Morgunblaðið - 07.02.1986, Side 4

Morgunblaðið - 07.02.1986, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986 Boðaðar aðgerðir kennara í KI eftir helgina: HÍK hafnaði tilboði fjármálaráðherra — menntamálaráðherra óskar eftir viðræðum nefndar beggja aðila Loðnuveiðin: Beitir NK með 1.250 lestir DAUFT er yfir loðnuveiðum um þessar mundir. Síðdegis á fimmtudag höfðu aðeins tvö skip tilkynnt um afla, en á miðviku- dag varð aflinn 10.130 lestir af 14 skipum. Engin norsk loðnuskip eru nú að miðunum, en alls hafa um 60 norsk skip fengið hér tæpar 50.000 lestir. Ekki er vitað hvort einhver fleiri skip eru væntanleg á miðin hér. Auk þeirra skipa, sem áður hefur verið getið, tilkynntu eftirtalin um afla á miðvikudag; Keflvíkingur KE, 540, Gullberg VE, 600, Albert GK, 500 og Beitir NK 1.250 lestir. HIÐ íslenska kennarafélag treystir sér ekki „að svo stöddu“ til að taka tilboði fjármálaráðu- neytisins um að Bandalag kenn- arafélaga fari með sameiginleg- an samningsrétt fyrir kennara í HÍK og Kennarasambandi ís- lands. Þetta kom fram i svari HÍK til fjármálaráðuneytisins i gærmorgun, að því er Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins um boðaðar aðgerðir félaga i Kennarasambandi íslands. í blaðinu í gær var greint frá ákvörðun félaga í KÍ um að hafi laun þeirra ekki verið færð til jafns við laun félaga í Hinu íslenska kennarafélagi (BHM) fyrir mánu- daginn 10. febrúar, megi búast við að röskum verði á skólastarfí um allt land. Kennarasambandið hefur lýst allri ábyrgð á hendur íjármála- ráðherra falli skólahald niður af þessum sökum. Kári Amórsson, talsmaður að- gerðanefndar KÍ, sagði í viðtali í blaðinu í gær að með aðgerðum sínum væru kennarar að leggja áherslu á að staðið væri við loforð um að sá 5% munur, sem er á launum kennara í KÍ og HÍK, yrði að engu. Því hafí fyrst verið lofað af fyrrverandi fjármálaráðherra 24. júlí í sumar. Þorsteinn Pálsson sagði að af hálfu fjármálaráðuneytisins hafí Bandalagi kennarafélaga verið boðið að fara með samningsrétt fyrir félaga í KÍ og HÍK í Ijósi þess, að kjör kennara yrðu ekki samræmd til frambúðar nema fyrir þá gilti einn og sami samningurinn; að öðrum kosti væri stöðug hætta á að misræmi væri í launum þeirra. „Nú í rnorgun fengum við það svar, að HÍK treysti sér ekki, að svo stöddu, að taka þessu tilboði. Við munum reyna að fá niðurstöðu í þetta mál eftir samningaleiðum," sagði ráðherrann, „en þegar þetta svar liggur fyrir er ljóst, að lausn fæst ekki á grundvelli samninga milli Bandalags kennarafélaga og ráðuneytisins. Það harma ég — en vil leggja áherslu á, að tilboðið stendur enn. Við stefnum að því að taka ákvörðun um þetta mál í næstu viku í tengslum við þær samningaviðræður, sem eru á döf- inni.“ Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra sagðist gera sér vonir um að ekkikomi til boðaðra aðgerða kennara. „Ég skil óþolinmæði þeirra í þessu máli,“ sagði menntamála- ráðherra, „og því hef ég sent sam- tökum þeirra bréf, þar sem ég óska eftir viðræðum og legg til að stofn- uð verði nefnd til að ræða um launa- mun á milli þessara félaga. Ef ekki tekst að leysa þessi mál leiðir það til ófamaðar — og sérstaklega bitn- ar það á bömum og unglingum. Þess vegna verður að fínna lausn á þessum málum,“ sagði Sverrir Hermannsson. Húsfyllir á fundi námsmanna í Háskólabíói: Hugmyndir um vexti og styrki til útvaldra nemenda gagnrýndar HÚSFYLLIR var I Háskólabíói í gær er Bandalag islenskra sérskólanema, Iðnnemasam- band Islands, Samband is- lenskra námsmanna erlendis og Stúdentaráð Háskóla Islands efndu til fundar um málefni Lánasjóðs íslenskra náms- manna (LÍN). Framsögumenn á fundinum auk fulltrúa þessara samtaka námsmanna voru menntamálaráðherra, þing- menn úr Framsóknarflokki, Alþýðubandalagi, Bandalagi jafnaðarmanna og Kvennalista auk formanns Félags ungra jafnaðarmanna sem mætti fyrir hönd Alþýðuflokksins. í máli Sverris Hermannssonar menntamálaráðherra kom fram að honum þætti menn vera fljótir að koma fram með gagnrýni á tillögumar um breytingar á Lána- sjóðnum þar sem þær væru ekki komnar fram. Hann sagði að höfuðmarkmið námslána væri að tryggja að allir hefðu jafnan rétt til náms og að höfuðstefnumið sjóðsins yrði óbreytt í nýju tillög- unum. Sverrir sagði að þegar stjómarflokkamir væru búnir að fínna flöt á málinu væri hann tilbúinn til að ræða við fulltrúa námsmanna um tillögumar. Til- lögumar verða lagðar fyrir þing- flokka ríkisstjómarinnar á mánu- daginn. Bjöm R. Guðmundsson frá SÍNE sagði tillögur um breytingar á sjóðnum slæma hugmynd sem ekki leysti vanda hans. Hann taldi ekki tryggt að fjárhagsvandi sjóðsins myndi leysast með þess- um breytingum. Kristinn H. Einarsson frá Iðn- nemasambandinu lagði áherslu á að LÍN fengi að starfa í sinni upprunalegu mynd, það myndi tryggja jafnan rétt allra til náms. Steingrímur J. Sigfússon þing- maður Alþýðubandalagsins gagn- rýndi franjgang Sverris Her- mannssonar í- málefnum Lána- sjóðsins og mælti gegn tillögunum sem hann taldi hefta jafnrétti til nams. Guðmundur Einarsson þingmaður Bandalags jafnaðar- manna og Kristín Halldórsdóttir þingmaður Kvennalistans gagn- rýndu hugmyndir um að miða lán- veitingar við „þjóðhagslega hag- kvæmt nám“ og töldu að erfítt væri að dæma um hvaða nám það væri. Guðmundur sagði að hefðu hugmyndir þær, sem nú er verið að ræða, um endurgreiðslur námslána alltaf gilt vantaði þá sérfræðinga sem væru á Islandi í dag, enginn þeirra hefði haft efni á að fara í nám. Kristín hvað þetta mál vera kvennamál, enda færu konur verst út úr því ef ekki verður tekið tillit til tekna við úthlutun námslána. Jón Bjami Guðsteinsson frá Bandalagi íslenskra sérskólanema sagði að sérskólanemar myndu ekki sætta sig við vexti ofan á verðtryggð lán. Guðmundur Auð- unsson frá Stúdentaráði Háskðla íslands sagði að rneð tillögum menntamálaráðherra væri verið að leggja niður Lánasjóðinn og búa til sjóðslíki í staðinn. Hann sagði að tillögumar væm aðför gegn grundvallarhugmynd náms- lána sem væri jafnrétti til náms og stúdentar myndu ekki sætta sigVið það. Davíð Bjömsson formaður Fé- lags ungra jafnaðarmanna sagði að Alþýðuflokkurinn hefði ekki mótað heildarstefnu í málefnum Lánasjóðsins, en verið væri að vinna að því. Hann tók það fram að Alþýðuflokkurinn væri á móti því að fólki væri refsað fyrir að vinna þegar námslánum væri út- hlutað og að setja þyrfti þak á lán þannig að ekki væri hægt að taka lán nema upp að vissri upphæð. Haraldur Ólafsson þingmaður Framsóknarflokksins taldi að rík- ið yrði enn um sinn að kosta nám íslenskra stúdenta. Hann sagðist vona að góð lausn fengist á þess- um málum og tekið yrði tillit til hugmynda framsóknarmanna um þær. ’ í lok fundarins var samþykkt ályktun þar sem eftirfarandi kom fram: Aðför menntamálaráðherra að Lánasjóði íslenskra náms- manna er harðlega fordæmd; skorað er á menntamálaráðherra að afnema reglugerðina frá 3. janúar um frystingu námslána; Hugmyndum um vexti, inn- heimtugjöld og lántökugjöld af námslánum er hafnað, þar sem þau eru talin fyrsta skref í þá átt að gera lánasjóðskerfíð að hluta hins almenna bankakerfis; fund- urinn fordæmir að komið verði á styrkjakerfi fyrir útvalda nemend- ur, slíkt muni aðeins auka á ójafn- rétti til náms meðan ríkisvaldið treystir sér ekki til að veita náms- mönnum lán sem á þeim eiga fullan rétt. Að lokum harmar fundurinn vinnubrögð Sverris Hermannssonar menntamálaráð- herra við endurskoðun á lögum um námslán og námsstyrki og skorar á ráðherra að taka upp lýðræðislegri vinnpbrögð. • y;.; —... Krafa um kaupmátt ogtryggingu: Ekkert þokast í samkomu- lagsátt EKKERT hefur enn þokast í samkomulagsátt um kaupmátt og kaupmáttartryggingar í samningaviðræðum Alþýðusam- bandsins og samtaka atvinnurek- enda. Samningamenn munu vinna í undimefndum í dag og áfram um helgina. Nýr fundur í stóru samn- inganefndunum hefur verið boðaður eftir hádegi á mánudaginn, að því er segir í sameiginlegri yfírlýsingu frá ASÍ, VSÍ og VMSS, sem gefín var út eftir nær fimm klukkustunda langan samningafund í gær. I yfírlýsingunni segir að á samn- ingafundinum í gær hafí verið rætt um hvemig bæri að vinna að málum eftir svar ríkisstjómarinnar í gær. Samningamenn urðu ásáttir um að „skoða efnisatriði frekar í efna- hagsmálanefnd aðila á morgun og um helgina. Jafnframt var ákveðið að vinna í undimefndum um lífeyr- ismál og húsnæðismál,“ segir í yfír- lýsingunni. Bæ, Höfðaströnd: Aukin selagengd Bæ, Höfðaströnd 6. febrúar FÓLK getur verla dásamað veður- blíðuna hvem nú eins og unnt er, því logn og blíða er á hveijum degi. Þó ekki séu hér nein gömul selalát- ur, hefur nú annað brugðið við, en var, því einn dag nú er ég gekk niður að sjó, sá ég í gömlu uppsátri frá Bæ 7 seli að leik, sem sýnilega vom ánægðir í veðurblíðunni. Sagt er mér að mikið sé af sel víða, sér- staklega við úteyjar á Skagafírði. Aðeins einn bátur er nú gerður út á skelveiði frá Hofsósi og gengur sú veiði mjög sæmilega. Eins og ég hef áður sagt frá er silgungsveiði hér nú undan ís í Höfðavatni mjög sæmileg. ■'* . Bjötn í Bæ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.