Morgunblaðið - 07.02.1986, Page 19
'MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986
19
Röng skráning gengis
og fjármagnskostnaður
eru stærstu vandamálin
— segja Guðlaugur Bergmann í Karnabæ og
Karl Friðrik Kristjánsson í Ultíma um stöðuna
í fataiðnaði hérlendis
ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja niður fataverksmiðjuna Heklu sem
Samband íslenskra samvinnufélaga rekur á Akureyri, frá og með
1. aprU nk. eins og frá hefur verið greint i Morgunblaðinu. Ástæðurn-
ar eru rekstrarörðugleikar og erfið samkeppnisaðstaða að sögn
forráðamanna verksmiðjunnar. Morgunblaðið hafði samband við
Karl Friðrik Kristjánsson, framkvæmdastjóra Últíma og Guðlaug
Bergmann, forstjóra Karnabæjar hf., og spurði um álit þeirra á stöðu
íslenska fataiðnaðarins.
Guðlaugur Bergmann forstjóri
Kamabæjar sagði að sitt stærsta
vandamál væri og hefði verið í
mörg ár að fá fólk til vinnu. „Það
hefur enginn viljað hlusta á það í
þessu þjóðfélagi þegar bent er á
að enginn vilji vinna við framleiðslu-
iðnaðinn," sagði Guðlaugur. „Laun-
in em lág í þessari iðngrein en ég
státa mig af því að borga hæsta
bónustaxta, sem um getur í fataiðn-
aði. Samt sem áður lendi ég í vand-
ræðum með framleiðsluna vegna
manneklu," sagði Guðlaugur.
„Það er staðreynd að fataiðnað-
urinn stendur ekki vel í dag,“ sagði
Karl Friðrik Kristjánsson fram-
kvæmdastjóri Últíma. „Gjaldeyrir
er á útsölu og er búinn að vera það
lengi. Útlitið í iðngreininni er því
ekki glæsilegt á meðan gengið er
svo vitlaust að það er ódýrara að
flytja inn föt en að framleiða þau
hér. Innflutt föt er hægt að selja
með ágætri álagningu og eru þau
oft ódýrari en kostnaðarverð við
saumaskap og kaup á efni hér
heima."
Karl sagði að ástandið hefði farið
versnandi á síðustu tveimur árum
og ætti ekki eingöngu við um karl-
mannafatnað heldur allan innflutt-
an fatnað, hvort heldur sem hann
er fluttur inn á Efta-skilríkjum eða
ekki. „Við kröfsum í bakkann og
vonandi kemur ekki til þess að við
þurfum að loka. Það sem bjargar
okkur eru föstu viðskiptavinimir
sem þurfa sérsaumuð föt, passa
ekki í venjulegar stærðir og svo
saumum við einkennisbúninga fyrir
lögreglu, slökkvilið, vagnstjóra og
fleiri. Þetta er sú framleiðsla sem
heldur lífínu í okkur," sagði Karl.
Guðlaugur Bergmann og Karl
voru sammála um að röng gengis-
skráning og mikill fjármagnskostn-
aður væru stærstu vandamálin, sem
steðjuðu að þessari iðngrein. „En
ekki má gleyma innflutningi á fatn-
aði frá ríkjum þriðja heimsins þar
sem laun eru mun lægri en við
þekkjum hér,“ sagði Guðlaugur. í
öllum löndum nema íslandi, sem
era aðilar að Efnahagsbandalagi
Evrópu, er í gildi kvóti á innflutn-
ingi frá þriðja heims ríkjum og
honum fylgt fast eftir. „í tískufatn-
aði, sem ég framleiði, gildir það
eitt að vera fyrstur með vörana og
fylgjast vel með nýjungum. Hugs-
anlega hefur þeim hjá Heklu ekki
tekist að ráða við þá samkeppni sem
er á innflutningi á venjulegum fatn-
aði ef svo má að orði komast. Sér-
staklega með það í huga að Aust-
ur-Evrópuþjóðimar eiga það til að
selja sína fataframleiðslu langt
undir kostnaðarverði þegar þá
skortir erlendan gjaldmiðil. Ég get
ekki sagt annað en að mér þyki
leiðinlegt að heyra hvemig komið
er fyrir Heklu því ég hef alltaf borið
virðingu fyrir framtakssemi þeirra
sambandsmanna í iðnaði á Akur-
eyri.“
Kartöfluverksmiðjurnar á Svalbarðs-
eyri og í Þykkvabæ;
Sækja um niðurgreiðslu á
hráefni til verksmiðjanna
Akurcyri 5. febrúar.
Kartöfluverksmiðju Kaupfé-
lags Svalbarðseyrar, þar sem
framleiddar eru Fransman kart-
öflur, verður lokað eftir helgina.
Er KEA tók rekstur Kaupfélags-
ins á Svalbarðseyri um helgina
var lokað fyrir kartöflumóttöku.
Unnið verður úr því efni sem til
er en starfsemi síðan hætt.
„Við treystum okkur ekki til að
reka þetta með tapi eins og gert
hefur verið undanfarið. Tapið hefur
skipt milljónum króna á ári undan-
farið," sagði Bjami Hafþór Helga-
son, sem hefur yfírumsjón með
starfseminni á Svalbarðseyri fyrir
hönd KEA, í samtali við Morgun-
blaðið í dag.
Hafþór sagði ástæðuna fyrir
tapinu þá að hráefni til verksmiðj-
unnar væri allt of dýrt. „Stjómvöld
hafa leyft innflutning á tilbúnum
frönskum kartöflum en ekki á hrá-
vöra. Ég trúi ekki öðra en að stjórn-
völd skilji vanda kartöfluverksmiðj-
anna. Vandinn er mikill en stjórn-
völd geta leyst hann, sagði hann.
Kartöfluverksmiðjumar á Sval-
barðseyri og í Þykkvabæ hafa sótt
um það til stjómvalda að ríkið nið-
urgreiði hráefni, íslenskar kartöfl-
ur, til verksmiðjanna. „Ríkið greiðir
hráefni í ullariðnaði og mjólkurduft
og súkkulaði til sælgætisfram-
leiðslu niður í heimsmarkaðsverð.
Við eram að sækja um þetta sama
— að hráefnið til okkar verði greitt
niður í heimsmarkaðsverð, “ sagði
Karl Gunnlaugsson, kaupfélags-
stjóri á Svalbarðseyri, í samtali við
Morgunblaðið í dag.
Bjarni Hafþór Helgason sagði
það markmið KEA að halda uppi
starfsemi á fullum krafti á Sval-
barðseyri og vonaðist hann því til
að stjómvöld leystu vanda kartöflu-
verksmiðjunnar. „Það ríkir óvissa á
svæðinu — bæði hjá starfsmönnum
kaupfélagsins og viðskiptavinum
þess. Þessari óvissu er nauðsynlegt
að eyða,“ sagði Hafþór.
Ráðstefna um mann-
fjölgunarmál
ALÞINGISMENNIRNIR Árni
Johnsen, Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir og Steingrímur
Sigfússon fara í næstu viku til
Haag í Hollandi þar sem þau sitja
ráðstefnu um mannfjölgunar-
vandamálið og stöðu barna og
kvenna. Það eru samtök Evr-
ópuþingmanna, sem standa fyrir
þessari ráðstefnu. Síðastliðið
haust gengust Sameinuðu þjóð-
irnar fyrir ráðstefnu um þetta
mál i Kaupmannahöfn og sóttu
hana þau Arni Johnsen og Krist-
ín Halldórsdóttir. Reiknað er
með að 120 þingmenn sæki þing-
ið i Haag.
Við bjóðum
Bollurnar strax í dag.
.00 Pr- stk.
AÐEINS AtjRjóLboHur
— Púnsbollur
Glænýjar og Krembollur
gríðarlega freistandi
Beikon pörulaust
Feitt kjöt, magurt kjöt,
kjöt eins og þú vilt
% hafa það — þú velur,
við gerum eins
og þú vilt.
Saitað spekk
i Nýtt spekk
I Reyktspekk
Laukur
Hvítlaukur
Rauðlaukur
Perlulaukur
Gular baunir Gulrætur
Gulrófur Hvítkál
Fyrir Sprengidag:
Bæjarins besta saltki"
Kynnum í Mjóddinni:
Uppskrift fylgir
Kindabjúgu 1 7SS
Fjölskyldupakkning ^ <“7 M / m. J
Gæði nr.l
orramatur
• Lundabaggar
• Hrútspungar
• Bringur
• Magáli
• Hvalur
• Nýreyktur
rauömagi
• Harófiskur
i úrvali
• Rófustappa
• Vestfirskur
gæóahákarl
• Nýttslátur
Blóðmör
Lifrarpylsa
• Kartöflusalat
• Flatkökur
• Rúgbrauö
• Ný svióasulta
• Súr sviöasulta
Ooið til kl. 20 í Mióddinni - entiiki. 19