Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1986 35 Minning: GuðmundurK. Gísla- son vélstjóri Guðmundur Katarínus Gíslason, vélstjóri fæddist að Þorgilsfelli, Staðarsveit, Snæfellsnesi 23. janúar 1902, sonur merkishjóna, Gísia Magnússonar og Guðbjargar Jó- hannesdóttur, er lengst bjuggu að Kirlqufelli í Grundarfírði. Systkini hans voru Margrét, Kristján, Her- dís og Magnús sem nú er látinn. Guðmundur varð bráðþroska, mikill efnismaður af merkri ætt sunnan Breiðafjarðar. Hann fluttist ungur til sjóróðra að Hellissandi til Am- gríms Amgrímssonar útvegsbónda frá Stórhellu við Sand. Hann þótti afburða duglegur til allra starfa hvort sem var á sjó eða á landi. Hann fór á vertíðir á vélbáta frá Suðurlandi og ísafírði sem vélstjóri, þar til hann giftist 27. des. 1925 Ágústu Jónasdóttur frá Búðum á Snæfellsnesi. Ágústa fæddist 24. ágúst 1904. Þau hófu búskap í Ól- afsvík. Þar eru elstu böm þeirra fædd. Frá Ólafsvík fluttust þau til Keflavíkur þar sem Guðmundur var vélstjóri á bátum er gengu þaðan. Síðan fluttust þau að Framnesvegi 24 í Reykjavík og bjuggu þar lengst. í Keflavík misstu þau elstu dóttur sína, Önnu er var 10 ára. Hún fórst er samkomuhús brann þar. Böm þeirra eru: Egill, giftur Guðlaugu Sveinsdóttur, Ólafsvík, Guðbjörg, gift Jóni Alexanderssyni, viðskipta- maður, Jónas, giftur Lám Ólafs- dóttir, skipstjóri og útgerðarmaður, Ólafsvík, Jón, giftur Guríði Áma- dóttur, bílstjóri í Reykjavík, Guð- mundur Anton, giftur Jónu Korts- dóttur, útgerðarmaður í Reykjavík, Anna, gift Donald Lucas, sölumað- ur, búsett vestan hafs, Gísli Finn- bogi skipstjóri, giftur Elísabetu Magnúsdóttur, Stefanía, gift Steph- an Sykes Rockseter, vélaverkfræð- ing, búsett í Bandaríkjunum. Gústaf Geir var næst yngstur, hann dó 16 ára á sfldveiðum við Norðurland. Auk sinna tíu bama áttu þau 47 bamaböm og 52 bamabamaböm, það er 109 afkomendur. Guðmund- ur missti konu sína, Ágústu, 5. maí 1981. Áður hafði heilsa hans bilað af heilablæðingu. Við andlát hennar fluttist hann að Hrafnistu og dvaldist þar til dauðadags, 31. janúar 1986. Ég, sem þessar línur rita, átti Guðmund sem persónulegan æsku- vin, tryggan félaga og starfsbróður um áratug. Hann var hið mesta prúðmenni, afburða hraustur og kunni svo vel með að fara að aldrei blakaði hann hendi til nokkurs manns þótt tilefni gæfist, var eftir- sóttur vélstjóri og farsæll í því starfí. Það vora glæsileg hjón þegar þau giftust Guðmundur og Ágústa. Hún var einnig fríðleikskona, um dugnað þarf ekki að spyija, það þarf meira en lítið þrek til að stjóma stóru heimili, ala upp tíu böm, sjá um skólalærdóm og skólagöngu, þegar heimilisfaðirinn þurfti vegna starfs síns svo tímum skipti, að vera úti á sjó og öll vandamál hlóðust á herðar konunnar. Það skiptust á skin og skúr á lífsbraut þeirra hjóna. Til viðbótar við þá miklu erfíðleika sem alda- mótakynslóðin hefur orðið að ganga í gegnum, bætist, að þau misstu vegna slysfara, tvö af sínum efni- legu bömum, dóttir 10 ára, son 16 ára sem fyrr er getið, einnig varð Guðmundur fyrir miklu slysi vegna sjirengingar í skipi er hann var á. Á seinni hluta ævinnar, vora þau bæði farin á heilsu. En hamingjusól þeirra lýsti frá hinum glæsilega og stóra hóp bama, bamabama og tengdafólks sem þeim hafði tekist afburða vel að ala upp og koma til þroska. Það er mikið ánægjuefni, þegar lífsþreyttur, gamall maður, sjúkur, án vonar um bata, fær þráða hvfld. Guðmundur Gíslason var sá úr hópi aldamótamanna sem hefur skilað þjóð sinni til heilla, stóra dagsverki, unnu af trúmennsku og dyggð, án eigingimi. Ég áma þeim elskulega vini heilla á braut sinni til hins æðra og fullkomnara lífs á þroskasviðum eilífðarinnar. Karvel Ögmundsson Guðrún Þ. Þorkels- dóttir - Minning Fædd 14. apríl 1905 Dáin 24. desember 1985 Foreldrar Guðrúnar Þóra vora hjónin Kristín Jónsdóttir og Þorkell Guðmundsson. Ólst Guðrún upp hjá afa sínum og ömmu frá unga aldri, lengst af í vesturbænum, enda systkinin mörg eða 9 talsins og er eitt látið, Margrét. Guðrún er önnur sem yfirgefur þetta líf, og er komin til almáttugs Guðs, en það var það sem hún þráði eftir löng og ströng veikindi um árabil. Guðrún Þóra giftist Magnúsi Ólafssyni 14. októ- ber 1933 og var það hjónaband til mikillar fyrirmyndar. Mann sinn missti Guðrún Þóra 26. júní 1965 og var það mikið áfall fyrir hana. En enginn veit hvenær kallið kem- ur, og oft þegar síst skyldi. Guðrún Þóra var með okkur hjónunum á aðfangadagskvöld eins og síðustu árin, og virtist hún kát og hress að vanda og ekki granaði neinn að það væri síðasta kvöldið sem við væram með henni. Guðrún Þóra og Magnús tóku stúlkubam í fóstur aðeins mánaðargamla og ættleiddu þau hana, hún var skírð Guðrún Halldóra. Guðrún Þóra eignaðist 5 bamaböm og 5 bamabamaböm sem hún dáði mjög mikið. Ég kynnt- ist Guðrúnu Þóra fyrir um 10 áram og var okkar samkomulag alltaf með miklum sóma, enda ekki hægt annað en að lynda við hana. Hún hafði yfír miklum persónuleika að ráða, blíð og skilningsrík. Alltaf var hún boðin og búin að hjálpa ef kraftur og geta leyfðu. Bið ég al- góðan Guð að styrkja alla þá sem vora henni nákomnir og sérstaklega vil ég þakka nágrönnum hennar að Hátúni lOb 7. hæð sem reyndust henni sérstaklega vel í veikindum hennar. Veit ég að algóður Guð tekur vel á móti Guðrúnu og verða endurfundir hennar og Magnúsar ánægjulegir, því mikil ástúð ríkti milli þeirra. Bið ég Guð að geyma Guðrúnu og þakka ég henni fyrir ánægjuleg kynni sem ég hefði viljað að orðið hefðu lengri, en Guð tekur í taumana þegar síst skyldi því vegir hans era órannsakanlegir. Megi Guð styrkja alla þá sem eiga um sárt að binda. Pétur Sigurðsson TOYOTA TERCEL 4WD fer ótroðnar slóðir. Hann er stórskemmtilegur bœjarbíll með mikið flutningsrými, auk óvenjulegrar fjölhœfni, enda með drifi ó öllum hjólum. Þegar fœrð og veður gera akstur erfiðan, ekur þú leiðarþinnar þœgilega og óhyggjulaust. Tœkni TOYOTA við smíði bílvéla sérTERCEL 4WD fyrir nœgu afli en lógmarks eldsneytiseyðslu. TERCEL4WD SPECIAL SERIES ersérbúinn bíll, þarsem saman fara aukin þœgindi og útlit sem vekur athygli. Renndu við í reynsluakstur og þú sannfœrist um að'TERCEL 4WD SPECIAL SERIES er hverrar krónu virði. J J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.