Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1986 33 Minning: Magnús Konráðs- son verkfræðingur Fæddur 1. apríl 1898 Dáinn 23. janúar 1986 í dag verður kvaddur hinstu kveðju tengdafaðir minn, Magnús Konráðsson, verkfræðingur. Hann andaðist að heimili sínu, Drápuhlíð 29, þann 23. janúar sl. Magnús Konráðsson fæddist 1. apríl 1898 á Syðra-Vatni, Lýtings- staðahreppi, Skagafirði. Móðir hans var Ingibjörg Hjálmsdóttir ættuð úr Borgarfírði. Faðir Ingibjargar, Hjálmur Pétursson, sat á alþingi og var samtíðarmaður Jóns Sig- urðssonar forseta. Faðir Magnúsar, Konráð, var Skagfírðingur. Hann var bróðir séra Jóns Magnússonar föður Magnúsar Jónssonar dósents, sem látinn er fyrir mörgum árum. Ingibjörg og Konráð hófu búskap 1892 að Syðra-Vatni. Böm þeirra voru níu og var Magnús sjötti í röðinni. Þijú systkini Magnúsar lét- ust á unga aldri. Konráð var heilsuveill síðustu árin sem hann lifði. Hann lést 4. janúar 1911 og var Magnús þá tæpra þrettán ára. Ingibjörg flutti til Blönduóss með þijú böm sín eftir lát manns síns, en Magnúsi var komið fyrir hjá föðursystur sinni, Ingibjörgu, og Stefáni Magnússyni, sem þá bjuggu að Flögu í Vatnsdal og hjá þeim dvaldist hann næstu 4 árin og las undir menntaskólanám, enda hafði móðir hans kvatt hann og öll bömin að föðumum látnum að fara tit náms, svo framarlega sem þess væri nokkur kostur. Atján ára að aldri lagði Magnús af stað fótgangandi úr Skagafírði til Akureyrar til innritunar í menntaskólann þar. Þar lauk hann tveggja bekkja námi á einum vetri og hélt síðan til Reykjavíkur til áframhaldandi náms. Magnús lauk stúdentsprófí frá menntaskólanum í Reykjavík vorið 1918. Þau sem útskrifuðust með Magnúsi vom meðai annars Jón Grímsson, Einar Ólafur Sveinsson, Stefán Jóhann Stefánsson, Brynjólfur Bjamason, Þorvarður Sölvason, Guðrún Thule- nius, Dýrleif Ámadóttir, séra Þor- steinn Gíslason og Finnur Einars- son. Að loknu menntaskólanámi lá leiðin til Kaupmannahafnar og þar innritaðist Magnús í Danmarks Tekniske Hojskole og lauk þar prófí í byggingaverkfræði árið 1926. Magnús vann ýmiss verkfræði- störf á ámnum 1926 til 1933, m.a. eftirlit með byggingu Landspítalans 1926. Hann vann að mælinum við Skeiðsfoss, Skagafírði, og gerði frumáætlun að virkjun þar ásamt Steingrími Jónss^mi. Hefur gert útreikning að jámbentri steinsteypu m.a. í Sjómannaskólann í Reylq'a- vík. Vann við mælingar fyrir Raf- magnsveitu Reykjavíkur 1927 og vatnsveitu Reykjavíkur 1931. Árið 1934 varð Magnús fyrir miklu áfalli er hann fékk lömunarveikina. Uppfrá því gekk hann ekki heill tii skógar og hafði takmarkaðan mátt í vinstra fæti og háði það honum 'esid af meginþorra þjóóarinnar daglega! Auglýsinga síminn er2 mjög. Starfaði hjá vita- og hafnar- málastjóm 1933—1969. Deildar- verkfræðingur frá 1960 og hafði þar með höndum m.a. mælingar, áætlanir og annan undirbúning og umsjón með hafnarframkvæmdum á ýmsum stöðum á landinu þar á meðal Skagaströnd, Stykkishólmi, Sauðárkróki, Keflavík, Þorláks- höfn, Akureyri, Siglufírði o.fl. o.fl. Hafði undirbúning og eftirlit með stækkun Þorlákshafnar 1962, landshafnar í Njarðvík 1963 og brimvamargarðs á Eyrarbakka. Gerði áætlanir og teikningar af bátagörðum og dráttarbraut í Stykkishólmi og á Akureyri. Kenn- ari við gagnfræðaskóla á Ákureyri og Verslunarskóla íslands. í sókn- amefnd Háteigssafnaðar frá 1960. Magnús var hagmæltur vel, en því miður held ég að fátt sé eftir hann skrifað. Þó gæti svo verið. Magnús var góðum gáfum gæddur og heill hafsjór af fróðleik, enda víðlesinn. Hann hafði frá bamæsku og til síðasta dags mikið yndi af lestri góðra bóka. Hann var trú- Hjalti Pálmason - Kveðjuorð hneigður með afbrigðum og hafði mikið lesið um trúmál. Magnús var drengur góður í orðsins fyllstu merkingu. Hann kvæntist 1930 hinni ágætustu konu, Eyþóru Sig- uijónsdóttur, jámsmiðs frá Siglu- fírði, og lifir hún mann sinn. Þau eignuðust þijú börn^ Ingibjörgu, Konráð og Kristjönu. I huga mínum mun ég ætíð geyma minningu úm mikinn drengskaparmann. Guð blessi minningu Magnúsar Kon- ráðssonar. Valdimar Tryggvason Fæddur 12. desember 1966 Dáinn 14. janúar 1986 Við sem unnum með Hjalta Pálmasyni vomm harmi slegin er við fréttum andlát hans. Hann var drengur góður og hans skarð verður vissulega vandfyllt. Þótt hann væri ekki hér fastavinnu-maður, þá þekktum við hann öll. Gott skap hans hafði góð áhrif á alla á þessum vinnustað, og við munum Iíka minnast þess hve músíkalskur hann var. Oft mátti heyra hann syngja eða bara raula svona með ef eitt- hvert lag var leikið í útvarpinu. Áhugamál hans voru mörg og margvísleg. Björgunarstörf munu hafa átt hug hans mest. Hann var einmitt á slíkri björgunaræfíngu er slysið bar að höndum. Það er erfítt að trúa því að Hjalti hafí verið frá okkur tekinn. En huggun er okkur í því að vita að Guð almáttugur mun hafa tekið á móti honum og í hans umsjá er hann, kannske mun betur en hægt væri í þessum heimi. Við vottum foreldrum hans og öðrum ættingjum innilega samúð. Megi minningin um góðan dreng lifa í bijóstum okkar. Starfsfólk saltverkunarhúss Þorbjarnar hf., Grindavík. í tilefni þess að hlutfallslega hafa selst fleiri Singer sauma- vélar á íslandi en nokkru hinna Norðurlandanna, bjóða verksmiðjumar 50 Singer saumavélar á sérstöku „tilefnisverði“, sem enginn annar býður 2ja ára ábyrgð mim &SAMBANDS1NS ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910-81266 Kirsten Rydahl, einn fremsti sérfræðingur Singer,leið- beinir viðskiptamönnum Rafbúðarinnar um mögu- leika Singer, föstudaginn 7. febrúar kl.14-18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.