréttirog veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Rokkarnir geta ekki
þagnað.
3. Grafík.
Tónlistarþáttur fyrir táninga.
Umsjón: Jón Gústafsson.
FOSTUDAGUR
7. febrúar
Stjórn upptöku: Björn Emils-
son.
21.00 Þingsjá. Umsjónarmaö-
urPáll Magnússon.
21.16 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni.
21.60 Ævintýri Sherlock
Holmes.
Annarþáttur.
Breskur myndaflokkur f sjö
þáttum sem geröir eru eftir
smásögum Conan Doyles.
Aðalhlutverk: Jeremy Brett
og David Burke. ( þáttunum
eru rakin ævintýri frægasta
spæjara allra tfma, Sherlock
Holmes, og sambýlismanns
hans og sagnaritara, Wat-
sons læknis.
Þýðandi Björn Baldursson.
22.40 Seinni fréttir.
22.45 Ljósár (Les annees
lumiere).
Frönsk-svissnesk bíómynd frá
1980. Leikstjóri Alain Tanner.
Aðalhlutverk: Trevor Howard
og Mick Ford. Myndin gerist á
Bretlandseyjum og er leikin á
ensku. Ungur auðnuleysingi
kynnist furðulegum draumóra-
og uppfinningamanni og nemur
af honum nýstárlegan lifsskiln-
ing. Myndin hlaut verðlaun í
Cannes árið 1981. Þýöandi
Ólöf Pétursdóttir.
00.35 Dagskrárlok.
7. febrúar
10.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Páll Þorsteins-
son og ÁsgeirTómasson.
12.00 Hlé
14.00 Pósthólfið
Stjórnandi: Valdís Gunnars
dóttir.
16.00 Léttir sprettir
Jón Ólafsson stjórnar tón-
listarþætti með íþróttaívafi.
18.00 Hlé
20.00 Hljóödósin
Stjórnandi: Þórarinn Stef-
ánsson.
21.00 Dansrásin
Stjórnandi: Hermann Ragn-
arStefánsson.
22.00 Rokkrásin
Stjórnendur: Snorri Már
Skúlason og Skúli Helga
son.
23.00 Ánæturvakt
með Vigni Sveinssyni og
Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar í þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.