Morgunblaðið - 07.02.1986, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
13
neyddust þeir til að draga úr fram-
leiðslu.
Síðasta sumar tók steininn úr:
Olíuframleiðsla í Saudi-Arabíu fór
niður í tvær milljónir tunna á dag
og nú nálgaðist kreppuástand.
Á fjórum árum hafði hlutur
OPEC-ríkjanna á heimsmarkaði
skroppið saman. Hlutföll innan olíu-
heimsins höfðu tekið stakkaskipt-
um. Aðildarríki OPEC höfðu séð
vestrænum ríkjum fyrir 75 prósent-
um olíunnar, en nú héldu þeir aðeins
38 prósentum af markaðinum.
Slagurinn stendur fyrst og
fremst milli OPEC og Breta og
Norðmanna. Bretar og Norðmenn
framleiða nú meiri olíu en forystu-
ríki OPEC, Saudi-Arabía.
„Aðgerðir Yamanis beinast fyrst
og fremst gegn Bretum," segir
Hellmuth Buddenberg, svæðisstjóri
hjá breska olíufélaginu BP. Bretar,
jafnt sem Norðmenn, hafa látið
framleiðslutakmarkanir lönd og leið
af þeirri einföldu ástæðu að þeir
eru ekki félagar í OPEC og bæði
Bretland og Noregur eru iðnríki.
Nú hefur Yamani aftur komið
því til leiðar að tunna af hráolíu
kostar um 16 dollara. Það þýðir að
Norðursjávarolíufurstamir hagnast
aðeins á stærstu olíusvæðum sínum,
t.d. Brent-olíusvæðinu. Þau svæði,
sem ekki eru jafn gjöful, veita lítinn
sem engan arð í aðra hönd.
Þetta getur komið sér illa fyrir
Breta. Þeir em háðir olíutekjum
sínum bæði í milliríkjaviðskiptum
og til að halda gengi sterlings-
pundsins stöðugu.
Lágt verð dregtir úr
nýjum framkvæmdum
Þá fer einnig svo að ekki svarar
hagnaði að reyna fyrir sér á nýjum
svæðum. Sem ef til vill hefði ekki
verið nein spuming þegar olían var
dýrari. Það er augljóst að olíufélög-
in þurfa að spara í framtíðinni. Og
það er víst að sá niðurskurður
verður gerður í olíuleit. Olíufélögin
munu gera minna til að tryggja
framtíð sína.
Áður en aðgerðir Yamanis sögðu
til sín var ráðgert að vetja 6,5 pró-
sentum minna af fé í að bora eftir
nýjum olíulindum en á síðasta ári.
Nú má búast við að aðhaldið verði
meira.
Um þessar mundir er olíuforði
heimsins talinn vera um 630 til 715
milljarðar tunna. Þessi forði dugar
mannkyninu næstu 32 ár ef orku-
notkun helst óbreytt. Einu olíulind-
imar, sem fundist hafa nýlega og
eru meira en aðeins dropi í olíuhaf-
ið, em þær mexíkönsku.
Olíuverðhrunið á einnig eftir að
minnka lánstraust olíufyrirtækja og
olíuríkja. Bankar neyðast nú til að
endurskoða útlánastefnu sína. Setj-
um sem svo að lántaki geri ráð
fyrir að hagnast svo og svo mikið
á því að framleiða eina olíutunnu
og taki lán samkvæmt því. Þegar
þessar spár bregðast og olían lækk-
ar í verði getur sá hinn sami ekki
staðið í skilum.
Þetta kemur sér illa fyrir Mex-
íkó, Venezuela, Nígeríu og írak, svo
að dæmi séu nefnd. Þrátt fyrir mikil
olíuviðskipti em þessi ríki svo skuld-
ug að þau geta tæplega borgað
vextina af skuldum sínum.
Olíuborpall & Norðursjónum.
Borað eftir olíu í Saudi-Arabíu.
Fórnarlömb olíuverð-
lækkunar
í slíkum tilfellum er um tvennt
að ræða fyrir bankana: Minnka
lánstraust, sem hefði gjaldþrot við-
skiptavinarins í för með sér, eða
gefa skuldir eftir að hluta til og
það geta ýmsir bankar, einkum
bandarískir, ekki leyft sér án þess
að bíða skipbrot.
Olíufyrirtæki, olíuríki og bankar
á vesturlöndum em fórnarlömb ol-
íuverðlækkunarinnar. Þetta em
þeir aðiljar, sem áður græddu á háu
olíuverði. Iðnríki og þróunarlönd,
sem ekki eiga eigin olíulindir, hagn-
ast aftur á móti á verðlækkuninni.
Olíuverðlækkunin á eftir að hafa
hagvöxt í Bandaríkjunum í för með
sér og fari verð á olíutunnu niður
í 15 dollara gæti hann orðið milli
1,2 og 1,5 prósent. Áður höfðu
hagfræðingar lagt fram tölur, sem
sýndu fram á mun verri markaðs-
horfur.
Og þetta á ekki aðeins við um
Bandaríkin. Ódýrari orka hleypir lífi
í iðnaðinn og Vestur-Þjóðveijar
njóta sérstaklega góðs af því. 30
prósent verðlækkun á olíu gerir að
verkum að hráolía verður 50 pró-
sent ódýrari fyrir Vestur-Þjóðveija
en fyrir einu ári vegna þess að
gengi marksins hefur einnig hækk-
að gagnvart dollara. Þar hefur
bensín þegar lækkað talsvert og
stjóm Helmuts Kohl getur sýnt
fram á árangur, sem hún í raun
þurfti ekki að hafa fyrir.
Hið háa olíuverð var reiðarslag
fyrir fátækar þjóðir. Árið 1981 fóm
83 prósent af útflutningstekjum
Tyrkja til olíukaupa, 77 prósent í
Senegal og 52 prósent í Brasilíu.
1985 stóðu bæði Tyrkir og Senegal-
ar betur að vígi, en staða Brasilíu-
manna versnaði og Thailendingar
og stjómin í E1 Salvador áttu í
miklum erfíðleikum.
Á meðan iðnaðurinn brýtur af
sér allar viðjar og þróunarlöndin
rétta úr kútnum velta sérfræðingar
fyrir sér hversu lengi þessi staða
haldist. í olíuheiminum er allra
veðra von og þegar leggja á línumar
til langframa þannig að olíumark-
aðurinn haldist óbreyttur gerist
yfirleitt hið gagnstæða. Sem vissu-
lega bitnar jafnframt á neytandan-
um.
Fari olíuverðið niður fyrir 15
dollara (sem allt bendir til) þá borg-
ar sig óvíða að nýta aðrar orkulind-
ir, að eldivið undanskildum.
Kosti olíutunnan 15 dollara verð-
ur óhagkvæmt að bora eftir olnf
nema í eyðimörkum og svo ódýr
olía dregur úr þörf hins almenna
borgara til orkuspamaðar. Og það
var orkuspamaður, sem olli falli
OPEC.
Olíulindir utan OPEC-ríkjanna
sjá nú fyrir rúmlega helmingi olíu-
þarfar vesturveldanna. En þessar
olíulindir em ekki óþijótandi. Olíu-
lindir Bandaríkjamanna þrýtur að
mestu eftir níu ár.
Ef Bretar vinna áfram jafnmikla
olíu og þeir gera nú endast forða-
búr þeirra næstu fjórtán ár og sama
gildir um Sovétmenn.
Hins vegar endist olíuforði aust-
urlanda nær allt frá 60 ámm (íran)
til 250 ára (Kuwait), ef framleiðslan
helst sú sama og nú.
OPEC aöeins í öldudal?
Það em í mesta lagi tíu ár þar
til framleiðsla dregst saman á þeim
olíusvæðum, sem veittu brautar-
gengi til að bijóta á bak aftur veldi
OPEC. Og eftir tíu ár má búast við
að Sovétmenn þurfi einnig að leita
á náðir OPEC-ríkjanna.
Talið er að hlutur OPEC á heims-
markaði aukist í 55 prósent á næsta
áratug.
*
Aframhaldandi olíu-
lækkanir?
Eins og stendur em forysturíkin
innan OPEC, Saudi-Arabía og
Kuwait, staðráðin í að halda áfram
verðstríðinu þrátt fyrir mótbámr
frá öðmm aðildarríkjum. Olíuríki
lækka nú olíuverð á víxl. Mexíkanar
lækkuðu verðið um 4 dollara á olíu-
tunnu um síðustu helgi og íranar,
Líbýumenn og Alsírbúar gerðu slíkt
hið sama á miðvikudag. Olíutunnan
frá þremur síðasttöldum aðiljum
kostar þó 26 dollara eftir lækkun-
ina. En þeir em einnig þekktir fyrir
að manga með vöm sína og því
má gera ráð fyrir að endanlegur
kaupsamningur hljóði upp á lægra
verð.
„Næsta árið hugsum við ekki um
tekjur," segir embættismaður frá
Kuwait: „Þetta ástand á eftir að
ríkja í hálft ár og olíuverðið verður
á milli 15 og 10 dollarar tunnan.
Eftir þann tíma breytist afstaða
framleiðenda Norðursjávarolíu og
þeir munu minnka framleiðslu til
að stöðva verðhmnið." Breska
stjómin segist aftur á móti ekki
gefa eftir og olíuframleiðsla Breta
muni aðeins lúta fijálsum markaðs-
lögmálum um framboð og eftir-
spurn.
Heimildir: The Economist, Newsweek, Time,
FinanciaJ Times, The New York Times, Der
Spiegelog AP.
ALVORU
tíTIHURÐASÝNING
Á þessari meiriháttar sýningu i sýningarsal okkar að Kársnesbraut 98, Kópavogi, sýnum við
okkar glæsilega og f jölbreytta úrval HIKO-útihurða. Láttu þig ekki vanta ef þig vantar útihurð.
LAUGARDAG 8. FEBRÚAR g
OG
SUNNUDAG 9. FEBRÚAR
KL. 10-17
: y i n
r --.. I! r--T 11 — " 1 -■'l'.TI
HURÐAIÐJAN
KÁRSNESBRAUT 98 - SÍMI43411
200 KÓPAV0GUR