Morgunblaðið - 07.02.1986, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
félk í
fréttum
Nýr
fjölskyldu-
meðlimur
Það eru rúmlega
tveir mánuðir
síðan Candice Bergen
og Louis Malle
eignuðust dótturina
Chloe. Móðirin er
ekkert að flýta sér í
kvikmyndaleikinn,
heldur nýtur þess að
vera heima og sjá um
ijölskylduna. „En það
kemur þó að því fyrr
eða seinna að ég fer að
vinna aftur, því ég get
ekki hugsað mér að
hætta alveg."
Hún á rúmlega 8000
myndir af kóngafólkinu
3að eru margir út um víða veröld sem lifa og hrærast í því sem
þekkta fólkið er að gera hveiju sinni. Judy Haywood sem vinnur
við hreingemingar á neðanjarðarbrautarstöð í London hefur sérstaka
ást á enska kóngafólkinu og á nú um átta þúsund myndir af því.
Iðulega ferðast hún margar klukkustundir til að ná myndum af
fólkinu og eftir að hafa fylgt því eftir um árabil hefur hún rætt
við alla meðlimi konungsfjölskyldunnar nema einn, Díönu. Hún
heldur mikið upp á alla innan fjölskyldunnar, en einna vænst þykir
henni nú um drottninguna. Slúðursögur um fólkið tekur hún
afskaplega nærri sér og segir: „Ef ég hefði ekki sjálf fylgt þessu
fólki eftir og vissi hvemig það hagar sér myndi ég eflaust trúa
þessum gróusögum. En það er enginn fótur fyrir mörgum af
þessum ljótu sögusögnum og ég fyrirlít þær. Já, þau eru mismun-
andi áhugamálin, sem mannfólkið hefur.
Judy Haywood fylgir
kóngafóikinu eftir, til
dæmis í um það bil 160
opinberar heimsóknir. Það
eru tólf ár síðan Judy fór
að taka myndir af fólkinu.
„Ég man fyrst þegar ég
ávarpaði drottninguna sem
þá var nýorðin amma. Ég
sagði einfaldlega: Halló
amma, og hún hallaði sér
aftur á bak og skellihló.
Drottningin er mitt
uppáhald."
Varð milljónamæringiir
á frístundagamni sínu
Franskur flugþjónn að nafni Daniel Martin dundaði sér við það í frí-
stundum að búa til úr leir eftirlíkingar af húsum vina sinna. Einu
sinni þegar hann var staddur í New York sýndi hann svo forráðamönnum
Tiffany’s vinnu sína og það var ekki að sökum að spyija, verkefnin hafa
hlaðist upp síðan og drengurinn orðinn milljónamæringur á þessu tóm-
stundagamni sínu. Nú flýgur Martin heimshoma á milli, en ekki sem
flugþjónn heldur í boði efnaðs fólks, sem vill fá hann til að gera eftirlík-
ingu af eignum sínum. Meðal viðskiptavina hans eru til dæmis Elton
John, Malcolm Forbes og Ann Gitty.
Jón Þór Sveinsson,
Gunnar Smárason,
Lárus Guðbjartsson
og Hulda Brá
Magnadóttir ásamt
ungum nemanda,
Heiðveigu Hönnu.
LITIÐINNI
SKÍÐASKÓLANN
BLÁFJÖLLUM
„Þú verður að beygja
þig aðeins ...
Morgunblaðið/Júlíu8
Nýlega tóku sig til þrír vaskir
sveinar og ein stúlka og
stofnuðu Skíðaskólann í Bláfjöll-
um. Að vísu var starfræktur skóli
þar áður, en þá gekk hann undir
nafninu Skíðaskóli Ármanns.
Unga fólkið heitir Gunnar
Smárason, Jón Þór Sveinsson,
Lárus Guðbjartsson og Hulda Brá
Magnadóttir, öll á aldrinum 17 til
23 ára.
Þegar litið var til þeirra fyrir
skömmu og þau innt eftir starf-
seminni sögðu þau að tveggja
tíma námskeið væru þijú kvöld í
viku og um helgar og svo væri
ætíð möguleiki á einkakennslu.
Aðspurð um aldur þátttakenda
sögðu þau hann vera allt frá smá-
bömum og upp í gamalt fólk,
enda væri ekki til neitt sem kalla
mætti of seint eða of snemma
fyrir skíðafólk. Þá sögðu þau að
starfsmannahópar og félagasam-
tök kæmu líka og nytu tilsagnar.
Þeir Jón og Gunnar em ný-
komnir frá Noregi þar sem þeir
nældu sér í þjálfararéttindi, en
öll hafa þessir krakkar er að skól-
anum standa, stundað skíða-
mennskuna í Qölda ára og keppt
ótal sinnum í íþróttinni.