Morgunblaðið - 07.02.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
17
EINSDEÐUR SK4KVIÐBURÐUR
Í HAMRAHLÍÐARSKÓIA
NORÐURLÖND
BANDARÍKIN
Eimskip gegn Dags-
brún í Félagsdómi
GERT ER ráð fyrir að í næstu viku falli dómur i Félagsdómi í máli
þvi sem Vinnuveitendasamband íslands fh. Eimskipafélagsins hðfðaði
gegn Alþýðusambandi íslands fh. Dagsbrúnar vegna uppskipunar-
og afgreiðslubanns félagsins á suður-afrískar vörur i Reykjavíkur-
höfn. Munnlegur málflutningur fór fram sl. mánudag.
Mál þetta hefur verið fyrir Fé-
lagsdómi síðan í haust. Af hálfu
Dagsbrúnar hefur tvisvar verið gerð
krafa um frávísun málsins og var
orðið við því fyrra sinni en ekki hið
síðara. Síðari úrskurðinum áfrýjaði
Dagsbrún til Hæstaréttar, sem
staðfesti úrskurð Félagsdóms um
að málið skyldi rekið þar áfram.
Myndin var tekin í málflutningi
fyrir Félagsdómi á mánudaginn.
Dómararnir eru fyrir miðrju - frá
vinstri: Ámi Guðjónsson hrl. til-
nefndur af Alþýðusambandi ís-
lands, Bjöm Helgason hæstaréttar-
ritari, Ólafur St. Sigurðsson, dóms-
formaður, og Gunnlaugur Briem,
yfírsakadómari, allir tilnefndir af
Hæstarétti, og Gunnar Guðmunds-
son, hdl., tilnefndur af Vinnuveit-
endasambandi íslands. Fyrir hönd
VSÍ sækir málið Kristján Þorbergs-
son lögfræðingur, sem er lengst til
vinstri á myndinni, en veijandi
Dagsbrúnar, Atli Gíslason, hdl.,
situr andspænis honum.
Hekla verður
ekki rekin
í óbreyttri
mynd áfram
— segir Jón Signrðar-
son forstjjóri Iðnaðar-
deildar SÍS
Akureyri, 5. febrúar.
„HEKLA verður ekki rekin
áfram í óbreyttri mynd en við
höfum ákveðna von um að geta
rekið hana í öðru formi,“ sagði
Jón Sigurðarson, forstjóri Iðnað- :
ardeildar SÍS á Akureyri, f sam-
tali við Morgunblaðið í dag — er
hann var spurður um þær hug-
inyndir að Iðnaðardeildin taki
yfir rekstur fataverksmiðjunnar.
Jón sagði þá vera að skoða þann
möguleika að Hekla yrði rekin sem
hluti af Iðnaðardeildinni og „starf-
semin yrði þá tengd útflutnings-
starfsemi á einhvem máta, en
hvemig get ég ekki sagt um. Við
höfum ákveðið að taka okkur hálfan
mánuð í að skoða þetta mál,“ sagði
Jón.
Heyrst hefur að ákveðnir aðilar
hafí áhuga á að leigja aðstöðuna i
Heklu og reka fyrirtækið áfram.
Jón var spurður hvort tii stæði að
leigja aðstöðuna.
„Nei, ekki eins og staðan er í ;
dag. Ef við rekum fyrirtækið hins
vegar ekki áfram munum við að
sjálfsögðu athuga þann möguleika
frekar en að láta húsnæðið standa
autt og vélamar ónotaðar," sagði j
Jón.
LEGUKOPAR
Legukopar og fóöringar-
efni í hólkum og heilum
stöngum.
Vestur-þýzkt úrvals efni.
Atlas hf
Borgartúni 24 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavfk.
Laugardag og sunnudag, 8.og 9. febrúar
Allir fremstu skákmeistarar þjóöanna taka
þátt í mótinu, 20 stórmeistarar og 6 alþjóðlegir
meistarar.
Tefldar veröa 2 umferöir á 12 borðum.
Dagskrá:
Laugardagur kl. 13.00: Setningarathöfn
— — 13.30-19.30: l.umferð.
Sunnudagur — 13.30-19.30: 2. umferö.
Allur aðgangseyrir rennur til Skákminjasafns S.í.
SKÁKSAMBAND NORÐURLANDA
l
j
V|S/VS0