Morgunblaðið - 07.02.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
íslenskum rithöfundi
vísað úr landi á Italíu
— í kjölfar hertra öryggisreglna um
dvalarleyf i útlendinga
AUÐI Haralds, rithöfundi, hefur
verið vísað úr landi á Italíu í
kjölfar hertra reglna um dvalar-
leyfi útlendinga þar í landi.
Hass 1 „nesti“
í veiðiferð
TVEIR skipverjar á togara
voru reknir á þriðjudags-
kvöldið eftir að hass fannst í
fórum þeirra. Lögreglumenn
fíkniefnadeildar lögreglunnar
leituðu að fíkniefnum í togar-
anum skömmu áður en hann
lagði upp í veiðiferð úr Hafn-
arfjarðarhöfn. Á skipveijun-
um fundust liðlega 30 grömm
af hassi, sem þeir höfðu ætlað
að hafa með sér sem „nesti“.
Á þriðjudagskvöldið voru
fertug kona og 25 ára gamall
maður handtekin á Keflavíkur-
flugvelli. í vösum konunnar
fundust 160 grömm af hassi.
Þau voru handtekin. Maðurinn
átti fíkniefnin og hafði konan
tekið að sér að koma þeim inn
í landið. Þeim hefur verið sleppt
úr haldi.
Auður hefur dvalið við ritstörf á
Ítalíu í hálft annað ár og hefur
fram til þessa fengið dvalarleyfi
sitt framlengt án athugasemda
italskra yfirvalda.
Auður mun upphaflega hafa farið
fram á að fá vegabréfsáritun til
Ítalíu, en var þá sagt að þess þyrfti
ekki. Hún fór því til landsins með
ferðamannavegabréf og hefur með
reglulegu millíbilí fengið dvalarleyfl
sínu framlengt. Að sögn aðalræðis-
manns íslands í Róm, Dr. Lorenzo
LaRocca, hefur eftirlit með útlend-
ingum á Ítalíu verið mjög hert í
kjölfar hermdarverka líbanskra
hryðjuverkamanna á flugvellinum í
Róm um síðustu jól og verða menn
nú að hafa sérstaka vegabréfsárit-
un til að dvelja lengur í landinu en
þijá mánuði í senn.
Ekki reyndist unnt að ná síma-
sambandi við Auði Haralds í gær
en systir hennar, Elly Palmara, sem
býr í Róm, sagði í samtali við
Morgunblaðið að íslensk yfírvöld
ynnu nú að því að útvega Auði
vegabréfsáritun og væru þær systur
ekki úrkula vonar um að úr rættist
þannig að Auður gæti dvalið áfram
í landinu.
Skúlagötuskipulagið
samþykkt í borgarstjórn
Á borgarstjómarfundi í gær-
kvöldi var felld tillaga frá minni-
hlutanum þess efnis, að borgar-
stjórí hafi ekki haft heimild til
þess að tilnefna alla fuUtrúa
borgarinnar í stjóm Granda hf.
heldur hafi borgarstjóm átt að
kjósa þá í lýðræðislegrí hlut-
bundinni kosningu. Minnihlutinn
hafði áður kært málið tU félags-
málaráðuneytisins, sem visaði
málinu frá þar sem það hafði
ekki faríð fyrir borgarstjóm.
nota ráðuneytið í pólitískum til-
gangi, sagði borgarstjór að lokum.
Umsögn Borgarskipulags um
athugasemdir, sem gerðar hafa
verið við skipulag Skúlagötusvæðis-
ins, voru hins vegar samþykktar á
borgarstjómarfundinum eftir mikl-
ar umræður. Verður málinu því vís-
að til Skipulagsstjómar ríkisins til
staðfestingar.
Morgunblaðið/Júllus
Við bensinstöð Skeljungs í Skógarhlíð. Lögreglan hefur stöðv-
að útsöluna. Á innfelldu myndinni sést að það fór ekki á miUi
mála. Bensínið var á „lága verðinu“.
Sjáifsali Skeljungs seldi ódýrt:
Nær 2.000 bensínlítrar
fóru á verði dísilolíu
ÞEIR kættust heldur bíleigend-
ur sem keyptu bensín á vildar-
kjörum úr sjálfsala Skeljungs
við Skógarhlíð í fyrrakvöld.
Sjálfsalinn seldi þeim bensín-
lítrann á sama verði og disilol-
íulitrann, 12.90 kr. í stað 34 kr.
sem er skráð verð bensíns.
Örlæti sjálfsalans virðist hafa
spurst út fljótlega eftir lokun
stöðvarinnar kl. 21.15. því brátt
myndaðist löng biðröð og höfðu
margir brúsa meðferðis undir
bensín. Slökkviliðsmenn á vakt í
Slökkvistöðinni undmðust fjöl-
mennið og höfðu samband við
lögregluna upp úr miðnætti. Hún
kom bráðlega á vettvang og
stöðvaði söluna. Einhverjir urðu
frá að hverfa bensínlausir og svo
fór það í skapið á einum þeirra
að hann rak hnefann f glerhjálm
bensíndælunnar og braut hann.
Maðurinn var handtekinn um-
svifalaust.
Menn frá Skeljungi komu síðan
um kl. 2.30 um nótttina og tóku
sjálfsalann úr sambandi.
Magnús Kristjánsson stöðvar-
stjóri í Skógarhlíð taldi koma til
greina að vitlaust verð hafl verið
skráð inn í tölvuna sem stjómar
sjálfsalanum. Upp undir tvö þús-
und lftra mun hafa farið á „lága
verðinu". Tjón Skeljungs mun þá
vera í námunda við 30.000 kr.
Ríkisviðskiptabankarnir:
Að sögn Siguijóns Péturssonar
(Abl) þá verður málið nú kært til
félagsmálaráðuneytisins að nýju.
Hann sagði að nú væri búið að
leggja málið fyrir borgarstjóm og
því ætti ráðuneytið að vera í stakk
búið til að fella efnisúrskurð um
málið.
Davíð Oddsson borgarstjóri sagði
hins vegar í viðtali við Morgun-
blaðið, að hér væri um pólitískan
hráskinnaleik að ræða. Hann sagði
að farið hefði verið eftir lögum í
öllum efnum enda lægi fyrir úr-
skurður frá ráðuneytinu er styddi
þá niðurstöðu. Eg harma að minni-
hlutinn skuli í kosningaham mis-
Fimmtungur skuldbindinga
lánþegunum
ÞÆR skuldbindingar sem ríkis-
viðskiptabankamir hafa tekið á
sig vegna fimm stærstu við-
skiptaaðila sinna er um 20% af
heildarfyrirgreiðslum þeirra.
Hjá Landsbankanum var þetta
hlutfall 19% þann 30. nóvember
síðastliðinn og 18% hjá Búnaðar-
bankanum og þann 30. júní var
hlutfallið 23% hjá Útvegsbankan-
um.
Þegar listi yfír fimm stærstu
lánþega ríkisviðskiptabankanna
kom fram í svari viðskiptaráðherra
við fyrirspum á Alþingi og var
birtur í Morgunblaðinu vakti at-
hygli hvað þessir aðilar eru með
miklar fyrirgreiðslur hjá bönkun-
um miðað við eigið fé þeirra. Þegar
litið er á fyrirgreiðslur til fímm
stærstu viðskiptamannanna hjá
hveijilm banka fyrir sig kemur svo
í ljós að þau eru með um fímmtung
af allri veittri fyrirgreiðslu þessara
banka.
Með fyrirgreiðslu eða skuid-
bindingum bankanna er átt við
Brottreksturinn á Fáskrúðsfirði:
útlán þeirra, endurlánað erlent
lánsfé og veittar ábyrgðir, innlend-
ar sem erlendar. Utlán Lands-
bankans voru 30. nóvember 16.755
milljónir króna, endurlánað erlent
lánsfé 8.934 milljónir og ábyrgðir
3.440 milljónir, samtals 29.129
milljónir króna. Af þessu vom
fímm aðilar með 5.522 milljónir,
eða tæp 19%. Stærsti lánþeginn
var með 1.500 milljónir króna, eða
rúm 5% af heildarskuldbindingum
Landsbankans.
Oeðlilegt að samkeppms-
aðili sé í kaupfélaginu
— segir Gísli Jónatansson, kaupf élagsstj óri á Fáskrúðsfirði
„STJÓRN kaupfélagsins hefur sýnt mikla þolinmæði í þessu
máli, en á annað ár er liðið síðan verslun Verkalýðsfélags Fá-
skrúðsfjarðar var sett á Iaggimar. Sá, sem er í beinni samkeppni
við kaupfélag, getur ekki verið félagi, því hann er í aðstöðu til
að hafa áhrif á gjörðir þess,“ sagði Gísli Jónatansson, kaupfélags-
stjórí á Fáskrúðsfirði í samtali við Morgunblaðið vegna fréttar
þess efnis, að Eiríkur Stefánsson, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Fáskrúðsfjarðar, hefði verið rekinn úr kaupfélaginu
fyrir að stofna verslun á þorpinu í samræmi við samþykkt félags-
fundar verkalýðsfélagsins á sínum tíma.
„Maðurinn var rekinn með vís-
an til laga kaupfélagsins. Úr
kaupfélagi má vísa hveijum þeim,
sem þar er að yfirvarpi og vinnur
gegn hagsmunum þess. Eiríkur
Stefánsson hefur starfað innan
kaupfélagsins og hefur hug á að
gera það áfram, þó hann sé í
beinni samkeppni við það.
Það er langur vegur frá, að við
viljum stuðla að einokun í verslun
á Fáskrúðsfírði. Raunar viljum
við, að verslun í þorpinu sé ekki
á einni hendi. En við treystum
því, að þeir sem eru í samkeppni
við kaupfélög séu í öðrum samtök-
um en okkar. Samkeppnisaðilar
okkar í verslun hafa gengið úr
samtökum okkar, eins og eðlilegt
hlýtur að teljast. Ég býst við að
það myndi teljast óeðlilegt ef
kaupfélagsmenn væru félagar í
samtökum samkeppnisaðila.
Raunar tel ég vafasamt, að
heimilt sé að nota íjármuni úr
orlofs- og sjúkrasjóðum verka-
lýðsfélagsins í stofnkostnað versl-
unar, en formaður Verkalýðs- og
Sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar
hefur sagt að svo sé. Benda má
á, að þessi gjöld eru að langmestu
leyti frá kaupfélaginu," sagði
Gísli.
- Margir félagar í verkalýðsfélag-
inu eru einnig í kaupfélaginu og
verslun verkalýðsfélagsins var
stofnuð á grundvelli samþykktar
félagsfundar. Hefur komið til tals
að reka þá líka?
„Nei,“ sagði Gísli Jónatansson,
framkvæmdastjóri.
Hjá Búnaðarbankanum leit
dæmið þannig út þann 30. nóvem-
ber að útlán voru 6.563 milljónir
króna, endurlánað erlent lánsfé
542 milljónir og veittar ábyrgðir
411 milljónir, samtals 7.516 millj-
ónir kr. Ifyrirgreiðsla við fímm
stærstu viðskiptavinina var 1.372
milljónir, eða rúm 18% af heildinni.
Ffyrirgreiðsla Búnaðarbankans við
stærsta viðskiptavininn nam 426
milljónum króna, eða rúm 5 >/2%
af heildar skuldbindingum bank-
ans.
Þann 30. júní sl. voru útlán
Útvegsbankans 4.159 milljónir
króna, endurlánað erlent lánsfé
3.242 milljónir og ábyrgðir 985
milljónir, samtals 8.386 milljónir
króna. Fyrirgreiðsla við fímm
þurftafrekustu viðskiptavinina
nam 1.946 milljónum, eða rúmlega
23% af heildinni. Fyrirgreiðsla
Útvegsbankans við stærsta við-
skiptavininn nam 719 milljónum
króna, eða um 8 °/i% af heildar-
skuldbindingum bankans.