Morgunblaðið - 07.02.1986, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐID, FÓSTUDAGUR 7. FEBRÚAR1986_
Grikkland
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir CHARLES J. GANS
Fyrsta óháða friðar-
hreyfingin í Póllandí
FYRSTA óháða friðarhreyfing Póllands er nú í þann mund að
festa rætur og það enda þótt hún hafi opinberlega verið lýst
ólögieg og sumir af meðlimum hennar fangelsaðir.
rátt fyrir kúgunina, þá
munum við ekki gefast upp,“ segir
Jacek Czaputowicz, sem unnið
hefur að því að stofna þessa hreyf-
ingu, er fengið hefur nafnið
„Frelsi og friður“. Síðan bætir
hann við: „Friður er ekki mögu-
legur án þátttöku þjóðfélagsins
bæði í austri og í vestri."
Hreyfingin Frelsi og friður var
stofnuð í marz í fyrra. í henni eru
á annað hundrað virkir meðlimir
í fjórum pólskum borgum, en auk
þess á hreyfingin mörg þúsund
stuðningsmenn. Þeirra á meðal
er Lech Walesa, leiðtogi Sam-
stöðu, samtaka hinna fijálsu
verkalýðsfélaga og friðarverð-
launahafi Nóbels 1983.
Hreyfíngin er mynduð af nýrri
kynslóð pólskra andófsmanna
með svipuðum hætti og svonefnd
Vamamefnd verkamanna (KOR),
er hún var stofnuð fyrir einum
áratug. í hópi félaga hinnar nýju
hreyfingar, sem eru flestir á þrí-
tugsaldri, er Maciej Kuron, sonur
Jaceks Kuron, en sá síðamefiidi
eins og þau að Mið-Evrópa verði
gerð að hlutlausu svæði og að
bundinn verði endir á skiptingu
Evrópu í andstæðar fylkingar.
Þeir sem standa fyrir þessari
hreyfingu viðurkenna þó, að að
þessi markmið eru draumóra-
kennd og ekki raunhæf. Kröfur
þeirra á hendur pólskum stjóm-
völdum eru því aðrar.
Á fundi í janúar í íbúð Kurons
í Varsjá, gerði Czaputowicz grein
fyrir markmiðum hreyfmgarinn-
ar. Þar var þess m.a. krafizt, að
hermanns, sem tekinn var af lífi
í síðari heimsstyijöldinni fyrir að
neita að skjóta á pólska borgara.
Opinberar refsiaðgerðir
Hreyfingin Frelsi og friður var
stofnuð í marz í fyrra, en þá stóð
yfir vikulangt hungurverkfall í
kirkju einni í úthverfi Varsjár í
mótmælaskyni við fangelsun á
námsmanninum Marek Adamki-
ewicz, sem neitað hafði að gegna
herskyldu.
Adamkiewicz, sem er 28 ára
gamall, afplánar nú 2 ’A árs
fangelsi fyrir að neita að hafa
yfir pólska hermannaeiðinn, sök-
um þess að þar er lýst yfír stuðn-
ingi við sovézka herinn.
Ástandið f Póllandi hefur stundum verið lfkast styrjaldarástandi.
Hér sést fólk flýja undan táragassprengjum hermanna, eftir að
eldur hafði verið borinn að lögreglubU. Mynd þessi var tekin
skammt f rá skipasmiðastöðvunum í Gdaúsk á sínum tfma.
er leiðtogi KOR og einn þekktasti
andófsmaður Póllands.
Á meðal félaganna eru enn-
fremur fyrrverandi leiðtogar
Óháðu stúdentasamtakanna, sem
bönnuð hafa verið, en þau voru
stofnuð á Samstöðutímabilinu
1980—1981. Stjómvöld hafa ekki
leyft neina sjálfstæða friðarstarf-
semi, sem skipulögð væri af öðr-
um en hinni opinberu pólsku frið-
amefnd, sem styður stefnu Sovét-
ríkjanna.
Frelsi og friður leitar líkt og
aðrar óopinberar friðarhreyfingar
í Austur-Evrópu eftir stuðningi
friðarhreyfínga á Vesturlöndum í
þeim tilgangi að knýja Sovétríkin
og fylgiríki þeirra til þess að virða
mannréttindi og vinna að lýðræð-
isumbótum.
Enginn friður án frelsis
„Það er enginn friður til án
frelsis, þjóðlegs sjálfstæðis, lýð-
ræðis og mannréttinda," segir
Czaputowics, sem getið var hér
að framan. Hann heldur því fram,
að friðarhreyfing sín hafi hlotið
stuðningsyfírlýsingar frá helztu
friðarhreyfíngum Bretlands, Hol-
lands og Frakklands.
Hreyfíngin Frelsi og friður á
ýms markmið sameiginleg með
friðarhreyfíngum á Vesturlöndum
ungir menn, sem fangelsaðir
höfðu verið fyrir að neita að gegna
herskyldu, yrðu látnir lausir og
að þeir, sem samvizku sinnar
vegna neituðu að ganga í herinn,
fengju að gegna öðm starfí í
staðinn og að hugmyndafræðileg
yfirlýsing um stuðning við Sovét-
ríkin í pólska hermannaeiðnum
yrði felld niður.
„Ef stjómvöld framkvæmdu
slíkt, þá væri það sönnun um, að
yfírlýsingar þeirra um frið eru
ekki orðin tóm,“ segir Czap-
utowic. „Við getum ekki bytjað
að tala um hluti eins og kjamorku-
vopn eða fækkun herliðs eða
hlutlausa Evrópu, ef það er ekki
einu sinni unnt að verða við jafn
eðlilegum kröfum og þessum."
í maímánuði síðastliðnum
bönnuðu yfirvöld í borginni
Krakow í suðausturhluta Póliands
hreyfínguna með þeim rökum, að
af henni „stafaði hætta fyrir
almannafrið í landinu", þar sem
fram kæmi í stefnuyfírlýsingu
hennar, að skilyrði fyrir friði væru
ekki til staðar nú í landi sem
Póllandi.
Lögreglan hafði Qortán með-
limi hópsins í haldi í 6 klukku-
stundir í nóvember, er þeir reyndu
að grípa til mótmælaaðgerða til
stuðnings friði við gröf þýzks
Wejciech Jaruzelski, forseti
Póllands og leiðtogi pólska
kommúnistaflokksins, heiðrar
hermenn á hersýningu i Pozn-
an. í pólska hermannaeiðnum
er lýst yfir hollustu við sovézka
herinn og hefur það vakið
mikla óánægju á meðal ungra
Pólveija, sem fara með eiðstaf-
inn, þegar þeir eru teknir i
herínn.
I desember sl. var Wojciech
Jankowski, 21 ársgamall meðlim-
ur í hreyfingunni Frelsi og friður,
dæmdur í 3 'A árs fangelsi fyrir
að neita að gegna herþjónustu.
Herdómstóll hafnaði ósk hans um
að fá af siðferðistæðum að gegna
einhveija einhveiju öðru starfi í
þágu landsins.
Jankowski var í hópi 28 með-
lima hreyfíngarinnar Frelsi og
friður, sem endursendu herkvaðn-
ingarbréf sín til vamarmálaráðu-
neytisins til þess að mótmæla
fangelsun Adamkiewicz. Dóm-
stólar hafa sakfellt 12 þeirra, en
nær allir hafa þeir neitað að greiða
sektir þær, sem þeim var gert að
greiða, allt að 50.000 zloty. í stað
þess lýstu þeir því yfir, að þeir
vildu heldur afplána 50 daga
fangelsisdóm.
Czaputowicz hefur sagt, að
pólskir friðarsinnar vildu fá „sömu
möguleika" til að efna til mót-
mælaaðgerða í því skyni að fylgja
eftir kröfum sínum og sjá megi í
hinu ríkisrekna sjónvarpi, sem oft
segir frá mótmælaaðgerðum fyrir
utan herstöðvar Bandaríkja-
manna í Vestur-Evrópu.
„Ekkert er rangara en sú skoð-
un, að sökum þess að hér fara
ekki fram neinar mótmæiaaðgerð-
ir, þá styðji pólska þjóðin ekki
frið og leggi blessun sína yfir til-
vist sovézka hersins í Póllandi,"
er haft eftir honum. „Aðeins refsi-
aðgerðir halda fólki frá þess konar
aðgerðum."
(Höfundurínn er fréttarit-
ari fyrir Associated Press.)
Aðhaldsaðgerðir
í efnahagsmálum
Aþenu, 6. febrúar AP.
GRÍSKA stjómin kunngerði í gær nýjar ráðstafanir í efnahagsmálum.
Er þeim ætlað að draga úr hinni hröðu verðbólgu í landinu og koma
í veg fyrir áframhaldandi stórfelldar lántökur erlendis.
Áformað er að koma verðbólg- fólu í sér innflutningshömlur og
unni niður í 16% fyrir árslok, en
hún var 25% í desember sl. miðað
við eins árs tímabil. Jafnframt á
að koma erlendum lántökum niður
í 1,7 milljarða dollara á þessu ári,
en þær námu 3,2 milljörðum dollara
á síðasta ári.
í október sl. felldi stjómin gengi
grísku drökmunar um 15% og var
það þáttur í aðhaldsaðgerðum, sem
einnig kaupbindingu í reynd.
Það var Costas Simitis efnahags-
málaráðherra, sem í gær gerði
fréttamönnum grein fyrir hinnum
nýju efnahagsráðstöfunum. Sagði
hann, að stjómin myndi keppa að
því að opinberar lántökur yrðu ekki
meira em 13,2% af þjóðartelqunum
á þessu ári, en þær námu 19,4% á
síðasta ári.
Austurríki:
Utflutningnr á víni
minnkar um helming
Vín, 6. febrúar. AP.
VÍNÚTFLUTNINGUR Austurríkismanna minnkaði um helming
á síðasta ári miðað við 1985 vegna hneykslisins, sem varð þegar
upp komst að austurrískir víngerðarmenn höfðu bætt frostlegi
út í vín sitt til að auka á sætleika þess. Þetta kemur fram í
skýrslu, sem austurríska hagstofan birti í dag.
í skýrslunni segir að Austurríkis-
menn hafi flutt út 269.467 hektó-
lítra af víni 1985, sem er 56 pró-
sentum minna en 1984. Þá vom
fluttir út 478.438 hektólítrar.
Austurrískt vín hvarf af búðar-
hillum um allan heim á síðasta ári
eftir að bruggarar voru staðnir að
því að setja dietylen-glykol í vínið
tii bragðauka. Diethylen-glykol er
notað í sumar gerðir frostlagar.
Vestur-Þjóðveijar kaupa mest
vín af Austurríkismönnum.
Rúmlega 70 víngerðarmenn,
sölumenn og efnafræðingar voru
handteknir þegar hneykslið komst"
í hámæli. Margir hafa verið sektaðir
og dæmdir í fangelsi og réttarhöld
fara enn fram í málum annarra.
Heilbrigðisyfirvöld segja að diet-
hylen-glykol geti verið banvænt, sé
þess neytt. Aftur á móti hefur
enginn beðið bana af neyslu eitur-
víns, svo sannað hafi verið.
Bandaríkin:
Þrítug kona í
heimi aldraðra
New Jersey, 6. febrúar. AP.
PATRICIA Moore dulbjóst sem 85 ára gömul kona 1979 í þeim
tilgangi að komast að hvernig það væri að vera aldraður i
Bandaríkjunum. Þremur árum síðar tók hún af sér gráa hár-
kolluna og þvoði af sér hrukkurnar. Hún var lurkuin lamin
bæði á sál og líkama og staðráðin í að breyta afstöðu landa
sinna til aldraðra.
Moore, sem er 33 ára, skrifaði
bók um reynslu sína: „Dulbúin:
Sönn saga“. „Þjóðfélag okkar er
Darwinskt, hinir hæfustu lifa af,“
segir Moore. „Ef þú ert ekki við
góða heilsu, máttu passa þig að
vera ekki fyrir.
Fordómar gagnvart öldruðum
eru algengir, að sögn Moore, og
hún bætir við að afstaða manna til
aldraðra þurfi að taka stakkaskipt-
um og einnig verði að vinna bug á
stereotýpum til að aldraðir fái rétt-
láta meðferð.
Árið 1979 starfaði Moore við
hönnunarfyrirtæki í New York. Það
fór í taugamar á henni hversu
fyrirtækið var tregt til að hanna
hluti, sem féllu að þörfum aldraðra.
Hún keypti sér gráa hárkollu og
andlitsfarða, setti tappa í eyrun og
gleraugu á nefið. Hún batt spelkur
við fætur sér til að hefta hreyfingar
og tók á sig gervi þriggja persóna
með mismunandi klæðaburði.
Moore ferðaðist um 14 fylki og
mældi götur rúmlega 100 borga.
Alls staðar rakst hún á fólk, sem
skellti á hana hurðum. Á veitinga-
stöðum virtu þjónar hana vettugi,
afgreiðslumenn gáfu henni of lítið
til baka og allt var gert til að snuða
hana.
Tvisvar var ráðist á hana á götu
úti í New York. Fyrra skiptið var
hún lamin í rot og stolið af henni
tösku. Öðru sinni fóru að henni
unglingar í hóp saman og börðu
hana til óbóta.
Þegar Moore fletti af sér gervinu
1982 kveðst hún hafa verið orðin
tvískipt persóna: Annars vegar ung
og óspjölluð af þjóðfélaginu og hins
vegar fyrirlitin, vanrækt og véluð
kona á níræðisaldri.
Tveimur ítöl-
um vísað
frá Moskvu
Róm, 6. febrúar. AP.
TVEIMUR ítölum, sendiráðs-
starfsmanni og verslunarfull-
trúa, hefur veríð skipað að
yfirgefa Sovétríkin. Að sögn
ítalskra dagblaða voru menn-
irnir reknir brott sakaðir um
njósnir.
ANSA-fréttastofan segir að
verslunarfulltrúinn Marco Vian-
ello hafí dvalið í Sovétríkjunum
í tíu ár á vegum stálframleiðand-
ans Finsider.
Sovéska sendiráðið í Róm
staðfesti á miðvikudag blaða-
fregnir þess efnis að tveimur
sovéskum stjómarerindrekum
hefði verið vísað úr landi. Þeir
voru Victor Kopytin, sendiráðs-
ritari, og Andrei Chelukhin,
svæðisstjóri flugfélagsins Aero-
flot.