Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1986 15 Iðntæknistofnunin og leikfangaverksmiðj an Alda VARNIR GEGN KRABBAMEINI KARLAR áhrif áhættuþátta erfdir KONUR erfdir áhrif áhættuþátta Matarædi áhættuþættir Reykingar □ Geislar pl útbláir & x-geislar LJ [] Atvinnusjúkdómar | [j Áfengi og tóbak | Hormónar [| áhættuþættir 100 50 % 50 % 100 MyndB ákveðin trefjaefni, en að það gildi um allar gerðir. Rannsóknir sýna einnig að áfengisneysla, einkum með síga- rettureykingum, getur stuðlað að lifrarskemmdum og þannig rutt æxlismyndun í lifur braut. Tengsl mataræðis og krabbameins En er þá hægt að skýra breyt- ingar á tíðni krabbameins hér á landi út frá breytingum f matar- æði? Svarið er: Já, sennilega að hluta. Þannig stafar lækkunin á magakrabba án efa af minni neyslu á reyktum og söltuðum mat og aukinni neyslu á garð- ávöxtum (C-vítamín). Aukning bijósta-, blöðruháls- og ristilkrabbameins stafar lík- lega m.a. af aukinni neyslu á fitu e.t.v. sérstaklega á ofhitaðri (brasaðri) fitu. Hvers konar fæði? Það er einkar athyglisvert að ráðleggingar um mataræði til vamar gegn hjarta- og æðasjúk- dómum eiga býsna vel við um krabbamein einnig. í fyrsta lagi þyrftu íslendingar að draga verulega úr neyslu á fítu (þ.á m. ofhitaðri fítu), bæði til að spoma gegn krabbameini og hjartasjúkdómum. f öðm lagi þyrftu þeir að forð- ast reyktan, saltaðan, brasaðan og djúpsteiktan mat sem getur innihaldið ýmsa krabbameins- valda. í þriðja lagi þyrftu þeir að auka til muna neyslu á garðávöxtum (grænmeti og ávextir) og einkum þær tegundir sem innihalda mest af bætiefnum. Sérstaklega er mikilvægt að þeir neyti sem mest garðávaxta með lituðu kjöti, en það em t.d. gulrætur, tómatar, appelsínur, salat o.m.fl. Jafnframt þurfa þeir að auka til muna neyslu á trefjaefnum, með því að auka neyslu á grófu komi, bæði grófum brauðum og grófu morgunkomi. Síðast en ekki síst ættu þeir að auka neyslu á selen og kalki með því að borða meiri fisk, mjólk (böm og unglingar), léttmjólk og undanrennu (fullorðnir). Blaðinu hefur borist eftirfar- andi athugasemd frá Iðn- tæknistofnun íslands við Opið bréf til Alberts Guðmundsson- ar iðnaðarráðherra eftir Hall- grím Sveinsson, (Morgunblað- ið 23. janúar 1986): Vegna þeirra atriða sem snerta starf Iðntæknistofnunar íslands í grein Hallgríms telur stofnunin rétt að eftirfarandi komi fram: Leikfangaverksmiðjan Alda á Þingeyri leitaði 15. mars 1985 eftir aðstoð Iðntæknistofnunar við að koma framleiðslu sinni, leikfanga- bílnum Dúa, á markað erlendis. Iðntæknistofnun fékk í apríl sent eintak af bflnum, sem þá var þegar kominn í framleiðslu hjá fyrirtæk- inu. Mat stofnunarinnar var að hugmjmdin væri allrar athygli verð og framtak heimamanna jákvætt, en leikfangið var þó ekki talið markaðshæft á erlendum mörkuð- um í því formi, sem það þá var. Var Leikfangaverksmiðjunni Öldu skýrt frá þessu í bréfí dags. 18. aprfl 1985. í bréfínu segir m.a., að eigi að selja framleiðsluna úr landi verði að vinna markvisst og nýta alla tiltæka tækni í sölu og framleiðslu og er bent á ákveðin atriði varðandi söluleiðir, útlit, framleiðslu oggæði, sem fyrirtækið þurfi að skoða nán- ar. Sé Leikfangaverksmiðjan Alda tilbúin að fara leið sem þessa við að þróa framleiðsluna býst Iðn- tæknistofnun til að aðstoða hana á grundvelli skriflegs verksamnings, þar sem verkefnið sé skilgreint og áætlun gerð um kostnað stofnunar- innar. Leikfangaverksmiðjan Alda ósk- aði í maí eftir aðstoð Iðntæknistofn- unar samkvæmt skilyrðum og upp- lýsingum í þessu bréfi. Fór starfs- maður Trétæknideildar ITÍ til Þing- eyrar 4. júní og kynnti sér mála- vexti og aðstæður. I þeirri ferð kom „Stofnun fyrirtækis og uppbygging þess verð- ur að vera verk þeirra, sem að því standa; stofnanir geta aðstoðað en hvorki haft frum- kvæði, verndað fyrir samkeppni né galdrað fram óendurkræft fé.“ fram, að forráðamenn fyrirtækisins höfðu mikinn hug á að leita lána úr Iðnlánasjóði. Var þeim gerð grein fyrir, að sjóðurinn veitti eingöngu lán til vöruþróunar og skyldra verk- efna, en aldrei til rekstrar. Framhald þessarar ferðar og annarrar heimsóknar tveggja full- trúa Iðntæknistofnunar, sem voru á ferð um Vestfirði í júní, var að starfsmenn Trétæknideildar og Rekstrartæknideildar ITÍ unnu sameiginlega að rekstraráætlun, markaðskönnun á innanlandsmark- aði, aðstoðuðu við lánsumsókn vegna ráðgerðrar vöruþróunar og bentu á leiðir til að gera vöruna markaðshæfari. Endanlega var gengið frá lánsumsókn til Iðnlána- sjóðs á grundvelli markaðsathug- ana og rekstraráætlunar í byijun ágúst og í september svöruðu starfsmenn fyrirspumum sjóðsins og leituðu frekari upplýsinga. Iðn- lánasjóður hafnaði umsókn Leik- fangaverksmiðjunnar Öldu um miðjan nóvember, að því er fram kemur í Opnu bréfi Hallgríms. Hallgrímur Sveinsson átelur í grein sinni einkum tvennt í þessu sambandi: Annars vegar seinagang við afgreiðslu málsins og hins veg- ar, að greiða skuli þurfa fyrir þjón- ustu Iðntæknistofnunar. Um tímalengdina er því til að svara, að það er stórt skref frá smíði nokkurra hundraða eintaka fyrir heimamarkað á ári á litlu verkstæði til hugsanlegrar verk- smiðjuframleiðslu til útflutnings og margt, sem kanna þarf í því sam- bandi. Slfld tekur einfaldlega þó nokkum tíma að meta, bæði fyrir Iðntæknistofnun og síðan fyrir Iðnlánasjóð. Varðandi fjárhagshliðina verður að benda á, að Iðntæknistofnun er á fjárlögum gert að afla eigin tekna á móti framlagi ríkisins, 48% af heildartekjum á árinu 1985, yfír 50% á árinu 1986. Stofnunin er því ekki fús til að vinna endurgjalds- laust eða _ án verksamnings fyrir fyrirtæki. í þessu tilfelli var þó tekið tillit til, að enginn iðnráðgjafi er starfandi á Vestfjörðum og var vinna starfsmanns stofnunarinnar. á Þingeyri því látin í té án sérstakr- ar greiðslu, en ferð og uppihald var kostað af Fjórðungssambandi Vest- Qarða í samráði við Iðnþróunarfélag Vestfjarða. Samtals hafa_ starfsmenn Iðn- tæknistoftiunar íslands unnið 82,5 klst. vegna þessa verkefnis. Enginn reikningur hefur verið sendur til Leikfangaverksmiðjunnar Öldu vegna þessarar vinnu. Er það bæði vegna þess að Iðntæknistofnun vildi koma til móts við nýgræðing í eina landshlutanum, þar sem engin iðn- ráðgjöf er fyrir hendi, og ekki síður vegna hins, að starfsmönnum stofn- unarinnar fannst framtak stofn- enda Leikfangaverksmiðjunnar Öldu áhugavert og töldu, að byggja mætti á hugmyndinni fyrirtæki ef rétt væri á málum haldið. En stofn- un fyrirtækis og uppbygging þess verður að ve~a verk þeirra, sem að því standa; stofnanir geta aðstoðað, en hvorki haft frumkvæði, vemdað fyrir samkeppni né galdrað fram óendurkræft fé. Brids Arnór Ragnarsson Bridsfélag Akureyrar Dísa Pétursdóttir og Soffía Guðmundsdóttir sigruðu í baro- meterkeppninni eftir hörkukeppni í lokaumferðum. Til marks um keppnina má nefna að þegar fjór- um umferðum var ólokið skildu 7 stigmilli 1. og 4. sætis. Alls tóku 40 pör þátt í keppn- inni og voru spiluð 3 spil milli para. Lokastaðan: Soffía Guðmundsdóttir — Dísa Pétursdóttir 420 Stefán Ragnarsson — Kristján Guðjónsson 392 Gunnlaugur Guðmundsson — Magnús Aðalbjömsson 352 Ami Bjamason — Öm Einarsson 350 Þormóður Einarsson — Kristinn Kristinsson 262 Ólafur Ágústsson — Pétur Guðjónsson 218 Stefán Sveinbjömsson — Máni Laxdal 214 Jóhann Gauti — Sveinbjöm Jónsson 193 Þórarinn B. Jónsson - PállJónsson 196 Arnar Daníelsson — Stefán Daníelsson 130 Keppnisstjóm var í höndum Alberts Sigurðssonar en reikni- meistari var Margrét Þórðardótt- ir. Til gamans má geta þess að Kristján Guðjónsson sem varð í 2. sæti ásamt Stefáni Ragnars- syni og Pétur Guðjónsson sem varð í 6. sæti ásamt Ölafi Ágústs- syni em synir Dísu Pétursdóttur. Það hefir einhvem tíma verið tekið í spil á þeim bæ. Næsta mót BA verður Sjóvá sveita-hraðkeppni sem hefst 11. febrúar nk. Spilað verður í 4 eða 5 kvöld. Þátttökutilkynningar þurfa að berast til stjómarinnar fyrir kl. 20 á sunnudaginn. Sjóvá gefur glæsileg verðaun til þessar- ar keppni. Spilað verður í Félags- borg að venju og hefst spila- mennskan kl. 19.30. íslandsmót kvenna og' yngri spilara íslandsmót kvenna og yngri spilara í sveitakeppni verður hald- ið fyrstu helgi í mars, dagana 1. og 2. mars, í Gerðubergi í Breið- holti. Spilamennska hefst kl. 13 á laugardeginum, en fyrirkomu- lag að öðm leyti byggist á þátt- töku hveiju sinni. Þó er stefnt að þvi að allir spili v/alla í undan- rásum og 4 efstu sveitir úr hvor- um flokki komist í úrslit sem verða spiluð næstu helgi á eftir í Drang- ey v/Síðumúla 35. Skráning er hafin hjá Brids- sambandi Islands og lýkur skrán- ingu miðvikudaginn 26. febrúar nk. Þátttökugjaldi verður stillt í hóf að venju, og keppnisstjóri verður Agnar Jörgensson. Spilað er um gullstig f þessum mótum, auk verðlauna fyrir efstu sveitir. "0^ f f - V' \ / .. w X BÍ IWKl. FQRSVARSMENN FYRIRTÆKJA - ALMENNINGSTENGSL SAMSKIPTIVIÐ FJÖLMIÐLA í nútímaþjódfélagi getur skipt sköpum fyrir fyrirtæki, stofnanirog félög, að forsvarsmenn þeirra geti komið skoðunum slnum á framfæri í fjölmiðlum. Til þess þurfa þeir að þekkja fjölmiðlun, uppbyggingu og starfshætti fjölmiðla og umfram alltað kunna að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á þann háttað þau veki eftirtekt. Á þessu námskeiði verður fariðyfir þessi atriði og leiðbeint um undirstöðuatriðin í að koma upplýsingum á framfæri, bæði f rituðu og töluðu máli. Meðal annars gefst þátttakendum kostur á að spreyta sig fyrir framan sjónvarpsvél. Markmið: Að þátttakendur verði betur (stakk búnir til að hafa samskipti við fjölmiðla, aö koma sjónarmiðum sínum á framfæri við þá og meta hvar og hvernig það á að gera. Efni: - Starfsemi hljóðvarps og sjónvarps - Dagblöð og tímarit - Gerð fréttatilkynninga - Blaðamannafundir - Samskipti við blaða- og fréttamenn - Framkoma í sjónvarpi og útvarpi Leiðbeinendur: Magnús Bjarnfreðsson, Helgi H.' Jónsson, Björn Vignir Sigurpálsson, Vilhelm G. Kristinsson — allir starfsmenn Kynn- ingarþjónustunnar sf. og með margra ára reynslu á flestum sviðum fjölmiðlunar. Tími: 10.-11. febrúar kl. 9-13 fyrri daginn og 9—12 seinni daginn. Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 ■ Sími 6210 66 •s^u.Jua. i - wjtaw

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.